Þjóðólfur - 04.06.1903, Síða 2

Þjóðólfur - 04.06.1903, Síða 2
90 hendi Rússa. Linnti þeim ekki fyr en daginn eptir, því að borgarstjórinn vildi ekkert skipta sér af þessu fyr, af því að hann hafði ekki fengið skip- un um það frá Pétursborg, og hefði honum þó verið það innanhandar, því að hann hafði yfir nægilega miklu lögregluliði að ráða til þess. Lýsing- in á þessuin aðförum er mjög hroða- leg. Skríllinn rænti öllu, sem hann gat hönd á fest, en skemmdi það, sem eigi varð burt numið; karlmenn voru drepnir, konur svívirtar og börn- unum kastað át um gluggana, svo að þau rotuðust. Það telst svo til, að 50 menn hafi myrtir verið, en hátt á 3. hundrað særðir og margir til ólífis, en eignatjónið að minnsta kosti 7—8 milj. kr. Rannsókn hefur nú verið hafin út úr ofsóknum þessum, Um 60 manns hafa verið dæmdir í 40 daga til 3 mánaða fangelsisvistar og landstjóran- um von Raabe hefur verið vikið frá embætti. En þrátt fyrir þetta, þykj- ast menn hafa ýmsar sannanir fyrir því, að stjórnin sé ekki saklaus í þessu máli. Finnland. Þeir, sem vísað hefur ver- ið af landi burt, hafa allir leitað til Svíþjóðar. Hefur sumum Svíum ekki verið meir en svo um það gefið, því að þeir hafa verið hálfsmeikir um, að þeir mundu ef til vill koma þeim í klandur við Rússa. 7 þeirra, sem fyrst var vísað burt, hafa því samið opið bréf, sem birt hefur verið um alla Vestur-Evrópu. Skýra þeir þar frá, á hvern hátt þeir hafi verið reknir úr landi og hvað þeirq hafi verið gefið að sök og jafnframt lýsa þeir yfir, að þeir hafi ekki í hyggju, að gera neitt það, sem geti orðið til að stofna sjálf- stæði Svíþjóðar í voða. Síðan hafa enn fleiri verið reknir í útlegð. — Bobrikoff landstjóri hefur áformað að skipa nefnd manna, til þess að yfir- lfta finnskar kennslubækur, einkum í sögu og landafræði, af því, „að hann hafi orðið þess var, að skólabækurnar veittu börnunum skaðlegar og þar að auk ónákvæmar og rangar hugmyndir um stöðu Finnlands gagnvart hinu sameiginlega eina föðurlandi þeirra, Rússlandi". Danmörk. Á flokksþingi, sem sósíal- istar héldu í Árósum skömmu fyrir miðjan mánuðinn, fékk bandalagið milli sósíalista og vinstrimanna rothöggið, með því að sósíalistar ályktuðu að láta flokksbræður sína bjóða sig fram í ýmsum kjördæmum, þar sem þeir áður höfðu stutt vinstrimenn til kosninga. Vinstrimenn svöruðu með því, að láta menn úr sínum flokki bjóða sig fram gegn sósíalistum, þar sem þeir höfðu áður stutt þá til kosninga, svo að nú má telja bandalagið alveg úr sögunni. 13. þ. m. var ríkisþinginu slitið, og nýjar kosningar til fólksþingsins eiga að fara fram 16. júní. Merkustu lög- in, sem liggja eptir ríkisþingið í vetur, eru skólalögin og skattalögin. Frum- varpið um breytingu á réttarfarinú varð ekki útrætt. England. Sundrungin meðal íhalds- manna verður æ ijósari. Það sést meðal annars á framkomu þeirra gagnvart írsku landbúnaðarlögunum, sem stjórn- in lagði fyrir þingið, því að margir þeirra hafa beinlínis barizt gegn þeim, en Ijósast sést það á ræðum þeim, sem Balfour og Chamberlain héldu um dag- inn. Nefnd, sem fór á fund Balfours, til þess að reyna að fá hann til að halda korntollinum, fékk þau svör hjá honum, að korntollurinn væri herskatt- ur, sem auðvitað félli burtu, þegar stríðið væri á enda, en verndartollar yrðu ekki lagðir á á Englandi, nema