Þjóðólfur - 20.03.1903, Blaðsíða 3
47
nokkra undantekningu 1 þessu, þá yrði
»ísafold« troðfull í hvert sinn af leiðrétt-
ingum og mótmælum gegn rangfærslum
og útúrsnúningum blaðsins.
Rit stj.
Embættispröf í lögum
við háskólann hafa tekið Karl Ein-
arsson og SigurðurEggerz, báðir
með 2. einkunn.
Nýtt gufuskipafélag,
er heitir „Thore" er nýstofnað í Kaup-
mannahöfn fyrir förgöngu Thor E. Tulini-
usar stórkaupmanns, er verður aðalum-
sjónarmaður og útgerðarmaður félagsins,
sem auðvitað er hlutafélag, og hefur tek-
ið að sér skip þau, „Perwie" og „Mjölni",
er Tulinius hefur haft í förum til Islands.
Stofnféð er 450,000 kr. eða rúmlega það,
þar af 250,000 kr. 1 hlutabréfum og 200,-
oco kr. í skuldabréfum, en auka má stofn-
féð hvenær sem er. Félagið ætlaraðkaupa
eða hefur þegar keypt 2 skip af 1. flokki 6-
900 tons að stærð, og er hugmyndin, að
keppa við sameinaða gufuskipafélagið hér
við land, einkum með vöruflutninga mill-
um útlanda an.iarsvegar og Suðurlands og
Vesturlands hinsvegar, og verða þangað
fastákveðnar skipaferðir. Að líkindum
mun félag þetta sækja um slyrk úr land-
sjóði til næsta alþingis. Skip félagsins
„Perwie" á að koma til Reykjavíkur 17.
apríl, en eptir það aukaskip 15. maí, 13.
júlí, 14. ágúst; 17. sept., 23. okt. og 7. des., og
á það ekki að koma við í Færeyjum t ferð-
um þessum, nema í síðustu ferðinni (sbr.
ferðaáætlun hér í blaðinu). Það lítur því
út fyrir, að samgöngur verði viðunanleg-
ar hér þetta árið. Og ofurlítil samkeppni
við „hið sameinaða" er mjög æskileg og
nauðsynleg fyrir oss. Er því vonandi, að
fyrirtæki þetta heppnist vel.
Kappskákir.
Pess var getið áður hér í blaðinu, að
Skákfélag Islendinga 1 Kaupmannahöfn
og Handelsforeningen af 5. Juni’s Skakklub
þreyttu kappskákir í vetur, og að S. I. vann
glæsilegan sigur. 5-Júní undi því auðvitað
illa, og skoraði á S. í. til bardaga á ný,
og tók S. I. boðinu, og var orusta háð
28. febr. Liðsafnaður var mikill af hendi
„5. Júnís", og þóttust þeir vel komnir, þar
eð þrír með þeim betri af S. I. gátu ekki
mætt. Börðust 12 á hvora hlið, og fór
bardaginn þannig, að
Ásgeir Torfason
Júlíus Stefánssson
Lárus Fjeldsted
Páll Jónsson
Sigurjón Jónsson
Skúli Bogason
Þorkell Porláksson
Fischer-Jakobsen
Mortensen
Richter apótekari
Hemme
Johansen
G. Brodersen
K. Harboe
V. Johansen
P. Giersing
Emersen
Pétur Bogason
Jón Isleifsson
Einar Jónsson
en jafnvígir voru þeir Edvald Möller og
P. Jörgensen, og Ólafur Björnsson og A.
Nielsen, en sá Nielsen var einn af þeim,
er vann hinn þýzka taflmann Mieses í
haust, og því einn af aðalberserkjum 5.
Júnfs. Bardaganum lauk þvf þannig, að
S. I. vann 7 töfl, tapaði 3 en 2 urðu jafn-
tefli. Giersing var aptur nú dómari, og
lauk hann miklu lofsorði á Islendinga fyrir
tafllist, og lauk máli sinu með því, að
drekka fyrir minni íslenzku skáklistarinn-
ar. Hann ætlar að tefla 6 blindskákir í
S. í. 13. marz.
P. Z.
Póstskipið „Laura“
kom 14. þ. m. snemma morguns. Með
henni komu margir farþegar, þar á meðal
Tryggvi Gunnarsson bankastjóri, Sigtús
Eymundsson, kaupmennirnir Nic. Bjarne-
sen, Siggeir Torfason, Gunnar Gunnars-
son, Erl. Erlendsson, Jón Bjarnason, Skúli
Thoroddssen ritstj., Bjarni Jónsson snikk-
ari, Guðmundur Gamalíelsson bókbind-
ari, Gestur Einarsson verzlunarerindreki
frá Hæli, Jónatan Þorsteinsson söðlasmið-
ur, og frá Skotlandi Berrie stórkaupm.
(Leith) og Ward fiskikaupmaður. Frá
Vestm.eyjum kom Magnús Jónsson sýslu-
maður.
Fyrri hluta lagaprófs
hafa lokið Magnús Jónsson með 1. eink-
unn og Ari Jónsson með 2. einkunn.
