Þjóðólfur - 12.05.1905, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 12.05.1905, Blaðsíða 2
86 og er því spáð, að hver valtýskur þing- niaður niuni hafa slík tilboð í vasanura, höfuðpaurinn eitt frá frönsku félagi, sem enginn þekkir, nr. 2 frá Englandi, nr, 3 frá Þýzkalandi, nr, 4 frá Ítalíu, nr. 5 frá Japan, nr. 6 frá Kína, nr. 7 frá Rúss- landi, nr. 8 frá svertingjalýðveldinu á Haiti, nr. g frá Hottentottum, o. s. frv. allt niður að mannætum frá Ástralíueyj- um. Mun þá sjást munurinn á því, hversu miklu betra'verður að skipta við þetta »fólk« heldur en við hið »stóra norræna«, sem ætlar sér að féfletta(!) landi? með aðstoð(!) ráðherrans. Það verður nógu gaman að sjá öll þessi eptirboð, allt þetta alþjóðlega kapphlaup eptir á til að fá ísland sem tilraunaþurku fyrir ómögulegt og óáreiðanlegt loptskeytahumbug, trygg- ingarlaust að öllu auðvitað, og allt svo í lausu lopti sem mest má verða. Mikil vandræði væru það, ef fulltrúar íslenzku þjóðarinnar skyldu ekki fást til að gleypa jafn girnilega flugu, e p t i r að samningar um öruggt ritsímasamband eru gerðir við áreiðanlegt og alkunnugt félag. En söm er hinna gerð og jafn drengileg að vekja þýðingarlaus illindi og óeirðir í málinu með fávíslegum og einskisnýtum tyllitilboðum, sem pöntuð eru til blekk- ingar eimiar, og engum skynsömum manni dettur f hug að taka nokkurt mark á. Landsy flrrétturinn hefur 8. þ. m. staðfest tvo sýknudóma bæjarfógetans hér (H. Dan.) 1 meiðýrða- málum Lárusar H. Bjarnason sýslumanns gegn ritstjóra Isafoldar, og þar að auki smellt á Lárus sýslumann 30 kr. máls- kostnað í hvoru málinu fyrir sig. Um dóma þessa er allmikið talað hér í bæn- um, einkum um þá skýringu réttarins, að ásökun um fjárdrátt sé ekki ærumeiðandi og varði því ekki við lög. Ólögfróðum mönnum þykja krákustígar hinnar æðri réttvísi hér stundum nokkuð skringilegir. En það kemur sjaldan fyrir, að embætt- i s m e n n , er sækja mál sín g j a f s ó k n- arlaust, fari lengra með þau en til hinnar æztti réttvísi hér á landi. En samt getur því verið valt að treysta, og í þetta skipti raun áreiðanlega verða gerð undantekning frá reglunni af hálfu þess embættismanns, er hér á hlut að máli, en(da þótt hann hafi ekki notað sér hin dýrtnætu gjafsóknarhlunnindi. Bráðkvaddur varð hér í bænum 5. þ. m. Henrik J. C. Biering verzlunarstjóri frá Borg- arnesi á 60. aldursári (f. 23. okt. 1845) sonur J. Bierings kaupm. í Rvík, er drukkn- aði við Þormóðssker á útsiglingu héðan haustið 1857. H. Biering var kvæntur Elizabetu dóttur H. A. Linnets kaupm. í Hafnarfirði. Var lipurmenni í umgengni og vel þokkaður hvarvetna, er hann kynntist. Slys. Á páskadagskveldið (23. f. m.) rildi það slys til á bænum Túni í Flóa, að barnið Bjarni Sigurgeirsson frá Selfossi, sem þar var í fóstri, datt ofan um yfirgerð á for- arvilpu þar á hlaðinu og kafnaði sam- stundis. Læknis var þegar vitjað, en lífgunartilraun árangurslaus. Drengur þessi var hátt á fjórða ári, mesta efnisbarn. Slys þetta, sem því miður er ekki svo fá- títt hér á landi, ætti að vera ný bending til þeirra, sem hafa forir eða