Þjóðólfur - 23.06.1905, Side 2
I 12
ÞJÓÐÓLFUR.
kröfum þeirra. Norskir verkamenn hafa
þegar heitið, að safna inn sín á meðal
3000 krónum á viku handa stéttarbræðr-
um sínum 1 Svíþjóð, meðan þeir eru 1
þessum vanda staddir.
Þingmálafundur
Reykjavlkur var haldinn í Iðnaðarmanna-
húsinu mánudaginn 19. þ. m. kl. 7 síðdegis.
Tr. Gunnarsson setti fundinn. Fund-
arstjóri kosinn Kristján Jónsson yflrdóm-
ari, og nefndi þá Magnús Einarsson dýra-
lækni og Sighvat Bjarnason bankastjóra
fyrir fundarskrifara.
Guðm. Björnsson skýrði frá hver mál
yrðu tekin til meðferðar, eða réttara hver
mál þingmenn hefðu hugsað sér. Strax
i fundarbyrjun var samþykkt svolátandi
tillaga frá Jóni Ólafssyni ritstj. og Birni
Jónssyni ritstjóra:
»1 umræðum hvers máls fyrir sig, má
enginn nema þingmenn kjördæmisins tala
Lengur en 10 mfnútur fyrsta sinn, er hann
tekur til máls og 5 mínútur annað sinn.
— Engir aðrir en þingmennirnir tali
optar en tvisvar í sama máli.«
Tillagan samþykkt með samhljóða at-
kvæðum.
Þessi mál voru tekin til meðferðar:
Um styrk til eflingar sjáfar-
ú t v e g i. Málshefjandi Guðm. Björnsson.
Ræðumenn aðrir: Þorsteinn Þorsteinsson
skipstjóri, Edilon Grímsson skipstj. og
Hannes Hafliðason skipstj, Tillaga (frá
Þ. Þ.) með viðaukatillögu frá (E. Gr.)
svohljóðandi:
»Fundurinn skorar á alþingi að verða
við beiðni skipstjórafélagsins »Aldan« f
Rvík um styrk til eflingar sjáfarútvegi
þannig, að nefnt félag hafi atkvæði um
hvernig fénu verði varið«.
Samþ. með öllum samhljóða atkvæðnm.
2. Um styrk til iðnskóla í
Reykjavík.
Málshefjandi: Guðm. Björnsson. Magn-
ús Benjamínsson úrsmiður talaði í mál-
inu. Tillaga (frá Guðm. Bj.) svohljóð-
andi :
»Fundurinn skorar á alþingi að veita
þann styrk, er Iðnaðarmannafélagið í
Reykjavfk fer fram á, til þess að efla
iðnskóla í Reykjavík og styrkja unga
iðnaðarmenn til utanfara. Saroþ. í e. hlj.
3. Um styrk til v e rz 1 u n a rsk ó 1 a
í Reykjavík. Málshefjandi Guðm.
Björnsson; auk hans talaði Jón Ólafsson.
Tillaga frá (J. ól.) svohljóðandi:
»Fundurinn skorar á alþingi að veita
Kaupmannafélagi Reykjavfkur og Verzl-
unarmannafélagi Reykjavíkur ríflegan fjár-
styrk til að koma á fót 1 Reykjavík al-
mennum verzlunarskóla fyrir Island«.
Samþ. í e. hlj.
4. U m námalög. Málshefjandi Guðm.
Björnsson. Tillaga (frá G. B.) svohljóð-
andi:
»Fundurinn skorar á alþingi að sam-
þykkja námalög fyrir Island«. — Samþ.
í einu hljóði.
5. Ritsfmamálið: MálsheQandi
Guðm. Björnsson. Aðrir ræðumenn: Jón
Jónsson sagnfr., Einar Hjörleifsson, H.
Hafstein ráðherra*, Tr. Gunnarsson, Jón
Jensson, Jón Ólafsson, Björn Jónsson ritstj.
og dr. Valtýr Guðmundsson. Þessar til-
lögur voru bornar fram :
1. af Guðm. Björnssyni:
»Fundurinn skorar á alþingi að ráða
ritsíroamálinu til lykta á þann hátt, að
Reykjavík komist í hraðskeytasamband
við sem flesta staði innanlands og sem
öruggast samband við önnur lönd«.
2. af Jóni Jónssyni sagnfræðing :
* Leyft var að ráðherrann mætti hafa tak-
markalausan málfrelsisrétt eins og þingmenn
kjördæmisins.
