Þjóðólfur - 24.07.1903, Side 4
120
2. Lög um löggilding verzlunarstaðar á
Óspakseyri við Bitrufjörð.
3. Lög um að skipta Kjósar- og Gullbringu-
sýslu í tvö sýslufélög. [I Kjósarsýslu
skulu vera Kjósarhreppur, Kjalarnes-
hreppur, Mosfellshreppur og Seltjarnar-
neshreppur, en í Gullbringusýslu hinir
hrepparnirj.
4. Lög um löggilding verzlunarstaðar við
Selvík í Skagafjarðarsýslu.
3. Heimildarlög um áfangastaði [að sýslu-
nefndir fái heimild til, að greiða árlega
þóknun fyrir áfangastaði, þar sem þeir
eru taldir nauðsynlegirj.
Nefndir auk þeirra, er áðurergetið:
Lódarsala 1 Reykjavík. Tr. Gunnarsson,
Ól. Ólafsson, Guðl. Guðmundsson.
Latidbúnadur. Auk hinna 5, er áður voru
kosnir: Pétur Jónsson og Ól. Ólafsson.
Cnnur skipun d biskupsembœttinu: Magn-
ús Andrésson, L. H. Bjarnason, Eggert
Pálsson, Pétur Jónsson, Jóh. Jóhannesson.
Vörumerkjalög'. Jóh. Jóhannesson, Bj.
Kristjánsson, Bj. Bjamarson, H. Hafstein,
Tr. Gunnarsson.
Ófrifom d sel: Hannes Þorsteinsson, Ól.
Ólafsson, Jón Magnússon, Hermann Jónas-
son, Eggert Pálsson.
Bœjarstjórn í Llafnarfirði'. Kr. Jónsson,
Valt. Guðmundsson, Júl. Havsteen.
Samgöngumdl í e. d.: Sig. Jensson, Jón
Takobsson, Guðjón Guðlaugsson.
Stjórnarskrármálid í e. d.: Eiríkur Briem,
Guðjón Guðlaugsson, Gutt. Vigfússon, Kr.
Jónsson, Valt. Guðmundsson.
Menntamál í e. d.: Jón Jakobsson, Júl.
Havsteen, Sig Jensson.
Alpingiskosningalög í n. d.: Jón Magn-
ússon, Björn Kristjánsson, Hannes Þor-
steinsson, Arni Jónsson, Jóhannes Jóhann-
esson. ____________
Samsöngur
hinn fjölmennasti, er verið hefur hér í
bæ, var haldinn f dómkirkjunni 21. þ. m.
undir forustu Brynjólfs Þorlákssonar og
Sigfúsar Einarssönar stud. jur., sem er
góður söngmaður og vel æfður, og hefur
samið ýms lög. Lag það eptir hann
(Andantino serioso), er Brynjólfur Þor-
láksson lék prýðisvel á harmoníum við
þennan samsöng, þótti mjög gott, sömu-
leiðis lag eptir sama höfund (Lofsöngur:
Heilagi herra guð, texti eptir séra Matth.
Jochumsson), er sungið var af fjölmenn-
um karla- og kvennakór undir stjórn lag-
smiðsins sjálfs. Hann söng og »solo«
nokkur lög, og þótti vel takast, einkum
Aria úr Paulus eptir Mendelsohn-Bart-
holdy. Hefur Sigfús lagleg hljóð, en ekki
mjög sterk. Sungin voru af blönduðum
kór tvö lög eptir Sveinbjörn Sveinbjörns-
son: hið alkunna »Ó, guð vors lands«,
og annað nýtt með texta eptir Valtý Guð-
mundsson (sTöframynd í Atlantsál«) og
var það mjög snoturt. Ennfremur var
sungin Kantate við útför Jóns Sigurðsson-
ar (lagið eptir landshöfðingjafrú Olufa
Finsen). Frk. Elizabet Steffensen söng 2
lög »solo«, annað eptir Sigfús Einarsson
við stöku eptir Bjarna frá Vogi. Spil
Brynjólfs Þorlákssonar á »harmoníum«
tökst mjög vel að vanda. Yfirleitt mun
samsöngur þessi hafa þótt góð skemmt-
un, þótt hann samsvaraði ekki fyllilega
þeim vonum, er margir munu hafa gert
sér um hann. — Samsöngurinn var
endurtekinn í gærkveldi.