brunna á bæjarhlöðum eða nálægt þeim vel byrgt, svo ekki hljótist slys af fyrir menn eða skepnur. Misllnganna hér í bænum hefur ekki enn orðið frekar vart en getið var um í síðasta blaði, og verður samgöngubannið því væntanlega afnumið um 15. þ. m., því að þá verður reynsla fengin fyrir því, að þessir 2 piltar, sem veikzt hafa, hafi ekki sýkt aðra. 100,000 áskrifendur hefur sGylden- dalske Boghandel, Nordisk Forlag« nú fengið að afmælisútgáfunni af æfintýrum H. C. Andersens, og erþað sama sem 5.—6. hvert heimili í allri Danmörku kaupi bókina. Bók um Grænland er Gylden- dalsforlagið í Höfn byrjað að gefa út, eptir þá Mylius-Erichsen og Harald Moltke. Er það frásaga um för þeirra til Græn- lands og dvöl þar 1902—1904 og verður með mörgum myndum og hin vandaðasta að frágangi öllum. Á að koma út í 40 heptum og kostar hvert hepti 35 aura. Er fyrsta heptið þegar komið til sýnis og mun vera hér í bókaverzlunum. Bruni. Á prestsetrinu Hjaltastað brunnu 18. f. m. bæjarhúsin, bæði stofan, baðstofan og baðstofuhús. Hafði kviknað út frá ofnpípu og eldurinn læst sig í þekjuna. Varð hann fljótt svo magnaður, að ekki var unnt að bjarga nema sængurfötum, og einhverju litlu af innanstokksmunum, en aðrir búshlutir brunnu, þar á meðal harmoníum, skilvinda, vefstóll með öllum áhöldum, borðbúnaður allur og matarílát, borð, stólar, rúmstæði, skófatnaður o. fl., allt óvátryggt. Presturinn séra Vigfús Þórðarson varð í fyrra fyrir stórtjóni, þá er nautgripir hans brunnu inni í fjósinu. Og svo bætist þetta nú ofan á, ogmegaþað teljast sjaldgæf óhöpp, svona hvað ofan í annað. Væntanlega bregð- ast Austfirðingar vel við að bæta þeim hjónum skaðann á einhvern hátt, enda hafa þeir jafnan reynzt drenglyndir og hjálpsamir, þá er svipuð óhöpp hafa bor- ið að hendi þar eystra. Konungkjörnir þlngmenn til næstu 6 ára eru skipaðir: Júlíus Havsteen amtmaður. Eiríkur Briem dócent. Björn M. Ólsen prófessor. Jón Ólafsson ritstjóri. Ágúst Fl. Þórðarson kaupm í Hafnarfirði. Þórarinn Jónsson bóndi á Hjalta- bakka. Hinir 2 fyrsttöldu voru konungkjörnir þingmenn síðasta kjörtímabil, en hinir 4 eru nýir, kosnir í stað þeirra Árna Thorsteinsons, f. landfógeta, dr. J. Jónas- sen landlæknis, Hallgríms biskups Sveins- sonar og Kristjáns Jónssonar yfirdómara. Þrír þessara nýkosnu þingntanna hafa ekki áður setið á þingi og eru því ó- reyndir, en þeir eru allir hæfileikamenn hver á sinn hátt og má því gera sér hin- ar beztu vonir um þingmennsku þeirra. Sérstaklega má telja það heppilegt, að landbúnaður sjávarútvegur og mennta- mál fær hvert um sig sérstakan nákunn- ugan málsvara meðal þessara þriggja spán- nýju þingmanna í konungkjörna flokknum. Nýr Heklufengur. Enn hefur varðskipið »Hekla« hand- samað þrjá botnverpla við ólöglegar veið- ar í landhelgi við Portland, einn 3. þ. m. og tvo 6. þ. m., og flutti hún þá til Vest- manneyja. Voru 2 þeirra sektaðir um 60 £ (1080 kr.) hvor, en hinn 3. um 80 £ (1440 kr.). og veiðarfæri gerð upptæk hjá þeim öllum, sömuleiðis aflinn á tveim- ur skipunum, en einn skipstjórinn fékk afla sinn keyptan fyrir 100 £ (1800 