»a. Fundurinn skorar á alþingi að hafna
ritsímasamningi þeim, er ráðherrann hef-
ur gert við norræna ritsímafélagið, þar
sem samningur þessi fer í bága við gild-
andi fjárlög, leggur þjóðinni ofmiklar
fjárbyrðar á herðar, og misbýður í ýms-
um greinum réttindurn Islands«.
b. Verði kostur á loptskeytasambandi
milli Islands og útlanda og ýmissa staða
innanlands, með aðgengilegum kjörum,
skorar fundurinn á alþingi að sinna slíku
boði«.
Fundarstjóri kvaðst fyrst vilja bera
undir atkvæði tillögu J. Jónssonar, en
þingmaður G. Björnsson mótmælti því.
Var svo með atkvæðagreiðslu 120 atkv.
gegn 1x9 samþ. að tillaga G. Bj. skyldi
fyrst borin undir atkvæði. Var svo til-
laga G. Bj. samþ. með 143 atkv. gegn 88.
Þá var fyrri liðurinn (a.) í tillögu Jóns
Jónssonar borinn undir samþykki, og hann
feldur með 136 atkv. gegn 131, en síð-
ari liðurinn (b) var tekinn aptur af til-
lögumanni.
6. Samgöugur á sjó og tillag
til þeirra. Málshefjandi Jón Ólafsson.
Tillaga frá honum :
»Fundurinn skorar á alþingi að fella
alveg niður tillag til millilandaferða, og
færa strandferðastyrk niður svo mikið sem
auðið er, og taka nauðsynlegt tillit til
farmgjalds og fargjalds«.
Samþ. í e. hlj.
7. A ð f 1 u t n i n gs b a n n á víni.
Málshefjandi G. Björnsson. Tillaga (frá
G. Bj.):
»Fundurinn er því meðmæltur, að að-
flutningsbann á áfengum drykkjum sé
lögleitt svo fljótt sem verða má». Samþ.
með 52 atkv. gegn 6.
8. Geðveikrahæli. Málshefjandi
G. Björnsson. Tillaga (frá G. Bj.):
»Fundurinn skorar á alþingi, að veita
fé til að koma upp geðveikrahæli*. Samþ.
1 e. hlj.
9. Heilsuhæli handa brjóst-
v e i k u m. Málshefjandi G. Björnsson.
Tillaga (frá G. Bj.):
»Fundurinn skorar á alþingi að gera
ráðstafanír til þess, að reist verði sem
fyrst heilsuhæli handa brjóstveikum mönn-
um«. Samþ. 1 e. hlj.
Fleiri mál höfðu þingmenn eigi.
Þá kom fram svohljóðandi tillaga frá
Pétri Jónssyni blikksmið:
»Fundurinn skorar á þingmenn kjör-
dæmisins að aðhyllast ekki þegnskyldu-
tillögu þá, er fram kom á síðasta þingi,
ef hún skyldi verða tekin upp aptur«.
Samþ. með 19. atkv. gagn 14. — Fjöldi
fundarmanna greíddi ekki atkv. Sanii
fundarmaður bar upp tillögu svohljóðandi:
»Fundurinn skorar á þingmenn kjör-
dæmisins að hlutast til um, að þingið
krefjist þess að stjórnarráð Islands fram-
vegis birti írumvörp sín og tillögur þjóð-
inni, svo snemma fyrir þing sem unnt er«.
Til málstóku auk tillögumanns H. Hafstein,
D. 0stlund og Jón Ólafsson. Till. samþ.
með 19. atkv. gegn 3. — Fjöldi fundar-
manna greiddi ekki atkvæði.
Þingmálafundir \ Árnessýslu
voru haldnir á Selfossi 17. þ. m. og á
Húsatóptum á Skeiðum 19. þ. m. Um 60
kjósendur munu hafa verið á fyrri fund-
inum, en nál. 50 á hinum síðari. Valtý-
ingar höfðu vandlega gætt þess að sækja
fundina, en heimastjómarmenn sóttu þá
lítt eða ekki, enda hafði ekkert verið gert
til þess að safna þeim á fundinn, en
smalamennskan allrækileg hinumeginn.
Um ritsímamálið urðu nokkrar umræð-
ur á fundunum, en veruleg æsing kom þar
ekki fram í ræðutn manna, nema helzt
hjá 2. þm. kjördæmisins (Ól. Ól.j, er tal-
aði allákaft gegn málinu, en 1. þm. (H.
