Þjóðólfur - 25.05.1906, Page 1

Þjóðólfur - 25.05.1906, Page 1
58. árg. Reykjavík, föstudaginn 25. maí 19 06. Æ 25. Bókmenntir. Ný fei*d»t>61c á þýzlcu, er nefnist »Unter der Mitt- ernachtssonne durch die Vul- k a n-u n d G 1 e t s c h e r w e 1 t Islands* eptir mag. Karl Kíichler skólakennara ( Varel í Oldenburg er nýprentuð i Leipzig með rnynd höfundarins og komin hingað til sölu. Meistari Kiichler, sern er kunn- ur mörgum hér á landi fýrir hina óþreyt- andi alúð og ræktarsemi, er hann hefur lagt við íslenzkar bókmenntir, kom hing- að til lands ( fyrra sumar (í júní), dvaldi hér alls mánaðartíma og ferðaðist austur undir Eyjafjöll, til Heklu, Geysis og Þing- valla og upp í Surtshelli. Frá þessari för sinni og dvöl sinni hér í bænum skýr- ir hann í bók þessari, sem er liðlega rit- uð og allskemmtilega, og laus við öfgar þær og ósannindi, er menn opt hafa átt að venjast í ferðasögum útlendum. En hr. Kiichler hafði einnig betri skilyrði en flestir aðrir útlendingar til að skýra satt og rétt frá, því að bæði er hann mjög vel að sér í málinu, þótt hann kynoki sér við að tala það, og hef- ur lagt svo mikla stund á íslenzkar bók- menntir, að það má eflaust telja hann fróðastan allra þýzkra manna í þeim greinum, að Poestion einum undanskild- um. Höfum vér ekki rekið oss á nema tvær villur eða missagnir í bókinni, sem nokkru skipta. Önnur er sú, að biskup- inn sé dómkirkjuprestur (»Domprediger«) (bls. 24) og hin að ráðherrann beri að eins ábyrgð fyrir konunginum í Kaup- mannahöfn (bls. 28). Öll frásögn bókar- innar ber vott um hinn hlýja hug höfund- arins til lands og þjóðar, er svo þráfald- lega hefur birzt í ritum hans. Er það ekki ofsögum sagt, er hann minnist á í bókinni, að hann hafi unnað Islandi frá því að hann fyrst fór að nema íslenzku Og kynnast bókmenntafjársjóði þjóðarinn- ar. Sem sýnisiiorn af fornaldarbókmennt- um vortim tekur hann upp 1 bókina stutt ágrip af Gunnlaugs sögu ormstungu. Höf. skýrir allítarlega frá för sinni og því er íyrir augun bar, en varð að fara nokkuð fljótt yfir, hreppti og optast illt veður, en óvanur slíkum ferðum á hest- baki og hafði því minna gagn eða ánægju af ferðinni, en ella mundi. Einna mest finnst honum til um Gullfoss og segist naumast hafa getað slitið sig frá þeirri undrasjón. Hann er og hrifinn mjög af Almannaejá og Surtshelli. Viðtökur kvaðst hann hvarvetna hafa fengið góðar eptir föngum, en lætur einna bezt af þeim hjá Ólafi heit. lækni á Stórólfshvoli, séra Kjart- ani 1 Hruna, Jóni G. Sigurðssyni á I..aug, Jóni Sigurðssyni á Haukagili og Sigurði sýslumanni í Arnaiholti. Fjöldi mynda prýðir bókina, og eru þær flestar teknar af Kiichler sjálfum og vel gerðar. Má sérstaklega nefna mjög góða mynd af Gullfoss og Skógafossi og útsýni inn á Þórsmörk. Auk þess hefur hann meðal annars tekið myndir af »Tryggva konungi« á höfninni í Kaup- mannahöfn, af dómkirkjunni og alþingis. húsinu, landsbankahúsinu, kirkjugarðinum, lærða sjíólanum, stjórnarráðshúsinu, útsýn- inu yfir Tjörnina, fiskverkunarplássi, holds- veikraspítalanum, Hafnarfirði, Stórólfs- hvolskirkju, reið yfir Þverá, Hvammi, Þor- valdseyri og prestssetrinu Holti undir Eyjafjöllum, Seljalandsfossi, Kvernufossi, Gljúfrafossi, Jökulsá á Sólheimasandi, aurunum við Þverá, Hlíðarendakirkjti að innan, gljúfrunum í Hvftá fyrir neðan Gullfoss. Brúará, Surtshelli, Glanna(foss) í Norðurá, Arnarholti og Borgarnesi, auk margra mynda frá Heklu, Geysi og Þing- völlum. Auk þess eru allmargar myndir eptir Ijósmyndum frá Arna Thorsteinsson, Magnúsi Ólafssyni og Sigfúsi Eymunds- syni, og tvær frá Vestmanneyjum eptir I.