Þjóðólfur - 30.10.1903, Side 2
174
var unnt að þekkja þá frá ósviknum
seðlum á öðru en því, að vatnsmerki
vantaði í þá. Um 4000 kr. voru komnar
í gang af seðlunum, þegar sökudólgamir
voru handteknir. Þjóðbankinn hefur inn-
leyst þá fullu verði, með þvl að hann
hafði um nokkrra hríð haft vitneskju um,
að falskir seðlar væru á gangi, en ekki
varað menn við þeim, til þess að söku-
dólgamir skyldu ekki verða smeikir um
sig og forða sér, áður en lögreglan næði
í þá. Þeir bíða nú dóms.
Bech-Olsen vínsali í Kaupmannahöfn
hefur lengi verið talinn sterkastur maður
í Danmörku og mestur glímumaður í heimi.
Hafði hann lagt að velli alla hina mestu
gtíniukappa heimsms, og hafði unnið sér
að launum í Englandi silfurbelti eitt mikið
og fagurt. En nú í haust kemur bónda-
strákur utan af Jótlandi, er Jess Pedersen
heitir, og iðkað hefurglímurnokkuð heima
og erlendis, og skorar á hann að koma í
eina bröndótta. Fóru þá svo leikar, að
hann lagði Bech-Olsen að velli eptir 6
mínútur. Er hann þar með fallinn úr tign-
inni sem heimsins mesti glfmukappi.
Draup n i r.
Tímarit. Útgefandi: Torfhildur Þorsteins-
dóttir Holm. 7. ár.
í hepti þessu er framhald af sögu Jóns
biskups Arasonar (saga um æsku hans)
og Samsærið, þýðing á forngrískri sögu.
Saga Jóns biskups Arasonar ætti að
vera oss Islendingum kærkomin. Hann
er svo víðfrægur orðinn um land allt, að
nafn hans lifir á hvers manns vörum, og
svo kynsæll er hann orðinn, að flestir góð-
ir Islendingar eiga til hans ætt slna að
rekja og þykir heiður mikill. Hann er
trúhetjan bjargfasta, sem heldur hlífiskildi
yfir kirkju sinni og lætur ekki víkja sér
um set frá trú sinni og sannfæiing. Auk
þess er liann ofurhúginn mikli, er þolir
enga kúgun, en vill, að dæmi fornkappa
vórra, heldurdeyja með sæmd en lifavið
skömm.
Mörgum mun forvitni á að kynna sér
skáldsögu þessa. Hún leiðir fyrst foreldra
Jóns Arasonar fram á sjónarsviðið og skýrir
frá lyndiseinkunnum þeirra og sambúð.
Elín bláhosa, móðir hans er vel ættuð og
metorðagjörn, svo að fram úr hófi keyrir,
en Ari bóndi hennar er snauður og fítt
virtur; þykist hún því vargefin og ersam-
búð þeirra hjóna ill. Það eitt er Ifkt með
þeim, að hvorugt vill sinn hlut fyriröðru
táta og hún þó öllu síður. Jón Arason
elst upp í fátækt hjá foreldrum sínum og
erfir ósveigjanlega lund, en einnig góðleik
föður síns. Hann er þegar í æsku svo
skír og gerfilegur, að hann vekur athygli
manna á sér. Snemma bendir og rnargt
á það, að hann muni komast úr fátækt-
inni til vegs og valda, verða prestur eða
jafnvel biskup. Þessar hugmyndir glæða
þær móðir hans og amma hjá hinumunga
svein, þær dreymir f vöku og svefni að
hann muni ættarlaukur verða. Þóra brók,
amma hans segir, honum þegar hann er
barn að aldri, að hann skuli horfa út að
Hrafnagili, því að þar eigi hann síðar
prestur að verða. Og þegar sveinninn
segir föður sínum þessi tíðindi, svarar
hann brosandi: »Það verða þá draum-
órarnir hennar móður þinnar, sem vígja
þig þangað«. I barnæsku hans er því
einnig spáð, að kollurinn muni fjúka af
honum.
Margt er skrítið f sögu þessari, sem
kemur ekki beinlínis Jóni Arasyni við, en
á að sýna aidarháttinn. Það er enginn
barnaleikur að semja sögur um mikilmenni
þjóðarinnar, og má ekki ofmikið heimta
af þeim sem ísinn brýtur. Það gegnir
mestu furðu, að hin eina skáldkona, er
islenzka þjóðin á, skuli hafa orðið fyrri
til þess en karlmennirnir að semja skáld-
sögur um biskupana Brynjólf Sveinsson
og Jón Vídalín, er hafa að maklegleik-
um náð mikilli alþýðuhylli. J.