Próf í mannvirkjafræði
við fjöllistaskólann hefur Jón Þorláks-
son tekið með 1. einkunn mjög góðri,
(skorti örlítið á ágætiseinkunn).
Próf í efnafrseði við sama skóla
hefur Ásgeir Torfason tekið með 1.
einkunn.
Nýtt þingmannsefni
kvað eiga að verða á boðstólum í Eyja-
firði af Valtýinga hendi. Það er Guð-
mundurFinnbogason heimspekingur! Hann
verður þrítugur 6. júní 1 vor, svo að það
má ekki tæpara standa. Mikil börn mega
Valtýingar vera, ef þeir halda, að Eyfirð-
ingar fari að seuda þetta pólitiska barn
á þing.
Klæðaverksmiðjan reykvfska,er
getið var um í síðasta blaði á að heita
»Iðunn«, og erti kosnir f stjórn hennar:
Jón Magnússon landritari, formaður, Knud
Zimsen mannvirkjafræðingur, féhirðir og
Ólafur Ólafsson prentari, skrifari.
Manntjón.
Enn hefur orðið stórkostlegt rnanntjón
í ofsaveðrinu 8. þ. m. Þá drukknudu J
menn af þilskipinu „Karólínu" (eign Run-
ólfs Ólafssonar f Mýrarhúsum), þar á með-
al skipstjórinn Sigurjón Jónsson kvæntur
maður frá Bakka hér í bænum. Var skip-
ið 10 mflur undan Grindavík, er svo mik-
il alda féll yfir það, að það fór á hliðina
og 7 menn af 10, er á þilfarinu voru skol-
uðust út, en 2 þeirra skoluðust inn aptur.
Skipið rétti sig við aptur, er skorin voru
seglin. Menn þeir, er drukknuðu voru auk
skipstjórans: Bjarni Gissurarson frá Litla-
Hrauni á Eyrarbakka (son Gissurar söðla-
smiðs þar), Helgi Arnason vinnumaður frá
Hömrurn í Grímsnesi, Olafur Pctutsson
frá Reynistað hér f bænum og Bjötn
Magnússon af Skipaskaga, allt ókvæntir
menn á bezta aldri
Stýrimaðurinn á „Sigríði" úr Hafnarfirði,
er frétzt hafði um að hefði tekið út og
farizt (sbr. síðasta bl.), komst lffs af sem betur
fór, varð náð í hann eða skolaði inn aptur,
og kvað ekki hafa meiðst til muna. Hann
hét Helgi, son Jóns Árnasonar dbrm. 1
Þorlákshöfn.
Bruni,
Aðfaranóttina 15. þ. m. rétt fyrir mið-
nætti kviknaði í vinnustofu og fatasölu-
búð Guðmundar Sigurðssonar klæðskera í
Bankastræti 12 hér í bænum. Varð eld-
urinn'allmagnaður á skömmum tfma, svo
að menn urðu hræddir um næstu hús, enda
var veður allhvasst. en um það leyti er
slökkviliðiðkom meðslökkviáhöldin lygndi
svo áð segja alveg og hjálpaði það mjög
til þess, að eldurinn varð slökktur, sem
gekk allgreiðlega. Samt sem áður gerði
eldurinn mikinn usla, því að útbygging
suður úr aðalhúsinu brann að mestu, og
mikið af fataefnum og tilbúnum fatnaði
á saumastofunni brann eða ónýttist að
öllu leyti. Nemur skaðinn eflaust nokkr-
um þúsundum króna, en reyndar voru
fatabirgðirnar vátryggðar. Með því að
margt fólk (um 30—40) var í vinnu á vinnu-
stofunni, verður sá hnekkir og atvinnu-
tjón alltilfinnanlegt. — Ekki vita menn,
hvernig eldurinn hefur komið upp.
Gufusklpiö „Perwie“
frá nýja gufuskipafélaeinu „Thore" kom
hingað 16. þ. m. með vörur til kaupmanna
hér og til Vesturlandsins.
Bráðkvaddur
varð hér í bænum 17. þ. m. Einar Eyj-
ólfsson (Ásgrímssonar prests f Stóradal
Pálssonar) bróðir Páls heit. gullsmiðs og
þeirra systkina, víða kunnur hér á Suður-
landi og opt í sendiferðum með bréf og
blöð, einkum milli Eyrarbakka og Reykja-
víkur, mjög skilvís og áreiðanlegur. Var
kominn um eða yfir sjötugt, en furðu ern
eptir aldri og mesti göngugarpur lengstaf.
J- Hinn 16. ágúst f. á. andaðist að Brodda-
dalsá í Strandasýslu yngismey Ingunn
Stefan/a, dóttir hjónanna þar, Brynjólfs
og Ragnheiðar, á 26. aldursári. Hennar
er almennt saknað, þar eð hún var ein-
stök að geðprýði og allri háttsemi, yndi
og unaður foreldra og systkina, og allra
þeirra, er henni kynntust.
Ein af vinstúlkum hinnar Idtnu.
