Þjóðólfur - 03.03.1905, Síða 1
57. árg.
Reykjavík, föstudaginn 3. marz 1905.
Öllu snúið öfugt |>ö.
Það er siður valtýsku blaðanna eða
stjórnarfénda, að eitt blaðið býr til lyga-
sögu um menn eða málefni, og svo taka
hin blöðin söguna upp, bæta við og færa
hana í annan búning. Almenningur á
svo að skilja, að sagan sé alveg sönn,
þegar svo mörgum málgögnum ber saman.
Til að sýna, hvernig blöð þessi hafa
endaskipti á sannleikanum, vil eg taka
tvö dæmi, þó þau í sjálfu sér séu mjög
ómerkileg.
Á bæjarstjórnarfundi kom fram ósk frá
manni, að hann mætti nota heita vatnið
í laugunum, sem bærinn á, til sápugerð-
ar, en jafnhliða kom ósk frá tveimuröðr-
urn um notkun vatnsins, annar vildi nota
vatnið til skinnasútunar, hinn vildi reyna,
hvort hægt væri að nota hitann- 1 laug-
unum til að mynda ljós, er leiða mætti
til Reykjavíkur til þess að lýsa upp hús
og götur bæjarins.
Eg fylgdi því fram á fundinum, að
mest væri áríðandi, að nota hitann 1 laug-
unum bænum til upplýsingar, ef það væri
hægt, og ætti því fyrst að reyna það til
hlítar, áður en öðrum væri leyfð notkun
lauganna.
Nokkru seinna var eg á fundi með há-
setum í Bárufélaginu, og heyrði þar dá-
lítinn kur eða óánægju háseta, yfir frétt,
sem var nýkomin, að búið væri að ráða
50 háseta norska, sem ættu að vera á
skipum hér frá Faxaflóa ( sumar. Þeir
töldu það gert til að spilla atvinnu sinni.
Sern formaður útgerðarnrannalélagsins
svaraði eg því, að ráðning þessi væri
nefndu félagi óviðkomandi, enginn í fé-
laginu hefði ráðið þessa menn, svo ráðn-
ing þessi þyrfti ekki að spilla góðu sam-
komulagi milli félaganna, en það gæti vel
verið, aðskipaeigendur utanfélags
hefðu beðið Matthfas Þórðarson að út-
vega sér háseta, af þvf hann hefði í fyrra-
vetur fengizt við að ráða háseta á skip hér
í Reykjavík, og væri nú á ferð f Noregi í
erindurn þings og stjórnar, til að hvetja
menn þar til að búsetja sig hér á landi.
Þetta er nú komið fram, 50 Norðmenn
eru komnir sem hásetar hjá fjórum utan-
félagsskipseigendum f Reykjavík og Hafn-
arfirði; þeir höfðu beðið M. Þ. að útvega
þessa menn, af því þeir voru hræddirvið
fólkseklu og voru ekki búnir að gleyma,
hve mjög þeir þurftu að ganga eptir há-
setum f fyrravetur.
Þessu snýr nú »Ingó!fur« litli — og hin
blöðin — þannig:
»Hér er nú um nýjan innlendan iðnað
að ræða (sápugerð), sem virðist geta átt
blómlega framtfð. Framfaramaðurinn Tr.
G. vildi vfsa málinu frá umsvifalaust«.
Hér er alveg sleppt að minnast þess,
að önnur notkun lauganna var jafnhliða,
sem bæjarbúum var miklu nauðsynlegri
en sápugerð.
»Eptir því sem Tryggvi ráðherrakomm-
andör hefur skýrt frá á fundi1)
hefur stjórnin sent hr. Matth. Þórðar-
son til Noregs,, til þess að ráða þessa menn
1) Lapið eptir „Fjallkonunni", og þó
breytt til verra, eins og siður er þeirra „sam-
einuðu".
á þilskipin hér, og varið til þess fé, sem
alþingi hafði veitt til annars«.
Hér er nú gersamlega öllu snúið við,
og mér gerð upp orð, sem eg aldrei hef
hugsað né talað; en hér var tækifærið,
sem varð að nota, af því eg minntist í
ræðu minni á stjórnina, fjárveiting þings-
ins og Matthías, því varð að hræra öllu
saman og færa svo allt í stílinn.
Þetta er nú gert f þvl smáa, en sama
leik og verri leika þessi óþokkablöð f
stórpólitíkinni, þau líta svo á, að þau
málefni sétl fyrir ofan skilning alþýðu og
telja sér þvf óhætt, aö rógbera, rangherma
og fimbulfamba þar.
