Þjóðólfur - 06.02.1903, Page 2

Þjóðólfur - 06.02.1903, Page 2
22 um bæjarstj.kosningar í Rvlk hafi verið látin byrja fyr en skyldi. 3. að ákvæði tilsk. 20. apr. 1872, um, að kosning skuli fara fram fyrir opnum dyrum hafi ekki verið fullnægt og 4. að kjörstjórnin hafi dregið um of, að bóka atkvæði sín. — Hinn nafnkunni miðlunarúrskurður meiri hluta bæjarstjórnarinnar 15. f. m., ergetið hefur verið áður um hér í blaðinu, er því felldur úr gildi, sem vænta mátti, því að sá ómyndar-úrskurður var sama sem engin leysing á málefni þvl, sem fyrir lá. Það var því sjálfsagt, að láta ekki við svo bú- ið standa, heidur halda kærunum áfram beina leið til landshöfðingja, enda eru nú úrslitin orðin þau, að bæjarfógeti verður nauðugur viljugur að gera bragarbót, og er það hálfleiðinlegur snoppungur fyrir hann og yfirdómarann Jón Jensson, erbáð- ir munu þykjast vita, hvað lög séu og hvern- ig haga eigi bæjarstjórnarkosningu lög- um samkvæmt, enda er það ekki neitt sérlega flókin eða vandasöm athöfn. En nú hafa þeir haldið, að þetta kosninga- hrákasmíði þeirra 5. f. m. gæti gengið ó- átalið. En það brást þeim. Er því von- andi, að allt fari löglegar og skipulegar fram við kosninguna nýju, sem á að fara fram á mánudaginn kemur 9. þ. m. í Iðn- aðarmannahúsinu. Ættu kjósendur að muna eptir, að kjörfundur hefst nú kl. 11 árdegii (ekki kl. 12), og er vissara fyrir menn, að koma nógu snemma á fundinn, og gæta þess, að fundarsetningin er nú færð fram um eina klukkustund, af hverj- um ástæðum sem það hefur verið gert. — Kosning tveggja endurskoðunarmanna bæjarreikninganna fer fram 12. þ. m. Eins og mönnum er kunnugt á nú að kjósa af hinum almenna gjaldendaflokki 9. þ. m. 7 menn í bæjarstjórnina til næstu 6 ára, og skiptir nú miklu, að það val tak- izt vel og öllu betur en 5. f. m. En þess- ir menn munu hafa einna almennast fylgi kjósenda í bænum: Arinbjörn Sveinbjarnarson bókbindari, Halldór Jónsson bankagjaldkeri, Jón Brynjólfsson skósmiður, Jón Jakobsson bókavörður, Jón Þórðarson kaupmaður, Magnús Blöndal snikkari, Tryggvi Gunnarsson bankastjóri. Um þessi fulltrúaefni ættu bæjarbúar ein mitt að fylkja sér. Fjórir þeirra hlutu kosningu 5. f. m. og 2 þeirra lágu mjög nærri því (Arinbjörn og Magnús Blöndal) en 1 (Jón Þórðarson kaupmaður) var í kjöri af hálfu hinna hærri gjaldenda 1,0. f. m., og fékk þá mörg atkvæði, þótt ekki nægðu til kosningar. En nú er hann kom- inn á fulltrúaefnaskrána við þessar vænt- anlegu kosningar í stað Gunnlaugs Péturs sonar, er að vísu hafði mikið fylgi síðast, og vantaði lítið til að ná kosningu, en hef- ur bæði þá og nú óskað 'alvarlega eptir, að vera ekki í kjöri, og er því sanngjarnt, að taka tillit til þess, og leysa hann úr þeim vanda. Nú ættu allir góðir drengir að vera sam- taka og velja þá menn eina í bæjarstjóm- ina, er almenningur getur verið ánægður með. Það þarf ekki að efast um, að nú sem fyr verður unnið ósleitulega að því, að troða inn í bæjarstjórn miður hæfum mönnum úr hinum svonefnda valtýska flokki, sem alstaðar er að reyna að ná fótfestu. Það þarf ekki að búast við neinni stefnubreytingu eða framfaraanda hjá nýju bæjarstjórninni, ef meiri hluti hennar verð- ur skipaður mönnum úr þeim flokki, eins og verið hefur í gömlu bæjarstjórninni, og haft hefur óheppileg, lamandi áhrif á fram- kvæmdir hennar. Þeir sem því vilja láta koma „nýtt blóð“ í bæjarstjómina, koma nýrri hreyfingu á hana, ættu ekki með at- kvæði sínu að fjölga þeirri „klíku", sem þar hefur verið ráðandi síðastliðin ár. Það veitti sannarlega ekki af, þótt