Þjóðólfur - 09.08.1905, Page 2
144
ÞJOÐÓLFUR.
ann til Austurlandsins, með því að það
sparaði meira en 300,000 kr. á því. Það
mætti ekki einungis taka tillit til vega-
lengdar. heldur einnig til dýpis o. fl. A
litlu dýpi kostar síminn miklu meira en
á miklu dýpi.
Að því er snerti aðfinningar Skúla um
heimaríki ráðherrans, kvaðst hann einmitt
hafa sýnt það með embættisveitingum
sínum, að hann vildi vera óhlutdrægur og
ekki gera mótstöðumönnum sínum rangt
tii. Aðalumræðurnar voru milli Skúla og
ráðherrans. En auk þess töluðu þeir
fíjöt n Kristjánsson, Einar Þórðarsott, Ol-
afur fíriem og Lárus fíjarnason.
Björn kvartaði yfir, að gömlu frímerkin
hefðu verið seld eptir þann tíma, sem á-
kveðið hefði verið að þvl skyldi hætt, en
það kvað ráðherra sér ókunnugt um, og
ef svo hefði verið, þá hefði það verið á
móti skipun stjórnarráðsins. Ennfremur
hafði Björn einhverjar athugasemdir að
gera viðvíkjandi landsbankanum, en byggt
var það á misskilningi að mestu leyti.
Séra Einar var eitthvað að fetta fingur
út í, að landritara hefði verið sett það
skilyrði, að segja af sér þingmennsku, en
þó virtist honum það vera rétt.
Olafur Briem kvað stjórnina eiga að gefa
þjóðinni vitneskju um fyrirætlanir sínar
■og hvaða málum hún starfaði að. Kvað
hann það illa farið, að þjóðin hefði ekki
fengið að vita um titsímasamninginn fyr
en seint og síðar meir.
Ráðherrann kvaðst þegar hafa skýrt frá
samningnum á fjölmennum fundi í Rvík
og svo hefði öllum staðið til boða að sjá
hann hjá sér, en það væri ekki sín sök, þó
að blöð andstæðinga sinna hefðu ekki viij-
að færa sér þaðí nyt.
Lárus tók undir það með Skúla, að rétt-
arástandinu í landinu væri nokkuð ábóta-
vant. Þótti honum sumir dómar yfirrétt-
arins bera vott um það og framkoma
sumra démaranna opinberlega (t. d. í blaða-
greinum) gefa litla tryggingu fyrir óhlut-
drægni yfirdómsins. Gaf hann deildinni
dálítið sýnishorn af einni af ritsmíðum r.
yfirdómarans (í greininni „Til hans Finns"
í „Isafold" 29. marz 1902) og minntist á
landráðabrigsl 2. yfirdómarans til ráðherr-
ans 1 „Ingólfi" nýlega.
Útlendar fréttir.
Kanpmannahöfu 22. júlí.
Danmörk. 17. þ. m. kom hans hátign,
konungur vor K r i s tj án IX. aptur hingað
til höfuðborgarinnar úr utanlandsför sinni
og tók aptur við stjórninni, er krónprins-
inn hafði haft á höndum í brottveru hans.
Konungur hefur dvalið um tveggja mán-
aða tíma, eptir vanda, sér til heilsubótar
í Wiesbaden og Gmunden. Heilsa hans
er altaf hin bezta.
Undanfarna daga hafa staðið allmargar
greinar í norskum blöðum um það, að
norska stjórnin hefði í huga að bjóða ein-
hverjum dönskum prins konungdóm
í Noregi, ef ekki fengist konungsefni af
ættinni Bernadotte. Til hefur verið nefnd-
ur Valdemar prinz, en þó einkum Carl
prinz næstelzti sonur krónprinz Fredriks.
Hann er, eins og mönnum er kunnugt,
kvongaður frænku sinni, prinsessu Maud,
dóttur Játvarðar Englakonungs, en hún
er bræðrungur prinzessu Margrethe af
Connaugth, er nýlega giptist hinum til-
komandi sænska ríkiserfingja, Gustaf Ad-
o!f. Norðmönnum þykir mikils vert um
þessar mægðir Carls prins við ensku kon-
ungsættina og hyggjast munu fá traust hjá
Englandi, og ef til vill bandalag við það,
ef hann yrði konungur þeirra- Um þenn-
an fyrirhugaða konungdóm prinz Carls í
Noregi hefur verið rætt mikið og ritað
í enskum og þýzkum blöðum. Menn á-
líta að ferðalag Vilhjálms Þýzkalands-
keisara til Svlþjóðar og ef til vill hingað
til borgarinnar standi í sambandi við rík-
iserfðirnar í Noregi, því það er fullyrt, að
keisarinn vilji alls ekki að Noregur verði
lýðveldi, en muni stuðla að því, að dansk-
ur prinz verði konungur í Noregi, ef ekkí
fæst konungsefni þangað hjá sænsku kon
ungsættinni.
