Þjóðólfur - 08.01.1904, Side 4

Þjóðólfur - 08.01.1904, Side 4
8 fengis neyta, heldur og þeirra manna, er bunduir eru félagsböndum. Tilraunir hafa sýnt það og sannað, að Jafnvel smáir skammtar áfengis hindra skarpt i[ugsunarstarf, trufla verkanir sell- anna og tauganna í líkamanum, veikja sjálfsvaldið með því að sljófga dómgreind- ina og viljann, og hafa enn önnur skemm- andi áhrif. Ef afneytun áfengis ryddi sér til rúms, mundi af því upprenna slík öld heilbrigð- is, hamiugju vg ánægju,{að þar með feng- ist lausn á mærgum vandamálum þjóð- lífsins". Yfirlýsingu þessa gáfu út og undirrituðu 530 læknar: 300 brezkir, 8 ameríkskir, búsettir í Norðurálfu, ioó þýzkir, 40 rúss- neskir, 35 sveiskir, 17 austurískir og ung- verskir, 15 sænskir, 13 danskir, og 2 hol- ienzkir. H. J. Veðurátta hefur verið mjög umhleypingasöm síð- an fyrir jól, úrkoma óvenjulega mikil, en frost lítil. Jörð að mestu alþíð enn. Skemmtanlr um jólin hafa verið með minna móti í þetta sinn, og fremur dauft yfir bæjarllf- inu, sjálfsagt meðfram veðurs vegna. Það eru helzt sjónleikarnir, sem nokkuð hefur borið á. Aðsóknin að »Gjaldþrotinu« eptir Björnson hefur verið allmikii, og þykir bæjarbúum leikur sá góður og vel leikinn. — í fyrra kveld (þrettándakveld) var haldinn fjölmennur grímudansleikur í Báruhúsinu, og allmjög til hans vandað með búninga o. fl. Kvað það hafa þótt hin mesta skemmtun, enda sjaldgæf hér, meðal heldra fólks, sem kallað er. Oufusklpið „Scandia" fór héðan til útlanda að morgni 6. þ. m. með saltfisksfarm frá verzluninni »Ed- inborg«, hafði verið hér meira en hálfan mánuð. Með því tók sér far Guðm. Magn- ússon prentari, til að hagnýta sér styrk þann, er síðasta alþingi veitti honum til skáldmenntunar erlendis. Tvö vel meubleruð kerbergi óskast til leigu. Ritstjóri vísar á. og vasaklútailmefni — nýjasta tízku- ilmefni — ættu allir að kaupa. Lotteríseðlar sendast gegn 'borg- un fyrirfram. I þessum dráttflokki eru 118,000 hlutir, 75,000 vinningar. Verð: 1. dráttur 1 kr., 2. 1 kr. 50 a., 3. 2 kr., 4. 3 kr., 5. 3 kr. 60 a., 6. 4 kr. hvert númer. Vinningarnir sendast þeim, sem vinna, ef óskað er. 2. dráttur fer fram 18. og 19. nóvember, 3. dráttur 16. og 17. desember. Thomas Thomsen yfirréttarmálaflutningsmaður. GI. Strand 48. Köbenhavn K. Löggiltur hlutasali fyrir: „Almindeligt dansk Vare- og Industrilotteri". Yátryggingarfélagið . „S U N“, híð elzta á Norðurlöndum, stofnad 1704, tekur í brunaábyrgð: Hús og bæi, hey og skepnur og allskonar innan- stokksmuni; aðalumboðsmaður hér á landi er: Matthías Matthíasson, slökkviliðsstjóri. Seldar óskllakindur í Kjósarhreppi n. 1. haust. 1. Hvítur hrútur 1 v. blaðst. fr. standfl. apt. h., blaðst. apt. standfj. fr. v. 2. Hvítur sauður.i v. blaðst. apt. h., vagl- rifa og hang.fj. fr. v. Hornamark: biti fr. gat. h., gat v. 3. Hvítur lambhr. stúfrifað biti fr. h., stúfr. b. fr. v. m 4. Grátt geldingslamb sýlt h., sneitt og standfj. apt. v. 5. Mórautt hrútlamb vaglr. og hangfj. fr. h., gagnstandfjaðr. v. 6. Hvítt gimbrarlamb tvístýft apt. sýlt í hærristúf h., stýft standfj. ff. v. 7. Hvítt geldingslamb stýft h., sýlt lögg fr. v. 8. Grámórautt hrútlamb sýlt gagnb. h., tvístýft biti fr. v. 9. Hvítt geldingslamb sýlt h,, hálfaf fr. standfj. apt. v. 10. Svart gimbrarlamb hamarsk. h., stúfr. hangfj. fr. gat v. 11. Hvítt