eitthvert los kæmi á hana við þessar nýju kosningar. Vonandi að bæjarbúar sýni það við hina endumýjuðu kosningu á mánudaginn, að þeir vilji „endurnýja" bæjarstjórnina dá- lítið betur, en þeir gerðu síðast, því að það skiptir svo afarmiklu fyrir bæinn. Um Samson Eyjólfsson og „í saf old“. Þótt mál Samsonar Eyjólfssonar við Hannes bæjarfógeta Hafstein sé næsta ó- merkilegt, og í rauninni réttast að láta „Isafold" eina, eða ritstjóra hennar halda því á lopti, þá get eg samt ekki stillt mig um, að gera nokkiar athugasemdir við grein ritstjóra greinds blaðs, 24. janúar þ. á. sem þann nefnir „Torsóttur réttur". Þess skal fyrst getið, að Samson Eyjólfs- son kærði bæjarfógeta Hannes Hafstein fyrir mér út af skaða, sem hann þóttist hafa orðið fyrir við sprautuæfingar á Isa- firði; en kæru þessa gat eg ekki tekið til greina; fór þá Samson í ráðherrann, en hann fékk heldur enga áheyrn þar. Þess- ar kærur hans voru ekki merkilegar, en „Isafold" varast, að minnast á þessa útreið kærunnar til ráðherrans; þeim Samson mun hafa þótt það eiga bezt við, að tala ekkert um þessar ófarir hans. „Nú segir í grein „Isafoldar" á þessa leið: “Fyrst verður hann, að því er hann segir sjálfur frá og ekki hefur verið mót- mælt, fyrir ólöglegri tregðu, er hann biður um eptirrit af umsögn yfirvaldsins, þeirri, er meiðyrðin hafði að geyma, og verður að gera sér ferð til Kaupmannahafnar, til að ná þeim rétti sínum. Skjalið er þá fyrst laust látið, eða eptirrit af því, er hann hótar að snúa sér til ráðgjafans sjálfs". Hver átti að mótmæla þessu? Eg sé þessi ósannindi fyrst nú. Samson hef- ur aldrei mætt neinni tregðu hér á landi í nefndu tiliiti. Mér hefði verið ómögu- legt, að láta honum í té eptirrit af bréfi bæjarfógeta H. H., dags. 5. febr. 1900, þar sem hin umgetnu meiðyrði um S. E. eiga að finnast, þótt hann hefði beðið mig um það, því bréfið fór frá mér um hæl (28. febr. 1900) til landshöfðingja, áleiðis til ráðherrans, enda átti eg ekkert með að veita Samsoni nokkurt endurrit af bréfinu, á meðan eigi var útgert um kæru hans til ráðherrans, sbr. skýlaus fyrirmæli opins bréfs 12. marz 1870. Hann gat þá fyrst krafizt eptirritsins, er hann fékk enga á- heyrn kæru sinnar. Hið sama, sem eg segi hér um sjálfan mig, gildir vitanlega einnig um H. Hafstein sjálfan og lands- höfðingja. „ísafold" flytur því hér ósann- indi eptir Samson Eyjólfsson. Þegar fátæki kaupmaðurinn, Samson Eyjólfsson, hafði sjálfur sótt til Kaup- mannahafnar eptirritið, sem hann hefði geta skrifað eptir, og fengið með nokk- urra aura kostnaði í burðargjald, beiddi hann um setudómara og gjafsókn; eg skip- aði setudómarann, en gjafsóknina fékk hann ekki. Svo er fyrirmælt í lögum 12. júlí 1878, um gjafsóknir, að veita megi gjafsókn snauðum mönnum, sem hafa fá- tækravottorð sveitarstjórnar og sóknar- prests, og svo kemur einnig málstaður beiðanda til greina. Samson hafði ekkert fullkomið eða skýlaust vottorð um efna- leysi sitt, sem tekið yrði til greina, ogum málstað hans hef eg aðra skoðun, en rit- stjóri „Isafoldar". Hann fór í ráðherrann með kæru yfir þessu, en fékk þar afsvar. Það er óþarfi og fer illa á því, að ritstjór- inn kemur með dylgjur pg getsakir út af þessu, en mér er alveg sama um þær. Hann sannar sjálfur í grein sinni, að S. E. er allt annað en fátækur, þar sem þessi maður hefur, eptir greininni, efni á því, að fara til Kaupmannahafnar eptir endur- riti, sem hann hefði getað fengið þaðan með nokkurra aura kostnaði. Söguna sína um, að S. E. hafi haft út endurritið af fyrnefndu bréfi á skrifstofu