Nýi bankinn
kvað ekki vera væntanlegur hingað að
sinni. Sagt er þó, að með miðsvetrar-
ferðinni sé von á einhverjum sendimanni
frá bankafélaginu til að leigja húsnæði
og starfa eitthvað að undirbúningi banka-
stofnunarinnar, sem eflaust verður ekki
til fulls komin á laggirnar fyr en að vori.
Eins og tekið hefur verið fram í Þjóð-
ólfi áður, eru þeir Warburg nú lítt eða
ekki riðnir við þetta fyrirtæki. Mikils-
háttar landi vor í Höfn hefur skrifað hing-
að, að Warburg hafi afsalað bankanum
frá sér til Heide og Therkelsens norsks
bankastjóra, er hafi útvegað féð. Það er
að vfsu leiðinlegt fyrir þá, sem mest hafa
nuddað sér upp við Warburg hér heima,
að hann skuli vera sama sem »útúrspil-
inu«. Einkum á Bessastaða-Þjóðviljinn
erfitt með að halda vatni út af þeim sorg-
artfðindum, en sér til huggunar þeysir
hann úr sér þessari venjulegu, ógeðslegu
Þjóð vilja-froðu sinni, sem enginn tekur
mark á og sjaldnast er annað en jórtur-
slefa af einhverri tuggu, sem áður hefur
verið millum tannanna á einhverju flokks-
blaði hans, helzt Isafold, er Þjóðviljinn hef-
ur sérstaklega lagt í einelti með eptir-
hermum og mundi flestum öðrum þykja
það leiðinlegt starf og lftilmannlegt. En
það er optast segin saga, að þá er Isa-
fold hefur létt á sér, verður Þjóðviljanum
mál.
Að vfsu er það harla leitt, að þeir War-
burg skyldu ekki verða höfuðsmenn og
alls ráðandi í þessu fyrirhugaða bankafyr-
irtæki, svo að þeir gætu launað tryggum
þjónum trúa fylgd, en það er samt hálf-
vesaldarlegt að bera sig ekki karlmann-
lega yfir þeim vonbrigðum. Hver veit
nema náðarsólin frá nýju bankamönnun-
um skíni sérstaklega á Warbtirgsliðana.
Það væri að minnsta kosti gustuk, því að
töluvert hafa þeir til matarins unnið, og
alls ekki dregið af sér mannatetrin, bæði
í því að reyna að koma landsbankanum
fyrir ætternisstapa og með því hvað eptir
annað að stappa stalinu í þá Warburg
að örvænta ekki, þá er þeir voru í þann
veginn að missa móðinn. Slfkt og þvílíkt
er þó að minnsta kosti launavert.
Eins og eðlilegt er, kvað nýju banka-
mönnunum hafa verið mikið áhugamál,
að fá landsbankanum steypt saman við
bankann þeirra, en það verður ekki gert
nema með lögum. Að þessu marki verð-
ur auðvitað reynt að vinna af fremsta
megni af þeirra hálfu, því að þeim mun
vera mjög um og ó að koma hingað, úr
því að landsbankinn fékkst ekki lagður
niður. Það mun verða eitt af höfuðhlut-
verkum þingsins eptirleiðis, að hafa nán-
ar gætur á þessumáli, þvíað það ereng-
inn efi á, að þessi banki reynir að hafa
pólitisk áhrif í framtíðinni, áhrif á skip-
un þingsins o. s. frv., enda hefur þetta
bankamál verið stórpólitiskt mál frá upp-
hafi og verið notað mjög ósleitulega og
freklega í þarfir valtýska flokksins gamla,
og svo má ætla að enn verði gert, þótt
skipt sé um húsbændur, og hvorki War-
burg né Valtýr séu nú mikils ráðandi orðn-
ir í bankapólitlkinni.
