Þjóðólfur - 17.04.1903, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 17.04.1903, Blaðsíða 1
ÞJÚÐÓLFUR. 55. árg. Reykjavík, föstudaginn 17. apríl 1903. Jfo 16. JtuAfadl Jfúí/ufaAíiv Alþingiskosningarnar eem fram eiga að fara i vor, má að sjálf- sögðu telja einhverjar hinar þýðingarmestu kosningar, er nokkru sinni hafa verið hér á landi, fyrst og fremst sakir þess, að nú á að greiða fullnaðaratkvæði um hið nýja stjórnarfyrirkomulag, er þjóð vor á að búa við fyrst um sinn, og svo sakir þess, að nú verður það hlutverk hinna væntanlegu þjóðfulltrúa, að leggja hyrningarsteininn undir hið nýja stjórnar- far, og gera mikilvægar ráðstafanir land- inu til viðreisnar á fyrsta 6 ára tímabil- inu, er nýja stjórnin er að komast á fast- an fót. Er því afarmikilsvert, að vel sé um hnútana búið í fyrstu, og að ráðherr- ann og æzta stjórnin í landinu fái nauð- syniegt aðhald af þingi og þjóð þegar í byrjun, þvl að sé slælega tekið í streng- inn í fyrstu, og gerræði eða framkvæmd- arleysi stjórnarinnar ekki nægur gaumur gefinn, þá er hætt við, að myndist hættu- leg og viðsjárverð »praxis« í stjórnarfar- inu, sem erfiðara verður að breyta síðar. Þess vegna ríður svo mikið á, að fulltrúar þeir, sem nú eiga að skipa þingsætin, skilji hlutverk sitt réttilega, og séu á verði til þess að tryggja þingræðið sem bezt. Heimastjórnarmenn hafa sýnt það með baráttu sinni í stjórnarskrármálinu, að þeim Cr alvara að ná sem fyllstum og bezt- um umbótum á stjórnarfarlnu; en eptir framkomu hinna svonefndu Valtýinga að dæma, verður ekki annað séð, en að öll barátta þeirra hafa eingöngu snúizt um, að hrifsa völdin undir sig, en þess slður gætt, hversu fyrirkomulag það, erþeirhafa barizt fyrir, hafi veiið hagfellt eða æski- legt fyrir landið. I baráttu þeirra hefur því vantað alla alvöru, alla festu. Þeir hafa hringlað sitt á hvað eptir því, sem þeir hafa haldið að straumurinn bærist. En auðvitaö hafa þeir opt misreiknað sig á því, og hlaupið mörg gönuskeið. Hinn síðasti tvíveðrungur þeirra, óheilindi og makk við hinn svonefnda »Landvarnar- flokkt, hafa nú ljóslega fært mönnum heim sanninn um, að þeir þrá framar öllu búsetu ráðherrans hér á landi feiga, af því að þeir áttu ekki þá uppástungu í fyrstu, en börðust á móti henni með hnúum og hnefum, þangað til konungs- boðskapurinn kom, því að þá treystust þeir ekki lengur að rífa hana niður opin- berlega. En undir eins og þeir sáu sér leik á borði, voru þeir komnir í görnlu stellingarnar, eða eru að komast í þær smátt og smátt, því að það getur verið athugavert, að láta bera ofmikið á stakka- skiptunum opinberlega. Það getur verið »ópraktiskt« nú fyrir kosningarnar, að gera sig bera að því, að vilja rífa það niður á næsta þingi, er flokkyrinn hefur lofað háttðiega að styðja í stefnuskrá sinni. Það eflir ekki traust manna á orðheldni og einiægni þessa flokks. Og það er engin tortryggni, heldur sjálfsögð varkárni, að vara þjóðina við þessum stjórnmálaflokki, er hefur komið jafntvíveðrungslega og óheilindalega fram, eins og hann hefur gert. Hann getur engum öðrum en fram- komu sinni og fyrirliða sinna kennt um það, hvern álitshnekki hann hefur beðið meðal þjóðarinnar, því að raunin er ólýgnust. Þjóðin á nú að skera úr þvt við kosn- ingarnar, hvort hún vill tefla öllu því, sem áunnizt hefur í stjórnarbaráttu vorri 1 full- komið tvísýni og vandræði, með því að ónýta gerðir síðasta þings, og láta allt stranda á því, að ráðherra vorum sé freim- ilað í stjórnarskránni að bera mál vor upp fyrir konungi í ríkisráðinu, 1 viður- vist hinna annara ráðgjafa konungs. Stjórn- in gerir þetta að sjálfsögðu skilyrði þess, að stjórnarskrárfrumvarp síðasta þings fái konungsstaðtestingu, því að hún lítur svo á, að ráðherra vor verði í ríkisráðið að koma til að fá þar undirskript kon- ungs undir lögin, en alls ekki til þess, að hinir ráðgjafarnir skipti sér af sérmál- um vorum. Með sameiginlegu málunum hljóta Danir að hafa eptirlit, hjá því verður ekki komizt, enda neitar því eng- inn. Það tjáir ekki að blanda saman af- stöðu ráðherra vors gagnvart ríkisráðinu eptir valtýska frv,. 