Þjóðólfur - 31.07.1903, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 31.07.1903, Blaðsíða 4
124 Po-ÓT — po-ól Eugi friðnr! Engi réttur! Sunnudag 26. júlí sit eg f veitingatjaldi mínu við Rauðavatn. Skothríð dynur allt í kring. En þetta er nú ekki orðið neitt óvanalegt. Alla næstl. viku hefi eg heyrt skotin dynja dag og nótt. Og á hvað er verið að herja? Fuglana, sem flúið hafa á náðir náttúru lands vors, í friðinn á vorri afskekktu eyju, til að klekja upp ungum sín- um. Þeir hafa ekki enn til fulls komizt í skilning um, að hér er „úti allur friður". Á sunnud. 19. þ. m. byrjuðu Reykvlk- ingar; síðan hafa það verið Rvíkingar, Frakk- ar, Þjóðverjar og Danir. Grafarland verður sérstaklega fyrir barð- inu á þessum morðsjúklingum. Þar býr „bara íslenzkur bóndi“, og þar er Iítillar varnar von. Um þennan tíma hafa bændur annað að sýsla, en að elta bófa út um haga. Gröf er fyrsta jörðin, sem þjóðvegirnir frá Rvík liggja um, þar sem ránsmenn þora að bera niður. Þangað til eru það lönd Rvík- ur og Englendinga. Torvelt eða ómögulegt virðist mér að ná rétti fyrir það, að eignarréttur minn er brot- inn. Hinar útlendu ránsskyttur eru flest hermenn, og er mér sagt, að vegna „exterri- torialtets-réttar" sé umsvifameira að kæra þá, en innlenda eða „civila" menn. Leyfis leita þeir aldrei. En „konsúlarnir" gætu lagt lið í þessu efni, og eg óska, að þeir v i 1 d u gera það. Þegar gengið er um hagana eptir svona hríðar, hittist fjöldi fugla hálfdauðra af skot- um : fótbrotnir, vængbrotnir, særðir til ólífis, er veslast upp og deyja eptir nokkurn tíma. Ungarnir deyja hirðulausir, er þeir hafa misst foreldrin, lítt eða óþroskaðir. Hér sé eg sefönd á vatninu með 6 unga, nýskriðna úr eggi (2—3 daga), og býst eg við, að hún verði „bombarderuð" í dag; því af öllum dögum eru sunnudagarnir mest notaðir til slíkrar guðsþakkaiðju ! Næst því að vita veslings fuglana pínda og drepna tekur mig sárt, að útlendingar skuli stælast upp í þeirri trú, að „íslend- ingum megi allt bjóða". Þýðir nokkuð að ákalla alþingi ? Friðun- artímann mætti lengja, unganna vegna. En réttarvemdin verður jafntorveld sem áður, nema háar sektir séu lagðar við fuglveiði- réttarbrotum á öllum tímum árs, svo háar, að útlendingar „respekteruðu". Þá gætti þingið í því efni sóma þjóðarinnar. Bj'órn Bjarnarson. Á sýningunni í Stokkhólmi 1897, kepptu 20 innlendir og útlendir menn um verðlaun fyrir Orgel-Harm., og var K. A. Anderson hinn eini, er hlaut æztu verðlaunin, ásamt heiðurs- pening úr gulli. Einkasölu á þessum Orgel-Harm. hefur nú hér á landi Jón Pálsson organisti, Laugaveg 41. Spyrjið því um verð hjá honum, áður en þér leitið til annara, því ódýrari, vandaðri og hljóm- fegurri hljóðfæri mun ekki unnt að fá, enda eru þau alþekkt hér á landi, fslenzk frimerki kaupir háu verði Ólafur Sveinsson. Anstnrstræti 5. NÝKQMNIR Hattar og Húfur og mikið af allskonar HÁLSLÍNI og mörgu fleira. Einnig ntargskonar til fata. H Hvergi ódýrara. ►► 12 BANKASTBÆTI 12. Guðm. Sigurðsson klæðskerl. J.P.T.BRYDES VERZLUN í REYKJAVÍK. selur bezta