Þjóðólfur - 29.05.1903, Blaðsíða 3
87
starfa sínum vaxin, og skipað húsum nið-
ur svo heimskulega sem unnter, mjókkað
götur þar sem þær áttu að breikka, og
lokað öðrum, sett hús þvert fyrir götur,
svo óskiljanlega ráðlauslega, að furðu gegn-
ir. En þessar gömlu syndir verða ekki
bættar með því, að gera einstökum mönn-
um órétt, sem ekki hafa neitt til saka
unnið og það má ekki bæta þær með því.
Þetta ólag verður ekki lagað nema á löng-
um tíma, smátt og smátt og með lempni,
án þess að ganga ofnærri rétti einstakra
manna, og án þess að baka bæjarsjóði til-
finnanleg fjárútlát, því að það er líka sann-
arlega hart fyrir bæinn, að verða ef til
vill að borga stórfé fyrir gömul afglöp
einhverrar nefndar. En það tjáir auðvit-
að ekki að sakast um orðinn hlut, og
menn verða að búast við, að þurfa eitt-
hvað af mörkum að leggja, til að gera
bæinn smátt og smátt myndarlegri útlits,
og samkvæmari kröfum nútíinans, en hann
nú er, bæði frá sjónarmiði heilnæmis og
fegurðar.
Kosningahvöt
til Gullbringusýslubúa.
Það verður aldrei nógsamlega brýnt fyr-
ir mönnurn, hve afaráríðandi það er fyr-
ir framtíð landsins í heild sinni, að kosn-
ingar til alþingis fari nú fram svo heppi-
lega sem unnt er; fyrst og fremst er það
skylda hvers kjósanda einmitt nú á und-
an þessum kosningum, að hafa það hug-
fast, að hann er einn afliðsmönnum þjóð-
arinnar, og það verk, sem hann á fyrir
hendi kosningardaginn er með sfnum
tilstyrk að tryggja framtíð landsins, —
tryggja landinu þráða stjórnarbót, leggja
sinn skerf til þessa verks, — sinn stein í
grunnmúr þessarar byggingar, sem kom-
andi kvnslóðir eiga smámsaman að byggja
ofan á, auka og endurbæta.
Hver kosningarbær maður verður að
hafa það hugfast, að með því að kjósa
góða menn og duglega til þingsins, með
því er framtíð sjálfs hans og eptirkomend-
anna tryggð.
Landbúnaðurinn þarf að hafa góða for-
mælendur, enda er það hér um bil víst,
að hann fær það, því um marga góða
menn er að velja víðsvegar á landinu. —
Og svo er sjávarútvegurinn, hann hefur
engan og hefur aldrei haft einn einasta
mann, sem með áhuga og þekkir.gu hefur
talað hans málefni í þingsalnum, og þó
svo stór hluti þjóðarinnar, jafnvelmeir
en 3. hluti hennar, sem stundar og lifir
eingöngu af sjómennsku — fiskiveiðum. —
Nú loks hefur boðið sig Iram í Gull-
bringusýslu maður, sem ekki einungis er
hæfileikamaður, heldur af reynslu sinni
og þekkingu á siglingum og fiskiveiðamál-
um er sjálfkjörinn sem formælandi okkar
sjómannanna á þinginu.
Eg álít stóra heppni fyrir kjördæmið
Gullbringu- og Kjósarsýslu, að eiga kost
á að kjósa mann, sem hefur jatnmikla
hæfileika og Ágúst Flygenring, og þá sýndu
Gullbringusýslubúar dugnað sinn og áhuga
á sínu eigin velferðarmáli — fiskiveiðun-
um, ef þeir gæfu honum allir íeinuhljóði
atkvæði sitt-
Þið fiskimenn og sjómenn í Gullbringu-
sýslu I Gætið vel að þvi, að þetta er í
fyrsta sinn, sem þið eigið kost á, að kjósa
til þings mann, sem er sjómaður, þekkir
sjómennskuna og veit hvað mörgu er
ábótavant í þessari grein, og hvað margt
þarf að lagfæra og endurbæta.
Eg veit að hann er maður, sem bæði
hefur vilja og þekkingu til þess, að styðja
okkar sameiginlega mál sjómannanna.
