Þjóðólfur - 02.03.1906, Page 1
58. árg.
Reykjavík, föstudaginn 2. marz 19 06.
Verzi. EDIN BORGI Reykjavlk
hefur með s/s „Hólar" fengið allmiklar birgðir af nauðsynjavörum og ýmsu,
er til útgerðar heyrlr. Einnig ávexti í dósum, mjög margar tegundir.
Allskonar brauð. Allskonar kryddvörur
Ennfremur ávexti svo sem epli, appelsínur. bananas, vín—
ber, sítrónur O. fl. — Svínslæri reykt eru komin aptur, þau eru
bezt og ódýrust í
Edinborg.
_______IL-ll—— »■■■ BII' II H ■! H—■■■——■! «11 ■■ —I I !■ ——TTIM—Him 1 1
Sjömenn!
Lítið á s j ófötin í, Liverpool*
Þar er stórt urval af góðitm og ódý r u m .sjófatnaði, bæði á full-
orðna og unglinga. Einnig ýmsar tegundir af
Sjóstígvélum
t. d. mjög hlý vetrarstígvél, fóðruð að innan með loðnu skinni.
Allskonar VÖrur, er sjómenn þurfa með út á sjóinn, fást ávallt í
,Liverpool‘.
, Þýðingar
H- Heine: Buch der Lieder.
Lyrisches Intermezzo.
I.
Jeg þóttist fyrrum öllum jafnheitt unna
af yður: rós og lilja, dúfa og sunna.
Nú er það breytt. Nú annjeg baraeinni,
einni — stúlku, smárri, prúðri, hreinni.
Hún er æðin allra munar brunna,
í einu: rós og lilja, dúfa og sunna.
II.
Leggist þú fyrri ljúfan mfn
' í legurúmið svarta,
klökkttr strax jeg kem til þín
og krýp þér fast að hjarta.
Teg kyssi, faðma’ og kjassa þig
kaldan, bleikan náinn.
Gleði og skjálfti grípttr mig,
jeg græt og hníg svo dáinn.
Þeir dauðu rísa’ um dimma nótt
og dansa’ á grafarbörmum,
en við ein kyr þá hvilumst hljótt,
hvort 1 annars örmum.
Þeir dauðu risa’ er dæma rögn
dattðum raun og gleði,
en við því sinnttm enga ögn
og ttnum kyr á beði.
III.
Það hlær á hlýrtitn þínum
ið hlýja sumar snót,
en vetur kaldur velkir
þér veika hjartans rót.
En þetta breytist bráðum,
það breytist hjartað mitt.
Hélan sest að hlýrum,
en hlýjan á brjóstið þitt.
L. H. B.
Bókmenntir.
®ugge, Alexander: Vikingernc.
Billeder fra vote forfcedres liv. Anden
samhng. Köbenhavn og Kristiania IQOÓ.
142 bls. 8. Nordisk forlag.
Höfundur þessa rits, sonur hins fræga
norska vísindamans Sophusar Bugge, hef-
nr þegar áður gefið út annað safn sama
efnis, um Hf feðra vorra á víkingaöldinni,
einkum vestan hafs á Englandi og írlandi
og í Vestureijum, og hefur Þjóðólfur áður
lauslega getið um firra safnið (í 56. árg.
á 195 bls.). í báðum ritunum er mjög
mikill fróðleikur, mart nítt tekið fram,
sem vér vissum ekki aður, um hf viking-
anna firir vestan haf, um landnám þeirra
Og viðureign við þær þjóðir, sem firir
vóru, Ira og Engilsaxa, Og um allan hag
þeirra. í firra safninu hneigðist höf.
einkum að þvf að lisa viðskiftum þeirra
við íra og keltneskar þjóðir, lífinit á ír-
landi, í eijunni Mön o. frv. Enn 1 þessu
síðara safni er langur og mjög fróðlegur
kafli urn landnám víkinganna á Englandi
og viðskifti við Engilsaxa, Sínir höf. þar
Ijóslega fram á, hve djúpan feril vfking-
arnir hafa markað í þjóðltfi Englendinga,
svo að þess gætir jafnvel enn í löggjöf
Breta og landstjórn, hve fastheldnir þeir
vóru á þjóðerni sínu og máli — norræn
eða dönsk tunga hjelst jafnvel sumstaðar
á Englandi fram á miðja 12. öld —
og hvernig þeir runnu smátt og smátt
saman við þær þjóðir, sem firir vóru.
