Þjóðólfur - 14.08.1903, Síða 4

Þjóðólfur - 14.08.1903, Síða 4
132 hann hafi eigi selt fleiri farbréf en skráin greinir. 3. gr. A síðustu höfn, sem skipstjóri leggur frá til útlanda, skal lögreglustjóri sannprófa, að ekki fari á óæðra farrúmi fleiri en veitt var leyfi til á binni fyrstu höfn, að taka mætti á skipið, enda afhendi skipstjóri lögreglustjóra í því skyni annað eintakið af skrá þeirri, er ræðir um í næstu grein á undan, með árituðu æru- og sam- vizkuvottorði sínu um, að farþegar séu ekki fleiri en taldir eru á skránni. 4. gr. Brot á lögum þessum varða skip- stjóra allt að 500 kr. sekt, er renni í lands- sjóð, og skal farið með mál út af þeim, sem almenn lögreglumál. 24. Lög um kosningar til alpingis. (Því nær samhljóða lögunum frá síðasta þingi um leynilegar kosningar með kjörstað í hverjum hreppi). 25. Lög um rdðstafanir til útrýmingarfjdr- klddanum. 1. gr. Landsstjórninni veitist heimild til að gera ráðstafanir til algerðrar útrýming- ar fjárkláða og ráða til þess starfa einn framkvæmdarstjóra fyrir land allt. En hann tekur sér aðstoðarmenn eptir þörf- um. 2. gr. Eptir tillögum framkvæmdarstjór- ans semur landstjórnin reglugerð um fram- kvæmd verksins, og má þar ákveða sekt- ir fyrir brot á reglugerðinni. 3. gr. Baðlyf þau og baðpottar, er með þarf í hvern hrepp, skal flutt þangað frá næstu kauptúnum á kostnað fjáreigenda f hreppnurn. Hreppsnefndin annast um flutninginn og jafnar flutningskostnaðinum niður á fjáreigendur eptir fjártölu og inn- heimtir hann. Gjald það má taka lögtaki. Húsbóndi hver leggur ókeypis til baðker, nægilega aðstoð við böðun og skoðun fjár á heimili hans og flutning baðlyfja og böðunaráhalda til næsta bæjar. Allur annar kostnaður við ráðstaíanir til útrýmingar fjárkláðanum greiðist úr landssjóði. 4. gr. Framkvæmd tilskipunar 5. jan. 1866, tilskip. 4. marz 1871 og laga 8. nóv. rgoi, skal frestað að því leyti, sem tilskip- anir þær og lög samrýmast ekki lögum þessum. 5. gr. Lög þessi öðlast gildi þann dag, er það tölublað af B-deild Stjórnartíðind- anna kemur út, sem skýrir frá staðfest- ing þeirra. 26. Lög um frestun d framkvœmd laga 23. okt. 1893 um leigu og kaup d eimskipi og útgerð pess d kostnað landsjóðs. 27. Lög um löggilding verzlunarstaðar d Ökrum í Hraunhreppi i Mýrasýslu. 28. Lög um heilbrigðissampykktir fyrir bœj- ar- og sveitafélög. Utanferðir. „Þat mælti mfn móðir, at mér skyldi kaupa fley ok fagrar árar, fara á hring með víkingum, standa upp í stafni, , stýra dýrum knerri, halda svá til hafnar, höggva mann ok annan". Egill Skallagrímsson. Frá alda öðli hefur það þótt mikill fremdarauki að fara utan og afla sér fjár og frama. Fyrsta framfarahugsunin hjá Forn-íslendingum, þegar þeir voru ungir, var það að fara utan og afla sér fjár og frama, eins og þeir komust að orði. Enda má fullyrða, að flestir eða jafnvel allirsynir höfðingja færu utan, og það á unga aldri, 12—18 vetra gaml- ir. Það er mjög líklegt, að þessar utan- ferðir hafi haft mjög mikil áhrif á líkam- legar og andlegar framfarir íslenzku þjóð- arinnar. Og það eru allar líkur til þess, að hún hafi átt að þakka þeim hina miklu blómaöld, sem hún lifði á þessu tímabili. Það var vanalega fyrsta verk utanfarar- manna, þegar þeir komu til Noregs, því þangað voru mestar utanferðir, — að fara til kongs þess eða jarls, sem þá réð fyrir landinu og gerast hirðmaður þeirra, óg vera svo hjá þeim mismunandi langt tímabil, eða þá að fara í kaupferðir landa á milli og jafnvel í víking þeir, sem stór- hugaðastir“®voru,'_og vildu þannig reyna karlmennsku sína og afla sér fjár og frama. Vanalega fóru þessir menn til Norðurlanda og Bretlandseyjanna. En stöku menn fóru alla leið til Miklagarðs, en