Skrifað er frá Höfn 14. þ. m. af sama
manni, sem fyr er vitnað til: »Spáð er,
að bankinn mest muni verða síldar- og
hvalabanki norskur, en lítt fyrir búkarla
íslenzka. Undarlegir eru Islendingar, að
gefa frá sér seðlaútgáfuréttinn útlending-
um út í bláinn. Mælt er, að þeir (o:
bankamennirnir) vilji ákaft ná f lands-
bankann; bak við þennan nýja banka
standa miklir burgeisar, svo að hann get-
ur orðið örðugur viðfangs fyrir þá, sem
eiga við hann að keppa«.
Þannig farast þessum landa vorum órð,
en sá maður hefur oss vitanlega aldrei
skipt sér neitt af bankadeilunni.
í vel ritaðri grein í »Social-Demokrat-
en« 8. þ. m. er og vikið að áhrifum þeim,
er þessi nýi banki muni að líkindum hafa
á sfldveiða- og hvalveiðalöggjöfina 1 sam-
bandi við þessar veiðar Norðmanna hér
við land. Það sýnir sig, er til framkvæmd-
anna kemur, hvort svo verður eða ekki.
En óánægðir munu íslenzkir bændur verða,
ef þeir eru gerðir hornrekurerlendra fiski-
manna hjá bankanum nýja, er svo mjög
hefur verið lofaður af fylgismönnum hans,
að kröfurnar til hans niunu ekki verða
smávægilegar. Það væri óskandi, að al-
menningur yrði þar ekki fyrir neinum von-
brigðum.
Kvöld.
Hve ljúft að heyra hafsins þunga nið
Og hjartans veiku strengi saman slá —
Hve ljúft, að sjá þig rísa, bára blá,
Breiðast, hníga og þagna strendur við —
Hve ljúft, að eiga þína sterku þrá
Til þessa lands og ekkert fjærra mið —
Hve ljúft, að berast brjóstum þínum á
Og blunda vel og síðast þér við hlið —
Það máttu fuglum hafs og himins ljá
Og huga mínum þennan stundarfrið —
Þú, djúpsins alda, speiglar himinn há,
Þú hvelfist yfir mannsins sorg og þrá.
— Já, ljúft er að finna haf og hjarta slá,
Hljóma, og vekja þennan sterka nið.
Sig. Sigui ðsson.
Valurinn og þorskurinn.
Með konungsúrskurði 3. þ. m., s. d. og
stjórnarskráin var staðfest, er ákveðið, að
merki Islands skuli eptirleiðis vera
Hvítur valur1) á bláum grunni.
Flatti þorskurinn er því fallinn úr sög-
unni sem þjóðmerki vort, og munu fáir
sakna hans, því að lítt hefur hann vin-
sæll verið. Á Alberti þakklæti skilið fyrir
þessa breytingu, og mun hún hvarvetna
mælast vel fyrir hér á landi.
Sumir hafa ætlað, að með þessari
breytingu væri dannebrogsl'áninn úr gildi
genginn hér, svo að ekki væri skylt
að flagga optar með honum, en það
er misskilningur einn, því að dannebrogs-
fáninn er auðvitað eptir sem áður óhagg-
aður sem verzlunarfáni vor, meðan vér
erum í sambandi við Danmörku. En
skjaldarmerki, eins og t. d. valurinn nú
hjá oss, eru sérstök merki eða einkenni,
sem annaðhvort einstakar ættir, lönd, bæ-
ir, félög o. s. frv. hafa til sérkennis, til
aðgreiningar frá öðrum. Dýramyndir
eru mjög sjaldgæfar á verzlunarfánum
þjóðanna, það er að eins 1 Síam (fíll), 1
Persíu (ljón), í Birma (fugl), í Kína (ann-
ar fáninn: dreki). En flatti þorskurinn er
nú numinn úr danska rfkismerkinu, sem
sérstakt þjóðmerki vort, og valurinn kom-
inn í staðinn. Afleiðingin verður meðal
annars sú, að þorskurinn verður sjálfsagt
tekinn burtu af þeim opinberu byggingum
hér, sem hann nú skreytir, t. d. af dóm-
kirkjtinni og alþingishúsinu.
1) Orðið „valur" ætti að útrýma fálka-
nafninu, því að bæði er það eldra orð og
fallegra. En málvenjan er opt rík, og örð-
ugt að breyta henni. Haukur lögmaður
Erlendsson (-[- 1334) hafði val í skjaldar-
merki sínu, hefur eflaust staðið í sambandi
við nafn Hauks, en aðalsmerki Lopts ríka
var ekki valur, eins og sumir hafa haldið,
heldur ormur.