Það er enginn efi á því, að víkingarnir
frá Norðurlöndum, sem settust að vestan
hafs, hafa orðið firir mjög rfkum áhrifum
af Vesturþjóðunum og aftur haft áhrff á
þær, og að þaðan hafa aftur borist öfl-
ugir menningarstratimar heirn til Norður-
landa og til Islands. Enn höf. hættir til
að gera of mikið úr þessu, einkuni þar
sem hann kemst út í að tala um afstöðu
Vesturþjóðanna við bókmentir Islendinga.
Hann heldur því fram, eins og faðir hans,
að sagnaritun á norræna tungu hafi birj-
að á írlandi meðal Norðmanna, sem þar
bjuggtt, og orðið grundvöllur undir sagna-
ritun vor Islendinga. Enn þetta og því
um likt er eintómur heilaspuni. Svo er
og um skoðanir höf. á Eddukvæðunum.
Ef hann finnttr eitthvað í þeim, sem hon-
um finst vera af írskri rót rnnnið, hættir
honum til að álikta af því, að það og
það kvæði sje ort af Norðmönnum á Ir-
landi, t. d Rígsþttla, af því að nafnið
Rfgr sje írskt orð, er þíði ’konttngur’. Enn
höf. gleimir því, að f Islendingum er tals-
vert af frsku blóði. Sumir af landnáms-
mönnunum íslensku, og allmargir af þræl-
unt þeirra, vóru Irar, og er því engin
furða, þó að einstaka írskt orð hafi vilst
inn í íslenskuna af þeim kinblendingi.
Og síst gegnir það furðu, þó að frska
orðið rí(g) væri kunnugt á Islandi, þar
sem sumar höfðingjaættir, t. d. Breiðfirð-
ingar o. fl., töldu kin sitt til írskra kon-
unga. I Hávamálum stendur »gjalti
glíkir verða gumna synir«og enn
í dag er sagt »að verða að gjalti«.
Varla er nokkur efi á því, að þetta orð
»gjalt« er aðfengið úr írsku (ír. geilt,
vitstola). Enn þar sem orðið er algengt
á Islandi að fornn^og níju, er ekkert lík-
legra enn að það hafi komist hér inn á
landnámsöldinni. Líkt er um fleiri orð
(kalkr, skutill o. frv.). Þó að þau sjeu
útlend (írsk eða ensk) að uppruna, hefur
íslenskan sett sitt mót á þau og markað
þau undir mark hinnar íslensku þjóðar.
Allmart er athugavert hjá höf., enn rúm-
ið leifir ekki að ræða það. Þó get jeg
ekki bundist að taka það fram, að það
er ekki rjett hjá honum, að öllum beri
saman um, að Þorsteinn rauðr Og Ey-
steinn Ólafsson, sem getið er í írskum
annálum, sé sami maðurinn. J. E. Sars
segir í Noregssögu-ágripi sínu (I. 178),
að þetta sé aðeins »laus getgáta«. Og
ekki batnar nú, ef það er rétt sem höf.
segir (312. bls.), að í írsku annálunum
standi, að Eysteinn hafi verið drepinn —
ekki af Skotum, sem hingað til hefur verið
haft firir satt að þar stæði, — heldur af
»Halfdani«, þvf að helsta ástæðan firir því
að gera einn mann úr þessum tveimur var
einmitt það, að báðir áttu að hafa verið
drepnir af Skotum. Það virðist vafalaust,'að
hjer sje um tvo menn að ræða, þó að
báðir væru Ólafssinir. Ef Ari fróði hefur
ekki vitað rjett nafn jafnnáins forföður
síns, þá má um leið draga stórt strik ifir
alla íslenska ættfræði.
Annars er bókin skrifuð með miklu
fjöri, skemtileg aflestrar og svo Ijós, að
hver alþíðumaður, sem dönsku skilur,
getur haft bæði gagn og gaman af henni.
Meinleg prentvilla er á 307. bls. ; þar
eiga 13. og 14. lína að standa efst, enn
hafa vilst inn á rangan stað.
B. M. Ó.
Kosning.