stjórnarráðsins fyrir Island, með því að hóta þeim þar að fara í ráðherrann, verð- ur ritstjórinn að éiga sjálfur. Eg getfull- vissað hann um, að skrifstofustjórinn, Olafur Halldórsson, þekkir fyrnefnt opið bréf 12. raarz 1870. Ritstjórinn kallar það miður virðulega útreið, að H. H. skuli hafa orðið fyrir því, að illmæli hans um þann saklausa mann, Samson, eru dæmd dauð og ómerk, og hann þar að auki dæmdur í sekt og máls- kostnað. Fleirum en mér mun sýnast, að sá virðulegi ritstjóri höggvi nokkuð nálægt sjálfum sér hér. Eg man ekki betur, en að hann sjálfur hafi fengið bæði ómerk- ing meiðyrða sinna um annan mann í blaði sfnu, sektir og málskostnaðarútlát, og það er sá munurinn á Birni ritstjóra Jónssyni og Hannesi bæjarfógeta Hafstein hér, að H. H. hefur verið kvaddur til þess af yfirboðara sínum, að segja álit sitt um kæru Samsonar Eyjólfssonar, og þar af leiðandi um framkomu hans, en ritstjór- inn tekur það upp hjá sjálfum sér, að við- hafa þau orð um góðan mann, sem bakaði honum ógilding orða hans, sektir og máls- kostnaðarútlát. Málið milli S. E. og H. H. er ekki enn endilega útkljáð, og það munu fleiri dóm- arar fá að líta á það en þeir, sem hér eru á landi, áður en lýkur. Reykjavík, 26. jan. 1903. J. Havsteen. Pólitiskir títuprjónar. 411einkennilegur úrskurður var felldur í landsyfirréttinum 2. þ. m. í svonefndu »verðlagsskrármáli« úr Snæfellsnessýslu. Var yfirrétturinn þá fyrir stuttu búinn að vísa málinu heim til ítarlegri rannsóknar. En þetta var að eins eitt mál af fleirum, er höfðuð* voru gegn nokkrum hreppstjór- um þar í sýslu fyrir grunsemd um að hafa falsað verðlagsskrána á þann hátt, að skafa út tölur og afmá verðlag á vað- máli. Og dæmdi sýslumaður eitt þeirra, þetta er landsyfirrétti þótti ekki nægilega rannsakað. En skömmu eptir að yfir- rétturinn kvað upp þann úrskurð, voru birt tvö vottorð í »ísafold«, þar sem með- al annars einn maður vottar, að annar maður hafi sagt sér, að þriðji maðurinn hafi sagt honum, að sýslumaður hafi látið skila til sín, að taka ekki vaðmál í verð- lagsskrána. Við birtingu þessara vott- orða í Isafoldarblaðinu hleppur yfirrétturinn upp til handa og fóta, tekur málið fyrir að nýju og úrskurðar nú, að nú þegar sé settur rannsóknardómari til að rann- saka þessi verðlagsskrármál, og þar á meðal afskipti sýslumanns, og skýtur því til valdstjórnarinnar, að fela rannsókn þessa öðrum en sýslumanni, þ. e. með öðrum orðum, að skipa setudómara til rannsókna í málinu, að Lárusi sýslumanni fornspurðum. Heyrzt hefur að háyfir- dómarinn hafi ekki verið samþykkur þess- um úrskurði, en meðdómararnir báðir á einu bandi auðvitað, því að vottorðin stóðu í biblíunni þeirra. Hvort ástæða hafi verið fyrir yfirréttinn að taka svona mikið tillit til þessara vottorða í þessu Isafoldarblaði, skal hér ósagt látið, en eitt- hvað kynlega lítur þetta snögga viðbragð réttarins út. Sjálfsagt væri þeim Kr. Jóns- syni og J. Jenssyni harla óljúft, ef Lárus sýslumaður, vinur þeirra, yrði fyrir einhverju skakkafalli við þessa rannsókn, en sem betur fer geta þeir eflaust huggað sig við, að svo verður ekki, og að Lárus stendur jafnréttur eptir sem áður, þrátt fyrir allar tilraunir Isafoldar og fylgifiska hennar til áð sverta hann. Hann mun einskis frem- ur óska, en að illmæli mótstöðumanna hans verði rekin ofan í þá aptur af öðr- um dómara, og þeir standi sem minni menn eptir, enda er það nauðsynlegt til að taka duglega fyrir kverkar slíkum ó- fögnuði, svo að hann geti ekki þróast og og dafnað. Og þess vegna væri langrétt- ast af valdstjórninni, að