Þjóðólfur - 18.08.1905, Side 3
ÞJÓÐOLFUR.
153
næsta fjárhagstímabili til þess að stofna
málþráðarsamband milli Reykjavíkur, Eyr-
arbakka og Stokkseyrar, og nefndra hér-
aða austur að Ægissíðu fyrir það fyrsta.
Að því leyti sem þingið kynni að gera
það að skilyrði, að sýslufélögin sjálfveittu
fé til fyrirtækisins, viljum vér taka það
fram, að um báðar sýslurnar ganga nú
erindi til undirskripta fyrir almenning í
þá átt, að menn vilji taka þátt í kostn-
aðinum svo sem fært er og nauðsynlegt
þykir vera.
Þess skal einnig getið, að erindi þetta
lá fyrir sýslunefndarfundum beggja hér-
aða og fékk þar þær undirtektir, að láta
því verða sem fyrst framgengt, enda er
það álit almennings, að það sé eitt hið
mikilvægasta framfaramál þessara héraða«.
Kaldaðarnesi 4. ágúst 1905.
Sig. Ólafsson. Einar Benediktsson.
Framsögum. meiri hluta ritsímanefndar-
innar (Guðl. Guðm.) las skjal þetta upp
við umræðurnar, og var gerður góður róm-
ur að, enda er það kunnugt, að sýslubúar
þar eystra, sem vonlegt er, hafa mikinn
áhuga á að komast í talsímasamband við
Rvlk, og allur þorri þingmanna er þeirr-
ar skoðunar, að sú lína, jafnframt línunni
til Isafjarðar, eigi að ganga fyrir öðrum,
og eigi iandsjóður að kosta stofnlínuna að
öllu, en aukaálmurnar þar útfrá út um
sýslurnar eigi sýsiubúar sjálfir að kosta.
A fjárlögunum hefur verið gert ráð fyrir,
að veita fé til undirbúnings landslmalagn-
ingar frá Reykjavík austur að Ægissíðu,
og er þar 1 fólgin bein viðurkenning fyrir
því, að línu þessa eigi að leggja sem
fyrst, og að fé verði veitt til hennar á
næsta þingi.
Öþörf gleidd. hjá Ísafold.
í 38. tölubl. ísafoldar er meðal annais
minnst á þingmálafundinn á ’BtórólfshvoIi
19. f. m., og svo sem að sjálfsögðu ekki
undanfellt að skeyta skökku við. En séu
annars tildrög þess fundar svo heiðarleg,
að þeirra sé vert að minnast — en á því
ber eg enga ábyrgð — þá get eg með fám
orðum vikið lítið eitt að þeim.
Isafold telur fundinn hafa verið fulltrúa-
fund og til hans valið úr 7 hreppum sýsl-
unnar. Þetta sama vildu nokkrir fundar-
menn einnig segja þar á staðnum, enda þó
sannleikanum sé þar með að miklu leyti
hafnað, en röngu haldið fram. Eða er það
nokkur kosning á einstökum mönnum til
eins eða annars starfa, að einstaklingur úr
samansöfnuðum flokk segist ætla að leyfa
sér að tilnefna í þetta tiltekna þessa menn,
er hann svo nefnir (vitanl. úr sínum flokk)
og ekki sé svo leitað eptir samþykki við-
staddra viðkomenda með atkvæðum eða
neinu, er gangi í þá átt?
Eða er það nokkur sigur að fá einhliða
ályktanir og tiilögur samþykktar, þegar safn-
að er í hóp þeim mönnum einum, sem f
engu víkja frá forustusauðanna ráðum? Nei.
Hvorugt það er mikils virði.
Fulitrúaval til þingmálafunda má vitan-
lega gjarnan eiga sér'stað, en þá væri rétt-
ast, að halda fundi heima í hreppsfélögun-
um áður og ræða þar málin, sem um er
hugsað og kjósa síðan fulltrúana samkvæmt
þeim skoðunum, er þá koma í ljós. En
hitt, að ætla sér að hafa þá eina, sem at-
kvæðin greiða án alls vafa, sem þóknanleg-
ast er forkólfunum, og telja þá jafnt kosna
fulltrúa, þó enginn hafi samþykkt þá og
engum dylti f hug með suma þeirra, að þeir
hefðu minnstu hugmynd ttm, hvað verið væri
að gera — hvað ritsími væri, hvað undir-
skriptarmál m. fl. o. fl., — það virðist of
barnalegt til þess að geta tileinkast jafn
ágætum mönnum og sumum þeim, er voru
á Stórólfshvolsfundinum. Um þetta skal
eg ekki þrátta lengi aptur né fram, að eins
láta ísafold vita, að yfir þessum fundi þarf
hún ekki að vera stórgleið, nægir vel að
hún segi frá þvf sama einu sinni, því fund-
urinn var með samanteknum ráðum valtýskra
ákafamanna stofnaður með þeirra viðráðan-
legustu þægðargripum, látið afskiptalaust
af öðrum til þess að þeir gætu sem bezt
sýnt ákafa sinn — notið sín sem bezt.
