Þjóðólfur - 08.12.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavík föstudaginn 8. desember 19 05.
Jú 51.
c
’c
N
>
® E D I N B Q R G Q
Ekki þurfa Reykjavíkurbúar að ganga á
sokkunum um jólin, því verzlunin
EDINBORG
selur nú frá þessum degi (8. des.) og til jöla
allt útlent skótau með
ÍO’
afslætti mót peningum.
Lítill ágóði. Fljót skil.
J3
CD
*<
7C
sö'
<
PT
Vefnaðarvöru-verzlun
Th. Thorsteinsson að „Ingólfshvoli“.
HefliP lang mesta og bezta úrvalið af vefnaðarvöru.
Hefur mest orð á sér fyrir vandaðar og ódýrar vörur.
Hefur þaer lang beztu og ódýrustu saumavélar sem fást.
Hefur allskonar skrautgripi, hentuga í tækifærisgjafir.
Ódýrust og bezt vín í ,,Ö1 & vínkjallaranum46
að „Ingólfshvoli“.
Utlendar fréttir.
Kaupinannahöfn 27. nóv.
Hinn nýi konnngur Noregrs, Hákon VII.
E;iíir að hin endilegu úrslit allsherjar-
kosninganna í Noregi, 259,563 já og
69 264 nei, voru kunn, valdi stórþing
Norðmanna 18. þ. m. Karl prins 1 einu
hljóði til konungs yfir Noregi. Síðan
sendi forseti þingsins hraðskeyti til Krist-
jáns konungs, Karls prins og Christensens
ráðaneytisforseta, um konungsvalið. Karl
prins sendi forsetanum aptur svolátandi
hraðskeyti: »Með samþykki hans hátign-
ar konungsins, afa míns, geri eg yður
það kunnugt, að eg tek á móti kosning-
unni sem konungur yfir Noregi, og tek
mér nafnið Hákon 7., en gef syni
mínum, Alexander, nafnið Ólafur.
Húsfrú mín og eg biðja Guð að blessa
og vernda hina norsku þjóð; hennar
heiðri og gæfu viljum vér helga allt vort
líf 1 framtíðinni«.
19. þ. m. kom svo sendinefnd frá Nor-
egi, 7 meðlimir stórþingsins með forseta
Berner í broddi, hingað til borgarinn-
ar, til þess að fá samþykki og staðfesting
Kristjans konungs á kosningtt Karls prins
til konungs yfir Noregi. Þetta samþykki
gaf konungurinn hátíðlega í hinum skraut-
lega riddarasal á Atnalíuborg í viðurvist
allrar konungsættarinnar, stjórnarinnar,
allra tignustu rnanna rikisins og hinnar
norsku sendinefndar. Athöfnin fór fram
með viðhafnarmiklu háttðahaldi. Kristján
konungur sat í hástóli í fullum konungs-
skrúða sínum og las þaðan fyrst upp svar
sitt til norsktt sendinefndarinnar; síðan
sneri konungurinn sér að sonarsyni sín-,
um, Karl prins og konu hans, Maud prins-
essu, og talaði til þeirra mörgum fögrum
Og vel völdum orðum, og undir þessari
ræðu komst hinn háaldraði konungur svo
við, að hann grét hástöfum.
Þegar konungur hafði lokið ræðu sinni,
drundu 27 fallbyssuskot frá höfninni, er
tilkynntu að frá þessu augnabliki væri
Karl prins orðinn Hákon VII. konungur
yfir Noregi og prinsessa Maud drottning.
A fimmtudaginn var (23.) lagði svo hinn
nýi Noregskonungur af stað héðan frá
borginni áleiðis til rfkis síns, um borð á
hinu danska konungsskipi »Dannebrog«.
Til fylgdar honum voru og fengin 2
stærstu herskip ríkisins. England og
Þýzkaland sendu og herskip til að
fylgja Hakoni konungi og drottn-
ingu hans til Kristjaníu. Við burtför
komtngsins héðan frá borginni voru um
100,000 ntanns viðstaddir.