láta það eptir yfirréttinum, að skipa mann til að rann- saka þetta, til að kveða óhróðurinn niður, því að vér erum sannfærðir um, að Lárus þarf ekki að vera smeikur við þá rann- sókn. Hann er hyggnara og samvizku- samara yfirvald en svo. „Rússa-kópar“. í blaðinu „Politiken" 13. f. m. sendir fréttaritari blaðsins í Kristjaníu því hrað- skeyti um ískyggilegan voða, er vofi yfir fiskiveiðunum í norðurhluta Noregs, og birtum vér grein þessa í lauslegri þýðingu, þvl að málefni þetta er allalvarlegt og í- hugunarvert einnig fyrir oss. En frettarit- arinn segir svo frá: „Yfir héruðunum í norðanverðum Nor- egi vofir alvarlegur fjárhagslegur voði, vegna feikimikillar aðsóknar af stórri sela- tegund, er „Rússakóþur" nefnist. Og þessi selamergð fer sífellt vaxandi. Selategund þessi heirosækir á ári hverju norðurströnd Noregs, en það hefur aldrei verið jafn stórkostlegt aðstreymi af henni sem nú, og sömuleiðis er óvenjulegt, að hún komí um þetta leyti árs. Selatorfan er eins og lifandi múrveggur við ströndina, fyllir alla firði, sund og víkur, og étur upp allan fisk, eða hrekur fiskigöngurnar til hafs. — Vetrarafli við Finnmörk hefur gersamlega brugðizt. I þeim héruðum, þar sem íbúar lifa aðallegaaffiskmeti, fá menn ekki einu sinni 1 soðið þann og þann daginn. Menn veiða og skjóta seli hundruðum saman, en fá engan fisk. Þorpin þar norður frá verða að flytja til sín fisk sunnan að, Ibúarnir eru mjög áhyggjufullir yfir útlitinu, ekki sízt yfir því, et selur þessi skyldi gersam- lega eyða aflanum í Lofoten, eins og marg- ir eru hræddir við. Fiskimenn og verzlunarmenn hafa hald- ið fjölmenna fundi til að ráðgast um, hvað til bragðs skuli taka og biðja um hjálp. Sendinefndir hafa verið gerðar á fund stór-. þingsins og stjórnarinnar. Það er al- mennt skoðun manna, að fækkun hval- anna eigi mikinn þátt í þessari auknu selamergð við Noregsstrendur, því að menn þykjast vita, að „Rússakópinn" hörfarfyr- ir hvalnum, og þessvegna heimta menn, að hvalveiðar séu bannaðar. Á síðari árum hefur Rússastjórn bannað norskum skipum að stunda selveiðar í Hvítahafinu, æxlunarstöð kópans, svo að hann hefur fengið næði til að fjölga svo feikilega mikið. Nú er verið að reyna að fá bann þetta afnumið. Einnig stungu fiskimenn upp á, að veita verðlaun fyrir útrýmingu selsins, og að herskip séu látin skjóta hann niður í hrúgum, jafnvel farið fram á, að hellt sé ótæpt steinolíu í sjóinn til að reka vogest þennan á flótta. Allir eru á einu máli um það, að Finnmörk verði komin í auðn að fáum árum hðn- um, ef ekki er tekið alvarlega í tautuana til að afstýra þessum voða. Fyrirspurn um þetta mál er á dagskrá í stórþinginu á morgun". Hjá oss Islendingum hefur aldrei mátt koma nærfi því, að rýma burt selnum, þótt menn viti, að hann spillir afarmikið lax- og fiskiveiðum. Það getur og vel verið, að þessi Rússakópur fari í stórum hópum að leggja leiðir sínar hingað, og þá sjáum vér, hvar fiskiveiðar vorar eru komn- ar. Þá er ennfremur Norðmenn sjálfir vilja friða hvalinn, er hefur verið svo arðber- andi veiði fyrir þá, þá ættum vér ekki síð- ur að banna algerlega allar hvalveiðar, ekki sízt vegna síldarinnar og margs fleira. Það má ekki dragast lengur úr þessu, ef allur hvalur á ekki að verða strádrepinn hér í norðurhöfum. Eða hvers vegna skyld- urn vér leyfa útlendingum að reka hér þessa veiði, sem vér eflaust bíðum stór- tjón af, óvíst hve mikið árlega? Næsta þing verður meðal annars að taka málefni þetta til alvarlegrar athugunar.

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.