kr.), eflaust vegna þess, að fiskurinn fer fyrir svo lítið verð á uppboðum í eyjttnum, vegna samtaka eyjarskeggja. Einn botn- verpla þessara var frakkneskur, og hafði hann metið afla þann, er hann hafði innanborðs á 15,000franka. Hefur »Hekla« nú ttkið og sektað 10 alls og nemur upphæð sú, er landsjóði hefur áskotnast við það 17—18,000 kr. alls með hinum selda afla og veiðarfærum, enda þótt af- arlágt verð hafi verið á aflanum og ein- stakir menn því orðið fyrir miklum happa- kaupum. Dugnaður Hekluforingjans kapt. Schacks við þessa »trollara«-veiði, er mjög lofsverður og ætti einhverja sérstaka viðurkenningu skilið. Heiðursmerki. Prófastarnir Magnús Andrésson alþm. á Gilsbakka og Þorvaldur Jónsson á Isa- firði hafa verið sæmdir riddarakrossi dannebrogsorðunnar, en Hallgrímur hrepp- stjóri Hallgrímsson á Rifkelsstöðum er orðinn dannebrogsmaður. Nýjar bækur, sendar Þjóðólfi. Pálljónsson: Ljóðmæli. 193 bls. 8. Akureyri. V o r b 1 ó m. Ljóðmæli eptir Jónas Guðlaugsson stud. art. 44 bls. 8 Rvik. Bóka þessara verður síðar getið nánar, ef rúm leyfir. Landnáma ogEgiIssaga. Sér- prentun á ritgerð úr »Aarb. for nordisk Oldkyndighed 1904« eptir Björn M. Ól- sen prófessor 80 bls. 8vo. Ritgerð þessi er bæði ljóst og skarplega rituð, eins og höf. er ávallt svo einkarsýnt um. Færir hann meðal annars miklar líkur fyrir því, að Snorri Sturluson hafi ritað Egilssögu, en annars er ekki rúm til að fara hér ítarlegar út í einstök atriði f þessari merku, vísindalegu rannsókn höf. Fra Generalstabens topogra- fiske Afdelings Virksomhed paa Island. Eptir J. P. Koch pre- mier-lautenant. 14- bls. 4. Með ágætu korti yfir Öræfajökul og Skeiðarársand. Skýrsla þessi er einkar fróðleg og lýsir ítarlega erfiðleikum þeim, er dönsku mælingamennirnir áttu við að berjast við mælingará Öræfajökli og Skeiðarársandi. Hafa þeir sýnt mikinn dugnað og áhuga í þessu starfi sínu, og eiga fyrir það hin- ar beztu þakkir skilið af hálfu þjóðar vorrar. SkipaferOir hafa verið afarmiklar hingað síðustu dag- ana. Frá útlöndum hafa komið „Ceres" 6. þ. m., „Esbjærg" aukaskip frá hinu sam- einaða litlu síðar, og svo Thorefélagsskipið „Kong Trygve“ 9. þ. m. Meðal farþega með því skipi voru: konsúlarnir Jón Vídalín og Sigfús Bjarnarson (ísaf.), kaupm. R. P. Riis (Borðeyri), Árni Riis (ísaf.), Sveinn Sig- fússon, J. Lambertsen og unnusta hans, fyrv. kaupm. Sig. E. Sæmundsson, Einar Bene- diktsson sýslum. og frú hans, Pétur Bryn- jólfsson ljósmyndari, Þorsteinn Þorsteinsson skipstj., Magnús Blöndal snikkari, Jósep Magnússon snikkari, Þorv. Jónsson prófastur (ísaf.), frú Guðríður Guðmundsdóttir (kona séra Ól. Ól.), Hans Petersen verzlunarm., Jón Björnsson verzlm. (Borgarnesi), Gestur Einarsson (frá Hseli), Þorkell Klementz véla- smiður, Guðm. Einarsson steinsmiður, Hal- vorsen byggingameistari, Exner málari dansk- ur, Forberg norskur ritsímaverkfræðingur, J. Hansen frá Generalstaben, Björn Björns- son gullsm. (frá ísafirði), Snorrí Einarsson o. fi. „Hólar" komu austan og norðan um land 8. þ. m., en „Skálholt1- að vestan 9. þ. m. og Reykjavík úr Borgarnesi hinn 