Meðalalin verðlagskárinnar,
er gildir frá 16. maí 1903 til jafnlengdar
1904 er þessi:
Austur-Skaptafellssýslu............45 a
Vestur-Skaptafellssýslu............41 „
Vestmanneyjum......................5° „
Rangárvallasýslu...................45 »>
Árnessýslu.........................48 „
Borgarfjarðarsýslu.................57 „
Gullbr,- og Kjósarsýslu og Rvík . 55 „
Mýrasýslu..........................56 „
Snæfellsnes- og Hnappadalss. . . 50 „
Dalasýslu .........................56 „
Barðastr.sýslu....................57
ísafjarðarsýslu og kaupstað . . . 62 „
Strandasýslu ........ 53 „
Húnavatnssýslu.....................56 „
Skagafjarðarsýslu..................53 „
Eyjafjarðars. og Akureyrarkaupst. . 50 „
Þingeyjarsýslu.....................50 „
N.-Múlas. og Seyðisfj.kaupst. . . 54 „
, Suður-Múlasýslu...................57 „
Mustad’s önglar
(búnirtil i Noregi),
eru nú eingöngu notaðir við fiskiveiðar með fram ströndum Noregs, einnig
við New-Foundland og að öðru leyti um allan heim.
Þeir eru hinir beztu og ódýrustu önglar,
sem fást í verzlunum. Önglarnir fást nú keyptir hjá verzlunarmönnum alstaðar
á íslandi og
fiskimennirnir verða að reyna þá.
FiU því í dag skoðast eg eigi lengnr
sem saineigandi að skóverzlnninni og
vinnustofnnni í Austurstræti 4, þar eð eg
iiefl selt Iierra skósmið Þorsteini Sigurðs-
syni í Rvík minn lilnta í sameign okkar,
ásamt öllum útistandandi skuldum, og- ern
því ailir, er skulda fyrnefndri verzlun
vinsamlegast heðnir uin að greiða skuld-
ir sínar til lians.
Reykjavík 17. marz 1903.
Stefárt Gunnarsson.
*
* *
S K )f sjá má af ofanskrifaðri auglýsingu
liefl eg tekið það fyrir, að stækka skó-
verzlnu mína. Þessvegna vil eg Iienda
liinum heiðruðu viðskiptnmönnum á, að
nú hér eptir verður þetta önnnr hin bezta
og ódýrasta skófatnaðarverzlun í bænum/
og vonast eg til, að hinir lieiðrnðu við-
skiptamenn geri svo vel og liti inn og
semji við mig, áðnr en kaup ern gerð
annarstaðar.
Tirðingarfyllst
Þopsteinn Sigurðsson.
Waterproofkápur
nýkomnar í verzlun
STURLU JÓNSSONAR.
Kembingarvélar Jirefaldar og
1 slípivél hæfilegar fyrir spunaverk-
smiðju í sveit, eru til sölu fyrir 800 kr.
Seljandinn er ekki ófús til, að taka ull í
skiptum. Seðill merktur: „Karte 791“
sendist Aug. J. Wolff & Co. Ann. Bur.
Köbenhavn.
íslenzk frímerki.
^ Brúkuð frímerki með áprentuðu:
|„í gildi ’o2—'03“ og með konungs-
myndinni, en einkum 20 aura misprent-
unin, óskasttil kaups. Þessi sfðarnefndu
g frímerki verða keypt fyrir allt að 5
| kr. stykkið. Tilboðum eða sýnishorns-
1 sendingum með verðskrá verður veitt
1 móttaka. Svar eða reikningsskil um
I hæl.
Ritstjóri F. V. Riegels.
| Meðmæli: Amicivej 4.
jj Landmandsbankinn. Köbenhavn V.
IP^RÚKUÐ FRÍMERKI
frá íslandi eru keypt háu verði. Verð-
listi ókeypis.
N. S. NEDERGAARD.
Skive — Danmark.
Húseignin LAUGALAND í
Reykjavík ásamt erfðafestulandi því,
sem henni fylgir, er til sölu. — Verð
ágætt. —Borgunarskilmálarmjög góðir.
Landsbankinn í Reykjavík
26. febr. 1903.
pr. Tr. Gunnarsson.
Eirikur Briem.
Saumamaskínu-/
olía
mjög góð, kom nú með Laura í verzlun
STURLU JÓNSSONAR.
Emailleraðir KATLAR,
Steinolíuvélar
(Petroleumsmotorer)
til notkutiar bæði á sjó og landi úr
beztu vélaverksmiðju í Danmörku fást
með ábypgð.
Gert við steinolíuvélar.
Chr. Petersen
vélasmiður.
JKÍPkjustpæti 4. II. lopti.
könnur, mjólkurfötur, kastarholur, aus-
ur, fiskspaðar o. m. fl., kóm nú með
Laura í verzlun
Sturlu Jónssonar.
Sultutau
mjög ódyrt,
komið aptur
í verzlun.
STURLU JÓNSSONA -.
ystf Þessu blaði fylgir
aukablað nr. 2.