Hitt má hún einnig vita — fyrst og fremst
vegna ógildrar kosningar — að þetta var
enginn fulltrúafundur og einnig vegna þess,
að á fundi þessum voru ekki nema sárfáir
menn, sem ætla má að svo vel séu að sér
í stjórnmálum og þýðing þeirra, að þeim
sé ekki ofvaxið að mæta fyrir 10, enda sýna
hinir síðari þingmálafundir það berlega, að
meining fjöidans er sú, að fulltrúar hafi ekki
verið valdir til að mæta fyrir annara hönd,
þar sem t. d. á Reyðarvatnsfundinum greiða
viðstaddir kjósendur óhikandi atkvæði sín
og lýsa yfir því, að enginn annar hafi heim-
ild til þess fyrir ^þeirra hönd og þar eru
mættir kjósendur úr öllum úthreppum sýsl-
unnar nema Holtahreppi.
Að þingmaður, sem vill að allir kosning-
arbærir menn hafi jafnan rétt á þingmála-
fundum og tekur skýrt fram í sínum fund-
arboðum, að svo skuli vera, sé skyldugur
að sitja fund með þeim, sem sjálfir búa til
fulltrúa úr sér og sínum vildustu get eg ekki
fallist á Þegar svo þar við bætist, að fund-
urinn hrópar til hans: „Það er gott að þú
farir, það verður ekkert samkomulag með-
an þú ert", þá er öldungis rétt af honum,
að skipta sér ekkert af slíkri samkomu.
Hitt getur hver dæmt eptir eigin vild sem
vill, hvort eg hafi ekki haft frjálsræði til að
fara burt af fundinum hvenær sem mér lík-
aði og ekki iáta aðra fá mig til þess, að
taka mér það vald, sem eg ekkert átti með:
að greiða þar atkvæði fyrir aðra en sjálfan
mig, en þó eg fái það fyrir, að vera nefnd-
ur „fylgifiskur" þingmannsins, þá skjátlast
ísafold hraparlega, ef hún hyggur það mér
tilTmeysu. Eg get enga skömrn séð sldna
út úr þvl, en álít að hver sá, setn einhverja
skoðun hefur hljóti eptir þessu að vera fylgi-
fiskur annara, því vanalega hafa ætíð fleiri
en einn svipaða skoðun á málefnum, sem
fyrir liggja; og að endingu vildi eg ráða
ísafold til þess, að leitast hér eptir við að
fylgja aldrei því, sem lakara er en dreng-
lundaður, heiðvirður og staðfastur maður,
þá mundi hún fremur talin húshæf og þess
verð, að hún sé lesin án fyrirlitningar og
andstyggðar, sem ekki er unnt nú orðið.
Geldingalæk 5. júlí 1905.
Einar Jónsson.
* *
Aths. Grein þessi hefur orðið að bíða
alllengi upptöku vegna rúnileysis í blaðinu.
Slátrunardagur
óvenjulegur var dagurinn í gær á al-
þingi, felld alls 5 þingmannafrumvörp,
auk eins stjórnarfrumvarps (þingskapa-
frumvarpsins), er tekið var aptur, með
því að nefndin hafði samið nýtt frv., er
við 2. umr. úr nefnd var vísað aptur til
nefndarinnar og er það óvenjulegt. Það
mál dagar að sjálfsögðu uppi á þingi.
Nd. felldi frv. um sérstakan bæjarstjóra I
Reykjavík, launaðan af landsjóði og sömu-
leiðis frv. frá Stef. Stefánssyni þm. Eyf.
um breyting á læknahéraðaskipun við
Eyjafjörð og í Suður-Þingeyjarsýslu. Það
féll með jöfnum atkvæðum. Efri deild
var þó enn ósvífnari í slátruninni, því að
hún felldi við 1. umr. 3 frumv., er til
hennar voru komin frá n. d., trumvörpin
um brýr á Ytri-Rangá, Fnjóská og Hér-
aðsvötn. Mun þessi niðurskurður mælast
allmisjafnt fyrir, og hefði deiidin getað
farið kurteislegar að því að hnekkja mál-
unum t. d. með því að svæfa þau í nefnd,
úr því að hún vildi með engu móti, að
þau hefðu framgang. — í fyrradag var
einnig fellt í e. d. frv. frá Stefáni kenn-
ara um hækkun á launum hreppstjóra.
Tilhsefulausan uppspuna
um »aumlega frammistöðu« ráðherrans
í ritsímaumræðunum í Nd. 14. þ. m. flyt-
ur þokkamálgagnið »ísafold« nt't síðast.
Þar er ekkert orð satt af því sem blsiðið
segir, allt bláber endileysa og ósunnindi.
Það eru nóg vitni að því. Hvað hyggst
málgagnið að vinna með slíku hátterni?
Það getur að eins unnið eitt: dýpstu fyr-
irlitningu allra heiðvirðra og samvizku-
samra manna, fyrirlitningu, sem það reynd-
ar hefur áunnið sér fyrir löngu með fram-
komu sinni. en »Iengi getur vont versnað«.
Samsöng
héldu þau hr. Sigfús Einarsson og frk.
