Þjóðólfur - 24.11.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavík. föstudaginn 24. nóvember 19 05.
M 49.
White-hill kolin,
sem nú eru nýkomin í Edinborg þarf ekki að auglýsa, þau mæla með sér
sjáif; menn þekkja þau af reynzlu. — En verzlunin vill leiða athygli viðskipta-
manna sinna að því, að hún hefur enn þá dálítið óselt af ágætu »Cokes«,
sem menn ættu að kaupa með kolunum. Að nota »Cokes« með kolum er
þægilegra, hreinlegra og ódýrara. Verð á »Cokes« er að mun lœgra en
almennt gerist í
Verzlun Edinborg.
Vefnaðarvöru-verzlun
Th. Thorsteinsson að „Ingólfshvoli“,
Hefur lang mesta og bezta úrvalið af vefnaðarvöru.
Hefur mest orð á sér fyrir vandaðar og ódýrar vörur.
Hefur þær lang beztu og ódýrustu saumavélar sem fást.
Hefur allskonar skrautgripi, hentuga í tækifærisgjafir.
Ódýrust og bezt vín í ,,Ö1 & vínkjallaranum“
að „Ingólfshvoli“.
Ver farið en heima setið.
Háðuleg sneypuför
og hlægileg mjög er nýlega farin af for-
kólfum þjóðræðisliðsins hér í höfuðstaðn-
um. Eins og heyrum kunnugt er orðið
hér fyrir löngu, treystist hvorki þjóðræð-
isgenerallinn (Isaf.ritstj.) né helztu legátar
hans til að safna hér undirskriptum und-
ir neitun ritsímalaganna. Þeir treystust
ekki til að draga Reykvlkinga á eyrun-
um og láta þá krota nöfn sín undir gulu
sneplana þeirra. Að þessu var gert mak-
legt háð og spott bæði í »Þjóðólfi« og
»Reykjavlk«, og tekið skýrt fram, aðþjóð-
ræðisburgeisarnir hér- vildu etja fáfróðum
sveitamönnum á foraðið, en vildu sjálfir
hvergi nærri koma, ekkir skrifa undir vit-
leysuna, sem þeir sjálfir voru að sá út
urn landið. Þetta mæltist mjög illa fyrir hjá
flokksmönnum þeirra, og forustusauðunum
heima í sveitunum, sem höfðu gengið
sig upp að knjám í undirskriptasmölun
fyrir þessa virðulegu herra hér í höfuð-
staðnum, er svo brugðust þeim svona
illilega. Og auðvitað hafa þeir fengið
harðar ávítur og hnífilyrði úr ýmsum
áttum fyrir vikið, með hótunum um, að
þeir þyrftu ekki að vonast eptir neinum
smalahlaupum fyrir þá eptirleiðis. Og
viti menn; háð og spott mótstöðumann-
anna og gremja flokksmannanna höfðu
þau áhrif á þjóðræðisgeneralinn og undir-
tyllur hans hér, að þeir skreiddust á stað
með gulu sneplana hér um bæinn og
skrifuðu sjálfir á þá. Og hver varð svo
árangurinn eptir nær 2 mánaða smölun?
Hann varð alveg herfilegur, svo herfileg-
ur, að það er hreint og beint óskiljan-
legt, að »generalinn« skyldi ekki stinga
sneplunum undir stól. Ó, nei, hann send-
ir með bréfi til stjórnarráðsins(l) ds. 21.
þ. m. 5 áskoranasnepla um neitun rit-
slmalaganna með nöfnum 42 — fjörutíu
og tveggja — kjósenda hér í bænum
af 1200 eða meira. Á einu skjalinu
eru 5 nöfn (nr. 1 Þorlákur Reykdal), á
öðru g (nr. 1 Pétur blikksmiður), á þriðja
7 [nr. 1 Ben. Sveinsson ritstj., en »gene-
ralinn« rekur þar lestina með Halldór
Þórðarson og Magnús Benjamínsson við
hlið sér. Menn verða að gæta þess, að
7 er heilög tala, og þessvegna hafa llk-
lega ekki fleiri fengið að vera með á
þessu virðulegasta »dokumenti«]. Á 4.
skjalinu eru að eins 5 nöfn [nr. 1 Sig-
urður Jónsson barnakennari], en á 5.
skjalinu flestir, heilir 16 [nr. 1 Jón Sig-
urðsson bæjarfógetaskrifari og næstur
honum Gfsli nokkur Guðmundsson lúður-
þeytir. Þar er Einar og B. Kr.