öll þjóðin krefðist þess; og hann taldi sjálfsagt, að framvegis mundi einnig fríverzlunarstefnan verða drottnandi. En sama daginn hélt Chamberlain ræðu fyrir kjósendum sínum í Birmingham, er mönnum þykir ekki komavel heim við það, sem Balfour hefur sagt. Hann kvað fríverzlunarstefnuna leiða til þess, að enska ríkið skiptist í mörg alveg aðskilin smáríki, sem hvert hugsaði einungis um sig, en færu jafnframt á mis við þann hagnað, sem menn gætu haft af einingunni, menn yrðu því að sýna í verkinu, að menn vildu heill ríkisins. Sum ensku íhaldsblöðin hafa iátið allmikið af þessari ræðu Chamber- lains, en önnur hafa iátið sér fátt um finnast, og hafa bent á ósamkvæmnina milli ráðherranna. Frakkland. Þar er allt af sama brask- ið með að koma munkunum burt úr klaustrunum. Ymsir af lýðnum fylgja þeim, og reyna að verja þá. í fyrra- dag urðu riskingar í kirkjunni í Bel- ville. Jesúíti steig í stólinn; þá er hann var byrjaður, reis sósíalisti einn upp og spurði, hver gefið hefði honum heimild til að prédika. En í kirkjunni voru á annað hundrað slátrarasveinar, sem höfðu haft með sér barefli til vonar og vara. Þeir tóku nú að neyta þeirra, og var barizt um alla kirkjuna, þar til lögreglan skarst i leikinn. Urðu ýms meiðsl af barsmíðum þessum. Marokkó. Uppreisnin er enn elcki farin að láta neinn bilbug á sér finna. Um nokkra hríð hefur uppreisnarher- inn setið um borgina Fetuan á vestur- ströndinni í Marokkó, og búast menn trauðlega við, að hún geti lengi varizt, ef hún fær enga hjálp utan að frá. Ferðalög þjóðhöfðingja. yátvarðnr konungur er nú kominn heim úr kynn- isför sinni til Portúgals, Ítalíu og Frakk- lands. Var honum hvervetna vel fagn- að, og búast menn við töluverðum árangri af för hans, að því er snertir vináttu landa þessara við England. Lovísa prinsessa af Toskana hefur nú fætt meybarn og fær hún að halda því hjá sér. Hafa fá börn hlotiðjafn- mikið umtal fyrir fæðinguna sem barn þetta. Dáinn er Carl v. Snoilsky greifi, sænskt Ijóðskáld áttfrægt, 62 ára gamall. Til hlutafélagsins jsafold* & Comp. Leyfið mér, herra ritstjóri, að svara vel- nefndu félagi örfáum orðum út af sam- suðu þess í „Isafold" 13. og 16. þ. m. Eg tek séra Helga Árnason fyrst til bæna. Hann langar til að vita, hvaða prestur hér í sýslu hafi verðlagt lambsfóðrið á 10 kr. Það var sami presturinn, sem hef- ur nauðgað vaðmáli inn á skýrslurnar úr sóknum sínum, 3 sjávarsveitum, en bann- fært lýsi þaðan. Það var séra Helgi Árnason í Olafsvík, svo sem eptirfarandi bréf sýnir: Stykkishólmi 20. maí 1903. Gerið svo vel, herra prestur, að segja mér til um, hvort eg hafi ekki farið með rétt mál, er eg hafði þetta eptir yður: Séra Árni Þórarinsson fann mig að máli í desember 1902, og sagði mér í óspurðum fréttum frá því, að séra Helgi Árnason hefði, er þeir hittust í Ólafsvfk snemma á árinu 1901, að fyrra bragði Iýst undrun sinni á því, að vaðmál skyldi eigi vera verðlagt hér í sýslu það ár, og jafnframt vítt sig og aðra presta í sýslunni fyrir „slóðaskap" þann, að hafa ekki komið vaðmáli inn í verðlagsskýrsl* ur úr sínum sóknum, og sagðist séra Árni þá hafa sagt, svo sem til að sýna, að hann ætti ekki skilið að fá ákúrur fyrir aðgerð- arleysi í því efni, að vaðmál hefði verið verðlagt í Miklaholtshreppi. Séra Helgi hafði látið vel yfir því, að sér hefði tekizt