Valborg Hellemann í Báruhúsinu 15. þ. m.
og var gerður góður rómur að. Þess
skal getið, að neðri deild alþingis hefur
neitað Sigfúsi um ofurlítinn styrk til að
kenna söng hér í bænum og gefa sig við
tónsmíði, og virðist það miður vel farið
rneð tilliti til þess, hversu sönglíf og söng-
kunnátta er á miklu bernskuskeiði hér,
og því skylda fjárveitingarvaldsins að
hlynna að þessari fögru list, söngfistinni,
og efla hana,
Sjónleikur.
I gærkveldi lék Leikfélag Reykjavíkur
í fyrsta skipti hinn fræga leik »HeimiI-
isib rú ð an« (»EtDukkehjem«)eptir Henrik
Ibsen. Um leik þennan verður siðar getið.
Meðal ferðamanna
að norðan, sem hér eru nú staddir eru
Páll Vídalín sýslumaður frá Sauðárkrók,
Jón Stefánsson ritstj. Gjallarhorns og séra
Þorvaldur gamli á Mel, en nýfarnir eru
Guðm. Hannesson læknir, Sigurður Sig-
urðsson skólastjóri á Hólum, Jakob Hálf-
danarson frá Húsavfk o. fl.
Auglýsing.
Að öllu fopfallalausu
fer gufub. „Reykjavík“
þ. 2. september þ. á. inn
að Saupbæ í Hvalfipði og
Mapíuhöfn í suðupleið
og keraur við á Akranesi
í uppeptirleið.
Reykjavfk '7/8—'05.
Bj. Guðmundsson.
Vogrek.
Þ. 24. marz þ. á. fannst bátur ó-
merktur á sjó fram undan Grindavík;
lengd 8 áln., 21 þuml., breidd 2 áln.
19 þuml. Byggður úr furu og bauju.
3 ræði eru á hvort borð og 5 þóptur
og bekkur að auk fyrir gafli, málaður
svartur að utan, en grænn að innan.
Sá, sem innan árs og dags frá síð-
ustu birtingu þessarar auglýsingar
sannar eignarhejmild sína að bát þess-
um, fær útborgað hér á skrifstofunni
tippboðsandvirði hans að frádregnum
öllum kostnaði.
Skrifstofu Gullbr.- og Kjósarsýslu
24 júlí 1905.
Páll Einarsson.
Einar M. Jónasson
cand. jur.
gefur upplýsingar lögfræðilegs efnis,
flytur mál fyrir undirrétti, gerir samn-
inga, selur og kaupir hús og lóðir o.
s. frv. Heima kl. 4—7 e. m. í Vest-
urgötu 5 (Aberdeen).
Það borgar sig ekki
að kaupa lérept í álnatali, þegar hægt er að fá fyrirtaks tilbúin línföt á kvenn-
fólk og börn í Brauns verzlun „Hamburg". Rvennskyrtur, alveg steiningar-
lausar, fást þar frá I,2J og barnaskyrtur af öllum stærðum ftá 0,60.
Ennfremur mikið af allskonar nœrfatnaði handa börnum, unglingum og
fullorðnum. Barnasvuntur frá 0,60 og drengjapeysur frá 0,80.
Hinn atinálaði krónu-sængurdúkur fæst að eins í
Brauns verzl. ,Hamburg‘.
Aðalstræti 9. Telef. 41.
CS'^T'maslcinsr I sterste
Udvalg tll ethvert Brug,
Fagmands Garanti. — Ingen
Agenter. Ingen Filialer, derfor
billigst i Danmarh. — Shriv
straksog forlang stor illustreret
Prlsliste, indeholder alt om
Symaskiner, sendes gratis.
G. J. Olsen, Kebenhavn.
Nikolajgade4,vf|W
Bezt kaup
á
Sköfatnaði
i
Aðalstræti 10,
Búnaðarfélag fslands.
Æfingu í plægingu geta nokkrir
piltar fengið í haust, meðan tíð leyfir,
í Brautarholti á Kjalarnesi. Taka má
hesta með og venja þá við verkið.
Menn snúi sér beint til bústjóra Jons
Jónatanssonar í Brautarholti.
Reykjavík 14. ágúst 1905.
Þórh Bjarnarson.
Ljósmyndir.
Stækkanir eftir hvaða mynd sem er,
allt að líkainsstærð, fást vel gerðar og
fyrir sanngjarnt verð hjá Chr. Neuhaus
Eftf. Oluf W. Jörgensen, Photograph.
Köbmagergade I4(fjórtán). Köbenhavn.
12
Til sölu
íbúðarhús, 4 erfðafestulönd, 2 jarðir
nærlendis. Verð 2,000—40,000 kr.
Gísli Þorbjarnarson.
Dugleg vinnukona
vön matartilbúningi, getur strax
fengið
göða atvinnu
Og
hátt kaup.
Ámundi Árnason kaupmaður á
Laugaveg gefur nánari upplýsingar.
Llkkranzar og kort
á Laufásvegi 4.
Fiskiveiðapitið ,ÆGIR‘
ættu allir að kaupa. Það fæst í bóka-
verzlunum og hjá bókb. Guðm. Gam-
alíelssyni í Reykjavtk.