Þjóðólfur - 22.12.1905, Page 1
57. árg.
Reykjavík, föstudaginn 22. desember 19 05.
Jú 53.
Frá útlöndum
herma Marconi-skeyti 19. þ. m. sömu
óeirðarsögurnar sem fyr frá Rússlandi.
Þó vírðist ástandið þar vera altaf að
vcrsna. Einkum kveður allmikið að upp-
reisn í Riga. Landeigendur þar í grend
flýja til Pétursborgar. Járnbrautar- og
ritsímasambandi slitið, en rauðir fánar
dregnir upp á öllum almannabyggingum
í Riga, skotgarðar hlaðnir um strætin og
þar barist, en borgin sett undir her-
gæzlu, en það stoðar lítt, af því að her-
lið vantar. Sagt að kveikt hafi verið í
stjórnarheimkynnum í Rigu, og sömuleið-
is í bænum Mitan á Kúrlandi og hroða-
fréttir sagðar bæði frá Liflandi og Kúr-
landi.
Fyrsti hópur herliðsins austan úr
Mandsjúrfinu var korninn til Moskva í
atgerðu agaleysi, herniennjrnir höfðu á
leiðinni kúgað járnbrautarlestarstjóra til
að hafa viðdvöl í ýmsum þorpuni, meðan
herliðið sat þar að óhóflegu drykkjusvalli.
Rússneska stjórnin kvað vera smeik við,
að fá herinn heim um þessar mundir, og
virðist það ekki ástæðulaus uggur.
Loptskeyti í g æ r k v e 1 d i flytur þá
frétt að árangurinn af hinum nýjustu að-
gerðutn rússnesku stjórnarinnar sé sá, að
lýst verði yfir almennu verkfalli
í Pétursborg og Moskva þá samdægurs
(þ. e. í gær). Þetta mun ineðal annars
stafa af því, að sendinefnd verkmanna-
fulltrúa, 150 manns að tölu, var hneppt
öll í varðhald, er hún kom til Péturs-
borgar, en þó látin laus aptur bráðlega
nema 32 menn, er mestur hefur þótt
slægurinn í. Kósakkahersveitir æða nú
um Eystrasaltslöndin drepa fólk hrönnum
saman, og vinna ýms spellvirki. Allt setu-
liðið úr Pétursborg nema varðlið bæjar-
ins sjálfs, er á leiðinni til Líflands, en
tala uppreisnarmanna þar er 60,000.
Hersveit ein f Moskva gerði uppreisn og
ástandið var þar ískyggilegt um tfma, en
hersveit þessi gafst loks upp. — Mælt er,
að stjórnin ætli sér að kveðja sér til að-
stoðar nokkurn hluta af Kósakkahersveit-
um úr Mandsjúríinu, til að kúga bænda-
upphlaupin heima fyrir. Að líkindum fer
svo, að almenn stjórnarbylting verði í
landinu, því að allt virðist benda til þess,
að stjórnin geti við ekkert ráðið, er fram
1 sækir.
Upphlaup og róstur í Shanghai og út-
litið alvarlegt. 20 kínverskir uppreisnar-
roenn fallnir. Þýzkt herskip komið þang-
að, og tvö japönsk herskip á leiðinni til
að skakka leikinn.
Stórt járnbrautarslys varð í New-York
(Park Avenue), og er ætlað að fjöldi
manna hafi þar meiðzt eða misst lífið.
Mannvinur einn að nafni Herving hef-
ur gefið Hjálpræðishernum (f Lundúnum)
uroráð yfir 100,000 pd. sterl. til að stofna
heimkynni fyrir atvinnulaust fólk.
Dæmdir hafa verið til dauða 3 Ar-
menar, fyrir að hafa gert tilraun til að
myrða soldán með sprengivél í júlím.
síðastl.
Roosevelt forseti hefur lýst því yfir 1
ræðu, er hann hélt 1 New-York, að ó-
friður væri réttmætur, ef þjóð væri rang-
lega áreitt en hann lét það álit í ljó-i,
að ef gerðadómafyrirkomulagið væri lat-
ið ná til hernaðarsaka myndi það fyrir-
byggja öll vandræði.
Kveldskemmtun
til ágóða fyrir minnisvarða Jónasar
Hallgrímssonar var haldin f Báruhúsinu í
gærkveldi, og allvel sótt. Var skemmt-
un þessi hin fjölbreytilegasta og þótti
mjög vel takast. Meðal annars var gerð-
ur mjög mikill rómur að söng frk. Elfn-
ar Matthíasdóttur, enda á hann það fylii-
lega skilið, fer þar saman rnjög lagleg
rödd og snildarleg meðferð á efninu.
Frú Henriette Biynjólfsson lék á hljóð-
færi prýðilega vel, og sötig síðan nokkr-
ar danskar gamanvfsur, er áheyrendunum
þótti mikil skemmtun að, og þótti henni
takast það ágætlega. Hr. Árni Thorsteins-
son ljósmyndari söng »sóló« einkar lag-
lega, meðal annars 3 ný lög, er hann
hefur sjálfur samið, þar á meðal eitt við
textann: »Þar sem háir hólar hálfan
dalinn fylla« eptir H. Hafstein um Jónas
Hallgrímsson. Átti mjög vel viðaðsyngja
það við þetta tækifæri, og lagið hið feg-
ursta, samsvarandi textanum. Hr. Á. Th. er
óvenjulega mikill smekkmaður á söng, enda
bera lög hans þess ljósan vott. Söngfélagið
Gýgjan söng nokkur lög. Stjórnaði frk.