A laugardagsmorguninn (25.) kom svo
Hákon konungur með öllu föruneyti sínu
til Kristjaníu. Bæjarbúar tóku á móti hin-
um nýja konungi með óstöðvandi fagn-
aðarlátum, Það hafði verið varið stórfé
til þess að skreyta borgina sem mest,
enda er mikið látið yfir því, hve mikið
skraut og viðhöfn var á öllu. Við land-
tökuna voru auðvitað haldnar margar
ræður fyrir konungi og drottningu, af
Michelsen, Berner o. fl., og húrra-
ópin ætluðu engan enda að taka. Það
hefur heldur ekki gengið á öðru en veizl-
um og hátíðahöldum í höfuðstað Noregs,
síðan Hákon konungur sté á land.
Hinn nýi konungur Noregs hefur feng-
ið heillaóskaskeyti frá öllttm stjórnendum
Norðurálfu og frá Roosevelt forseta.
Rússland. Fyrir nokkru gerðu sjómenn
í Kronstadt upphlaup mikið og snerist
herdeild af fótgönguliði einnig í lið með
þeim. Þeir drápu nokkra af yfirmönnum
sfnum, en flestir þeirra flýðu strax til
Pétursborgar, er upphlaupið hófst. Sjó-
mennirnir fóru svo um bæinn með rán-
um og manndrápum og kveiktu eld í
14 húsum, er brunnu til kaldra kola.
Brátt kom þó herlið frá Pétursborg og
skakkaði leikinn. Vorti allir upphlaups-
menn teknir höndum og varpað í fangelsi.
Herrétturinn í Kronstadt hefur nú
dæmt 300 þeirra til dauðn.
Upphlattpið í Vladivostok í miðj-
um mánuðinum var meira og voðalegra
en fyrst fréttist. 300 Rússar og 500 Kfn-
verjar misstu lffið í uppreisn þessari. Her-
mennirnir, er uppreisnina gerðu tóku
marga af yfirmönnum sínum af lífi. Sagt
er og, að flotaforingi J e s s e n hafi og
verið myrtur.
Nú þessa dagana stendur yfir ntikil
herttppreisn í Sevastopol, bæði með-
al sjó- og landhersins. Þó eru skipshafn-
irnar á herskipunum rólegar enn. Dát-
arnir hafa tekið yfirmenn sína höndum
og varpað þeim í fangelsi, en 4 voru
drepnir. Verkamenn í borginni hafa geng-
ið í lið með dátunum og iæður uppreisn-
arlýðurinn öllu í borginni.
Sagt er, að K ó s a k k a r við Doná hafi
og gert uppreisn.
Nú sem stendur eru engin verkföll í
Rússlandi.
»Semstvoa«-fundur, sem haldinn er 1
M o s k v a þessa dagana, hefur samþykkt
að styðja stjórnina, ráðaneytið W i 11 e ,
að málum og í framkvæmdum. Þó set-
ur fundurinn sem skilyrði, að rýmka verði
um réttindi Póllands. í sambandi við
þetta er fullyrt, að Witte muni útnefna
fyrverandi innanríkisráðgjafa S v i a t o -
polsk-Mirski til landsstjóra í Póllandi.
Kosningaréttur á Rússlandi á
eptir nýjustu ákvæðum stjórnarinnar að
ná til allra, er eiga 100 rúbla virði eða
þar yfir.
Hinn frægi rússneski hershöfðingi
Dragoiniroff andaðist í lok f. m. 75
ára gamall. Hann var hershöfðingi í ó-
friðnum milli Rússa,og Tyrkja 1878 og
tók þátt f hinum hörðtt bardögum í
Shipkaskarðinu.
Hertoginn a f Orleans, sá er
kom til Islands í suntar sem leið, hefur
gefið skáldinu og Grænlandsfaranum
M y 1 i u s - Eric h s e n skipsitt Belgica.
Mylitts-Erichsen er kunnur á Islandi, því
að hann tók þátt f stúdentaförinni dönsku
til landsins árið 1900.