og ódýrasta handa konum og körlum. Sömul. Regnhlífar, úr Gloria og silki og með stálsköptum. Flauel og Hálsín, margar tegundir. Mjög falleg Svuntutau o. fl. o. fl. SMT Allt ný-komið! Saltað sauðakjöt mjög gott á 16 aura pundið, fæst nú í verzlun J.P.T.BRYDES í Reykjavík. Heimsins vöndnðnstu og ódýrustu Orgei og Piano fást fyrir rnilligöngu undirritaðs frá: Mason & Hamlin Co, Vocalion Organ Co, W. W. Kimball Co, Cable Co, Beet- hoven Piano & Organ Co. og Messrs. Corn- ish & Co. Orgel úr hnottré með 5 áttundum, tvö- földu hljóði (122 fjöðrum). o. s. f. kostar í umbúðum á „Transit" 1 Kaupmannahöfn 150 krónur. Enn vandaðra orgel úr hnot- tré með 5 áttundum. þreföldu hljóði (177 fjöðrum. þar aí 28 Contrabassafjaðrir) o. s. f. kostar 1 umbúðum í K.höfn 230 krónur. Þetta sama orgel kostar hjá Petersen & Steenstrup 1 umbúðum 347 krónur og 50 aura. Önnur enn þá fullkomnari orgel tiltölulega jafn ódýr.* Orgelin eru í minni ábyrgð frá Ameríku til Kaupmannahafnar, og verða að borgast 1 peningum fyrirfram, að undanteknu flutn- ingsgjaldi frá Kaupm.höfn hingað til lands. Verðlistar með myndum, ásamt nákvæm- um upplýsingum, sendast þeim sem óska. Einka-umboðsmaður á Islandi. Þorstoinri Arnljótsson. Sauðanesi. Hestur dökkjarpur, smávaxinn, góð- gengur og fjörugur, mark: heilrifað og gagnbitað hægra og biti aptan vinstra; flatjárnaður á öllum fótum, tapaðist frá Skildinganesi fyrir tæpum mánuði. Hver sem hittir hest þennan er beðinn að skila honum til S. Briem póstm. í Reykjavlk. Umsóknir um styrk þann, er í fjárlögunum 1902 —1903 er veittur Iðnaðarmannafélag- inu í Reykjavík »til að styrkja efnilega iðnaðarmenn til utanfarar til að full- komna sig í iðn sinni«, verða að vera komnar til félagsstjórnarinnar fyrir 24. ágúst næstkomandi. Umsóknarbréfunum verða að fylgja meðmæli frá þeim, sem hlutaðeigend- ur hafa lært iðn sína hjá. Yngri piltar en 18 ára getá eigi orðið aðnjótandi þessa styrks. Eflið innlendan iðnað. ♦ ..»1-^ Hjá undirskrifuðum geta menn fengið nýja báta smíðaða af ýmsum stærðum. Lag á bátunum er viðurkennt hið bezta, sem kostur er á hér á landi, og reynast ágætir í sjó að leggja. Smíði og frágang- ur þess mælir með sér sjálft. Sömuleiðis smíða eg motor-báta, ef pantaðir eru — að eins fá upp gefið krapt vélarinnar. — Bát- ana sendi eg með strandferðaskipum á hverja höfn sem óskað er. Einnig ósk- ast vitneskja um, hvernig sigling eigi að vera á seglbátum, og hvað af áhöldum eigi að fylgja þeim, og verða þeir svo ódýrir sem unnt er. Ef óskað er eptir, fást bátarnir með sveigðum askböndum. Efni bátanna er allt pantað beint frá út- löndum, valið að gæðum, og kemur það í næsta mánuði. Seglasnið og saumaskap á þeim annast eg sjálfur. Reykjavík 16. júlí 1903. Vesturgötu 51 b. Bjarni Þorkelsson skipasmlðnr, frá Ólafsvík. Uppboðsauglýsing. Þriðjudagana 25. ágúst, 1. og 15. septbr. næstkomandi, verður jörðin Eyjar í Breiðdalshreppi, 8,4 hndr. að nýju mati með húsum boðin upp og seld við síðasta uppboðið. Uppboðin byrja á hádegi, tvö hin fyrstu hér á skrifstofunni, hið þriðja á