Þjóðólfur - 08.06.1906, Blaðsíða 1
58. árg.
Reykjavfk, föstudaginn 8. júní 19 06.
JK 27.
Nýlendu vörudeild
B dinb org’arverzlunar
Austurstraeti 9. — Telefón 66.
selur meðal annars:
Kaffi 0,60 í pd. 0,58 í 10 pd. Strausykur 0,25 í pd. 0,23 í
Export 0,45 . _ o,43 - - Hveiti nr. 1 0,12 - — 0,11 -
Kandís 0,26 - - 0,25 - — - Hálfbauuir 0,12 - — 0,11 -
Topprnelís 0,25 - - 0,23 - - - Hrísgrjón 0,13 - — 0,12 -
Högg. melís 0,25 - - - 0,23 - - — Margarine E. 0,48 - — 0,46 -
Púðursykur 0,22 - -- 0,21 - - - Margarine D. 0,45 - — 0,44 -
Svo þegar tekið er tillit til þeirra 5%, sem verzlunin gefur, mun óhætt
að fullyrða að hvergi fáist betri kaup en í
Edinborg I
Útlendar fréttir.
Kaupmhöfn 28. maf.
Rússland. Þar í landi hafa allmerkir
viðburðir orðið undaufarinn tíma, I byrjun
þ. m. lagði Witte niður völdin sem
ráðaneytisforseti. Þessi fregn kom mönn-
um ekki á óvart, þvl að öllum var kunn-
ugt, að mikil misklíð og skoðanamunur
hefur átt sér stað milli hans og stórfurst-
ans og annara vaidamanna við hirðina í
St. Pétursborg um langa hríð. Einn af
hans svæsnustu mótstöðumönnum, innan-
ríkisráðgjafi Dutnovo, fór einnig frá völd-
um samtímis. Það er sagt að apturhalds
flokkur sá, er komst að völdum við hirð-
ina eptir brottför Witte, hafi af kænsku
hagað því þannig, að þessir andstæðingar
1 stjórnmálum færu frá völdum á sama
tíma, til þess að það liti svo út, sern þeir
hafi verið sammála í hinni miklu harðstjówi,
er beitt var til þess að brjóta niður upp-
reisnina síðastliðinn vetur. Seinna upp-
leystist allt ráðaneytið. Sá heitir Gore-
mykin, sem tókst á hendur að mynda nýtt
ráðaneyti. Eptirmaður utanríkisráðgjafa
Lambsdorfs varð Isvolski. Hann hefur til
þessa tíroa verið sendiherra Rússa hér í
Kaupmannahöfn. Isvolskí er mest þakkað
að bandalagið milli Rússlands og Frakk-
lands komst á.
10. þ. m, var hið nýja fulltrúaþing Rúss-
lands, ríkisduman opnuð með mikilli við-
höfn. Nikulás keisari kom sjóleiðis frá
Peterhof til St. Pétursborg. Hann hafði
þá ekki verið í höfuðborg sinni í ir/= ár,
eða ekki sfðan blóðsúthellingar sunnudag-
inn 22. jan. 1905. Hin hátíðlega viðhöfn
fór fram í Georgshöllinni, og var hirðin,
öll stórmenni ríkisins og hinir nýju þjóðar-
fulltrúar þar viðstaddir. Keisarinn hélt
langa þingsetningarræðu. Hann sagðist
óska af heilum hug, að sjá þjóð sína ham-
ingjusama, og að geta eptirlátið syni sín-
um í arf, öruggt og upplýst ríki, og von-
aði hann að hið nýja þing mundi verða
sér á allan hátt hjálplegt til þess að ná
þessu takmarki.
Ríkisduman tók svo til starfa og kom
þá brátt í Ijós, að mikill meiri hluti henn-
ar heyrir til frjálslyndri stefnu í stjórnmál-
um og algerlega andstæð stjórninni. Eitt
af þeim fyrstu málum, sem fjallað var um,
var frumvarp um, að öllum pólitískum
föngum væri gefin uppgjöf allra saka, veitt
fullkomin »amnesti«. Það hafa og komið
frumvörp fram um fullkomið trúarbragða-
frelsi, málfrelsi, félagsfrelsi og almennan
kosningalrétt bse;ði fyrir menn og konur.
Öll þessi mál hafa mikinn meiri hluta full-
trúanna með sér, en stjórnin hefur alltaf
farið undan í flæmingi 1 svörum sínum til
dúmunnar. Loks tók þó ráðaneytisforseti
Goremykin til málsí gærog sagði afdráttar-
laust, að stjórnin gæti ekki á neinn hátt
slept öllum pólitískum föngum lausum,
því slíkt gæti haft alvarlegar afleiðingar í
för með sér. Þegar fulltrúar ríkisdúmunn-
ar höfðu heyrt þessar undirtektir stjórnar-
innar, var ráðaneytinu gefin vantrausts-
yfirlýsing með nálega öllum atkv. Menn
hyggja að ráðaneytið muni ekki segja af
sér völdum, þó að það hafi fengið þessa
vantrausts yfirlýsingu. Forseti dúmunnar
heitir Muromzof.