„Friðl»jöfup“
flutningaskip Zöllners kom hingað frá
Seyðisfirði 20. þ. m. Með því komujón
Jónsson verzlunarumboðsmaður frá Múla,
Lárus Tómasson bóksali, Þorsteinn Gísla-
son ritstjóri, frú Sigríður Jónsdóttir, kona
Þórarins kaupm. Guðmundss. og frú Guð-
rún Jónsdóttir (Thorlacius) kona Kr. Hall-
grlmssonar veitingamanns.
A0 norðan
komu landveg nú í vikunni: Gísli ís-
leifsson sýslumaður, Einar Hjörleifsson
ritstj. og Sigurður læknir bróðir hans.
Með „Laura“
síðast komu auk þeirra, er taldir voru
1 síðasta blaði: Eggert Claessen cand. jur.,
Fr. Fischer stórkaupm., kapt. Christian-
sen, Hansen apótekari frá Hobro, tengda-
faðir M. Lund lyfsala, og frk. Þuríður Jó-
hannsdóttir (dómkirkjuprests).
Þýzkt herskip (æfingaskip) „Ziet-
en" kom hingað í fyrra kveld.
„Vesta“ kom hingað í gærkveldi norð-
an og vestan urn land með fjölda farþega.
lÖ^T" Heiðraðir kaup-
endur Þjóðólfs eru
minntir á, að gjalddagi
blaðsins var 15. júlí.
Óskilahestur (taminn) geymdur í Gröf í
Mosfellssveit, til sölu eptir 8 daga. Mark:
gagnbitað vinstra, grár.
Tilboð
frá Fríhöfninni í Kaupmannahöfn.
Sjúkravín, áreiðanlega hrein drúfu-
vín, i kr. Jlaskan, kirsuberjavin 70
aura, sólberjaromm 70 aura, hindberja-
og jardarberjalíkjör 8j aura, Cacao
líkj'ór 125 aura, sœnskt banco 75 aura,
Roborrans bitter 60 aura, Angostura
bitter 85 aura flaskan. — Flöskur og
aðrar umbúðir fást ókeypis efkeyptar
eru 24 flöskur Sendist kaupanda að
kostnaðarlausu með tollálagi 25 au. fl.
og af bitter 75 au. fl.
Chr. Funder.
Umsóknir
um styrk þann, er í fjárlögunum 1902
—1903 er veittur Iðnaðarmannafélag-
inu í Reykjavík »til að styrkja efnilega
iðnaðarmenn til utanfarar til að full-
komna sig í iðn sinni«, verða að vera
komnar til félagsstjórnarinnar fyrir 24.
ágúst næstkomandi.
Umsóknarbréfunum verða að fylgja
meðmæli frá þeim, sem hlutaðeigend-
ur hafa lært iðn sína hjá.
Yngri piltar en 18 ára geta eigi
orðið aðnjótandi þessa styrks.
Þakkarávarp.
Á síðastliðinni vetrarvertíð varð eg fyrir
því óhappi, að kona mfn handleggsbrotnaði,
sonur minn 12 ára slasaðist á annan hátt,
svo eg af greindum ástæðum varð að fara
heim úr skiprúminu á Maríumessu, þegar
eg hafði fengið 150 til hlutar. Að sönnu
bjóst eg við að geta komið aptur eptir nokk-
urn tíma, en ástæður mínar heima bönnuðu
mér það gersamlega. Þegar eg svo á loka-
daginn fann þessa mína góðu félaga, varð
eg þess vís, að þeir höfðu gefið mér hlut
alla vertíðina, sem var að upphæð full 500.