eins opt var það, að þeir sem þangað fóru, komu ekki aptur, heldur settust að hjá Væringum. Vér getum gert oss í hugarlund, hvað miklum framförum þessir menn hafa tek- ið, þegar þeir voru búnir að kynnast öllu menntalífi og framfaralífi Norðurlandabúa. Það má nærri geta, hvaða gagn ísland hefur haft af þessum mönnum, þegarþeir komu auðugir af andlegum og líkamleg- um auðæfum hingað til gömlu átthaganna. Þeir menn hafa hlotið að hafa áhrif á menn í kringum sig; vekjandi menntunar- áhrif hafa læðst út frá þeim til hinna námfúsu og framgjörnu unglinga, sem höfðu kynni af þeirn. Utanferðir þessar stóðu í mestum blóma á 10. og 11. öld. Að vísu voru utariferð- ir miklar á 12. og 13. öld, en þær voru allt öðru vísi, því þær voru flestar út af málaferlum á milli verzlegra og and- legra höfðingja á því tímabili. En allt fyrir það hafa þær haft góð áhrif að mörgu leyti, þó að þær yrðu lands og lýða tjón á endanum. Þegarkom lengra fram á aldir, urðu utanferðir ekki almenn- ar, því þá fóru ekki utan nema fáein em- bættismannaefni, sem fóru utan til að mennta sig, og svo einstöku höfðingjar, sem vanalega áttu þá eitthvað í málaflækjum sín á milli eða þá við danska embættismenn, sem þá réðu svo miklu hér á landi. Nú á hinum síðustu áratugum nítjándu aldarinnar hafa utanferðir mjög aukist, því fyrst fara flest embættismannaefni til Hafnar, og svo margir aðrir, sem vilja fá aukna menntun í einhverri iðnaðargrein, sem þeir leggja fyrir sig, og svo sumir til að sýna sig og sjá aðra. (Niðurl. næst). Jóhannes Friðlaugsson. Látin er 28. f. m. frú Þórdfs Helgadótt- ir Sívertsen, kona séra Sigurðar P. Sí- vertsens á Hofi í Vopnafirði, ^30. aldurs- ári (f. 2. mal 1874), giptist eptirlifandi manni sínum 1899, °8 áttu Þau 3 börn, sem öll eru á lífi. Frú Þórdís var dóttir Helga lektors Hálfdánarsonar og frú Þór- hildar Tómasdóttur. Hún var menntuð kona og mjög vel látin. Banamein henn- ar var hálsbólga (dipteritis). Mefl „Ceres“ síðast komu hingað frá Höfn auk þeirra farþega, er getið var f síðasta blaði; Jón Norðmann kaupm. á Akureyri og kona hans og Magnús Sæbjörnsson cand. med. og kona hans. Héldu hvorttveggja áfram með skipinu til Austfjarða og Akureyrar. Teðuráttufar í Rvík í júlí 1903. Meðalhiti á hádegi. 4- 12. C. —„ nóttu . + 6i. „ Mestur hiti„ hádegi. + 19 „ (24.). Minnstur —„ „ . -r 8 „(7.). Mestur — „ nóttu . + 8 „ Minnstur—„ —„— . + 5 „(13.). Mesta veðurhægð allan mánuðinn; stöku sinnum komið skúr úr lopti, annars alger- lega vætulaus og stillur. x/s—”03 J. Jónassen. Leiðrétting. Þeir, sem hafa í höndum „Skýrslu til sýsiunefndarinnar i Snœfells- nessýslu“ eptir Hermann Jónasson, eru beðnir að leiðrétta prentvillu, sem stend- ur á 3. bls. 12. 1. aðneðan: „22 pt. fmál", en á að vera „22 pd. í mál". HÚ S tll sölu á bezta stað í AUSTURSTRÆTI. Sernja má við cand. jur. Jén Þorkelsson. Elegant Reiðhúfur fyrir DÖMUR eru nýkomnar. Einnig töluvert af Drengja- og Telpu- húfum. Guðm. Sigurðsson, klæðskeri. Lærði skólinn. Fjárhaldsmenn þeirra nísveina, sem stóðust inntökupróf við lærða skólann 29. júní síðastl., eru beðnir að senda undirskrifuðum sem allra first bónar- brjef um inntóku í skólann og gjaf- kenslu og, ef þarf, um aldursleifi firir þessa pilta. Bónarbrjef um heimavist í skólanum næsta skólaár verða að vera komin til undirskrifaðs firir 23. sept. næst- komandi. Þeir piltar, sem vilja sækja um náms- stirk næsta skólaár, verða að senda undirskrifuðum fjárhagsvottorð, útfilt og undirskrifað af rjettum hlutaðeig- endum, firir 1. okt. nœstkomandi. Þeir, sem vilja sækja um stunda- kenslu við skólann næsta skólaár, verða að senda mjer beiðni um það firir 15. sept. næstkomandi. Öll bónarbrjef skulu stíluð