Valgerður Lárusdóttir því prýðilega. Hall-
dór Jónsson söng ásamt kvennakór »Skóla-
kennarann« og »Forsöngvarinn og fólkið«,
og Jón Ólafsson las upp. Skemmtunin
stóð 27» kl.st.
Um Vestm.eyj a-læknishérafl
sækja Ingólfur Gfslason, Halldór Gunn-
laugsson, Guðm. Scheving og Jón Rósen-
kranz.
Hjá ritstjóra ísafoldar.
Hinn 29. f. m. heimsótti eg ritstj. ísaf.
til að gefa honum færi á að spyrja mig
um ferðalag mitt, og afhenti honumjafn-
framt blað með þessum orðum :
íRitsfmastaurarnir.
Hr. ritstjóri I Leyfið mér að gera þá
stuttu athugasemd út af smágrein með
þessari yfirskript í blaði yðar síðast, [að
»samningar« um ritsímastauraflutning í
Skagafirði voru engir til fyr en 9. þ. m.,
að eigi var unnt að veita þá atvinnu þar,
fremur en annarsstaðar þar nyrðra, svo
mörgum sem þiggja vildu] og að svo
virtist mér sem flutningstilbjóðendur þar
væru menn, er vissu hvað þeir gerðu,
eigi sfður en aðrir.
Eigi varð eg þess var, að Skagfirðingar
fremur en aðrir tryðu öfgum, sem ssagðar*
eru eða »skrifaðar« um þunga stauranna,
né óttuðust, að af komu þeirra þar mundu
stafa nein undur, svo sem algerður hrossa-
fellir; en það væri eina lfklega ástæðan
til að ætla, að flutningskostnaðurinn gæti
»komizt upp í 15 kr. á staur«.
Gröf, 28. nóv. '05.
Björn Bjarnarsom.
Eg. spurði ritstj., hvort hann vildi biita
þetta 1 blaði sfnu, og eptir að hann hafði
lesið það með athygli, kvað hann ekkert
vera á móti því. Ekki hefur hann þó
gert það, en að eins tekið meininguna
úr þeim orðum, sem hér eru sett milli
hornklofa. Hví hann hefur séð sig um
hönd, veit eg ekki. Hann tók mér lið-
Algengt, fágætt, skrítið.
Algengt er: allskonar, matvörur, munaðarvörur, kaðlar, línur o. m. fl., en það
er ekki algengt, að þe’tta sé allt af beztu tegundum, og þó
ódýrara en annarsstaðar eins og í verzluninni
EDINBORG í REYKJAVÍK.
Fágætt er. Caecream, skókumargarine, Vita, Harrisons Prjónavélar, Spiritista-
verkfæri o. fl. o. fl., sem fæst hvergi á íslandi nema í verzlun-
inni EDINBORG.
Skrítnir og fagrir eru óteijandi smamunir, bæði til skrauts og nytsemdar-
og sem hvergi fást aðrir eins og á
Jólabazar Edinborgar,
En skrítnust af öllu er þó horngrýtis hnotan, sem hangir í bandi, og seðlar
í kring. Hafið þér gizkað á hana f Það spiliir ekki.
Hátíðadrykkir
e e en með og án áfengis eru beztir í Telefon
i67. vln & ölkjallaranum í ia7.
„Ingðlfshvoli“.
Það þarf ekki að gizka á
hvar mest og bezt úrval sé af alls konar
vefnaðarvöru og öðrum nauðsynlegum
varningi til jólanna. því það vita allir að er
að Ingó’fshvoli.
Nýkorc.19 er:
stórt úrval af skinn-búum, svart silkitau í svuntur p^.lit gardínutau m. m.
Þ»að er alveg dæmalaust
hvað verzlunin LIVERPOOL selur ódýr og góð
emailleruð áhöld
og úrvalið er stórkostlegt.
lega, og meðferð hans á svörum mínum
finn eg ekki að.
Ekki spurði hann mig um, hve dýrar
þessar ferðir mínar f símaerindum hefðu
orðið, og mátti það þó telja drengilegra
en að dylgja um kostnaðinn af þeim.
Með hreiskilni mundi eg hafa svarað
slfkri spurningu eins og öðrum; enda tel
eg mér og landsmönnurn, þeim er eg hef
átt skipti við á ferðunum, heiður að því,
hve lítið þessar ferðir mínar hafa kostað.
Af því mér finnst, að nafni minn og
gamli kunningi ritstj. Isaf. eigi bágt með
að sýna óhlutdrægni f þessu máli, sendi
eg þessar línur öðru blaði.
B. B.
.MUi.......... ...... . .. ■,,....
Tiinlóðir
til sölu við Laufásveg
Gísli Þorbjarnarson.
Höfuðfot.
Harðir hattar 1,65-
Linir
1,50-
-6,00.
-4,50.
^ Kaskeiti 22 teg. 0,50—2,25.
i Vetrarhúfur 0,65—8,00.
^ Silkihattar 4.50—10,50.
^ Enskar húfur 0,50—1,50.
^ 3 þúsund stk. fyrirliggjandi.
i C. & L. Lárusson.
^ Þingholtsstræti 4.