Þ.) var þar ekki á sama máli, og lýsti því
yfir, að hann mundi styðja framgang þess
á þingi í þeirri mynd, er það nú lægi fyr-
ir, enda þótt hann hefði fremur óskað,
að sæsíminn hefði verið lagður til Suður-
landsins sem næst Reykjavík. Og ýmis-
legt fleira tók hann fram 1 sambandi við
þetta mál, er ef til vill verður ástæða til
að minnast á síðar. Á báðuin fundunum
lögðu Valtýingar fram skrifaðar ályktanir
í ritsímamálinu og undirskriptarmálinu,
áður en umræður um þau hófust, höfðu
haft þær með sér 1 vösunum.
Á Húsatóptafundinum var samþykkt svo-
hljóðandi tillaga (frá séra Magnúsi Helga-
syni):
„Fundurinn skorar á alþingi, að hafna
algerlega samningi þeim, er gerður hefur
verið við ritsímafélagið norræna, rneð því
að fundurinn telur hann ofvaxinn fjárhag
þjóðarinnar og hættulegan fyrir sjálfstæði
hennar og fjárráð alþingis. Hinsvegar
telur fundurinn æskilegt, að Island komist
í hraðskeytasamband við önnur lönd, ef
það getur orðið með viðunanlegum kost-
um“
Þetta samþ. með mestum hluta atkvæða,
en nokkrir greiddu ekki atkvæði.
Á Selfossfundinum var samþ. með 51: 9
ályktun í sömu átt, en miklu orðfleiri og
klaufalegar orðuð. Tillögu frá séra Valdi-
mar próf. Briem (á Húsatóptaf.) um trausts
yfirlýsingu til þingsins að ráða málinu til
sem heppilegastra lykta var ekki sinnt, af
því að hún var skynsamleg, og gekk al-
veg í rétta átt. Var auðheyrt á öllu, að
menn voru fyrirfram rígbundnir við ákveðn-
ar tillögur, hvernig sem umræður féllu.
Um undirskriptarmálið urðu litlar um-
ræður á báðum fundunum, og fundarmenn
virtust telja mál þetta lítilsháttar, en samt
samþykktu þeir með allflestum atkv. á
Húsatóptaf. tillögu úr vasa séra M. Helga-
sonar svolátandi:
„Fundurinn álítur, að með undirskript
forsætisráðherrans danska undir skipun
ráðherra Islands hafi rétti þjóðarinnar og
sæmd alþingis verið misboðið og skorar
á þingið að gera allt sem í þess valdi
stendur til að sjá hvorutveggja borgið".
Á Selfossf var tillagan að eins þannig
orðuð, að þingið mótmælti því, að þetta
yrði gert framvegis, og voru úr þeirri til-
lögu dregin móðgandi ummæli í ráðherr-
ans garð, er ónefndur unglingsgapi hafði
hnoðað inn 1 hana.
Um birtingu stjórnarfrumvarpa var
samþ., að þau yrðu birt þjóðinni svo fljótt
sem kostur væri á, og sætti það ekki nein-
um mótmælum þannig orðað.
I öðrum málum voru fundirnir að mestu
samnxála, vildu ekki hafa kennaraskólann
( Reykjavlk, heldur auka Flensborgarskól-
ann, vildu ekki láta lækka smjörverðlaun-
in, að minnsta kosti alls ekki frekar en
landbúnaðarnefndin leggur til, voru helzt
hlynntir 2 ára sveitfestismarkinu, vildu fá
talsíma eða hraðskeytasamband (Marconi?)
austur í Árness- og Rangárvallasýslur o.
s. frv. Till. um að lögleiða aðflutnings-
bann á áfengi felld á Selfossf., en í þess
stað samþ. hækkun á vínfangatollinum. Á
hinum fundinum engar ályktanir gerðar
um þetta mál, fundurinn vildi láta það
vera eins og það er.
Hitt og þetta smáskrítilegt mætti segja
af fundum þessum, en því er sleppt. En
kjósendum bæði þar eystra og annarsstað-
ar er að vísu nokkur vorkunn, þótt þeir
láti blekkjast í bili at jafn hóflausum æs-
ingum og ósvífnislegum, sem þeir hafa
verið beittir. En í ályktunum, sem menn
eru Spanaðir ti! að samþykkja í hugsunar-
leysi og frekju er vitanlega ekki fólgin
nokkur minnsta sönnun fyrir sönnum
vilja kjósenda, ef þeir mættu sjálfráðir
vera. Þessvegna er svo afarlítið byggj-
andi á svona löguðum æsingaályktunum
enda mun allur þorri þingmanna naum
ast verða þeim fylgjandi.