Morð og rán og aðrar óeirðir eiga sér
alltaf stað í Eystrasaltslöndunum. I byrjun
þ. m. var landstjórinn í Jekaterinoslav,
Sheltanovsky, myrtur.
Svíþjóð. Ráðaneytið Staaff, þetta nýja
vinstrimanna ráðaneyti, er tók við stjórn
fyrir rúmlega V® úri síðan, hefur nú þegar
lagt niður völdin. Staaff lagði til í nafni
ráðanéytisins að ríkisdagurinn yrði upp-
leystur og efnt svo til nýrra kosninga,
vegna þess að menn gátu ekki orðið sam-
mála um rýmkun kosningarréttarins. Deilan
stóð aðallega á rnilli 1. málstofu annars-
vegar og 2. málstofu og ráðaneytisins
hinsvegar. En Óskar konungur neitaði
að gefa samþykki sitt til uppleysingarinn-
ar, og lagði þá ráðaneytið völdin niður.
Nú kemst hægrimanna stjórn aptur að
völdum í Svíþjóð. Sá heitir Lindmann
sem hefur tekið að sér, að rnynda hið
nýja ráðaneyti.
Hinrik Ibsen (lauður. Skáldið, meistar-
inn, tspekingurinn er látinn og eitt af fræg-
ustu nöfnum heimsins heyrir hér eptir til
fortíðinni. Ibsen andaðist rólega og þján-
ingarlaust á heimili sínu í Kristjaníu 23.
þ. m. 78 ára að aldri.
Hinrik Ibsen er fæddur 20. marz 1828
í Skien. Ætt hans var upprunalega dönsk,
en flatti til Noregs í byrjun 18. aldar.
Faðir hans var kaupmaðtir, og vel efnaður
1 fyrstu, en missti allar eigur sínar 1836
og 13 ára gamall varð Ibsen að fara frá
heimili sínu. I þorpinu Giimstad stundaði
hann apótekarafræði t 5 ár. Arið 1850
varð hann stúdent. Seinna varð hann
leikhússtjóri, fyrst í Bergen svo í Krist-
janíu. Um iSóogiptist hann Snsönnu Thore-
sen frá Bergen, er lifir mann sinn. 1864
fór hann utanlands og dvaldi í 27 ár !
Róm, Berlín og Miinchen og víðar. 1891
fór hann aptur til ættlands síns, Noregs,
og hefur dvalið þar síðan að mestu leyti.
Það er óþarfi að fara mörgum orðum
um snilldarverk hins mikla látna skálds,
sem skarað hefur langt fram úr öllum
skáldum og rithöfundum Norðurlanda að
fornu og nýju. Önnur eins ritverk eins og
»Gengangere«,»Vildanden«, »RosmerhoIm«
„Bygmester Solness", „Kongsemnene",
„Per Gynt" og „Brand", munu ávallt
skína á himni bókmenntanna sem stjörn-
ur fyrstu stærðar og gera nafn Ibsens ó-
dauðlegt.
Jarðarför Ibsens á að fara fram á kostnað
ríkisins. Þess má geta, að Ibsen er einn
af þeim fáu, sem orðið hafa stórríkir af
ritstörfum sínum. Það er álitið að Ibsen
hafi verið orðinn miljónaeigandi.
Póstfundnr í Róiuaborg. í þessum mán-
uði hefur verið haldinn allsherjar póstmála-
fundur í Rómaborg. Það hefur verið
samþykkt á fundunum að einföld bréf
megi vega 4 kvint framvegis, og burðar-
gjald undir bréf, sem vega yfir 4 kvint, á
að færá niður um 40% frá því sern áður
hefur verið.
Um miðjan mánuðinn andaðist Beyinn
af Tunis Muhamed El. Hadshi 55 ára
gamall. Fi'ændi hans E1 Nagor tók við
stjórn eptir hann. Annars eru öll stjórn-
arvöld í Tunis í raun og veru í höndum
Frakka, er veita Beyinum laun en leyfa
honum ekki að taka neinn þátt í stjórnar-
störfum landsins.
Seint í ágúst eða byrjun september ætlar
Ameríkumaðurinn Walter Wellmann að
leggja af stað í loptskipi til Norðurheim-
skautsins. Hann ætlar að leggja af stað frá
Spitsbergen frá sama stað og Andrée
forðum.
Diminörk. Undanfarinn tíma hefur hin
megnasta pólitíska barátta átt sér stað hér
í landi og undirbúningur undir kosningar
þær til ríkisdagsins, er fram eiga að fara
hér á rnorgun um land allt. Menn hyggja
að stjórnarflokkurinn „Reformpartíið" —
muni tapa mörgum umdæmum, en frjáls-
lyndi flokkurinn, hinir svo nefndu »Re-
beller«, muni eflast mjög við kosningarn-
ar. Það er t. d. fullyrt að Alberti muni
falla við kosningarnar og fleiri af ráðgjöf-
unum.