til stifts- ifirvaldanna, en sendist undirskrifuðum. Reykjavíkur lærða skóla 9. ágúst 1903. Björn M. Ólsen. NÝKOMNIR Hattar og Húfur og mikið af allskonar HÁLSLÍNI og mörgu fleira. Einnig margskonar til fata. 4i Hvergi ódýrara. ^ 12 BANKASTRÆTI 12. Guðm. Sigurðsson klæðskerl. Eg undirritaður hef síðastliðin 2 ár þjáðst af mjög mikilli taugaveikl- u n, og þótt eg hafi leitað ýmsra lækna, hef eg ekki getað fengið heilsubót. Síðastliðinn vetur fór eg því að neyta Kí na-lí fs-el ixí rs frá hr. Walde- mar Petersení Frederikshöfn, og er það sönn ánægja fyrir mig að votta, að eg eptir brúkun þessa ágæta bitt- ers, finn á mér mikinn bata, og von- ast eptir að verða albata með stöð- ugri notkun Kína-lífs-elixírsins. Feðgum (Staðarholti) 25. apríl 1902. Magnús Jónsson. KÍNA-LIFS-ELIXÍRINN fæsthjá flestum kaupmönnum á íslandi, án nokkurrar toll- hækkunar, svo að verðið er öldungis sama sem fyr, 1 kr. 50 a. flaskan. Til þess að vera vissir um, að fá hinn ekta Kína-lífs-elixír, eru kaupendur beðnir v.p. að líta vel eptirþví, að - þ standi á flösk- unum 1 grænu lakki, og eins eptir hinu skrá- setta vörumerki áflöskumiðanum; Kínverji með glas í hendi, og firmanafnið Walde- mar Petersen. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Þjóðólfs. Uppboðsauglýsing. Þriðjudagana 25. ágúst, 1. og 15. septbr. næstkomandi, verður jörðin Eyjar í Breiðdalshreppi, 8,4 hndr. að nýju mati með húsum boðin upp og seld við síðasta uppboðið. Uppboðin byrja á hádegi, tvö hin fyrstu hér á skrifstofunni, hið þriðja á jörðinni. — Uppboðsskilmálar verða til sýnis hér á skrifstofunni degi fyrir fyrsta upp- boðið. — Skrifstofa Suður-Múlasýslu. Eskifirði, 9. júlí 1903. A. V. Tulinius. íslenzk frimerki kaupir háu verði Ólafur Sveinsson. Ansturstræti 6. Proclama. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 er hér með skorað á alla þá, sem til skuldar hafa að telja í dánarbúi hrepp- stjóra Jóns G. Breiðfjörðs frá Brunna- stöðum, að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir undirrituðum skiptaráðanda áður en Iiðnir eru sex mánuðir frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Skrifstofu Gullbr,- og Kjósarsýslu 1. ágúst 1903. Páll Einarsson. K O M T Ð ullarsendingum ykkar til Egils Eyjólfs- sonar fyrir hverja póstskipsferð og vitjið svo tauanna eptir c. 2 mánuði, lfka geta menn fengið tauin um leið og sendingin er afhent. Ætíð nægar hirgðir af tauum fyrirliggjandl. Afgreiðslan á Laugavegi 24. Virðingarfyllst. E. Eyjólfsson. Uppboð. Samkvæmt kröfu H. Th. A. Thom- sensverzlunar í Reykjavík og að und- angengnu fjárnámi verður jörðin Eiði í Seltjarnarneshreppi 7,8 hndr. u.m. seld við þrjú opinber uppboð, sem haldin verða mánudagana 7. og 21. sept. og 5. okt. þ. á. Tvö fyrstu uppboðin verða haldin á skrifstofu sýslunnar í Hafnarfirði kl. I2áhádegi, en 3. uppboðið á eigninni sjálfri og byrjar kl. 1 e. h. — Söluskilmálar verða lagðir fram á fyrsta uppboðinu. Skrifstofu Gullbr.- og Kjósarsýslu 31. júlí 1903. Páll Einarsson. Skiptafundur í dánarbúi Páls Jónassonar frá Vör- um verður haldinn á skrifstofu sýsl- unnar í Hafnarfirði þriðjudaginn þ. 8. sept. þ. á. kl. 12 á hádegi. Verður þá lögð fram skrá yfir eigur og skuld- ir búsins og skiptum búsins væntan- lega lokið. Allir skuldheimtumenn og erfingjar eru aðvaraðir um að mæta. Skrifstofu Gullbr,- og Kjósarsýslu 1. ágúst 1903. Páll Einarsson. Undirritaðir óska að komast í samband við einhvern, sem vill senda út góða, ís- lenzka hesta til þess að selja þá i Dan- mörku. Meðmæli frá Iðnaðarmannabank- anum og Verkmannabankanum í Kaup- mannahöfn. Chr. Jensen & J. C. Westergaard Kvægtörvet, Kjöbenhavn.

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.