Þetta eru bæði hlægilegar og háðuleg-
ar hrakfarir.
Hlægilegt er það sannarlega,, að vera
að safna þessum undirskriptum nú, og
senda þær í stjórnarráðið löngu, löngu
eptir að konungur hefur staðfest ritsíma-
lögin, eptir því sem búast má við, og
um það leyti sem ráðherrann er að koma
heim aptur úr för sinni á konungsfund.
Og svo árangurinn af smöluninni. Einar
42 sálir í netið á 2 mánuðum, ekki ná-
lægt því ein á dag að jafnaði hjá öllum
smölunum til samans(ll). Þetta sýnir bezt
álit Reykvtkinga á undirskriptavitleysunni
og öllu flani þjóðræðisliðsins.
Háðulegri hrakför er naumast unnt að
hugsa sér fyrir þjóðræðisliðið hér í bæn-
um. Það l'ggur við, að vér vorkennum
»generalnum« að vera svo langt leiddur,
að hafa ekki vit á að sjá, að þetta er
miklu verri og smánarlegri útreið fyrir
hann og flokkinn í heild sinni, heldur
en hann hefur nokkru sinni fengið á hinni
stuttu en þyrnum stráðu krossgöngu sinni.
Og hvers vegna kom enginn vitinu fyrir
»generalinn«, að láta ekki þessa háðung
lengra fara en á skrifstofu Isafoldar?
Miklu betra að Hggja undir því ámæli,
að hafa brugðist undan merkjum hér 1
bænum, heldur en að fá svona lagaða
uppskeru eptir nær 2 tnánaða smölun, því
að þessi dæmalausa1 undirskriptahrakför
þjóðræðisforkólfanna hér á sjálfum her-
stöðvunum, hlýtur að verka eins og kalt
steypubað á kófsveitta svejtasmalana þeirra,
svo að allur þjóðræðishitinn í þeim og
öðrum gufar alveg burtu, og ekki verður
annað eptir en nfstandi kuldi fyrirlitning-
arinnar og óbeitarinnar á öllu þessu fá-
ránlega þjóðræðisbrölti og þjóðræðis-
skrölti höfuðforingjans og hermanna hans
hér.
Og svo kemur hláturinn á eptir, drep-
andi og deyðandi þetta litla, sem kann að
loða eptir af þjóðræðisóværð 1 einhverjum
eptir baðið. En þá er' líka landið laust
við öll þjóðræðisóþrif. Og það er mikið
»generalnum« að þakka, herkænsku hans,
viti og stillingu, sem allt er svo aðdáan-
lega sameinað. Mikil gæfa er það fyrir
þjóðræðisliðið að hafa sllkan foringja,
jafnvitran og jafnötulan. Hann er t. d.
hárviss að gefa ráðherranum skalla, al-
einn á hnjánum eða fjórum fótum, ef
hann að eins nær til hans, og hrópa
»Niður með hann«, þótt hann geti engu
öðru orði upp komið, og sé sjálfur að
fara norður og niður ásamt þjóðræðislið-
inu með slagsíðuna.1
1) Slagsfðan kom einmitt á liðið, þegar
Landv.menn létu skírast um, og tóku upp
valtýska þjóðræðið. Síðan hefur allt ram-
hallast.
Undirskriptir apturkallaðar.