Filip greifi afFlandern bróð-
ir Leopolds konungs í Belgfu dó 17. þ.
nt. 68 ára að aldri. Sonur hans Albert
er rfkiserfingi í Belgíu með þvf að Leo-
pold konungur á engan son.
Sama dag andaðist einnig stórhertogi
A d 0 1 f af L u x e m b u r g 88 ára gam-
all. Hann var elztur allra stjórnenda
Norðurálfu.
Klna krefst 12 milj. dollara af Japan
og Rússlandi í skaðabætur fyrir tjón það,
er ríkið hefur beðið í Mandsjúríinu vegna
ófriðarins.
20. þ. m. vildi það slys til við eyj-
una Cegembre í Ermarsundi nálægt
norðurströndum Frakklands, að gufuskip
eitt, »Hilda«, rakst á sker og sökk að
vörmu spori. 123 manns misstu lffið, en
að eins 6 björguðust.
Viðauki. Rvík 8. des.
(Eptir Marconi-skeytum 3. og 7. þ. m.).
Marconi-skeyti frá 3. þ. m. flutti þá
fregn hingað, að kveikt hefði verið í
Moskva (af uppreisnarmönnum) og að þar
geisaði mikill eldur í bænum. Ritsíma-
sambandi rnilli Rússlands og útlanda þá
algerlega slitið. Sfðara skeyti (í gær-
kveldi) getur ekki frekar um þetta, en
segir að sfðustu fréttir frá Pétursborg á
sunnudagskveldið 3. þ. m. telji þar kyrt,
en borgina fulla af herliði, er hafi það
aðalstarf á hendi að bera út bréf.
Svo er að sjá sem ttppreisnin í Sevasto-
pol sé sefuð. 2000 ttppreisnarmenn hafa
gefist upp. 110,000 verkamenn í Péturs-
borg atvinnulausir en 6,8,700 í Moskva
(eptir M trconi-skeyti 3/I2), Rússnesk 4°/0
ríkisskttldabréf féllu í Petursborg 1. þ.
m. niður í 79. Frakkneskir peningamenn
smeikir við ástandið í Rússlandi, því að
þeir eiga 500 milj pd. sterling í rússnesk-
ttm rfkisskttldabréfutn og eru hræddir ttm
vanskil á vöxtunum. Skeyti í gærkveldi
segir, að rússnesk verðbréf hafi enn lækk-
að ákaflega í verði, svo að það hafi orð-
ið beinlínis hrun á kaupmannahöllinni í
París og skelfing gripið menn.
Þá er Roosevelt forseti var á heim-
leið til Washington um Norður-Fíladelffu
frá knattleikum sjóliðs og landhers varp-
aði óþekktur maður steinsmiða blýkúlu á
járnbrautarlestina, en forseta sakaði ekki,
þvf að kúlan hitti fremri vagninn en for-
seti ók í hinum. Amerfkumenn í Lund-
únum héldu þakkarhátíð í Cecilhótelli, og
hélt ameríski sendiherrann aðalræðuna.
En tilræði þetta virðist ekki hafa verið
neitt háskasamlegt fyrir líf forseta.
7/12 Balfour ráðaneytisforseti Englands
hefttr sagt af sér. Játvarður konungur hef-
ur kvatt Campbell-Bannermann til afr
mynda 'nýtt ráðaneyti. En ekki má vænta,
að það verði fttllskipað fyr en að nokkr-
um dögum liðnum.
Floti stórveldanna í Makedoníu hefur
tekið eyjuna Lemnos.
Hraðskeyti frá Stokkhólmi hermir, að
hvert gufuskip, sem fari til Finnlands sé
hlaðið vopnum og hergögnttm og sumt
af því séu gamlar sænskar byssur. Menn
ætla, að Finnar séu að vopnast áður en
þingið kemur saman.
Vegna vaxandi pólitiskra æsinga f
Cataloníu (á Spáni) og óeirða í Barce-
lona, hefur spanska þmgið samþykkt að
setja alla Catalonlu ttndir heraga.
Játvarður konungur hefur tilkynnt, að
hann ætli að sæma Togo admíral og
Oyama marskálk sérstöku ensku heiðurs-
merki (»Order of Merit«).