Þjóðólfur - 15.05.1903, Blaðsíða 3
79
Hin blöðin „Þjóðólfur", „Austri" og „Vestri"
einkum Þjóðólfur, sem höfuðblað heima-
stjórnarflokksins, verða hinsvegar fyrir ó-
verðskulduðum illmælum og álygum, sem
ekki bæta málstað „Landv.liðsins" eða efla
gengi þess. Þetta voru nú uppáhaldsblöð
heimastjórnarmanna árið sem leið, og all-
margir munu lesa þau með sama huga enn
sem fyr. Það er þetta atferli „Landvarn-
armanna", sem eg felli mig*■ ekki við, og
þykir æði kynlegt, og hræddur er eg um,
að fyrir þetta verði sigursældin harla lítil
fyrir þeim við næstu kosningar. Verður því
þetta ef til vill að eins „sjónhverfing og
Ieiðsla hál".
Heimastjórnarmaður.
Þingmannaefnl.
Ekki verður Isafoldarskinninu kápan úr
því klæðinu, að þeir dr. Valtýr og Björn
Kristjánsson verði einir urn hituna og því
sjálfsagðir þingmenn Gullbringu- og Kjós-
arsýslubúa, því aðHalldór Jónsson
bankagjaldkeri heldur framboði sínu hik-
laust áfram og með honum gengur nú á
hólminn mjög efnilegur og dugandi mað-
ur Agúst Flygenring Þórðarson
kaupm. í Hafnarfirði. Báðir þessir menn
gefa nú kost á sér, fyrir áskoranir
margra helztu manna vfðsvegar í kjördæm-
inu, og er almælt, að þeir hafi mjög mik-
inn byr. Eru þeir báðir eindregnir fylg-
ismenn stjórnarskrárfrv. síðasta þings og
vilja því í engu hagga. Og í bankamál-
inu eru þeir alveg sömu skoðunar, að
vernda landsbankann og veitaekki hluta-
bankanum frekari réttindi, en hann þegar
hefur fengið. Menn þessir þarfnast engra
meðmæla frá hálfu þessa blaðs, því að
Halldór er héraðsbúum kunnur sem við-
urkenndur hæfileikamaður og álitlegasta
þingmannsefni að öllu leyti og hr. Ágúst
Flygenring sömuleiðis, því að hann er eink-
ar vel skynsamur maður, einarður, hygg-
inn og tillögugóður og vinsæll af allri
alþýðu manna, ennfremur mjög vel kunn-
Ugur öllum fiskimálum. Er því enginn
efi á, að hann mundi skipa þingsæti sitt
með sæmd. Nú er því ágætt tækifæri
fyrir Gullbringu- og Kjósarsýslubúa, að
hrinda af sér valtýska okinu, er á þeim
hefur legið mörg ár, þakka Þórði fyrir
uppgjöfina með því að reka helzt þá báða
Björn og Valtý af höndum sér, og geta
sér með því mjög virðulegan orðstír um
land allt og allra góðra manna þökk og
aufúsu.
StrandferOabátarnir
>SkáIholtc og >Hólarc komu báðir
snemma morguns 9. þ. m. >SkálhoItc
komst aldrei lengra en að Horni vegna
íss, sern er inni á Húnaflóa, en eins og
getið var um í síðasta blaði, er ísinn
ekki mikill úti fyrir, úr því að hvalveiða-
bátur- komst tálmunarlaust eða tálmunar-
lítið frá Siglufirði til ísafjarðar, um það
Ieyti, sem >Skálholtc sneri aptur við ís-
inn síðast. — »Hólarc höfðu hvergi orðið
varir við ís á sinni leið, svo að vonandi
er, að þessi spilda á Húnaflóa verði ekki
lengi landföst.
Með bátunum kom fjöldi farþega, þar
á meðal með >Skálholtic Jóhannes Þor-
grímsson dbrm. frá Sveinseyri, séra Magn-
ús Þorsteinsson f Selárdal, séra Guðlaug-
ur Guðmundsson[frá Hvalgröfum, Guðjón
Þorsteinsson kaupm. frá Ólafsvík, ekkju-
frú Kr. Havsteen frá Stykkishólmi o. fl.
Með »Hólum« kom séra Jóhann L. Svein-
bjarnarson frá Hólmum o. m. fl.
Lausn frá prestsskap
hafa féngið séra Friðrik Hall-
grfmsson á Utskálum — er flytur til
Ameríku í vor — ogséra Ingvar Niku-
lásson í Gaulverjabæ, er hefur fengið
lausn vegna heilsubrests.
Dáinn
6. þ. m. séra Jósep Kr. Hjörleifs-
son uppgjafaprestur að Breiðabólsstað á
Skógarströnd (sonur séra Hjörleifs próf.
