Þjóðólfur - 24.11.1905, Síða 2
208
ÞJOÐOLFUR.
Hingað og ekki lengra — ?
Á þessu sumri hafa gerst þau tíðindi
hér á landi. sem svo eru viðsjárverð fyr-
ir vorn pólitiska viðgang, að til þeirra
verður engu jafnað í seinni tfð. Þessi
tíðindi eru askoranir »Þjóðræðisfélagsins«
til raðherrans um að fá konung til að
fresta staðfestir.gu ritsímalaganna.
Vegna hvers eru þessar áskoranir svo
sérlega viðsjárverðar ? Vegna þess fyrst
og fremst, að í þeim felst viðleitni til
að fá styrk erlends valds (konungsvalds-
ins) gegn hinu æzta innlenda valdi (þing-
ræðinu), samskonar viðleitni og sú er
kom fram á Sturlungaöld, þegar höfðingj-
ar vorir leituðu aðstoðar Noregskonungs
hver gegn öðrum, og um leið gegn hinu
æzta innlenda valdi. Afleiðingar þess
eru svo kunnar, að þær þarf ekki að
ræða hér. En svo ískyggileg sem þessi
hlið málsins er, þá hefur það þó aðra
hlið, sem er ennþá ískyggilegri, nú, á
voru sérstaklega pólitiska þroskastigi. Sú
hlið er aðferðin við að afla áskoruninni
fylgis, sú aðferð að afla fylgisins (undir-
skriptanna) í myrkri þ. e. á bak við mót-
-stöðuflokkinn og áður en málið var upp-
lýst eptir þvf sem föng voru á. Það má
telja vfst, að sumir þeirra, sem léðu á-
skorunum fylgi sitt, hefðu gert það eins
vel frammi fyrir almenningi; en hittætla
eg engu óvissara, að sumir þeirra hefðu
alls ekki gert það, þar sem malið var
sótt og varið á báðar hliðar. Það er
satt að þetta er ekki í fyrsta sinn, sem
unnið er í myrkri í pólitík hér á landi;
en það er í fyrsta sinn, sem þeirri myrkra-
vinnu er stefnt beint á voit eigið æzta
innlenda vald — hið sama vald og vér
höfum keypt svo dýru verði, sem liggur
í fullrar hálfrar aldar baráttu vorra beztu
manna. Hugsum oss afleiðingarnar af
þessu út í æsar. Setjum svo að undir
skjöl »Þjóðræðismanna« hefði fengist full-
ur helmingur kjósenda í landinu. Hvað
átti svo að verða ? Eptir framsögu »Þjóð-
ræðismanna« helði stjórnin átt að vfkja
fyrir þannig fengnum meiri hluta og sú
stjórn að setjast á laggirnar. En hvað er
eðlilegra en að sá flokkur, sem þannig
hefði orðið undir, hefði beitt aptur sömu
aðferðinni, aflað sér meiri hluta í ein-
hverju máli í laumi, á bak við hinn flokk-
inn og honum að óvörum ? Og svo flokk-
arnir á vfxl hver af öðrum ? — Þegar
þetta er athugað vona eg að öllum þeim
mönnum, sem sæmilega eru skynsamir
og óblindaðir af sfnum eigin athöfnum í
málinu verði Ijóst, að með undirskripta-
smölun »Þjóðræðisflokksins«, er lagður
fyrsti stúfur af braut, sem liggur beint
niður á við, niður til hins neðsta póli-
tiska foræðis.
Það er átakanleg sönnun fyrir því, hve
pólitiskar æsingar blinda skynsemi manna,
þegar svo skyggnum mönnum og þeir eru
að náttúrufari : formaður og varaformað-
ur »Þjóðræðisfélagsins« verður á að stíga
jafn viðsjárverð glæfraspor og þau, sem
hér er um að ræða. En gleðilegt er
það, ef þaö er satt, að eigi hafi veiðst f
netin meira en ca. J/6 hluti kjósenda 1
landinu, þrátt fyrir það hvað málinu var
fast fylgt, og þrátt fyrir það, að komið
var að mönnum óvörum og óundirbúnum.
Þetta gefur vonir um, að nú sé sú komin
stund, þegar sómatilfinning þjóðarinnar
vaknar gegn því pólitiska óárani, sem
gengið hefur yfir landið í seinni tíð,
vaknar og segir: Hingað og ekki lengra.
Sigurjón Fridjónsson.
[Eptir »Gjallarhorni«].