Fyrir þetta rausnarlega kærleiksverk vottum
við undirskrifuð hjón, fyrst formanninum,
Jóni Jónssyni í Norðurkoti á Eyrarbakka, og
einnig öllum hásetum hans, okkar innileg-
asta þakklæti, og óskum og vonum, að þessir
heiðursmenn uppskeri á sfnum tíma laun
verka sinna. Þessum mönnum til lofs má
geta þess, að í fyrravetur breyttu þeir eins
við annan mann, er varð fyrir líkum erfið-
leikum, og sanna þeir með þessum dæmum
orðsháttinn: að „alltaf segja mennirnir til
sfn“.
Götu í Hrunamannahreppi 12. júlí 1903.
Stefdn Jónsson, Helga Halldórsdóttir.
Leidarvísir til lífsábyrgðar
fæst ókeypis hjá ritstjórunum og hjá dr J.
Jónassen, sem einnig gefur þeim, sem vilja
tryggja líf sitt, allar nauðsynlegar upplýs-
ingar.
Eflið innlendan iðnað.
♦ T-~rer.
Hjá undirskrifuðum geta menn fengið
nýja báta smíðaða af ýmsum stærðum.
Lag á bátunum er viðurkennt hið bezta,
sem kostur er á hér á landi, og reynast
ágætir í sjó að leggja. Smíði og frágang-
ur þess mælir með sér sjálft. Sömuleiðis
smfða eg motor-báta, ef pantaðir eru — að
eins fá upp gefið krapt vélarinnar. — Bát-
ana sendi eg með strandferðaskipum á
hverja höfn sem óskað er. Einnig ósk-
ast vitneskja um, hvernig sigling eigi að
vera á seglbátum, og hvað af áhöldum
eigi að fylgja þeim, og verða þeir svo
ódýrir sem unnt er. Ef óskað er eptir,
fást bátamir með sveigðum askböndum.
Efni bátanna er allt pantað beint frá út
löndum, valið að gæðum, og kemur það í
næsta mánuði. Seglasnið og saumaskap
á þeim annast eg sjálfur.
Reykjavík r6. júlí 1903.
Vesturgötu 51 b.
Bjarni Þorkelsson sklpasmiðnr,
frá Ólafsvfk.
Islenzk frimerki
kaupir háu verði
Ólafur Sveinsson.
Anstnrstræti 6.
Áskorun
til bindindisvina frá drykkjnmannakonnm.
Munið eptir því, að W. Ó. BreiO—
fjörO hætti áfengissölunni einungis
fyrir bindindismáliO, og kaupið
því hjá honum það, sem þið fáið þareins
gott og ódýrt og annarstaðar, sem flest
mun vera nú af hans fallegu, miklu og
margbreyttu vörubirgðum.
Tilboð frá Frfhöfninni
í Kaupmannahöfn.
Cognac 73/4o— 8° — fín tegund — býðst
fyrir 96 kr. hálf „pípa" að meðtöldu ílátinu.
Sýnishorn ókeypis.
Chr. Funder.
NÝKOMNIR
Hattar og Húfur og mikið af
allskonar HÁLSLÍNI og mörgu fleira.
Einnig margskonar til fata.
ii Hvergi ódýrara. ^
12 BANKASTRÆTI 12.
Guðm. Sigurðsson
klæðskeri.
Tilboð frá Frihöfninnl
í Kaupmannahöfn.
D f\ir'4'l / í býðst fyrir 40 krónur
rUI IVlll hálf „pípa“ að með-
töldu ílátinu. Sýnishom ókeypis.
Chr. Funder.
JörOin Ós í Skilmannahreppi fæst til
sölu eða í skiptum fyrir annað, t. d. hús
eða þilskip. Menn snúi sér þessu viðvíkj-
andi til Björns Bjarnarsonar sýslumanns,
Austurstræti 10, Rvík.
p. t. Reykjavík.
Pétur M Bjarnason.
Tilboð frá Fríhöfninni í
Kaupmannahöfn.
Fínt * * * cognac 8° 55 aura, St.
Croix romm 8° 60 aura, whisky 8°
80 aura pottinn í 40 potta kvartilum.