að koma vaðmálinu inn í verðlagsskýrslurn- ar úr sínum sóknum, og jafnframt hafði hann sagt séra Árna, að hann væri vanur að færa verð ýmissa vörutegunda langt fram úr þvf verði, er hreppstjórinn og hinn samnings- maðurinn tiltæki, hann hefði þannig einu sinni sett lambsfóðrið á 10 krónur. Lárus H. Bjarnason. Til herra prests Árna Þórarinssonar, p. t. Stykkishólmi. Eg játa, að það sem hér er eptir mér haft sé rétt hermt, en hvað viðvíkur verð- hækkun séra Helga, gat hann þess, að hann færði verölagið fram, til þess að fá það verðlag út, er honum líkaði, með því að hin- ir færðu það mjög niður. Arni Þórarinsson (prestur að Miklaholti). Séra Helgi kannast ekki við, að hann hafi stælt Ármann Jónsson á Saxhóli til að óhlýðnast mér. Eg læt Ármann sjálfan svara. Hann skrifaði mér 14. júnf f. á. á þessa leið: „Með bréfum dags. 1) 8. marz þ. á. og2) dags. 24. apríl þ. á. og 3) dags. 15. maí þ. á., mér birt af hreppstjóranum Utan-Ennis á hvítasunnudag, hafið þér herra sýslumað- ur lagt fyrir mig, að mæta í Stykkishólmi til rannsóknar út af grun um skjalafals. Skipun þessari hefi eg ekki hlýtt, og farið í því að ráðum séra Helga Árnasonar f Ó- lafsvfk og Kristjáns Þorgrímssonar í Reykja- vík, og bið eg yður, herra sýslumaður, fyrir- gefningar á þessari óhlýðni minni. Eg skuld- bind mig líka til, að borga kostnað þann, sem af óhlýðni minni hefur leitt. Loks segi eg hér með af mér hreppsstjórn- ar- og oddvitastörfum f Breiðuvíkurhreppi, með því eg finn mig ekki mann til að gegna þessum störfum. p. t. Stykkishólmi 14. júnf 1902. Armann Jónsson.“ Séra Helgi kannast ekki við, að hann hafi kvartað undan því við ráðherrann, að verðlagsskýrslurnar 1899 hafi verið útleikn- ar á sama hátt og 3 verðlagsskýrslur 1900. Maðurinn veit, að kæran er ekki í mín- um vörzlum og treystir því, að þessi ó- sannindi verði því ekki strax rekin ofan í hann. En hqnpm skjátlast. Eg er þar ekki einn til frásagnar. Amtmaðurinn sknfaði mér með kær- unni 28. nóv. f. á. meðal annars á þessa leið: „Eg vil að eins leiða athygli yðar að þvl, að þar sem prestar þessir (o: H. Á. og Jósep Hjörleifsson) segja, að hið sama hafi átt sér stað með verðlagsskýrslurnar úr Skógarstrandarhreppi og Staðarsveit haustið 1899, sem með fyrnefndar verð- lagsskýrslur 1900, þá er þetta ekki satt". Eg vona, að amtmaðurinn taki ekki hart á þessu traustataki úr bréfi hans, og að þetta nægi séra Helga í bráð. Eg lýk svo máli mínu með því, að minna séra Helga á, að það er nauðsynlegt, að líta við og við eptir gjörðunum og botn- unum á ílátum, sem opt er meir og minna í, til þess að þau leki því ekki, sem þau eiga að halda. Sérstaklega er það nauð- synlegt undir sumarhitann, þegar tunnur fara að gisna og menn að þyrsta. Svo örfáorðtil hálfnafnanna Ólafsvíkur Sigurbjörns og Reykjavíkur Ósigur-Björns. Eg verð að sýna Reykjavíkur-Birninum þann sóma, að spyrða þá saman, því að eg get ekki vel greint hvað hvor á. Það er fyrsta sönnunin frá Reykjavíkur-Bjöms hendi að hann hafi snuðrað í lögum mannsaldurs. Hann ætlar auðsjáanlega að láta lagaábyrgðina fyrir álygamar lenda á Ólafsvíkur-hálfnalnanum, ef eg kynni að gera þeim svo hátt undir höfði, að stefna þeiir. fyrir. Skensi þeir karltuskuna nú fyrir, að hann sé ekki löglesinn. Nafnarnirsegja, að eg hafi fyrst í Reykja- víkurferð minni í vor vikið