Alþjóðaþing
allmerkilegt var haldið í Boulogne-
sur-Mere á Norður Frakklandi 5.— xo.
ágúst í sumar. Á slfkum alþjóðafundum
ægir venjulega saman fjölda tungumála,
svo að fæstir geta fylgzt með öllu því,
sem fram fer, en hér voru engin slík
vandkvæði. Allir fundarmenn notuðu
sama tungumalið á fundi þessum, og
var þar þó saman kominn mikíll fjöldi
manna af ýmsum þjóðum víðsvegar um
um heim. Og málið, sem þeir töluðu,
var hvorki enska né franska, heldur
esperantó, heimsmálið nýja, sem nú
er óðum að ryðja sér til rúms. Fyrir
tæpum tveim árum var getið um mál
þetta f Þjóðólfi og þann byr, sem það
þá hafði fengið, en síðan hefur það eflzt
og útbreiðzt meir en nokkru sinni lyr,
og nú vildu fylgjendur þess sýna það
öllum áþreifanlega með fundi þessum, að
það mætti nota engu síður munnlega en
skriflega, þótt menn ættu við útlendinga
að skipta, er lært hefðu málið 1 fjarlæg-
urn löndum. Og það er enginn efi á,
að það hefur tekizt.
Umræðurnar fóru allar fram á esper-
antó, og stýrði þeim Boirac, rektor há-
skólans f Dijon, en heiðurslorseti fundarins
var dr. Zamenhof, höfundur málins,
sem sjalfur var staddur þar og hélt langa
ræðu, er mikill rómur var gerður að.
Ræddu menn um framtíð malsins og
útbreiðslu þess o. fl., er hér verður ekki
upp talið, en auk þess héldu einnig ýms-
ir þeir, er höfðu einhver sameiginleg á-
hugamal, sérstaka fundi sfn á milli til að
ræða þau, t. d. læknar, friðarmenn, kat-
ólskir, Irfmúrarar, blaðamenn o. fl., Og
einn daginn (sunnudag) var haldin katólsk
messa a esperantó.
Jafnframt reyndu menn að vekja at-
hygli manna á malinu, nothæfi þess og
útbreiðslu, með ýmsum hátlðahöldum og
skemmtunum. Þannig var t. d. haldinn
samsöngur f leikhúsi bæjarins, þar sem
viðstaddir voru yfir 1200 manns. Söng-
urinn fór eingöngu fram á esperantó, og
var söngflokkurinn skipaður mönnum af
af ýmsu þjóðerni. Smaleikur eptir Moli-
ére var leikinn á eptir, einnig á esperantó;
þrjár konur léku, og var ein þeirra ítölsk,
önnur sænsk og hin þriðja rússnesk, en
af karlmönnunum var einn enskur, annar
þýzkur, þriðji norskur, tveir franskir, einn
belgiskur og einn Kanadamaður. Þó að
leikendur væru svona sundurleitir að þjóð-
erni, þótti leikurinn takast vel, og ekki
sýnilegt, að málið væri til neinnar fyrir-
stöðu. Ymsar fieiri skemmtanir og há-
tíðahöld fóru fram þar í bænum, en að
lokum skruppu allmargir fundarmenn yfir
um sundið til Englands, til Folkstone og
Dover og þaðan aptur til Calais og
Boulogne, og var þeim hvaivetna vel
fagnað af bæjarmönnum. Eptir fundinn
var dr. Zamenhoí sæmdur af frönsku
stjórninni riddarakrossi heiðursfylkingar-
innar.
I sambandl við fundinn var sýning hald-
in á blöðum og bókum á esperentó eða
um esperantó á ýmsum málum og ýmsu
öðru, er sýndi notkun málsins og útbreiðslu
þess, er einmitt nú slðustu árin hefur
aukizt svo mjög. I 15 löndum í Evrópu, Am-
erfku og Afrlku koma nú út blöð og tímarit
á esperantb. Merkast þeirra er »Inter-
nacia scienca revuoi (Alþjóðlegt
vfsinda-tímarit), er byrjaði að koma út í
Parfs fyrir tveim árum síðan, og margir
hinir fiægustu og ágætustu vísindamenn
eru riðnir við. Má þar til nefna þá
Becquerel ög Ramsay (er hlotið hafa
Nobei-verðlaunin f eðlisfræði og efnafræði),
læknana Bouchard og Brouardel,
efnafræðinginn Bertoelht, stærðfræðing-
inn P o i n ca r é og m. fl. í París kem-
ur einnig út tímarit á esperantó, sem ein-
göngu er fyrir blinda, og því prentað með
upphleyptu letri. Friðartfmarit er einnig
farið að koma út á esperantó, og er það
gefið út af alþjóðlegu friðarfélagi, sem
sett var á stofn í vor. Þá hafa og góð-
templarar 1 Svíþjóð lagt mikla stund á
esperantó, og jafnvel gert sér von um að
fá hana gerða að allsherjarmáli góðtempl-
ara, og mun sú von ekki hafa veikzt við
það, að Wawrinsky þingmaður, sem
mestan áhuga hefur haft á því máli, var
kosinn yfirmaður allrar góðtempiarregl-
unnar á hástúkuþinginu í sumar. Enn-
fremur má geta þess, að í Frakklandi
er vfða farið að kenna esperantó í skól-
um, að vísu ekki sem skyldunamsgrein,
og fyrirlestrar hafa verið haldnir um það
við suma háskólana þar.