1897, og afstöðu hans nú eptir stj.skrárfrv. síðasta þings. Eptir Valtýskunni hafði hann enga sérstöðu, var algerlega danskur embættismaður, bú- settur í Höfn og launaður af ríkissjóði. Þ á var eðlilegt, að menn heimtuðu sér- stöðu fyrir hann, með því að reyna að fá hann losaðan úr rlkisráðinu, en nærri því var ekki komandi. En nú, þá er hann verður algerlega íslenzkur embættis- maður, búsettur hér á landi og laun- aður af landsjóði, hefur hann 1 sjálfu sér fengið svo ákveðna, viðurkennda sérstöðu, að enginn skynbær maður getur talið hann danskan ráðgjata, enda þótt hann vegna stjórnarsambands landanna verði að koma í ríkisráðið, svo að hann verði ekki talinn algerlega sem utanveltubesefi í ráðaneyti konungs, því að þess þarf ekki að vænta, að danska stjórnin slaki til í því efni, svo lengi sem Island er í sambandi við Danmörku, eða fær ekki reglulegan landstjóra, sem meiri von er um, að vér fáum innan skamms, ef þetta búsetufrumvarp verður samþykkt. Að ná nú þegar æztu stjórninni inn í landið, þótt ekki sé til fulls, að þvl verðum ver að róa öllum árum. Allt innlimunarhróp einstakra manna, safsal landsréttinda* og þar fram eptir götunum, á rót sína að rekja til þeirrar meinvillu, að mál þetta horfi alveg eins við nú, eins og 1897, og að vér sétmi engu betur farnir með bú- setuna, heldur en með valtýskuna frá '97, eða jafnvel ver, og það er gert að til- finningamáli og æsingamáti, sem ætti að skoðast með rólegri (hugun og alvarlegri löngun, til að leiða stjórnarbótarmál vort til farsællegra og heppilegra úrslita fyrir land vort og þjóð, á yfirstandandi ttð. j Hver maður, sem ann ættjörðu sinni og | vill hið bezta fyrir hana kjósa sem fáan- legt er, verður að gæta þess, að vinna henni ekki ógagn með eintómum þráa og fastheldni við einhver aukaatriði, sem ekki fæst tilslökun á, og engin ástæða er til að rtgbinda sig við, hvernig sem á stendur, eða láta það standa verulegum umbótutn í vegi. Það er ekkert annað en fávíslegt ofurkapp, er haft getur mjög óhappasælar afleiðingar í för með sér. Og þær afleiðingar ntundit brátt korna í ljós, ef sú tilraun tækist nú, að ónýta stjórnar- skrárfrumvarp síðasta þings. En það þarf naumast að gera ráð fyrir því, að svo fari. Þjóðin er þroskaðri og gætnari en svo. Þér kjósendur til alþingis. Hafið það hugfast.aðveljaþá eina nú til þings, erþérgetið borið fullt traust til, að ekki stofni stjörnarbótarmáli voru í voða, svo langt sem það er kom- ið áleiðis, heldur samþykki frv. síðasta þings óbreytt. Og til þess er heimastjórnarmönnum betur treyst- andi en Valtýingum, sem ávallt bera kápuna á báðum öxlum, eptir vindstöðunni. Útlendar fréttir. —o-- Kanpmannahöfn 3. apríl. A Balkanskagannm er kurrinn ávallt heldur að vaxa meðal hinna kristnu þegna soldáns og hafa Tyrkir átt í nokkrum smáorustum við þá. Járnbrautarbrú hef- ur verið sprengd í lopt upp nálægt Ad- ríanopel og samgöngur þannig hindraðar við Konstantínópel. Ætla menn, að upp- reisnarflokkar í Búlgarfu muni hafa gert það, því að þar eru menn almennt mjög hlynntir uppreisninni. Hafa því Rússar alvarlega áminnt búlgversku stjórnina um, að sitja hjá og blanda sér ekki inn í mál þetta. En nú fyrir stuttu er uppreisn hafin úr annari átt á Balkanskaganum. Albanar, sem eru stækari Múhameðstrúar- menn en Tyrkir sjálfir og hatast við kristna menn, eru alveg komnir f uppnám út af því, að nokkrar umbætur skuli verða gerðar á hag þeirra. Þeir réðust á bæ- inn Mitrowitza og særðu rússneska kon- súlinn, og úr öðrum bæ höfðu þeir á brott með sér alla hina kristnu lögreglu, sem þar hafði verið skipuð. Sendiherra Austurrfkis hefur skorað á Tyrkjastjórn að bæta þessa uppreisn niður og neyðist hún víst til þess, þó að henni sé það alls ekki Ijúft. Rússland. í héraðinu Ufa urðu fyrir skömmu nokkrar óeirðir meðal verka- manna. I borginni Slatoust söfnuðust 23. f. m. 500 manns saman og mótmæltu nýrri reglugerð, sem sett var fyrir vinn- unni. Var þá nokkrum þeirra þegarvarp- að í fangelsi fyrir tiltækið. Hinir kröfð- ust nú, að félagar þeirra væru