sæti í „verð- lagsskýrslumálunum". Sannleikurinn á ekki upp á háborðið hjá þeim fóstbræðrum, heldur en fyrri dag- inn. Amtmaður sendi mér yfirréttarúrskurð- inn með bréfi, dags. 19. febrúar. F.gfékk það 1. marz og svaraði því 25. s. m. með f y r s t u ferð, sem hægt var að nota. Svar mitt endaði á þessa leið: „Eg endursendi yður nú umgetin skjöl og leyfi mér jafnframt að skýra yður frá, að eg hef ákveðið að víkja úr dómara- sæti 1 nefndu máli, ekki af því, að eg telji mér það skylt, heldur af því einu, að eg hygg það vera eina ráðið, til að hnekkja rógi þeim, sem óvandaðir mótstöðumenn mínir í fleiri en einni stétt hafa komið á lopt og halda á lopti út af afskiptum mín- um af téðu máli og 2 öðrum samkynja málum". Þá víkur máli að hússölunni sælu. Og þá kastar nú fyrst tólfunum. Reykjavík- ur-Björn er svo heimskur, og honum er svo ósárt um aðalvitnið, vininn og yfirdóm- arann, hr. Jón Jensson, að hann segir það sannað á mig, sem sannað er með vitna- leiðslunni, að er staðlaus rógur. Sú vitna- leiðsla varð sannarlega til annars, en til að sýkna sögumanninn, eins og bráðum mun fréttast norðan af Akureyri. Að minnsta kosti hefði eg ekki búist við því, að heyra séra Sigurð Jensson íFlateybera um eitt höfuðatriðið þvert ofan í framburð bróður síns, yfirdómarans, framburð, sem hann heyrði bróður sinn eiðfesta. En nota flest í nauðum skal. „Isafold" sprakk á „Kosningarsögunni" haustið 1900. Hún varð að kingja „Páskahugvekjunni" 1901. Hún er væntanlega um það leytið að springa á „Hússölunni" og því voru „Verðlags- skýrslumálin" fundin upp, svo sem eptir- farandi bréf Ármanns Jónssonar ber óræk- an vott um: Með bréfum dags. 8. marz og 24. apríl þ. á., hafði sýslumaðurinn í Snæfells- og Hnappadalssýslu lagt fyrir mig, að mæta til rannsóknar í Stykkishólmi í verðlags- skýrslumáli, sem eg ekki gerði. 11. maí þ. á. fór eg með þessi bréf til Kristjáns Þor- grfmssonar í Reykjavík, og bað liann að upplýsa mig á því, hvort eg væri skyldur, að fara frá hreppsþinginu til Stykkishólms. Hann las bréfin, óskaði svo að mega hafa þau til næsta morguns kl. 9, þá vitjaði eg þeirra. Hafði Kristján þá farið með bréfin í heimildarleysi til ritstjóra ísafoldar. Við gengum þá tafarlaust inn á kontór ritstjóra, sem sat þar með Öðrum manni. Ritstjórí kannaðist við, að bréfin væru hjá sér, en spurði mig, hvort eg vildi ekki láta setja þau í ísafold, og kvaðst eg ekki hafa ætlað það. Hann sagði þá: „Þér eigið ekki þessi bréf fremur en aðrir, það eru embættisbréf, sem allir mega fá að sjá“, en spurði mig enn fremur, hvort eg þyrði ekki 'að sýna slík bréf, og kvaðst eg þora það. Hann kvað rétt fyrir mig, að kæra þetta fyrir amtmanni, og sagði við Kristján Þorgrímsson, sem þar var lfka staddur, að það væri vel gert af honum, að búa til fyrir mig kæru til amt- manns. Meðan á þessu stóð, kom piltur inn á kontórinn og afhenti ritstjóranum hin margnefndu bréf, sem hann þá fékk mér og sagði: „Nú getið þér fengið þau, nú er eg búinn að láta bæjarfógetann taka stað- fest eptirrit af þeim". Þannig hafa bréf þessi komið í ísafold, en ekki að eg hafi óskað eptir, að fá þau sett f blaðið. p. t. Stykkishólmi 15. júní 1902. Ármann Jónsson. Annars vildi eg vara veslings Björn við 224. gr. hegningarlaganna. Það er ekki

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.