árus Gíslason. Allar þessar myndir auka mjög gildi bókarinnar, sem er 174 bls. að stærð í og kostar 3 M. 50 P.f. Síðast er svo látandi kveðja á íslenzku frá höfundinum: „Jeg heilsa yður vinir | í hánorðri þars ljóma snæfjöll | í ljósi sólar. Þar er brotnar | báran á sandi og ömurleg ymur | við Islands strendur. Bæklitigur þessi | skal bera yður kveðju og þökk fyrir vinsemd | er veitt mér þér hafið og heit yður flytja | að héðan í frá aldrei jeg gleyrni | gestrisni yðar". I nafni vina höfundarins og annara landsmanna flytjum vér honum hlýjar þakkir fyrir þetta rit hans og alla velvild hans gagnvart hinni íslenzku þjóð og ís- lenzkum bókmenntum fyr og sfðar. Starf kirkjumálanefndarinnar. 1. Nefnd þessi, er skipuð var með kon- ungsúrskurði 2. marz 1004 samkvæmt þingsályktun frá 1903, lauk störfum sínum 7. apríl þ. á. Er álitsskjal hennar nú full prentað og er allmikil syrpa, 142 bls. í stóru 8 bl. broti. Hinn upphaflegi for- maður nefndarinnar, Kristján Jónsson yfirdómari sagði sig úr henni i apríl 1905, og voru þá nefndarstörfin skammt á veg komin. Aðalverkið unnið nú sfðastl. vet- ur (í febrúar og marzmánuði) undir for- ustu Lárusar sýslumanns Bjarnason, er skipaður var formaður nefndarinnar haust- ið 1905. Er það allmikið starf, er nefnd- in hefur leyst af hendi, og margar réttar- bætur í tillögum hennar fólgnar, að því er virðist. En vitanlega verða skiptar skoðanir um einstök atriði. Nefndin sjálf hefur heldur ekki orðið sammála alstaðar, og hefur meiri og minni hluti samið álits- skjöl hvor utn sig í þessum ágreinings- málum. Það er formaður nefndarinnar (L. H. B.) sem hefur greint á við hina nefndarmennina, bæði um skipun kirkju- þings, er hann telur ýmsa annmarka á, um aðskilnað rlkis og kirkju, er hann einn er hlynntur, en hinir á móti, og um sam- eining biskupsembættisins og forstöðu- mannsembættisins við prestaskólann, sem minni hlutinn er mjög andvígur. Virðist svo sem minni hlutinn (L. H. B.) hafi í öllum þessum málum fært mjög glöggar og skýrar ástæður fyrir skoðun sinni, og öllu veigameiri en ástæöur meiri hlutans, en hér eru ekki tök á að taka upp sérstök atriði úr þessum álitsskjölum enda óþarft í sjálfu sér, roeð því að til- lögur nefndafinnar eru sendar fjölda manna (öllum prestum, próföstum, alþing- Nýlenduvörudeild Edinborg-arverzlunar Austurstræti 9. — Telefón 66. selur meðal annars: Kaffi 0,60 í pd. 0,58 í 10 pd. Export 0,45 - — 0,43 - — — Kandís 0,26 - — 0,25 • — — Toppmelís 0.25 - — 0,23 - — — Högg. melís 0,25 - — 0,23 - — — Púðursykur 0,22 - — 0,21 - — — Svo þegar tekið er tillit tii þeirra Strausykur Hveiti nr. 1 Hálfbaunir Hrísgrjón Margarine E. Margarine D. 0,25 í pd. 0,23 í 10 pd. 0,12 - — 0,11 ---------- 0,12 - — 0,11 ---------- 0,13 - — 0,12 ---------- 0,48 - — 0,46 ---------- 0,45 - — 0,44 ---------- 5°/0, sem verzlunin gefur, mun óhætt að fullyrða að hvexgi fáist betri kaup en í EdinborgT ismönnum, ritstjórum o. fl.) og nú þarf ekki að kvarta um, að nægur tími sé ekki til að gagnrýna skjöl þessi, áður en næsta þing kemur saman, enda er það ( sjálfu sér heppilegt, að jatn þýðingarmikið mál sem þetta verði almenningi kunnugt, og um það verði rætt frá ýmsum hliðum, áður en löggjafarvaldið leggur fullnaðarúrskurð á það. Þrátt fyrir hinar mörgu breytingarupp- ástungur nefndarinnar, til umbóta á kirkju- málum vorum, verður útgjaldaauki fyrir landssjóð harla lítill eða enginn við þess- ar breytingar. Um það atriði fer nefndin svolátandi orðum, „Að því er kostnað þann snertir, er til- lögur nefndarinnar hafa í för með sér, þá er eigi farið fram á nein aukin gjöld af hálftt sóknarmanna, nema ef telja skyldi borgun til safnaðarfulltrúa fyrir að sækja héraðsfundi og svo borgun fyrir aukaverk presta í þarfir þurfamanna. Heldur eigi hafa tillögur nefndarinnar nein aukin út gjöld í för með sér fyrir landssjóð, þegar það fyrirkomulag er komið á, sem hún fer fram á, svo sein hér skal sýnt: Eptir frumvarpi nefndarinnar um lann presta eru aukin útgjöld landssjóðs á ári..........................kr. 1224,00 Eptir frumvarpi um laun prófasta.....................