Gullbringusýslubúar!
Eg ávarpa ykkur i nafni stéttarbræðra
ykkar, sjómannanna, hringinn í kringum
landið, að þið kjósið nú á þing mann úr
ykkar flokki, sýnið nú, að þið hafið vilja
og mátt, til að senda einn mann, sem tal-
ar okkar atvinnumáli, inn i eitt af auðu
sætunum í þingsalnum, nú er tækifærið.
Kjósið því Ágúst Flygenring.
Gullbringusýslubúar! Kjósið þá 2 menn,
sem þið berið bezí traust til, kjósið Ágúst
Flygenring og með honum t. d. Halldór Jóns-
son. Sjómannastéttin isl. vonar, að þið
gerið skyldu ykkar þ. 6. júní næstk., þvi
þá fyrst sést það, að þið viljið efla ykkar
eigin hag og annara sjómanna á landinu,
með því að kjósa á þing sjómanninn Ágúst
Flygenring.
Sjómadur.
Þingmennsku-framboö.
Harðasta kosningahríðin er nú þegar
byrjuð, því að í næstu viku fara kosning-
ar fram um allt land. Og venjulega er
snarpast róið upp á síðkastið. I Mýra-
sýslu keppa nú t. d. 4 frambjóðendur um
eitt þingmannssæti, því að auk séra Magn-
úsar á Gilsbakka og Jóhanns í Sveina-
tungu, sem keppinautar voru í fyrra, verða
nú þar í kjöri IndriðifEinarsson revisor
og líklega dr. Jón Þorkelsson landskjala-
vörður. Fór hann upp í Borgarnes með
Reykjavíkinni 1 gærmorgun, sem kandídat
Landvarnarmanna að sögn, en Indriði
fór 20. þ. m., og er almælt, að hann sé
gerður út af »Framsóknarflokknum« svo-
nefnda sem Warburgsmaður og Land-
varnarmaður í senn og eigi að steypa
séra Magnúsi, dyggasta flokksmanni Val-
týinga, en hann mun ófáanlegur til að aðhyll-
ast Landvarnarstefnuna. Þessvegna á nú
að hrinda honum, þótt annað sé látið í
veðri vaka ofan á. En óskiljanlegt er
öllum bæjarmönnum hér, að Indriði fái
nokkurt fylgi þar efra, og jafn óskiljan-
legt er mönnum það, að liann sé að þessu
vastri í óþökk flokks síns eða flokksstjórn-
ar, sem vitanlega hefur hann að öllu leyti
í vasanum. Það má nærri geta, hvort
hann hefur farið að hlaupa þetta upp á
eigin spýtur, eða eigin kostnað, hann Ind-
riði. Trúi þvl hver sem vill. En dálítið
einkennilegu ljósi varpar þetta yfir bar-
áttuna.
Kjörfundir hér í nærsýslunum verða í
Rangárvallasýslu og Mýrasýslu 2. júní, í
Árnessýslu 3. júní, í Gullbr.- og Kjósar-
sýslu og Borgarfjarðarsýslu 6. júnf. Hér
í Reykjavfk verður kjörfundurinn 5. júní,
í Snæfellsnessýslu 6. júní, í Húnavatns-
og Skagafjarðarsýslum 3. júní.
.Heimskringlu’-óhróður.
Herra ritstjóri H. Þorsteinsson, Rvík.
Meðfylgjandi svar gegn óhróðrinum um
mig i 14. tölubl. Heimskringlu, hef eg’sent
ritstj. þess blaðs til birtingar, ásamt með-
sendum vottorðum með eigin hendi vottorðs-
gefendanna, en þar sem eg þekki ekki
drenglyndi þess manns svo vel, að eg þori
að treysta því, að hann taki svar þetta og
vottorð í blað sitt, þá sendi eg yður afrit
bæði af svarinu og vottorðunum og bið yð-
ur að birta það í heiðruðu blaði yðar.
Þingeyri 9. maí 1903.
Með virðingu.
Jóhannes Ólafsson.
»Stjórnarþjófarnir‘.
