Þjóðólfur


Þjóðólfur - 24.05.1907, Qupperneq 2

Þjóðólfur - 24.05.1907, Qupperneq 2
86 ÞJ OÐOLFUR. Pingmálafundur á Akureyri. Skörulegar fundarályktanir. Fulltrúakosning á Þingvallafund. A annan á hvítasunnu (20. þ. m.) var all- fjölmennur þingmálafundur haldinn á Ak- ureyri, samkvæmt fundarboði frá 10 kjós- endum, eptir því sem frá er skýrt í símskeyti frá Akureyri daginn eptir, Sambandsmálið var þar fyrst tekið til umræðu, og í því samþykkt í einu hljóði raeð 90 atkv. svolátandi ályktun: Fundurinn mótmœlir pvi, að vœntanleg- ir sambandssamningar við Dani byggist á.peim grundvelli, að ísland sé innlimað- ur, óaðskiljanlegur hluti danska ríkisins, heldur krefst hann pess, að ísland verði viðurkennt frjálst sambandsland Danmerk- ur, eins og pað var við Noreg eptir Gamla- sátlmáta, með fullveldi yftr öllum sínum málum. Petta felist skilyrðislaust í Nýja- sátlmála, jafnvel pótt Dönum yrði með samningi falið að fara með einhver mál fyrir íslands hönd, meðan svo pykir henta eptir ástœðum landsins. í öllum öðrum málum skulu íslendingar vera ein- ráðir með konungi um löggjöf sína og stjórn, og qprða pau mál að sjálfsögðu ekki borin upp í ríkisráði Dana. Öll þessi ályktun var samþykkt með 90 samhlj. atkv. nema síðasta málsgreinin sverða þau mál« o. s. frv. Þar voru tvö atkvæði á móti. Með öllum atkv. gegn 2 var og samþykkt svolátandi framhaldsályktun um fána- mál, landhelgi og þegnrétt: Samkvœmt pessu telur fundurinn sjálf- sagt, a ð ísland hafi sérstakan fána; að landhelgin sé íslenzk; og að pegnréttur landanna verði að- greindur. Um Þingvallafund var samþykkt svolátandi fundarályktun: Til pess að bœta úr pví að nokkru leyti, að ping var ekki roftð og efnt til nýrra kosninga, sem sljórnin hefði átt að gera, lelnr fundurinn mikilsvert, að fulltrúar úr sem flestum héruðum landsins komi sam- an á Pingvelli fyrir ping í sumar til pess að rœða og gera ályklanir um sambands- málið og pau mál önnur, sem pví eru ná- tengd. Því næst var Guðmundur Hannesson læknirkjörinn fulltrúi á Þingvalla- fund. A fundinum töluðu: Guðm. læknir Hannesson, Guðl. Guðmundsson bæjarfó- geti og alþm., Magnús Kristjánsson alþm., Sigurður Hjörleifsson ritstjóri, Stefán kenn- ari og alþm. Stefánss. og Karl Finnbogason. * Um Island hefur landbúnaðarkandídat danskur Lars Fredreksen talað og skrifað allmikið, frá því hann ferðaðist þar um sumarið 1905 ásamt fleiri dönskum landb.kandídötum, en vegna þess að margir landar eiga ekki kost á að sjá það og heyra, vil eg gefa hugmynd um, hvernig orð L. F. farast um oss. Eg var áheyrandi á einum fyrirlestri, er L. F. hélt hér á Jótlandi og get eg eigi annað sagt en hann bæri oss rétt og vel söguna. Hann talaði um landið að fornu og nýju, um mikilmenni fornaldarinnar og framfarir nútímans, viðhald málsins, verzlunarsögu vora og, f sambandi við hana, yfirráð Dana yfir landinu, sem hon- um fannst þeir eigi ætíð hafa notað sem bezt og nefndi þar til verzlunareinokun- ina; sagði að frá þeim tímum stæðu þeir í skuld við oss, sem þeir nú greiddu rentur af með þeim 60,000 kr. sem vér fáum úr ríkissjóði Dana. ■— Ekki^munu allir Danir gefa þessa skýringu yfir tillagf þetta, því mörgum af þeim hættir til að telja það eptir eða sem gjöf. Það sem L. F. hefur skrifað um ísland er: I »AtIanten« ferðasaga, í »Vort Landbrug« um nautgriparækt, og í »Söndagsbladet« móti Ingvar Bang, sepi skrifar um oss með yfirskriptinni: »Nuer Island en fattig Ö«. Þetta svar L. F. lýsir vinarþeli til vor og trú á landi voru; vil eg því til sönnunar taka upp nokkur orð, sem þeim fara á milli. Baug segir: »ísland er nú fátæk eyja og hver bóndinn eptir annan flytur af jörð sinni til Vesturheims, en þeir bændur, sem eptir eru, verða að vinna baki brotnu með miklum áhyggjum fyrir framtíðinni«. Þessu svarar L. F. á þessa leið: »Því miður er það satt, að alltof margir fara til Ameríku til að leita gæf- unnar þar, en þeir gætu og ættu heldur að reyna að ná því gulli, sem felst í hinni íslenzku jörðu og sjónum kringum föður- landið*. Ennfremur hefur L. F. skrifað alllangt mál um »Ræktunarfélag Norður- lands« í Atlanten á síðastliðnu ári og í ár í »Ugebladet« um ýmiskonar jurtatil- raunir heima. Allt sem hann skrifar um oss, bendir á velvild til vor. — Að ferð- ast um ísland, þykir L. F. skemmtilegt. Ekki vill hann llkja saman að ferðast á íslenzku hestunum og að ferðast með járn- brautum, hestarnir þykja honum ólíkt skemmtilegri. Víða þykir honum fallegt á Islandi og margt segist hann hafa gert sér lakari hugmynd um en reynslan varð á. L. F. mun vera einn af þeim fáuDön- um, sem les íslenzku, en þeim mönnum veitir hægra að þekkja oss og meta oss réttilega. Jótlandi í apríl 1907 Kr. Eldjdrn. Ný bók. M. Hindhede. Ökonomisk kogebog. Praktisk ernœring. 