Eins og undanfarin ár var haldinn
„barnahjálpardagur" hér í borginni 9. þ.
m. Nú fyrst er búið að telja saman pen-
ingana, sem söfnuðust saman og var það
rúmlega 88,000 kr. eða um 15,000 kr. minna
en í fyrra.
Fyrir nokkrum dögum andaðist söngv-
arinn Æ J. Simonsen, einn af frægustu og
beztu söngmönnum við konungl. leikhúsið,
sextugur að aldri.
Viðauki.
Rvfk 8. júní.
Kosningarnar i Danmörku
hafa ekki farið eins og fréttaritari vor
spáir um og fullyrt var í vinstri blöðun-
um. Allir ráðherrarnir voru t. d. endur-
kosnir, þar á meðal Alberti í Kjöge, að
vísu að eins með 90 atkv. meiri hluta og
eptir mjög harða sókn. En þar var keppi-
nautur hans Bransager ritstjóri, ötull mað-
ur og harðsnúinn úr flokki hinna frjáls-
lyndu vinstrimanna (Radikale Venstre). Sá
flokkur, er gerði sér svo miklar vonir um
aukið fylgi, hefur einmitt fækkað um 4
fulltrúa á þingi, voru áður 13, nú 9, (vann
1 kjördæmi en missti 5). Deuntzer sigraði
að eins með 100 atkv. meiri hluta í Höy-
rup. Stjórnarflokkurinn (Venstrereformpar-
tiet) hefur unnið 4 kjördæmi, en misst 7,
og er því 4 fulltrúum færri en áður,
sóslalistarj unnið 9, en misst 1, og hafa
því áinnið mest allra þingflokka. Miðlunar-
vinstrimenn (Moderate Venstre) hafa unn-
ið 1 en misst 4, hægrimenn unnið 5, en
misst 3.
Afstaða þingflokkanna eptir kosning-
arnar er þannig:
Stjórnarliðar 55, áður 59
Sósfalistar 24 — 16
Miðlunarvinstrim. 9 — 12
Hægrimenn 13 •— 1 l
Frjálsl. vinstrim. 9 — 13
Flokksleysingjar 3 — 3
113 114
Ófrétt er enn um kosningu í Færeyjum,
en þótt stjórnarliði verði kosinn þar, hefur
stjórnin ekki meiri hluta þingmanna, að
eins nær helming, og ver#ur þvi að
koma sér saman við einhvern hinna flokk-
anna, lfklega helzt við hina hægfara vinstri
menn (moderate Venstre), því að með
fylgi þeirra getur hún haft nægan meiri
hluta. En þá er allhætt við, að sá flokk-
ur krefjist, að einhver þeirra manna verði
tekinn upp í ráðaneytið, og að ráðaneyt-
isbreyting verði því að einhverju leyti.
Banatilræði
var konurrgshjónunum spánversku veitt
í Madríd á sjálfan brúðkaupsdag þeirra
31. f. m., er þau voru á leiðinni frá
hjónavígslunni í kirkjunni heim til sín.
Maður nokkur varpaði sprengikúlu ofan
af veggsvölunum á húsi nokkru, er móðir
konungsins átti, en hafði leigt út; ætlaði
skálkurinn að stilla svo til, að kúlan
. *
lenti á vagni konungshjónanna, en hitti
ekki nákvæmlega. Rúðurnar í vagninum
brotnuðu, en konungshjónin sakaði ekki.
Hinsvegar misstu 8 menn lífið við spreng-
inguna og 25 menn særðust rneira og
minna, að því er talið er, og blóðslettur
komu á föt drottningar. Varð hún mjög
skelkuð eins og eðlilegt var, og fór að
gráta, en konnngur bar sig betur. Ensk
blöð segja, að það hafi verið ítalskur
stjórnleysingi, Mateo Moral, að nafni, er
sprengikúlunni varpaði, en óljósar sagnir
um illræðismanninn að öðru leyti. —
I.optskeyti hingað komið 4. þ. m. segir,
að hann Iwfi ráðið sér sjálfur bana, er
tilræðið misheppnaðist. Konungur og
drottning fengu samfagnaðarskeyti frá
flestöllum stjórnendum Norðurálfunnar,
og loptskeyti segja, að þau hafi ekið á
mótorvagni um göturnar í Madrfd daginn
eptir (á föstudag) án gæzluliðs og fengið
hinar mestu fagnaðarviðtökur hjá lýðnum.
A laugardaginn 2. þ. m. voru þau stödd
við þakkarguðsþjónustu í Madríd, og fóru
því næst að horfa á nautaat, að því er
loptskeyti hermir, sem að öðru leyti er