látnir laus- ir og settust um hús lögreglunnar og brutu rúður og gerðu annan smáóskunda. Var þá hermönnum hleypt á þá og drápu þeir 28 menn, en særðu um 50. Bug- uðust þá verkamenn og tóku aptur til vinnu sinnar. I Batum og Baku hafa verkamenn einnig átt í brösum við lög- regluna. Danmörk. Skáldkonan Magdalena Thoresen dó 28. f. m. Húnvardönsk, en giptist norskum presti í Björgvin og ól því mestan hluta aldurs síns f Noregi, enda þykja sögur hennar bera þess merki. Síðustu árin bjó hún í Danmörku. Hún varð 84 ára gömul. Vilhjálmi Þýzkalandskei sara var tekið með mikilli viðhöfn, þá er hann kom í gær á skipi sfnu Hohenzollern til þess að óska Kristjáni konungi langra lffdaga og var ekki að sjá, að mikið bæri á kalanum milli Dana og Þjóðverja þann daginn. Keisari og konungur kysstust auðvitað eins og lög gera ráð fyrir og um kveldið var keisaranum haldin dýrð- leg máltíð og mælti konungur fyrir skál hans, en keisari aptur fyrir skál konungs og fór mörgum fögrum orðum um, hve mikla lotningu hann bæri fyrir honum. Bagalausa sérkreddan. (Áríðandi fyrirspurn til Isafoldar). Af 11. tölubl. ísafoldar þ. á. er svo að sjá, sem hún sé ekki ennþá fyllilega geng- in inn á þá stefnu, sem »Landvarnarmenn« og Jón yfirdómari Jensson halda fram. Og mun það sennilega fremur stafa af því, að hún álítur ekki þá stefnu sigurvænlega nú við næstu kosningar, heldur en af tryggð við hina opinberu stefnuskrá flokks síns eða 19 paragrafaskjalið. En ekki er hún þó móthverfari þeirri stefnu en svo, að hún berst svo að segja með hnúum og hnefum fyrir kosningu Jóns Jenssonar í Reykjavfk, þótt telja. megi hann sem einn af aðalforsprökkum Landvarnarstefn- unnar. En þessa mótsögn sína í skoðun- um reynir blaðið til að fóðra með þvf, að þessi skoðun Jóns Jenssonar sé baga- laus sérkredda, þar eð ekkert þingmannsefni annað, er líkindi séu til, að náð geti kosn- ingu, muni aðhyllast hana. En nú stendur einmitt svo á, að hér hjá oss Rangæingum er um þingmanns- efni eða frambjóðanda að ræða, sem hef- ur hina sömu kreddu í stjórnarskrármálinu og yfirdómari Jón Jensson. Þetta þing- mannsefni er sýslumaður Magnús Torfason, sem ólíklegt er að Isafold sé alveg búin að slá hendi sinni af, eða telji nú ekki framar meðal þingmannsefnanna. En að sýslumaður M. Torfason hafi hina sömu eða lfka kreddu sem yfirdómari JónJens- son, það hafði hann — eptir áreiðan- legum sögnum að dæma — ótvíræðilega látið í ljósi 1 Reykjavík 1 sumar. Þvf svo sem Jón Jensson var Einars Benedikts- sonar önnur hönd á borgarafundinum í Reykjavík, svo kvað M. Torfason hafa verið það á fundi, er Einar hélt í stúd- entafélaginu í sama tilganginum, þótt sýslumanni hafi máske eigi þar farizt fim- legar að halda skildinum fyrir Einar, en Jóni fórst það á borgarafundinum, og hef- ur það þó varla mátt vera óhönduglegar gert, eptir því sem blöðum segist frá, ef Einari hefði átt að verða það að nokkr- um notum. Hér heima í héraðinu hefur sýslumaður ekki látið skoðun sína opin- berlega uppi, hvað þetta atriði snertir. En það má telja víst, að hann hafi ekki snúizt á áttunum síðan 1 sumar, svo að nú eins og þá, megi telja hann í liði Einars Benediktssonar, þ. e.*í flokki þeirra manna, er ónýta vilja gerðir alls þings- ins í stjórnarbótarmálinu á aukaþinginu síðasta, og leggja nú út í nýja stjórnar- bótarbaráttu, sem ekki að eins að dómi ísafoldar, heldur sérhvers skynbærs manns, verður »svo og svo löng og svo og svo tvísýn*. — En þar eð nú maður þessi, Magnús Torfason, rær að þvf öllum árum, að ná hér kosningu, en þessi áðurnefnda kredda hans getur, auk annars fleira, orð- ið þess valdandi, að hann falli, ef Isafold opnar ekki enn betur skilning manna, þá leyfi eg mér sem einn af kjósendum í Rangárvallasýslu, að óska þess, að nefnt blað vildi nú gela oss sín hollu ráð og leiðbeiningarþví viðvíkjandi, hvernigbjarga eigi nú Magnúsi með hans kreddu, þar éð það er svoddan meistari í að verja kredd- urnar. Skoðun allflestra kjósenda hér er svo varið, að þeir álfta að kredda Jóns

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.