F.kki má skilja svo, aö eg sé að afsaka
mig, útgerðartn.félagið eöa stjórnina, eða
telji það óráð, að Norðmenn hafa verið
ráðnir hingað. Allir hyggnír menn verða
að viðurkenna, að það er hagur fyrir
hvert land, að fá aukinn vinnukrapt, og
þá eigi sízt fyrir vort land, þar sem flest-
ir kvarta um, að ekki sé hægt að fá menn
til vinnu, bændur verða að láta grasið
standa óslegið vegna fólkseklu, og þurfa
svo að minnka bústofn sinn; hafið kring-
um lar.dið er fullt af auðlegð, en lands-
menn geta sárlitlu náð af henni, af þvf
þá vantar vintiukrapt, og svo hirða út-
lendingar það sem landsmenn sjálfirhefðu
átt að hagnýta sér. Eg veit, að »Ingólf-
ur« veslingur skilur þetta ekki, en bænd
ur upp f sveit skilja það, og fagna því,
að þeir geta vænzt að fá 50 manns fleiri
en áður til að hjálpa sér við heyskap og
önnur búverk í sumar.
Fyrir fáum dögum kom hingað agent
frá stjórn Kanada, hann á að lokka lands-
nienn til þess að flytja þangað. Hvf skyldi
stjórnin vera að kosta þessar ferðir, ef
hún áliti ekki hagnað, að fá vinnukrapt
inn í land sitt?
Eitt með fleiru er einkennilegt við for-
sprakka Landvarnarmanna; þeir þora
sjaldnast að gangast við greinum sínum,
heldur standa þeir í felum og skjóta það-
an örvutn á menn og málefni undir til-
búnum nöfnutn. Ekki var Garibaldi, Jón
Sigurðsson eða aðrir frelsisgarpar þessu
líkir, þeir gengu fram á völlinn og sögðu:
hér er eg. Líklegt er, að landvarnarfor-
ingjarnir gerðu slfkt hið sama, ef þeir
væru jafn sannfærðir um, eins og þeir
láta, að málstaður þeirra væri sá eini
rétti og holli fyrir landið; þeim mundi
auk heldur þykja sómi að, að láta sem
mest bera á nöfnum sfnum.
Þeir sem mest skrifa í »Ingólf« voru
fyrir fám árum hatursmenn valtýsku for-
ingjanna og stefnu »IsafoIdar«. en nti eru
þeir orðnir trúustu þjónar og fylgifiskar
þeirra bæði f rithætti og ráðvendni. Eg
veit fyrir fram, að þeir bera á móti þessu,
og látast ekki geta verið þekktir fyrir, að
fylgja ósómanum. En blað þeirra vitnar
í móti þeim. Og þá eigi síður félagsskap-
ur sá, sem þeir voru f við Valtýinga eða
Isafoldarmenn á dögunum, þegar fréttin
kom uw stjórnarráðsskiptin í Danmörku.
Eg veit, að þeir munu einnig bera í
móti þeirn félagsskap, en slíkt er ekki
til neins fyrir þá, því fjöldi manna geta
vitnað um það.
Þegar póstskipið kom fyrst með fregn-
ina, að dönsku ráðherrarnir væru farn-
ir frá völdum og aðrir teknir við, þá
bættu landvarnar- og Isafoldarmenn strax
við, að forsætisráðherrann hefði um leið
sótt um lausn fyrir Islandsráðherra. Fylgi-
fiskarnir voru ekki lengi að taka þetta
trúanlegt, svo hlæjandi hópar af þeim
voru strax komnir á götur bæjarins til að
segja hverjum öðrum gleðifregnina. Hvar
sem ísafoldar- og Landvarnarmenn mættu
heimastjórnarmönnum þann dag, sögðu
þeir hlæjandi: sHefurðu heyrt nýjasta
nýtt?« — »eg óska þér til lukku« —
»þarna kom það mátulega« — »það var
gott, að þið urðuð að renna því niður«
— »er ekki vont fyrir ykkur að kingja
þessu?« —
Nokkrum dögum seinna kom annað
póstskip með fullar sannanir fyrir þvf, að
forsætisráðherrann hefði e k k i sótt um
lausn fyrir ráðherra Islands, og að
Danir og stjórnin skoðaði hann e k k i
háðan grundvallarlögum Dana, heldur
stiórnarskrá íslands og vilja a 1-
þ i n g i s .
Hóparnir komu aptur saman á bryggj-
unni og götunum, en ekki eins hlæjandi
og í fyrra skiptið, nú voru þeir svo sút-
ralegir og vandræðalegir, eins og þeir
hefðu sannfrétt, að Myklestad gamli ætti
að baða þá daginn eptir. En svo komu
blöðin þeirra með huggunarsmyrslin, þau
sögðu, að þó þetta hefði farið svona í
þetta sinn, að allt hefði reynzt ósatt, sem
þeir áður höfðu barið fram og barizt fyr-
ir, þá gerði það hvorki frá né til, því
það væri svo augljóst, að Danir gætu
brotið rétt á oss, þegar þeir vildu og sett
þann ráðherra hér á landi, sem þeim
sýndist, þó þeir gerðu það ekki í þetta
sinn. Þetta eina tilfelli sannaði ekkert,
þeir hefðu á sönnu að standa eptir sem
áður. Þetta tóku þeir sútfullu svo trúan-
legt og sögðu hver við annan: »Þetta
er nú alveg satt, sem þeir segja, við skul-
um bara fara að rétta okkur úr kútnum«.
a>
Hver hefði nú orðið afleiðing þess,
hefði það rætzt, sem Landvarnar- og ísa-
foldarmenn voru að fagna yfir: að stjórn
Dana hefði brotið stjórnarskrá landsins,
vikið ráðherra vorum frá að honumsjálf-
um fornspurðum, af þeim ástæðum, að
hann væri skipaður eptir grundvallailög-
um Dana en ekki stjórnarskrá vorri?