gimbrarlamb"vaglr. og biti apt. h., gagnb. v. 12. Svart geldingslamb heilrif. h., heilrif. v. 13. Svart geldingslamb blaðst. apt. biti fr. h., blaðst. fr. v. 14. Svart hrútlamb standfj. apt. v. 15. Hvítt hrútlamb bragð fr. h., gat v. 16. Hvítt gimbrar lamb blaðst. apt. gagnb. h., tvístýft apt., biti fr. v. Neðra-Hálsi 28. des. 1903. Þórdur Guðmundsson. Á síðast liðnu hausti, var mér undirskrif- uðum dregið hvítt gimbrarlamb með mínu marki: heilrifað, lögg fr. hægra, stýft biti fr. vínstra. Lamb þetta á eg ekki, og verður sá er eiga kann að sanna eignarrétt sinn á lambinu, semja við mig um markið, og borga þessa auglýsingu. Sigmundarstöðum í Þverárhlíð 11. des. 1903. Magnús Gunnlaugsson. Seint í okt. þ. á., tapaðist á veginum frá Þjórsárbrú, að Ægisíðu, pappakassi. í hon- um voru kraptæfingabönd. Á kassanum stendur: Sandow’s Combined Dcvelopei, ásamt með mynd. Finnandi beðinn að skila að Odda í Rangárvallasýslu mót sanngjörnum fundarlaunum. Takið eptir! Undirritáður hefur hús til sölu á góðum stað í bænum. Semja má við undirritaðan. Bjarni Jónsson, snlkkari. Vegamótum. Fyrverandt sjúkrahús Reykjavikur með stórri tilheyrandi lóð, er til sölu með væg- um kjörum. Menn semji við dr. J. Jónassen. Froclama. Samkvæmt lögum 12. apríl 1878 og opnu bréfi 4. janúar 1861, er hér með skorað á alla þá, sem telja til skuldar í félagsbúi hjónanna Indriða ísakssonar og Jakobínu Þorsteinsdótt- ur frá Keldunesi, er önduðust þar 10. febrúar þ. á. og 26. des. f. á., að lýsa kröfum sínum og sanna þær fyrir skiptaráðandanum í Þingeyjarsýslu, áð- ur 6 mánuðir eru liðnir frá síðustu birtingu þessarar auglýsingar. Skrifstofu Þingeyjarsýslu. Húsavík 28. nóv. 1903. Steingrímur Jönsson. Jörðin Húsatóptir í Grinda- víkurhreppi, fæst til ábúðar í næstu fardögum (1904). Hún er ein með beztu jörðum í hreppnum, bæði hvað snertir trjareka og vetrarbeit, jafnt fyrir sauðfé og hross. Um bygginguna semur. Einar Jónsson í Garðhúsum. Aðalfundur »Þilskipaábyrgðarfélagsins við Faxa- flóat verður haldinn á »Hotel Island* ekki mánudaginn 11. jan., sem er áð- ur auglýst, heldur 1. febr. nœstk. kl. S e. h. Arsreikningar félagsins verða fram- lagðir, og kosnir: 1 maður í stjórnina, 2 endurskoðunarmenn og 3 virðinga- menn, og eí til vill ræddar tvaér breyt- ingar á lögum félagsins. Tryggvi Gunnarsson. Aðalfundur »íshúsfélagsins við Faxaflóat. verður haldinn á »Hotel Island« föstud. 22. jan. þ. á. kl. 5 e. h. Ársreikningar félagsins verða fram- lagðir, og kosinn 1 maður í stjórnina og 2 endurskoðunarmenn. Tryggvi Gunnarsson. Eigandi og ábyrgðarmaður: Hannes Þorsteinsson, cand. theol. Prentsmiðja Þjóðólfs. 118 sagði Páll. „Lögregluliðið komst af hendingu að því, hvar gesturykkar var falinn. Vagnstjóri á flutningsvagni sá mann liggja við járnbrautar- sporið, og svo sá hann hann standa upp og hlaupa burt, þegar vagninn ók áfram. Þegar lögreglan heyrði þetta, sendi hún mann þangað til að grennslast eptir þessu, og þeir hittu tvo bændur að máli, sem báru það, að þeir hefðu séð mann, sem hefði sagt við þá, að hann vildi fá leigð- an vagn og hest. Ferðataskan hans fannst í skóginum rétt hjá húsinu ykkar, og þetta nægði, einkum sakir þess, að fólk ykkar hefur ekki sem beztan orðróm vegna bróður þíns. Eg heyrði engan ávæning af þessu fyr en í morgun. Landstjórinn duldi mig þess viljandi vegna