á Undornfelli) á 38. aldursári (f. 10. sept.
1865), útskrifaður úr skóla 1886, prest-
vígður 1888 að Otrardal.
Afiabrögfl.
Þilskipin héðan úr Reykjavík hafa flest
aflað dável, en sum lakar en í meðallagi.
Nokkur hafa aflað mjög vel. Hæstur afli
á vetrarvertíðinni (talinn frá 1. marz) mun
vera 32,000 hjá Birni Ólafssyni frá Mýrar-
húsum á skipi hans samnefndu, næst
28,000 á Swift hjá Hjalta Jónssyni, Krist-
inn Magnússon á Björgvin með 25,000,
Kolbeinn Þorsteinsson á Georg með 24,000,
Finnur Finnsson á Margréti 23,000. Fisk-
urinn óvenjulega vænn, nær eingöngu
þorskur.
Þilskipið „Orion" (skipstjóri Kristján
Bjarnason) halda menn að hafi farizt. Það
hefur ekkert sézt til þess sfðan snemma í
f. m., skömmu fyrir storminn um bæna-
dagana 7.—9. apríl. Á því skipi voru
um 20 manns, allt ungir og duglegir menn.
I Vestmanneyjum voru, er síðast fréttist
hæstir hlutir á 14. hundrað á opnum bát-
um, og er það óvenjumikill afli. — Á
Stokkseyri og Eyrarbakka hefur og verið
góður afli upp á síðkastið. í Þorlákshöfn
hæstur afli rúm 600 hjá Jóní hreppstj. á
Hlíðarenda og Páli frá Nesi. Afli þar
fremur jafn hjá allflestum.
„Ceres“
kom af Vestfjörðum 13. þ. m., og með
henni landlæknir dr. Jónassen. Segir hann,
að mislingaveikin á Önundarfirði hafi ekk-
ert breiðst út, enginn sýkst á Flateyri, og
sóttkvíuninni á Sólbakka verði létt af 1.
júní. Unglingar þeir sem sýktust þar,
voru orðnir albata. Öll hætta af veiki
þessari er þvf um garð gengin, sem betur
fer.
Óskilafjár-auglýsingar.
f hvert sinn, er eg sé lýsing óskilafénaö-
ar í blöðunum, furðar mig á, að auglýsend-
um, sem lýsa fyrir sýslu í einu, eins og bezt
fer, skuli ekki detta í hug að hafa auglýs-
inguna 1 markaskrárformi, svo auðvelt sé
að leita í henni. Það sýnist þó hægt að
raða mörkunum eptir stafrofsröð (t. d. í
dálkum), og geta svo einkenna og hrepps,
sem skepnan er seld í. (Sé hornmark, skal
það sett í fyrstu lfnu, brm. í síðustu. T. d.
þannig:
Kr\ Gö r &
X
EL
* “b
rf w . P S Hægra
m . p CTQ . D O* 'CS 8 CT rf' Ef1 ^ * tö P O: OTQ P
Ui 00 pt
a
2 zr
K
<
, 3 — « Eb td
n Ef & ? » 5:
00 - n s: P
ce
u>
_ cr w*
Sf p;* cr
3 — o
3 p S*
tr
<
3
cr
tr
<
§'
xr
<
p
c
ax
zr
<
CTQ
S’
cr
cn
c
p
<j
p
rf-
3
H
o
P-
c
o £
kt rr
c
i/>
U)
vs
C/>
C
D-
P
C
CS
a>
£
P*
0»
3
P
OK
P
a*
c
Eins og augl. nú eru, verður hver leit-
andi að lesa alla augl. til að leita að einu
marki, en eptir þessu formi að eins einn
„staf‘, (t.d. „b“, „h“ eða þvíl.).
Gröf 10. maí 1903. B. B.
Yfirlýsing.
Mér hefur verið bent á, að »Norður-
land« hafi 21. marz 1903 haldið þvf fram,
að »undirróðrinum« gegn kosningu hr,
Kl. Jónssonar 1902 hafi verið haldið uppi
með mfnum vilja. Eg lýsi þetta tilhæfu-
lausan uppspuna. Eg vissi ekkert um
neinn undirróður gegn Kl. J., fyr en eg
las dylgjur um það í »Norðurlandi«, enda
hef eg engan þátt átt í honum, beinlínis
eða óbeinlínis, fyr eða seinna, og er ekki
kunnugt um, að heimastjórnarflokkurinn
eða nokkur úr honum hafi átt þar hlut
að máli.
Lárus H. Bjarnason.
MÖBLUR vandaðri að efni
og smíði, en menn enn þá geta feng-
ið hér á landi, pantar undirritaður frá
einni af hinum beztu Möbluverksmiðj-
um í Danmörku. Komið og lítið á
teikningar og sýnishorn.