Á fundi í gærkveldi kaus bæjarstjórnin
þá 6 menn, er hún samkv. 4. gr. laga um
iandsdóm á að kjósa í þann dóm. Kosnir
voru: Ásgeir Sigurðsson kaupm., Halldór
Jónsson bankagjaldkeri, Sighvatur Bjarna-
sonbankastjóri, ÞórðurThoroddsen banka-
gjaldkeri, Þorleifur Jónsson póstafgreiðslu-
maður og E. Hjörl. rítstj., — helmingur
heimastjórnarmenn, helmingur valtýskur.
Alls verða kosnir á öllu landinu 72 menn
í dóm þennan, en af þeim ryður efri deild
alþingis burtu 24, og af þeim 48, sem þá
eru eptir, er helmingurinn (24) dregnir
með hlutkesti í sameinuðu þingi og sá
hluti á sæti í dómnum, en hinn helming-
urinn er varamenn. Auk þess skipa dótn-
inn 6 lögfræðingar (yfirréttardómendurnir
séu þeir ekki alþingismenn og 3 elztu lög-
fræðingar), alls 30 rnanns, en er til máls-
sóknar kemttr gegn ráðherranuro, er dóm-
urinn svo ruddur af sóknara og ákærða,
að ekki dæma nema 15. Enginn, sem á
sæti á alþingi er kjörgengur í dóminn og
ekki yngri menn en 35 ára, né eldri en
60. Þá er landsdómsmaður er kominn
yfir þann aldur, víkur ltann úr dóminum.
Lögin um landsdöminn eru prentuð i
heild sinni í Þjóðólfi 22. sept. f. á. (nr 40
B.) og vísast til þess hér.
Kosning þessi í bæjarstjórninni var hlut-
fallskosning og er alleinkennileg. Sýnir t.
d. kosning ritstj. ,,Fj.konunnar“(!) ljóslega
hvernig Valtýingar mundu æskja að lands-
dómurinn yrði skipaður og hversu fegnir
þeir vildu traðka sanngirni og réttlæti 1
pólitískum málttm, ef þeir fengju því ráðið.
Frá útlöndum
fátt tíðinda þessa vikuna að því er séð
verður af leptskeytafregnum. Helzt tíð-
indavænlegt frá Kína. Loptskeyti í gær-
kveldi segir meðal annars svo: „Æsingar
gegn útlendingum í Kína er orðin mjög
alvarleg, flest stórveldih eru í óða önn að
senda herskipaauka og hergögn austur
þangað. Sagt að kínverski keisarinn ráði
engu, og upphlaup séu í ýmsum hlutum
ríkisins. — Illa gengur stjórnarhernum
rússneska að bæla niður uppreisnina í
Eystrasaltslöndunum, og hafa uppreisnar-
menn opt borið hærra hlut„.
„Hölar"
komu hingað frá Khöfn 25. f. m. og
fara héðan aptur á morgun. Með skipinu
fer Halld. Dan. bæjarfógeti i 6 mánaða
orlof erlendis (sbr. síðasta blað), ennfrem-
ur snögga ferð Jón Þorláksson verkfræð-
ingur með frú sinni.
Botnvörpuskip
enskt, („Golden F,agle« frá Hull) strand-
aði suður á Miðnesi, skammt frá Stafnesi,
aðfaranóttina 17. f. m. Mannbjörg varð,
en einn háseti dó af kulda, er á land var
komið.
Norskir sjómenn
72 að tölu kom hingað 21. f. m. með
gufuskipinu „Riberhus“ beint frá 'Noregi.
ýeir eru ráðnir á þilskip hér af Kolbeini
^orsteinssyni skipstjóra, er fór utan i
)eim erindum, Um 20, er ráðnir voru,
cornu ekki, er skipið átti að leggja af
stað með þá Þessir, sem hingað komu
nú, virðast vera öllu álitlegri yfirieitt en
hópurinn í fyrra. Hver þessara norsku
sjómanna fær ókeypis ferð hingað og kaup
fyriv febrúar, en mánaðarkaup þeirra er
nokkru lægra en ísl. fiskimanna.
„Islandsfalken '
heitir nýja varðskipið danska, er kem-
ur hingað í þessurn mánuði. íslendingai'
ættu að kalla það eingöngu »Valinn«.
Það er fallegt nafn og á vel við (»Valur
er á veiðum«).