ástar minn- ar til þín. Hann sagðist hafa lagt svo fyrir, að lögregluliðið væri svo kurteist sem framast var unnt og gerði móður þinni engan óskunda. Eg vona, að ráðstöfunum hans hafi verið hlýtt". Katrín svaraði þessari spurningu engu. Henni fannst, að hún hefði haft rangt mal að verja. Sigur Pals var fullkominn. Hann hefði getað notað sér sigur sinn til að ásaka hana fyrir að henni skyldi koma til hugar, að gruna hann um undirferli. Enhannvildi ekki ljúga af því að hann talaði við hana. Hann hugsaði með skelfingu um, hversu nærri honum hafði legið að gera það, sem hún ásakaði hann fyrir. Hann gekk til hennar, og á hörkulega andlitinu hans mátti sjá, að hann viknaði innilega. „Katrín", sagði hann, „þú mátt ekki láta þetta fá svona mikið á þig. Þú mátt ekki iíta svona út. Við skulum vera eins og við erum vön að vera. Eg er orðinn reyndur í heiminum, og eg er ekki mjallhvítur mað- ur, það veit eg. En réttu mér höndina og láttu þér þykja vænt um mig. Þegar eg er hja þér verð eg betri maður og hreinni. „Fyrirgefðu mér, að eg hafði þig fyrir rangri sök‘\ sagði hún og lagði hönd sína í höndina á honum. Hann færði höndina að vörum sínum, og þau sættust heilum sáttum. Páll Og Katrín ætiuðu að halda brúðkaup sitt um jólaleytið, og þá ^etluðu ættingjar þeirra að safnast saman í borginni, til þess að heiðra Jiessa hátíðlegu athöfn. Landsstjórinn hafði lofað að vera svaramaður 119 hans. Brúðkaupið átti að halda með svo mikilli viðhöfn, að orðrómurinn af því flygi út um alla sveitina. En eptir misskilning þann, sem átti sér stað milli hjónaefnanna, sakir dvalar Vladimirs þar í húsinu, vildi Katrín flýta brúðkaupinu; Páli þótti sér mikill heiður gerður með því. „Jæja, við giptum okkur þá í október", sagði hann. „Eg skal biðja ættingja mína að koma fyr en til var ætlazt". „Nei, það er oflöng bið“, sagði Katrín. „Hvenær vilt þú þá að við höldum brúðkaupið?" spurði hann bros- andi. „Það eru ekki netna tveir mánuðir þangað til brúðkaupið er á- kveðið i október". „Eigum við ekki að halda það að hálfum mánuði liðnum ?" sagði Katrín. Pall mótmælti því. „Með svo stuttum fyrirvara get eg ekki boðið ættingjum mínum, og þá er óvíst, að þeir komi". „En eg kæri mig ekkett um að láta bjóða neinum. Tii hvers er það annars ?“ sagði Katrín. Hún hafði einnig á móti því, að brúðkaupið yrði haldið í borginni, og vildi láta halda það í lítilli kirkju í næsta þorpi, án allrar viðhafnar og brúðkaupsgesta. „En það líkist svo fólki, sem hleypur ógipt saman", sagði hann. „Það kemur engum við", sagði hún. Páli leizt ekki á þetta fyrirkomulag, en Katrín lét ekki af þessu, og hann neyddist til að láta undan. Hún gat ekki gert sjálfri sér grein fyrir, af hverju hana fýsti svo mjög að hraða brúðkaupinu. Það var alls ekki af því, að hún hefði meiri ást á Páli nú en fyr. Það var svo langt frá því, að nú var henni einmitt farið að þykja hann leiðinlegur. En þessi bið og dráttur varð henni allt í einu óþolandi, og hana lang- aði til að brúðkaupið væri um garð gengið. Hún kvaldi sjálfa sig með efa og ýuiiskonar spurningum, og henni fannst, sem eina bótin til að þagga þær niður væri að giptast. Hún flýtti með svo miklum ákafa öllu er meö þurfti til brúðkaupsins, að hún varð óró í skapi og jafnvel reið/ ef eitthvað tafði fyrir.

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.