— 3200,00 Eptir frumvarpi um kirkju- þing 3000 kr.: 3 eða á ári . — 1000,00 Frumvarp til laga um ept- irlaun presta mun hafa í för með sér aukin útgjöld að stór- um mun vegna fækkunar prestanna og annara ástæðna-, er gert ráð fyrir að það nemi á ári um ....... . — 1200,00 En þessar samtals kr. 6624,00 vinnast upp við það, að landssjóður losast með öllu við eptirlaun prestsekkna og styrk til þeirra (fjárlög 13. gr. A. b. 4.) sem 1900—1904 hefur numið yfir 6600 kr. Aptur á móti verður eigi hjá því kom- izt, að landssjóður verði að leggja töluvert meira fram, meðan breytingin er að köm- ast á, og veldur því einkum tvennt, ann- að það, að búast má við, að framan af losni rýru prestaköllin örar en hin tekju- meiri, og hitt það, að prestsekkjur þær, sem lífeyrir hefur eigi verið keyptur fyrir- verða að halda eptirlaunum sínum og styrk úr landssjóði sína tíð; uppgjafaprest- um fækkar heldur eigi, þótt prestaköllin fækki, fyr en eptir nokkuð langan tíma. En hjá slíku verður eigi komizt, þegar breytt er um embættaskipan og launakjör embættismanna". Það má efl aust búast við, að tillögur kirkju- málanefndarinnar verði teknar til ræki- legrar athugunar í blöðunum, sérstaklega af hálfu klerkastéttarinnar, sem höfuðaðila þessa máls. Er því síður þörf á rækilegri skýrslu um starf nefndarinnar nú þegar, og látum vér oss því nægja í bráð að skýra stuttlega frá aðalefni frumvarpa þeirra, er nefndin hefur samið, en þau eru þessi: 1. Kirkjuþing (frá meiri hlutanum). Kirkjuþing fyrir hina íslenzku þjóð- kirkju skal halda í Reykjavík þriðja hvert ár síðari hluta júnímánaðar, en biskupinn yfir Islandi ákveður þingsetningardaginn. Synodus leggst niður. Verkefni þessa kirkjuþings er 1. Ráðgjafaratkvæði og til- löguréttur um öll kirkjuleg löggjafarmál þ. e. þau mál, sem liggja undir verksvið löggjafarvaldsins. 2. Samþykktarákvæði um öll innri kirkjuleg mál, er hafa al- menna þýðingu, svo og þau mál sem hið almenna löggjafarvald fær kirkjuþinginu til meðferðar. 3. Ráðstöfunarvald yfir fé því, sem lagt kann að verða til kirkju- legra þarfa eptir þeim nánari ákvörðunum, sem fjárveitingarvaldið kann að setja. Á þinginu eiga sæti 24 menn: biskupinn sem sjálfkjörinn formaður. 1 lögfræðingur tilnefndur af ráðherra íslands, 1 guðfræð- ! ingur tilnefndur af biskupi og 21 fulltrúar I kosnir úr prófastsdæmunum á héraðsfundi (( Reykjavík á safnaðarfundi), og gilda kosningar til 6 ára. Auk þess eru kosnir varafulltrúar. Kirkjuþingið á ekki að eiga setu lengur en 8 daga nema ráð- herra leyfi. Dagpeningar 4 kr. fyrir hvern kirkjuþingsmann og ferðakostnaður að auki fastákveðinn fyrir þá, sem eiga heima utan Reykjavíkur (hæst 190 kr.- úr Norð- ur-Múlasýslu). Ur landssjóði áætlaðar 3000 kr. til að standast kostnað við hvert kirkjuþing. Danir mæla landið. I 21. blaði V. árg. sNorðurlands virð- ist svo sem St. Stefánssyrvi þyki það hálf leitt fyrir oss Islendinga, að Danir mæli Strendur landsins á sinn kostnað. Alítur hann það stórt skref 1 áttina áleiðis tij

x

Þjóðólfur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.