Afleiðingin hefði orðið sú, að margra
ára strfð og illindi hefði byrjað milli Dana
og Islendinga. Á komandi þingum hefði
mikill tími gengið í stjórnmálaþref, og
þannig tapazt tfmi frá þeim málum, sem
eru skilyrði fyrir framför landsins. Og
þá hefði það komið fram, að öll sú bar-
átta, sem þreytt hefur verið mörg ár und-
anfarin hefði verið til lítils eða einskis
gagns. Þetta hefði verið því hörmulegra,
sem flestir af landsmönnum voru sann-
færðir um, að sigurinn væri nú unninn.
Já, það hefði sannarlega orðið sorgar-
leikur þjóðarinnar.
Þetta er nu það sem ísafold og Land-
varnarforsprakkarnir með »dátum« slnum
voru að hlakka yfir; og sýta, þegar þeim
brugðust vonir sfnar.
Fyrir mitt leyti þykir mér ættjörðin of
góð til að klæða og fæða þá menn, sem
gleðjast yfir óhamingju lands síns; eg vil
að landið gefi þá honurn Sveini Brynjólfs-
syni útflutningsagent til fullra um-
ráða. Þó eg álíti, að landið vanti mjög
vinnukrapt, þá hef eg þá skoðun, að
vinnukraptur slíkra manna væri betur
kominn í annari heimsálfu.
Það er vorkunn, þó lesendur eigi erf-
itt með að trúa því, að þeir menn séu
til og kalli sig »landsvörn«, sem gleðjast
af ógæfu ættjarðar sinnar. En satt er það
þó. Skyldi nokkurt land 1 heimi eiga
verri eða íyrirlitlegri landvörn en ísland?
Um foritigja gömlu Valtýinga og Isa-
foldarklikkunnar á eg engin orð, og get
því ekki talað um þá sérstaklega.
Tr. Gunnarsson.
Morð á Russlandi.
Tími hryðjuverkanna virðist nú vera að
fara f hönd á Rússlandi á nýjan leik.
Eptir fréttum.er hingað bárust snemma í
vikunni í enskum blöðum, var Sergíus
stórfursti, föðurbróðir Nikulásar keisara
myrtur um hábjartan dag á götunum í
Moskva 17. f. m. Var kastað sprengi-
kúlu undir vagn hans, og tættist Sergíus
allur í sundur. Ekill hans beið einnig
bana. Sergíusi voru eignuð vígin í Pét-
ursborg 22. jan., því að Vladimir bróðir
hans neitaði opinberlega, að hann hefði
átt nokkurn þátt í þeim. En báðir voru
þeir mjög óvinsælir. Sergíus var nálega
48 ára gamall (f. 1857) en Vladimir er
10 árum eldri. Mælt er að byltingamið-
nefndin hafi dæmt móður keisarans, Marfu
Feodorowna (Dagmar dóttur Kristjáns 9.)
til dauða, og jafnvel keisarann sjálfan.
Það er naumast tilviljun ein, að Serglus
er ráðinn af dögum á 25. afmælisdegi
hinnar voðamiklu sprengingar í vetrar-
höllinni 17. febr. 1880, þá er sprengigöng
voru lögð undir borðstofu keisarans, Alex-
anders 2., föðttr Sergfusar. Skemmdist
höllin þá afarmikið, og það þóttu undur
mikil, að keisarinn skyldi þá komast llfs
af. Það tókst eins og kunnugt er að
ráða hann af dögum rúmu ári síðar (13.
marz 1881). Hver veit nema dauðadómi
einhverra rússneskra stórhöfðingja af
keisaraættinni verði fullnægt 13. þ. m.
Keisarinn kvað sjálfur hafa áður verið
sérstaklega hræddur við þann dag, og
verður það lfklega ekki síður hér eptir.
13. marz næsta ár (1906) eru liðin 25 ár
frá morði Alexanders 2.
Skipströnd.
I ofsaroki og myrkri að kveldi 14. f. m.
fórst enskt botnvörpuskip við Reykjanes-
skaga millum Reykjanesvitans og Kal-
mannstjarnar, hleypti þar beint upp í sjáv-
arkampinn, en aðdýpi var þar mikið, svo
að sagt er að fimur maður tinindi hafa
getað hlaupið af stefninu í land. En (
rokinu og myrkrinu varð við ekkert ráð-
ið. Báti varð saint skotið lít, og kom-
ust 8 skipverjar í hann, en 5 urðu eptir
og sukku með skipinu, af því að kaðall-
inn, sein skipverjar læstu sig eptir úr skip-
inu niður í bátinn, slitnaði. Þessa 8 rak
svo undan landi í hinum mesta ólgusjó,