GUÐM. GAMALÍELSSON.
Hafnarstræti. Reykjavík.
Um miðjan síðastliðinn apríl hefur
rekið stóra tunnu, fulla af rauðvíni, á
Súlu-eyri, nálægt Vestra-Súlunesi í
Leirár- og Melahreppi innan Borgar-
fjarðarsýslu, og er tunnan að öllu leyti
ómerkt.
Hér með er skorað á eiganda vog-
reks þessa, að segja til sfn innan árs
og dags frá síðustu birtingu auglýsing-
ar þessarar, og sanna fyrir amtmanni
heimildir sínar til þess, og taka við
því eða andvirði þess, að frádregnum
kostnaði.
Suður- og Vesturömtin, Reykjavík
8. maí 1903.
J. Havsteen.
Uppboðsauglýsing.
Laugardaginn 16. þ. m. kl. XI f. hád.
verður opinbert uppboð haldið í Þing-
holtsstræti nr. 12, og þar selt ýmis-
legt lausafé, svo sem: húsgögn, eld-
húsgögn, borðbúnaður, fortepiano o.
m. fl. — Ennfremur verða seldar 4
kýr, 1 hestur og ef til vill eitthvað af
heyi, allt tilheyrandi þrotabúi Helga
kaupm. Helgasonar.
Söluskilmálar verða birtir á upp-
boðsstaðnum.
Bæjarfógetinn í Reykjavík,
9. maí 1903.
Halldór Daníelsson.
Korsur-
Margarine
er marg viðurkennt að vera lang-
bezta smjörlíkið, sem til lands-
ins flytst. Það segja allir hinir mörgu,
sem reynt hafa.
Alltaf nægar birgðir í verzlun
B. H. Bjarnason.
Auglýsing.
Hér með leyfi eg mér að tilkynna
heiðruðum viðskiptavinum mínum, að
eg er orðinn meðlimur félagsins M.
Blöndal & Co í Reykjavík, og hef selt
nefndu félagi allt timbur, er eg hef
fengið nú í ár, og sömuleiðis timbur-
leifar mfnar frá fyrra ári.
Reykjavík 14. maí 1903.
BjarniJónsson.
Á bæjarbryggjunni fannst poki með nær-
fatnaði. Vitja má að Melnum við Reykja-
vlk. Eigandi borgi augl. og fundarlaun.
Reiðbeizli (járnstangabeizli) tapaðist
í Hveradölum á Hellisheiði í september
f. á. Finnandi skili til Einars Eiríkssonar
á Helgastöðum í Biskupstungum.
Að tilhlutun Oddfellow-reglunnar hér
í bænum, hefur Landsbankinn afráðið
að gefa bæjarbúum þeim, er þess kynnu
að óska, kost á að fá keypta í bank-
anum sparibauka (Savingbox) er menn
geta lagt í heima hjá sér peninga, er
fara eiga í sparisjóðsdeild bankans. —
Bankinn lætur síðan sækja peningana
heim til manna einu sinni í mánuði,
eptir því sem nákvæmar verður ákveð-
ið, eigendum þeirra að kostnaðarlausu.
Hver sparibaukur kostar 10 kr. óg
borgast við móttöku. Sala baukanna
byrjar 15. þ. m.
Landsbankinn 8. maí 1903.
Tr. Gunnarsson.
Eg tel það skyldu mína að senda
yður eptirfarandi vottorð:
Eg hef mörg ár þjáðst af innvortis
sjúkleika, matarólyst, taugatitringi og
annari veiklun. Hafði eg árangurslaust
fengið nokkrum sinnum meðul hjá ýms-
um læknum. Nú siðustu árin hef eg
neytt Kína-lífs-elixírs frá herra Walde-
mar Petersen, Fredrikshavn, og ávallt
fundið á mér bata við það, en sökum
fátæktar minnar hef eg ekki haft efni
á að hafa hann stöðugt, en finn það
samt sem áður, að eg get ekki án el-
ixírsins verið. Þetta get eg vottað með
góðri samvizku.
Króki í febrúar 1902.
Guðbjörg G u ð brand sdó ttir .
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum
kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðið er öldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir
V.P.
að líta vel eptir því, að -jr1 standi á flösk-
unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas 1 hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. thcol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.
MUSTADLobsk* MARGARiN
ER BÚIÐ TIL ÚR HINUM ALLRA BEZTU EFNUM,
OG MEÐ OPINBERU EPTIRLITI.
Mustad’s norska margarín
hefur í sér fólgið jafnmikið næringargildi sem fínasta smjör, og getur því alveg
komið í stað þess.
Mustacfs norska margarin
er bezta margarínið, sem flytzt í verzlanir. Þessvegna
Kaupið Mustad’s norska margarín.