„Kong Trygve“
kom- hingað frá útlöndum að morgni
hins 19. þ. m. með fjölda farþega. Þar
á meðal: Finnur Jónsson prófessor, dr.
Valtýr Guðmundsson, Lefolii stórkaupm.,
Ásg. Torfason kand., Sigfús Einarsson
söngfræðingur, frk. Valborg Hellemann,
Ólafur Felixsson ritstj. frá Aalesund, Karl
Kiichler magister, Heinrich Erkes, þýzk-
ur socialpolitikus, frk. Christmann, þýzk,
Vaughan, sonur bygg.m. við Ölfusárbrúna
og annar Engl., Sandberg norskur kenn-
ari, frk. Guðrún Aðalsteinsdóttir, frk.
Sigríður Björnsdóttir, frk. Sigríður Helga-
son, Gunnar Einarsson kaupm. með dótt-
ur sínni, frú Bentzen, tengdamóðir séra
Bj. Hjaltesteds, Daníel Bruun kapt. með
syni sínum (ætlar að ferðast um vestur-
land), Þorkell Klementz vélafræðingur,
stúdentarnir Guðm. Ólafsson, Gunnar Eg-
ilsen, Pétur Thoroddsen og Þorst. Þor-
steinsson, Schútze, þýzkur vélafræðingur
til Iðunnar, frk. Steinunn Thorsteinsson.
Próf.
18. þ. m. luku þeir Jón Jónsson og
Þórður Sveinsson embættisprófi við
læknaskólann, báðir með 1. einkunn;
Jón hlaut 163 stig, Þórður 169 st.
Embættispróf i málfræði
við háskólann hefur Árni Þorvaldsson
tekið með 1. einkunn.
Heimspekispróf
við háskólann hafa tekið : Guðbr. Björns-
son, Jón Kristjánsson og Stefán Jónsaon
með ágætiseinkunn, Björgóllur Ólafsson,
Björn Pálsson og Gunnar Egilson með 1.
einkunn, og Ólafur Þorsteinsson með 2.
einkunn. Einn stúdent fékk 3. einkunn.
Embætfispróf
við prestaskólann hafa tekið Eiríkur
Stefánsson og Lárus Thorarensen, báðir
með 2. einkunn.
Próf í forspjallsvísindum
hafa tekið Guðm. Guðfinnsson og Jó-
hann Briem með eink. ágætl. -h, Gúnnl.
Þorsteinsson og Magnús Pétursson dáv.
Jóh. G. Sigurðsson dável, Jón Kristjáns-
son vel -f-. Einn stúdent stóðst ekki prófið.
Öllum þeim, er heiúruðu útför Sig-
þrúðar Ruðmuiulsðóttur með návist
sinni og á annan hátt, flytjum við
innilcgustu þakkir vegna foreldra
hennar og annara aðstandenda.
Þóra Jónsdóttir. Jón Magnúss.
Þakkarávarp. í þrjú hin síðustu árin
hef eg í fátækt og > þungri mannraun verið
öllum stundum yfir veikri dóttur minni á
Sauðárkróki. Alla þá stund hafa margir
staðarbúar sýnt okkur mæðgum hina kær-
leiksríkustu hjálpsemi. Þó eg eigi nafn-
greini þá, er fremst hafa staðið í þjónustu
kærleikans gagnvart okkur, bið eg þess af
hjarta, að guð, sem alla þekkir, endurgjaldi
öllum, er auðsýnt hafa okkur kærleika, þeirra
velgerning.
Sauðárkróki 26. maí 1905.
Margrét Sigurdardóttir.
Engelhardt & Lohse
i Kaupmannahöfn
vilja fá verzlunarmann, er ferðast um ís-
land, til að taka með sér, gegn góðri
þóknun, þýzkar og enskar vefnaðarvörur.
’l'ilboð með greinilegum upplýsingum
uni fyrir hvaða verzlunarhús sé ferðast,
ivað lengi sé verið á ferðaiagi o. s. frv
sendist með fyrstu ferð.