I Danmörku er nú nýstofnað esperantó-
félag undir forustu Skeel-Gjörlings
tungumálakennara í Aalborg, sem einnig
hefur gefið út kennslubækur í esperantó
á dönsku, og meðal félaga þess er nefnd-
ur Otto Jespersen prófessor í ensku
við Khafnarhaskóla.
Að öðru leyti skal hér ekki farið lengra
í að skýra frá útbreiðslu máls þessa, en
þetta mun nóg til að sýna, að það er í
uppgangi, og virðist eiga mikla framtið
fyrir höndum. Það er nú svo komið, að
allur þorri manna játar, að full þörf sé
á að fá eitthvert eitt mál gert að heims-
máli, og með þvf að svo mikil vandkvæði
eru á því að fá menn til að sameinast
urn nokkurt lifandi mál, þá munu flestir
telja tilbúið tungumal heppilegra og væn-
legra til sigurs.
Sjónleikar.
Leikfélag Reykjavíkur lék í fyrstá skipti
á þessum vetri á sunnudaginn og manu-
daginn var. Það er frakkneskt leikrit, er
það hefur byrjað á: »Vestmanna-
b r e 11 u r « eptir Victorien Sardou
nafnfrægan leikritahöfund (f. 1831). Er
það heimsadeila um Ameiíkumenn og
llfið í »nýja heiminum« allhnittin sum-
staðar en nokkuð öfgafull víða og ýkju-
blandin. En fólki þykir leikurinn fremur
skemmtilegur og fjörugur, enda er hann
yfirleitt dável leikinn, einkum aðalhlut-
verkin, en þau eru leikin af frú Stefaníu
Guðmundsdóttur, frk. Guðrúnu Indriða-
dóttur, Árna Eiríkssyni og Helga Helga-
syni. Gerfi Áina er gott og hann segir
margt vel, samhliða góðum svip'breyting-
um vlðasthvar, en er fullkátur, fjörugttr
og léttur á ser af jafngömliim manni, sem
gamli Tappleboat er. Leikur frk. G. I.
minnir mjög á Glory í »Jóni Storm«, og
tekst ekki öllu miður en þar. Hr. H.
H. hefur allvandasamt hlutverk, en leysir
það furðanltga vel af hendi og smekkvfs-
lega, eins og jafnan. — Smærri hlutverk-
in eru sum fremur laklega leikin, eins og
vant er. — Að lýsa efni leiksins er óþarft
fyrir Reykvlkinga, er eiga kost á að sjá
hann, og elnisgildi hans í sjálfu sér er
heldur ekki svo mikið, að aðrir græði
neitt á því, þótt farið væri að rekja all-
an þráðinn í þessum ádeiluleik, enda
yrði það oflangt mál. En það er enginn
efi á, að hann er dágóð sskemmtun fyr-
ir fólkið« og annars og meira má ekki
af honum krefjast.
Rödd úr sveitínni.
Nokkrar lnigleidiiigar sveitabónda.
Mikið eru nú orðnir breyttir tímar síðan
eg var á unga aldri og unglingarnir lærðu í
barnalærdómnum sínum að heiðra og elska
góðu yfirvöldin sín. Það sama var brýnt
fyrir ungum og gömlum í ræðum og rit-
um. En nú eru æztu yfirmenn þjóðarinn-
ar, sér í lagi ráðherra landsins, ofsótt-
ir, svo að öllu er snúið til verri vegar af
þessum 5 blöðum landsins, sem hvert taka
eptir öðru sömu skarngreinarnar. „ísafold"
byrjar venjulega, svo kemur vinnukonan —
„Fjallkonan“, síðan hlaupadrengirnir: „Þjóð-
viljinn" og „Ingólfur", og svo drattar „Noið-
urlandið" á eptir. Ekki vantar að nöfnin
eru göfug, langt of góð handa þessum róg-
blöðum, sem látast vera að gagna fóstur-
jörðinni, þegar þau eru að æsa til ófnðar
og gera henni hið mesta mein, sundra kröpt-
um okkar fámenna lands í stað þess að
sameimi pd og skýra mdlin frd léttn /dið.