Kvartil, vörumiðar, tappar og hylki
ókeypis. Sendist kostnaðarlaust, toll-
að á allar gufuskipahafnir á íslandi
með 75 álagi á pottinn. Borgunin af-
hendist þeim, sem vöruna flytur til
Reykjavíkur. Sýnishorn ókeypis.
Chr. Funder.
Eigandi og ábyrgðarmaður:
Hannes Þorsteinsson, cand. theol.
Prentsmiðja Þjóðólfs.
Uppboðsauglýsing.
Eptir kröfu Guðmundar Jakobsson-
ar trésmiðs hér í bænum, og að und-
angengnu fjárnámi verður húseignin
nr. 59 við Laugaveg, eign Runólfs
Þorsteinssonar, boðin upp við 3 opin-
ber uppboð, sem haldin verða kl. 12
á hádegi laugardaginn 1. ágúst og
föstudagana 14. og 28. s. m., og seld
við síðasta uppboðið til lúkningar 1300
kr. veðskuld með vöxtum og kostnaði.
Tvö fyrstu uppboðin verða haldin
hér á skrifstofunni, en hið síðasta á
húseigninni sjálfri.
Söluskilmálar verða til sýnis hér á
skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta upp-
boð.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
23. júlí 1903.
Halldör Danielsson.
Auglýsing.
Fundizt hefur í júnímánuði þ. á. 2
mílur fram undan Aðalvík rifrildi af
porskanetatrossu með 4.5 kúlum og
dreka m. M.
Réttur eigandi vitji andvirðis þess-
ara muna, að frádregnum auglýsingar-
kostnaði og björgunarlaunum, hér á
skrifstofunni áður en ár er liðið frá
þessum degi.
Bæjarfógetinn í Reykjavík
23. júlí 1903.
Halldór Danielsson.
Innköllun.
Hér með ínnkallast þeir, sem til skulda
eiga að telja í dánarbúi Erlendar Krist-
jánssonar frá Vatnsleysu í Biskupstungum,
er drukknaði 11. apríl þ. á., að lýsa kröf-
um sínum, og færa sönnur á þær við
undirritaðan innan 6 mánaða frá slðustu
birtingu þessarar auglýsingar. Innan sama
tíma eru þeir sem skulduðu Erlendi heitn-
um, einnig beðnir að gefa sig fram.
Höfða í Biskupstungum 14. júlí 1903.
Viglundur Helgason.
Góð kýr, bráðsnemmbær, fæst keypt
í september næstk. Semja má við Jón Guð-
mundsson í Digranesi.
Penlngabudda með 7 krónum, hef-
ur tapazt frá húsi Eiríks Hjaltesteds til
Thomsens magasíns. Finnandi skili á af-
greiðslustofu Þjóðólfs gegn fundarlaunum.
Tapazt hafa 2 hestar gráir frá Staðar-
hrauni á Mýrum 10. júlí, annar 7 vetra, stór,
vetrarafrakaður, dökkleitur á tagl og fax,
svartir allir hófarnir, nema á öðrum aptur-
fæti; mark: stýft vinstra; hinn 14 vetra,
lítið eitt Ijósari, vetrarafrakaður; mark: tveir
bitar aptan vinstra; báðir styggir, báðir
gamaljárnaðir. Hver sem kynni að verða
var við annanhvorn þessara hesta, eða báða,
er beðinn að handsama þá og gera héraðs-
lækni Sigurjóni Jónssyni á Staðarhrauni,
viðvart.
VOTTORÐ.
Eg undirritaður, sem í mörg ár hef
þjáðst mjög af sjósólt og árangurs-
laust leitað ýmsra Iækna, get vottað
það, að eg hef reynt Kína-lífs-elixír
sem ágætt meðal við sjósótt.
Tungu í Fljótshlíð 2. febr. 1897.
Guðjón Jónsson.
KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæst hjá flestum
kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll-
hækkunar, svo að verðið er öldungis sama
sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan.
Til þess að vera vissir um, að fá hinn
ekta Klna-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir
V.P,
að líta vel eptir því, að standi á fiösk-
unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá-
setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji
með glas 1 hendi, og firmanafnið Walde-
mar Petersen.