í 14. tbl. blaðsins „Heimskringlu" þ. á.,
birtið þér herra ritstj. grein með ofanrif-
aðri fyrirsögn, og þótt grein þessi muni vera
fjarstæða og tilhæfulaus uppspuni frá upp-
hafi til enda — hver svo sem tilgangur yð-
ar kann að vera — þá svara eg eingöngu
því í henni, sem mig áhrærir. Þér segið,
að maður hafi fyrir fáum vikum sagt yður,
að hann hafi séð póstafgreiðslumanninn á
Dýrafirði selja allmikið upplag af blaðinu
„Heimskringlu" ( búðirnar þar til að notast
sem umbúðapappír. — í orðum þessum ligg-
ur að sönnu ekki bein aðdróttun um, að
þessi blöð hafi — eptir utanáskript — til-
heyrt hinum og þessum, en eptir orðum
yðar að dæma, þar sem þér teljið þetta
þjófnað, er ekki hægt að skilja annað, en
að svo hafi átt að vera.
Um leið og eg hér með lýsi frétt þessa
helber ósannindi, skora eg á yður, herra
ritstjóri, að taka í fyrnefnt bláð yðar yfir-
lýsingu þessa, ásamt meðfylgjandi vottorð-
um frá öllum þeim, sem verzla og veita
verzlunum forstöðu hér á staðnum og vott-
orði frá þeim tveim mönnum, sem optast —
annar hvor eða báðir — hafa verið staddir
hér á pósthúsinu, þegar póstar hafa verið
afgreiddir. Jafnframt skora eg á. yður, að
birta í blaði yðar nafn og heimili manns
þess, er flutti yður lygafregn þessa, svo að
ærlegir menn, vestan hafs og austan, geti
fengið að vita, hver ódrengur sá er.
Þingeyri í apríl 1902.
Jóhannes Ólafsson.
póstafgreiðslumaður.
Til ritstjóra „Heimskringlu“.
Winnipeg Man. Canada.
Vottorðin.
Að gefnu tilefni og eptir að hafa lesið
grein í „Heimskringlu" um meðferð á vest-
anblöðum hér á íslandi, þar sem póstaf-
greiðslumanninum á Dýrafirði er borið á
brýn, að hafa selt mikið ai vestanblöðum í
búðina á Þingeyri til umbúðapappírs, votta
eg hér með, að verzlunin hér hefur aldrei
fengið frá pósthúsinu umbúðapappír, hvorki
keypt eða gefins; þvert á móti hefur póst-
afgreiðslumaðurinn hér nokkrum sinnum
keypt umbúðapappír hjá verzluninni. — Eg
skal leyfa mér að bæta því við, að póstaf-
greiðslumaðurinn hér á Þingeyri er mér
'kunnur, sem svo samvizkusamur og svo
heiðvirður maður, að það er mesta fjarstæða
og ósvifni, að bera honum slíkt á brýn.
Þingeyri ( Dýrafirði 7. apríl 1903.
F. R. Wendel.
Aktieselskabet N. Chr. Grams Handel.
Eg undirritaður votta hér með, að póst-
afgreiðslumaðurinn hér á Þingeyri hefur
hvorki selt né gefið mér neitt af vestan-
blöðunum „Heimskringlu" eða „Lögberg"
til notkunar, sem umbúðapappír við verzlun
mína né til nokkurs annars.
Þingeyri ( Dýrafirði 6. apríl 1903.
Guðni Guðtnundsson.
Út af ummælum í blaðinu „Heimskringla"
votta eg undirritaður hér með, að póstaf-
greiðslumaðurinn á Þingeyri hefur aldrei
selt eða gefið mér nokkur Canadablöð handa
verzlun minni til umbúða eða annara afnota,
og mér vitanlega hvorki selt eða fargað téð-
um blöðum.
Þingeyri 1 apríl 1903.
Samson Samsonsson.
Við undirritaðir, sem nú ( lengri tfma
höfum — annarhvor eða báðir — verið við-
staddir hjá herra póstafgreiðslumanni Jó-
hannesi Ólafssyni hér á Þingeyri, þegar hann
hefur tekið á móti pósti, eða afgreitt póst,
vottum hér með, að gefnu tilefni, að herra
Jóhannes lætur sér mjög annt um rétta og
skilvísa afgreiðslu á bréfum, blöðum og öðr-
um póstflutningi og því rangt að drótta að
honum rangri meðferð á blöðurn, eins og
gert hefur verið ( einu af vestanblöðunum.