Þessa dagana vekur koma hins þýzka
flota tnikla eptirtekt og hátíðahöld hér
í borginni. Undanfarnar vikur hefur mesti
hluti þýzka Eystrasaltsflotans haft heræf-
ingar vlðsvegar um Eystrasalt, einkum upp
við strendur Svlþjóðar og við Jótlands-
skaga. í fyrra dag kl. ix kom nokkur
hluti flotans hingað til borgarinnar. Það
voru 6 herskip af fyrstu röð og 4 minni
sem komu. Það var mjög áhrifamikil
sjón, að sjá, þegar hinir gráhvftmáluðu
stóru og háreistu bryndrekar sigldu hér
inn á ytri höfnina, fyrst hvor við hliðina
á öðrum og svo í halarófu með stóradmír-
alskipið í broddi fylkingar. Hinar mestu
veizlur og hátíðahöld áttu sér stað hér í
borginni til fagnaðar hinu þýzka sjóliði,
sem oflangt yrði hér upp að telja.
Rnssland. Um rniðjan þ. m. var lög-
reglustjórinn í Moskva, S h u v a 1 o v greifi
myrtur. Morðinginn notaði það bragð
til þess að framkvæma hryðjuverkið, að
hann rétti lögreglustjóranum bænarskrá
með annari hendi, en með hinni skaut
hann 5 skammbyssuskotum á hann. Shu-
valov dó skömmu eptir aðförina. Þetta
morð spyrst mjög illa fyrir, því að lög-
reglustjórinn var vel látinn af öllum lýð,
og harma Moskvabúar mjög fráfall hans.
Hann hafði þann mannúðlega sið, að
taka á móti öllum, hvort sem þeir voru
háir eða lágir, er leituðu áheyrnar hjá
honum. Hann dó vegna góðvilja síns og
mannúðar.
Semstvofundur í Moskva. 18. þ. m.
komu 284 Semstvofulltrúar saman í Moskva
til þess að ræða um stjórnarfyrirkomulag
Rússlands og um frumvarp það til stjórn-
arbótar, er Bulygin innanríkisráðgjafi
samdi í vetur.
Stjórnandinn f Moskva hafði, gegn eig-
in sannfæringu, en eptir boði frá Trepov,
fyrirboðið að haldin yrði þessi samkoma
og hótað að láta Kósakka tvístra henni,
ef reynt yrði að halda hana. Hvorki bann
né hótanir höfðu þó áhrif á „semstvoana", og
fulltrúarnir svöruðu lögreglunni þannig:
„Fyrirbjóðið þér bara, en sjálfur zar-
inn hefur boðið oss að fjalla um stjórnar-
bótarmálefni Rússlands og vér viijum
hlýða zarnum".
Daginn eptir var fyrsti fundurinn hald-
inn í húsi Paul D olgo rukoffs greifa,
og var Haydn greifi valinn til fundar-
stjóra. Fundurinn hófst með þvl, að
Trubetzkoi fursti, sá sami er hafði
fengið góðar viðtökur hjá keisaranum 19.
júní — hélt ágæta ræðu, er inikill rómur
var gerður að. Hann endaði ræðu sína
með því, að lýsa því yfir, að þessi sam-
koma væri algerlega leyfileg, þar sem vilji
keisarans stæði yfir lögreglunni.
Annars er lítt kunnugt um, hvað gerðist
á Semstvofundi þessum. Þó vita menn
að fundurinn var í flestum atriðum mót-
fallinn frumvarpi Bulygins. Þessir sömu
fulltrúar koma aptur saman 28. ágúst nk..
Það er fullyrt, að keisarinn ætli að kalla
saman fulltrúa til aílsherjar þjóðþings um
allt Rússaveldi. Keisarinn fer til Moskva
með miklu föruneyti seint í þessum mán-
uði, og er för þessi sett í samband við
samanköllun þjóðþingsins.