Nú eru sumir þeirra, sem tældir voru
til að skrifa undir áskoranaskjöl Þjóðræð-
isliðsins farnir að apturkalla undirskriptir
sínar opinberlega. Blaðið »Gjallarhorn«
birtir svolátandi fundargerð: »Að af-
loknum hreppaskilum í Skriðuhreppi 1
Eyjafjarðarsýslu 14. október héldu bænd-
ur þeir, sem rnættir voru fund með sér
til þess sérstaklega að ræða um þá að-
ferð Valtýinga að senda menn um allar
sveitir til þess að telja menn og tæla til
þess að skrifa undir áskorun um neitun
ritslmalaganna o. fl.
Eptir nokkrar umræður lýstu eptirtald-
ir menn, sem tældir höfðu verið til und-
irskripta yfir því, að þeir eptir að hafa
fengið nánari upplýsingar um tnálið, eink-
um af nefndaráliti neðri deildar alþingis
o. fl. apturkalii hér með nöfn sín«.
(Undirrituð nöfn g kjósenda í Hörgárdal).
Hvað segja þjóðræðishetjurnar um þetta?
Lfklega fást þessir sömu menn ekki til
að bíta á agnið hjá þeim herrum næst,
hversu sem öngullinn verður fagurgljáandi.
Undirskriptaveiðin verður tregari og treg-
ari dag frá degi, eptir þvl sem blekkinga-
hjúpurinn og ósannindavefurinn tætist
smátt og smátt utan af þjóðræðisklíkunni,
unz hún stendur allsnakin uppi frammi
fyrir þjóðinni, háðinu og fyrirlitningunni
ofurseld.
Frá útlöndum.
Marconi-skeyti
frá 21. og 23. þ. m. flytja engin útlend
tíðindi markverð nema þau, að norska
stórþingið hefur f einu hljóði kjörið Knrl
Danaprinz (sonarson Kristjáns g.) til
konungs í Noregi, samkvæmt almennri
atkvæðagreiðslu, er fram fór 12. og 13.
þ. m. Karl hefur aptur svarað, að hann
tæki við konungstigninni og ætlaði að
nefna sig Hákon 7. en son sinn Ólaf
(hann heitir Alexander). Ætlaði konungs-
efnið að leggja af stað frá Kaupm.höfn
til Kristjaníu 1 gær, og má geta nærri,
að viðtökurnar f Noregi verða glæsilegar.
I Pétursborg er nú heldur að komast
kyrrð á segir nýjasta Marconi-skeyti í
gærkveldi, og vona menn, að allt komist
þar í samt lag bráðlega. Sem vottur þess
er talið, að verkamennirnir hafa hætt við
að krefjast 8 stunda vinnutíma á dag.
Witte hefur nú mikil völd og beitir þeim
viturlega.
Þýzka stjórnin fer fram á að auka mjög
útgjöld til herskipa, og vill fá 6 ný or-
ustuskip og marga tundurbáta.
Stórveldin standa 1 stímabraki við
Tyrkjasoldán að fá einhverja hönd í
bagga með fjárhagsstjórn Makedonlu, og
hafa nú sent flota sinn suður þangað til
að herða á karli. En Þjóðverjar eru þar
ekki með. Keisarinn er svo mikill vinur
Hund-Tyrkjans.
Roshdestvenski admiráll er nú lagður
af stað heimleiðis til Rússlands á skipinu
Voronegs og 500 rússneskir fangar frá
Tokio komnir áleiðis til Vladivostok. í
Nagasaki lá við, að upphlaup yrði með-
al þeirra, en 100 japanskir lögregluþjón-
ar gátu stillt til friðar.
Samningar hafa verið gerðir millum
Kóreu og Japan á þá leið, að stjórn ut-
anríkismálefna Kóreu flytst til Tokio, en
japanskur landstjóri verður sendur tii
Kóreu. Japan lofar að veita Kóreu apt-
ur full rettindi, þegar hún er orðin full-
fær um að neyta þeirra.
Lrátlnn
er 7. m. M a g n ú s G u ð m u n d s s o n
hreppsnefndaroddviti á Kotvelli 1 Hvol-
hrepp á 58. aldursári (f. 4. jan. 1848),
mesti merkisbóndi, og verður hans sfðar
minnst nánar hér í blaðinu.
„Laura" ókomin kl. 2 1 dag.