Um atferli útflutnlngsagent-
anna í Austur-Skaptafellssýslu næstl. vor,
er oss skrifað af skilríkum manni þar í
héraðinu 1. þ. m.:
Herra ritstjóril Því miður er ekki hægt
að skýra yður svo greinilega sem skyldi
frá aðförum þeirra kumpána, er fólk kall-
ar Vesturheims-»agenta«, hér austanlands
í vetur og vor sem leið, en sem dæmi
upp á sannsögli þeirra má taka það, að
að sá, sem hér var á rölti (Jón að nafni)
hafði þær fréttir að færa meðal annars,
að (í Islendingabyggðum) í Ameríku væri
engin berklaveiki(!!!). Fyrst var gert ráð
fyrir, að vesturfarahópurinn hér úr sýslu
færi með »Hólnm« frá Hornafirði 17.
maí og svo til útlanda frá Fáskrúðsfirði
með »Ceres« 21. s. m., en þegar að þeim
tfma leið, komu boð um það frá Sveini
Brynjólfssyni (sem kvað vera orðinn feitur
burgeis vestra, síðan hann fór að smala
löndum sínum þangað, en áður sagður
ráðafár til að standa straum af sfnum
nánustu) að hann mundi útvega skip til
að flytja vesturfara beina leið frá Djúpa-
vogi og öðrum austurhöfnum. Svo fór
fólkið austur, en þegar þangað kom, var
ekkert slíkt skip þar til, og Sveinn Brynj-
ólfsson, sem kom með »Vestu« til Fá-
skrúðsfjarðar frá útlöndum um sömu mund-
ir (um 18. maf) hafði ekkert skip fengið,
en mun þó ekki hafa verið svo hreinskil-
inn eða hugsunarsamur, að láta mennina,
er hann hafði gabbað svona, vita í tíma
hvernig komið væri, svo að þeir gætu
tekið sér far með »Ceres«, eins og í fyrstu
stóð til. Urðu þeir þvf að bíða næstu
ferðar (í júnf), margir sér til mikilla leið-
inda og óþreyju, og hefði getað hlotizt af
þessu stórtjón fyrir þá, hefði hér á Fróni
verið algert atvinnuleysi um þennan tíma,
en góð atvinna f Vesturheimi (samkvæmt
skrumi »agentanna«), en um þetta efni
eru eigi komnar hingað greinilegar fréttir,
þótt svo virðist, sem atvinna hafi brugð-
izt ýmsum, er vestur kom, en hittervíst.
að margir sem fóru, kunna þar mjög illa
við sig og þrá af alhug að komast sem
fyrst heim aptur.
Eptir að þessi hóptir var farinn aflandi
burt, kemur maður nokkur af Seyðisfirði,
Hornfirðingur að uppruna, suður til átt-
haga sinna, og reynir af miklu kappi að
að teygja menn til Vesturheims; segir að
nú ætli svo og svo margir að ári, og þá
komi þetta umtalaða skip (Sv. Br.) beina
leið og taki menn fyrir mjfig lágt fargjald.
Að líkindum hefur Sv. Br. gerí þennan
»legáta« út, og lofað honum góðu kaupi,
ef hann gæti veitt einhverja veika sál.
Svona eru aðfarirnar á þessum »sfðustu
og verstu tímum«.
Stjórnarskrúrbreyting in
nýja var staðfestafko n u n g i
3. þ. m. Mun nýi ráðherrann verða skipað-
ur innan skamms, svo að nýja stjórnin geti
sem fyrst tekið til starfa, en naumast getur
það orðið fyr en í febrúar eða marzm.
næstk. Alhniklar bollaleggingar eru um
það í dönskum blöðum, hver skipaður
verði Islandsráðherra, en auðvitað er slík-
ar getgátur lítt að marka.
Lög frá alþingi
staðfest af konungi 3. þ, m. auk stjórn-
arskrárbreytingarinnar:
8. Lög um aðra skipun á æztu umboðs-
stjórn íslands.
9. Lög um kosningar til alþingis.
10. Lög um viðauka við lög 8. nóv.
1895 um hagfræðisskýrslur.
11. Lög um hafnsöguskyldu í Isafjarðar-
kaupstað.
12. Lög um eptirlit með þilskipum, sera
notuð eru til fiskiveiða eða vöru-
flutninga.