jörðinni. — Uppboðsskilmálar verða til sýnis hér á skrifstofunni degi fyrir fyrsta upp- boðið. — Skrifstofa Suður-Múlasýslu. Eskifirði, 9. júlí 1903. A. V. Tulinius. Áskorun til bindindisvina frá drykkjnmannakonum. Munið eptir því, að W. Ó. BreitJ- fjörö hætti áfengissölunni elnungls fyrir bindindismálifl, og kaupið því hjá honum það, sem þið íáið þareins gott og ódýrt og annarstaðar, sem flest mun vera nú af hans fallegu, miklu og margbreyttu vörubirgðum. Jörðin Ós í Skilmannahreppi fæst til sölu eða í skiptum fyrir annað, t. d. hús eða þilskip. Menn snúi sér þessu viðvíkj- andi til Björns Bjarnarsonar sýslumanns, Austurstræti 10, Rvík. p. t. Reykjavík. Pétur M. Bjarnason. Innköllun. Hér með ínnkallast þeir, sem til skulda eiga að telja í dánarbúi Erlendar Krist- jánssonar frá Vatnsleysu í Biskupstungum, er drukknaði 11. apríl þ. á., að lýsa kröf- um sínum, og færa sönnur á þær við undirritaðan innan 6 mánaða frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Innan sama tíma eru þeir sem skulduðu Erlendi heitn- um, einnig beðnir að gefa sig fram. Höíða í Biskupstungum 14. júlí 1903. Viglundur Helgason. UNDIRRITAÐUR tek- ur að sér að innheimta sknldir, annast lántökur í bankanum, kanp og söln á fasteigrnnm og skipnm, gera samnlnga og flytja mál fyrir nndirrétti. Heima kl. 11—12 og 4 -5. Lækjargrötu 8. Eggert Ciassen. Cand. Jur. Kennsla í yfirsetufræði byrjar 1. október næstk. J. Jönassen. Uppboðsaugiýsing, Eptir kröfu Guðmundar Jakobsson- ar trésmiðs hér í bænum, og að [und- angengnu fjárnámi verður húseignin nr. 59 við Laugaveg, eign Runólfs Þorsteinssonar, boðin upp við 3 opin- ber uppboð, sem haldin verða kl. 12 á hádegi laugardaginn 1. ágúst og föstudagana 14. og 28. s. m., og seld við síðasta uppboðið til lúkningar 1300 kr. veðskuld með vöxtum og kostnaði. Tvö fyrstu uppboðin verða haldin hér á skrifstofunni, en hið síðasta á húseigninni sjálfri. Söluskilmálar verða til sýnis hér á skrifstofunni degi fyrir hið fyrsta upp- boð. Bæjarfógetinn í Reykjavík 23. júlí 1903. Halldör Danielsson. V o 11 o r ð . Eg finn mig ómótstæðilega knúða að senda yður eptirfarandi meðmæli: Eg undirrituð hef mörg ár verið mjög lasin af taugaveiklun, krampa og ýmsum öðrum veikindum, er staðið hafa í sambandi við það, og er eg hafði leitað ýmsra lækna árangurslaust, fór eg að brúka Kína-lífs-elixír frá hr. Waldemar Petersen í Frederikshavn, og get með góðri samvizku vottað, að hann hefur veitt mér óutnræðilega meinabót, og finn eg, að eg get aldr- ei án hans verið. Hafnarfirði í marz 1899. Agnes Bjarnadóttir. húsíreyja. KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll- hækkunar, svo að verðiðeröldungis sama sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir V.P. að líta vel eptirþví, að - þ'' standi á flösk- unum í grænu lakki, og eins eptir hinu skrá- setta vörumerki áflöskumiðanum: Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Walde- mar Petersen. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Þjóðólfs.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.