Nú loks hefur Rússland og Japan valið
fulltrúa til að fjalla uro friðarsamning-
inn í Washington. Fyrir Rússlands
hönd mæta þeir barón Rosen, sem nú
er sendiherra Rússlands í Washington, en
var áður fulltrúi þess í Tokio, og sjálfur
ráðaneytisforseti Rússlands stjórnmála-
garpurinn Witte. En fyrir Japans
hönd mæta þeir Takahira Kogara,
sendiherra Japana I Washington, og K om-
ura utanrfkisráðgj. í Japan. Bæði Witte
og Komura eru nú komnir áleiðis til sam-
komustaðarins Washington.
Það er eptirtektarvert, að keisarinn valdi
Witte til þessarar mikilsverðu og erfiðu
stöðu. Eins og kunnugt er. hefur hann
alltaf verið mótfallinn hernaðarpólitíkinni
og var einn af þeim, er löttu stjórnina
mest til að leggja út í stríðið við Japan.
Menn eru góðrar vonar ura, að Witte með
stjórnkænsku sinni takist að komast að
þeim samningum við Japan, er Rússland geti
gengið að. Síðustu orð keisarans til hans,
áður en hann lagði af stað voru : „Vér viljum
frið, en þó að eins þann frið, sem er sam-
boðinn virðingu Rússlands".
Flotaráðgjafi Rússl., Avellan, hefur
fengið lausn, og viceadmiráll Birilew
hefur verið útnefndur til þeirrar stöðu.
Hinn nýi ráðgjafi starfaði mest og bezt
að útbúnaði Eystrasaltsflota Rússa, er
eyðilagðist í orustunni við Tsushima.
Ameríka. 17. þ. m. lagði hinn alkunni
heimskautsfari, lautenant Peary, af stað
frá New-York á gufuskipinu „R o o s e v e 11“
í nýjan leiðangur til að reyna að kom-
ast til norðurheimskautsins. Peary þyk-
ist nú alveg viss um, að fyrirætlun
sín muni takast I þetta sinn. Skipið
„RoseveIt“ er smíðað til ferðarinnar ein-
göngu, og er afarramgert. I því eru vist-
ir til tveggja ára fyrir heimskautsfarana og
þráðlaus loptskeytastöð. Meðal hluttak-
enda leiðangursins eru 3 konur, þar á
meðal kona Peary’s og jómfrú ein, að
nafni Monie Robb. Það gekk erfitt með
að fá lækni til ferðarinnar, því að skil-
málar voru þeir, að hann einn skyldi fylgja
Peary síðustu vegalengdina til pólsins.
Förinni er heitið gegnum Smithssund og
þaðan til Grænlands. Frá Grænlandi hyggst
Peary svo að komast á 5 mánuðum til
norðurpólsins.
í gær sprakk ketill í gufubát í borginni
San Diego í Kaliforníu. 27 manns
misstu lífið og 70 særðust.
Stríðið milli Rnssa og Japana. Það
helzta, sem borið hefur til tíðinda f stríð
inu milli Rússa og Japana nú upp á síð-
kastið, er, að Japanar eru byrjaðir að leggja
undir sig eyjuna Sachalin. Þeir komu
til eyjarinnar fyrir miðjan mánuðinn með
allstóran flota og 14,000 manna af-herliði,
og tókst strax að ná höfuðbænum Kor-
sakovsk. Hinar rússnesku hersveitir
brenndu þó bæinn, áður þærhörfuðu brott.
Sagt er og, að Japanar hafi nýlega land-
sett mikinn landsafla norður við Wladi-
vostok og sé hanu nú kominn til Tum-
enfljótsins. Er búizt við, aðjapönum tak-
ist brátt að innibyrgja Wladivostok eins
og Port Arthur, og setjast um hana. — Frá
hersveitunum í Mandsjuríinuhafaeng-
in tíðindi borizt, enda eru orustur þar ó-
framkvæmanlegar, því að rigningartíminn
þar er byrjaður.
Eng’laml. Við atkvæðagreiðslu í neðri
deild enska parlamentsins 1 gær, um hin
írsku búalög, beið stjórnin ósigur, og
fengu andvígismenn hennar þriggja atkv.
meiri hluta. Þeir gerðu strax hinn mesta
ys og þys að ráðaneytisforsetanum Bal-
four með hrópum og köllum og mikilli
háreisti, og hinn írski þingm. Redmond
stökk upp á borð og spttrði hann, hvort
ráðaneytið mutidi nú ekki loks sjá sóma sinn
og segja af sér. Balfour tók öllum þess-
um ærslum með mikilli stillingu, og kvaðst
mundi hugsa sig um áður en hann sækti
um lausn fyrir ráðaneytið, og að ekki
væri afgjört með þessari atkvæðagreiðslu,
að stjórnin væri í minni hluta í parla-
mentinu.