Þeir vita vel, ritstjórarnir, og hafa lengi
vitað, að málið um undirskript forsætisráð-
herrans hefur enga þýðingu haft fyrir stjórn
og sjálfstæði íslands, eins og það mál er
nú líka fallið um sjálft sig sem önnur mark-
leysa, eptir allar þær sakargiptir, sem ráð-
herranum hafa verið bornar á brýn út úr
því rnáli, alveg að ósekju. Það var ekki
mögulegt öðruvísi. Þeir vita líka að rit-
símasamningarnir, sem ráðherra vor gerði
í fyrra haust fyrir landsins hönd við hið
stóra norræna hraðskeytafélag, eru þeir
langbeztu sem fengizt hafa, og að loptritun,
hvort heldur sem er frá félagi, er samið
hefur við Marconi eða hinu þýzka félagi
(Siemens & Halske), er bæði óvissari og
dýrari, svo engin tiltök var að ganga að
þeim kjörum, er þau bjóða. Þeir vita vel,
ritstjórar nefndra blaða, og hugsandi menn,
sem þeirri stefnu fylgja, að þeir fara ekki
með rétt mál, þar sem þeir nú reisa sig
upp móti því, er þjóðin á hverju þínginu
eptir annað hefur óskað eptir, og auka svo
kostnaðinn í augurn hennar, að miklutn
hluta hennar liggur við að blindast af þessu
tilbúna moldryki, ef þeir eru ekki sjálíir
blindaðir af hefnigirni og fleiri ósóma, er
henni fylgir.
Einnig hljóta þeir að vita, þessir sömu
herrar, að auknir tollar voru sjálfsagðir og
nauðsynlegir á þessu þingi, þar sem tekju-
halli á landsjóð var mikill á siðasla þingi,
og svo þegar þar við bætist ritsíminn, sem
hlýtur að kosta mikið fé, en af honum geta
menn líka vonazt mikilla hagsmuna fyrir
land og lýð. Hann getur orðið að ómet-
anlegu gagni; hækkaður tollur af hinum
sömu vörum, er áður hafa verið toilaðar,
verður óbrotnast og minnst tilfinnanlegt yfir
höfuð. Að eins finnst mér hefði átt að
fylgjasl með allir gosdrykkir, sem óhæfilega
mikið er brúkað af í landinu. Annmark-
ar við tollinn á álnavöru hafa opt ver-
ið skýrt teknir fram. Landið hefur varla
vitað af tolli á kaffi, sykri, tóbaki og vín-
föngum að undanförnu, þannig að hnekkir
hafi af því orðið í efnalegu tilliti. Það
stendur líka í sjálfra þeirra valdi, hvort þeir
vilja minnka kaup á þeim vörum. Eg er
sjálfur sveitamaður, og vil landsins gagn á
allar lundir. Það sen; það nú mest þarfn-
ast, er innbyrðis friður. Heiðrum og styrkj-
um með samheldni okkar röggsama og
góða yfirvald, ráðherra íslands, fylgjum
þeim foringja, og látum ei blekkjasl.
Einbúi.
Leiðarþing
hélt 1. þingm. Rangæinga, séra Eggert
Pálsson, 3. þ. m. að Reyðarvatni á Rang-
árvöllum. Hafði fundarboð gengið um þann
hluta — vesturpart — sýslunnar, er fundur-
inn var haldinn fyrir. Mátti því ætlast tíl,
að þar kæmu bæði samflokksmenn og mót-
partar þingmannsins, en af fullum 30 kosn-
ingarbærra manna, er fundinn sóttu, virtust
allir sömu skoðunar og á eitt sáttir.
Þingmaðurinn gaf glöggar og góðarskýr-
mgar yfir meðfeið helztu mála í þinginu í
sumar og gerðir þess yfir höfuð; gaf upp-
jýsingar um margt, sem almenningi var eigi
kunnugt fyr, og talaði hlutdrægnislaust um
afstöðu meiri og minni hlutans í þeim 4
málum sérstaklega (undirskriptam., ritsímam.,