Þingeyri 11. aprfl 1903.
Bjarni Pétursson. Natanael Mósesson.
kennari. skósmiður.
„Vesta“
ókomin enn úr hringferð sinni norðan
og vestan um land. Hefur ef til vill taf-
izt eitthvað vegna íss, sem rekið getur að
skyndilega, en íslaust var þó á Húnaflóa
um miðjan þ. m., nema eitthvert hrafl inni
á fjörðunum Strandameginn.
Flensborg skógræktarfræðingur
fór til Austfjarða með „Ceres" 17. þ. m.
til að líta eptir tilraunastöð þar (á Hall-
ormstað) og á Hálsi og Grund. Lét hann
allvel yfir, að nú væru horfurnar með skóg-
græðsluna nokkru vænlegri en í fyrstu, er
hann þakkaði sumrinu 1 fyrra. — Með
Bothnia 30. júní er væntanlegur hingað
C. V. P r y t z, kennari 1 skógræktarfræði
við landbúnaðarháskólann danska, og ætl-
ar hann að ferðast um hér með hr. Flens-
borg. _________
Nauthúsagils-hríslan.
Séra Eggert Pálsson á Breiðabólsstað
skrifar Þjóðólfi 21. þ. m.:
„Meðal fremur sorgar- en gleðifregna má
það telja, að hæsta tré á Islandi, reynivið-
arhríslan í Nauthúsagili undir Eyjafjöllum
hefur fallið í vetur undan snjóþyngslum,
og er það tjón fyrir hið íslenzka jurtaríki.
— Reyniviðarhrísla þessi var talin að vera
20—30 álna há".
Áskorun um söttvörn I
(Aðsent).
Hér með er skorað á hlutaðeigendur,
að gera ráðstafanir í þá átt, að sýki sú,
sem komin kvað vera upp í Landvarnar-
liðinu í Reykjavík, breiðist ekki út um
landið; því þó að sýkin sé ekki mjög
næm, orsakar hún mikla pólitiska van-
heilsu hjá þeim, sem hún grípur, og lýsir
sér með afarmiklum uppþembingi, vind-
gangi, krampateygjum og óráði með ó-
stöðvandi málæði. 7.
Um miðjan síðastliðinn apríl hefur
rekíð stóra tunnu, fulla af rauðvíni, á
Súlu-eyri, nálægt Vestra-Súlunesi í
Leirár- og Melahreppi innan Borgar-
fjarðarsýslu, og er tunnan að öllu leyti
ómerkt.
Hér með er skorað á eiganda vog-
reks þessa, að segja til sín innan árs
og dags frá síðustu birtingu auglýsing-
ar þessarar, og sanna fyrir amtmanni
heimildir sínar til þess, og taka við
því eða andvirði þess, að frádregnum
kostnaði.
Suður- og Vesturömtin, Reykjavík
8. maí 1903.
J. Havsteen.
Stórt hús fæst nú keypt með gjaf-
verði hér 1 bænum, eða í skiptum fyrir
jörð.
Tún hef eg líka til sölu fyrir gottverð.
Rvík 28/s '03.
Gisli Þorbjarnarson.
Samfagnaðarkort
ogr
V eggmyndir.
Þeir, sem útsölu hafa á samfagnað-
arkortum og veggmyndum, þurfa eigi
hér eptir að panta frá útlöndum, held-
ur að eins snúa sér til undirritaðs, sem
selur það með innkaupsverði, sam-
kvæmt umboði.
Guðm. Gamalíelsson.
Hafnarstræti 16- Reykjavík.
Bókbands-
verkstofa
ný er opnuð í
Hafnarstræti 1 6.
Guðm. Gamalíelsson.
MÖBLUR vandaðri að efni
og smíði, en menn enn þá geta feng-
ið hér á landi, pantar undirritaður frá
einni af hinum beztu Möbluverksmiðj-
um í Danmörku. Komið og lítið á
teikningar og sýnishorn.
GUÐM. GAMALÍELSSON.
Hafnarstræti 16. Reykjavfk.