Morðtilrnnn við Tyrkjasoldán. í gær-
dag er soldán, eptir endaða trúarathöfn
í Sofíumusterinu, ætlaði að stíga upp f
vagn sinn, var sprengikúlu kastað að hon-
um. Soldán slapp þó sjálfur óskaddaður
frá atlögunni, en 25 manns, er voru þar £
nánd misstu lífið og um 60 særðust.
Vlðauki. Rvík 4. ágúst.
Með »Botnia« bárustnokkuð yngri fregn-
ir, og eru þær merkastar, að nefnd sú,
sem valin hafði verið á ríkisþinginu sænska
til þess að athuga uppástungur stjórnar-
innar, um að slfta sambandinu
milli Svíþjóðar og Noregs, hefur
látið uppi álit sitt 25. f. m. Hefur hún
1 einu hljóði hafnað að fallast á uppá-
stungur stjórnarinnar og veita henni um-
boð til að semja við stórþingið norska
um það efni. Hún vill ekki láta þing
og stjórn fást neitt við þetta mál, fyr en
norska þjóðin hefur á ný látið það ótví-
ræðilega í ljósi, annaðhvort með atkvæða-
greiðslu um land allt eða með nýrri stór-
þingsályktun að afstöðnum nýjum þing-
kosningum, að hún vilji slíta samband-
inu, en þá sé ekkert þvf til fyrirstöðu að
semja um það mál, ef Norðmenn fara
þess aptur á leit. Ennfremur vill hún
láta stjórnina afla 100 milj. kr. annað-
hvort með láni eða á annan hátt, til
þess að hafa tii taks, ef þinginu finnst
ástæða til að nota þetta fé til einhverra
framkvæmda, er snerta þetta mál. Loks
nefnir nefndin nokkra skilmála, sem Norð-
menn verði að ganga að, ef til samninga
kæmi, og er þeirra merkastur sá, að víg-
girðingarnar á landamærunum milli Nor-
egs og Svíþjóðar verði rifnar niður, og
nýjar ekki reistar. Það er talið efalaust,
að tillögur nefndarinnar fái fram að ganga
á þinginu. Hefur R a m s t e d t ráðaneyt-
isforseti því þegar beiðst lausnar.
I Svíþjóð eru menn almennt mjög á-
nægðir yfir þessari stefnu þingsins í mál-
inu, en Norðmönnum þykirþessir skilmál-
ar vera nokkuð harðir. Þó eru nokkur llk-
indi talin til, að þeir muni ganga að
kröfunni um almenna atkvæðagreiðslu
eða nýjar kosningar. Reyndar mundi
slík ný ályktun geta skoðazt sem vottur
um, að ályktunin 7. júní hefði ekki verið
fullgild, og það vilja þeir ógjarnan viður-
kenna, en aðalatriðið fyrir þeim er þó að
fá kröfum sínum í raun og veru fram-
gengt, hvað sem formlegum smámunum
líður.
Balfour hefur nú lýst yfir því í enska
þinginu, að hann finni ekki ástæðu til
þess að segja af sér, þó að hann hafi
orðið undir við atkvæðagreiðsluna í búö-
lögunum írsku. Vakti það illan kurr með-
al andófsmanna og ákafar umræður í
þinginu.
Vilhjálmur keisari er nú á ferðalagi
í Eystrasalti. Hefur hann f þeirri ferð
hitt Óskar Svíakonung að máli, en hitt
þykir þó meira um vert, að í Borga á
Finnlandi kom Rússakeisari til fundar
við hann 23. f. m. Blöðin þykjast þess
fullviss, að her muni eitthvað mikið undir
búa, og spreyta þau sig á því að ráða í,
hvað það muni vera.
Rvík 9. ágúst.
Með »Ceres« hafa borizt blöð til 2.
þ. m. Helztu fréttir eru, að stórþing-
ið n o r s k a hefur samþykkt, að um
miðjan þennan mánuð skuli atkvæða-
greiðsla fara fram um land allt um stór-
þingsályktunina 7. júní. Að vísu kveðst