8. Fjöldi ferðamanna með þessum skipum öllum, þar á meðal með „Hólum“ Páll Ólafsson skáld og kona hans, Þorgrímur Þórðarson læknir á Borgum, Júlíus Jörgensen (Rvík), Stefán Stein- holt kaupm. á Seyðisfirði, Björn R. Stefánsson kaupfélagsstjóri frá Breiðdalsvík og kona hans, ennfremur Stefán Gíslason læknir Mýrdæla, er ætlaði af skipinu í Vík, en komst ekki. Með „Reykjavíkinni" komu meðal annars Hermann Jónasson alþm. frá Þingeyrum, Sigurjón Jónsson læknir á Stað- arhrauni, séra Jóhannes L. L. Jóhannsson frá Kvennabrekku, séra Arnór Þorláksson á Hesti, séra Guðm. Helgason í Reykholti, séra ^Jóhann Þorsteinsson í Stafholti, séra Gísli Einarsson í Hvammi, Hjörtur Snorra- son skólastj. á Hvanneyri, Hjörtur Líndal á Efranúpi ( Miðfirði og fjöldi bænda úr Borgarfirði. Með Skálholti kom Lárus H. Bjarnason sýslumaður, Sæmundur Halldórsson kaupm. úr Stykkishólmi, Guðm. Bergsteinsson verzl- unarm. úr Flatey, séra Helgi Árnason í Ól- afsvík o. fl. Aukaskip (s/s Vibran) frá Thorefélag- inu er væntanlegt hingað þessa dagana, það átti að fara frá Leith síðastl. laugardag. Nýja bankahúslð. Bæjarstjórnin hefur nú, eins og betur sómdi, séð sig um hönd og breytt stefnu hins fyrirhugaða hlutabankahúss í Austur- stræti, svo að það verður í réttri línu við þá götu, en nær þó ekki jafnlangt fram. Er sú breyting til stórmikilla bóta, svo að nú má vel við una, enda hefði hitt verið hneyksli. Bæjarstjórnin gerði þessa bragar- bót eptir að vakið var máls á þessu í Þjóð- ólfi 28. f. m. og þá er hr. Rögnvaldur Ól- afsson húsgerðarfræðingur hafði tekið f sama strenginn. Á þvi er enginn munur . . . Viljirðu hitta lækninn heima, verðurðu að gera þér að góðu, að stíga yfir útidyra- þröskuldinn og forstofuna, hvernig sem þau Uta út. Og það fer nokkuð eptir atvikum, eptir færðinni úti fyrir. Og viljirðu finna hæstarétt að máli, verðurðu að fara yfir Halldór og Kristján og Jón, Á því er enginn munur, enginn arvnar en sá, að liturinn á Halldóri, Kristjáni og Jóni fer — Bðlilega ekki eptir færðinni úti fyrir. * * * M i i i i rrM ri i i rn i «T»>«JM'»nn~niM|«i»^T|^m»i«i«7»íii’«i»i«iiHri«MqBpBfiiií $}0f~ Þeir kaupendur Þjóðólfs, er nú skipta um bústaði hér í bænum, ern beðnir að tilkynna pað á af- greiðslustofu blaðsins, sro að þeir geti fengið blaðið nieð ski/um. Auglýsing. Á hinu norska barkskipi „Susanne'* frá Tvedestrand, skipstjóri G. Olsen, andaðist hinn 19. júlí f. á. á nieðan skipið var á ferð frá Campéche til Rotterdam háseti og seglgerðarniaður Mons Martinsen frá Álasundi, sem sagður er fæddur á íslandi 27. ágúst 1880, og hafa stjórnarráðinu verið sendar eptirlátnar eigur sjómanns þessa til ráðstöfunar. Því er hér með skorað á erfingja hins framliðna eða aðra, er kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar hon- um viðvíkjandi, að snúa sér sem fyrst til hlutaðeigandi bæjarfógeta eða sýslu- manns. I stjórnarráði Islands 28. apríl 1905. F. h. r. Kl. Jönsson. Jón Magnusson. Reiðtýgi ast hjá og allt þar að lút- andi bezt og ódýr- Jönatan Þorsteinssyni, Laugaveg 31.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.