204 bls. Verð 3,00. Þegar maður les bók dr. H. og líkir henni saman við aðrar bækur um sama efni, er hún öldungis ólík þeim öllum, að minnsta kosti þekki eg enga matreiðslu- bók, sem líkist henni. Dr. Hindhede er nú orðinn alþekktur fyrir hina nýju kenningu um lágmark eggja- hvítunnar, og bækur þær, sem hann hefur gefið út fljúgja út, enda þótt þær séu til- tölulega dýrar. Þessi bók er hin síðasta af 3 bókum hans, sem allar eru nokkuð um sama efni, nfl. um það að maður geti lifað ódýrara og hollara en hingað til, maður geti látið sér nægja miklu minni eggjahvítu en vísindin hingað til hafa á- litið.— Þetta gengur eins og rauður þráð- ur í gegnum þær allar. Þar sem aðrar matreiðslubækur setja »bragðgæðin« efst þá setur dr. Hindhede fyrst »holla« svo »ódýra« og »bragðið« seinast. Hvernig þetta næst sýnir hann með fyrirsögn um tilbúning fjölda rétta, sem áður eru lítt þekktir — ef til vill allflestir óþekktir heima. Það eru þessir réttir — þessi Hindhéðins matur, sem eg vildi benda húsmæðrunum á, benda þeim á að kaupa bók H. og reyna réttina; ef til vill geðj- ast fólki ekki vel að þeim öllum, en ef- laust að þeim flestum og þá er byrjunin fengin. Auk þess sem H. kennir að búa til mat eru í bókinni svo vekjandi og eptir- tektaverðar hugvekjur t. d. »Det sociale spörgsmál« og »Hvad enhver husmoder bör vide« að einungis þess vegna er bókin þess verð, að hún sé keypt pg lesin. Kaupið bókina, yður mun ekki iðra þess. Eptir að eg í fyrra sumar á ferðum mín- um í Danmörku, hafði heyrt dr. H. halda nokkra fyrirlestra ogjUala um hina nýju aðferð (»metode«) datt mér í hug að reyna sjálfur, hvort þetta væri satt. Síðan hef eg því gert ýmsar tilraunir með mig og allar hafa þær sýnt mér, að dr. H. hefur rétt. • I 8 daga lifði eg við svo lélegan kost að það var ekki meira en 1600 Cal. (1 »Calorie« er sá híti, sem þarf til að hita 1 pott af vatni app í i° C) um daginn og einungis sú eggjahvíta, sem minnst mátti vera. Eg varð ekki svangur og eg þyngd- ist um 2T/i.pd. Það sem eg borðaði þann tíma var hafragrautur, brauð og smjör. Líkar tilraunir hefi eg tekið upp með mig aptur og aptur og ávalt komizt að sömu niðurstöðu. Þegar þið nú hafið reynt matartegundir dr. H., séð að þær eru ódýrar og reynt að þær eru hollar, þá skýrið frá því hjá nágrannanum, svo hann líka megi lifa vel heilsusamlega og ódýrt. Ef einhver, því fleiri því betra, af öllum þeim mörgu, sem lesa Þjóðólf vill kaupa bókina og reyna réttina er tilgangi grein- arstúfsins náð. Pdll Zóþhóníasson. „Frjálst sambandsland. Agrip af stjórnmáladeilu Islendinga og Dana“, nefnist nýútkominn bæklingur, saminn af Einari Hjörleifssyni fyrv. ritstj. en gefinn út að tilhlutun landvarnar- og þjöðræðisblaða. Er það sögulegt yfirlityfir stjórnmálabaráttu vora byggt á ritgerðum Jóns Sigurðssonar það sem þær ná, sér- staklega um fjárhagsmálið og er sá kafl- inn ítarlegastur, en miklu fljótar yfir sög- una farið eptir 1880. Bæklingurinn er lið- lega og stillilega ritaður og ber lítið á hlutdrægni í frásögninni, þótt sleppt sé ýmsu, er minnast hefði mátt á i sögu sfð- ustu áranna sérstaklega, Ljósastur vottur þess, að bæklingurinn sé laus við árásir á stjórnina og óvildarummæli í Dana garð, er sá að »Lögrétta« hælir honum; prent- ar hún orðrétt upp langan kafla úr álykt- arorðum hans og virðist vera alveg sam- mála því sem þar er sagt. Má því vænta þess að hún fari að átta sig á því úr þessu, að varlegra sé að gera ekki verulegan ágrein- ing út úr því hvað »frjálst sambandsland« í blaðarnannaávarpiuu hafi átt að merkja og hlotið að merkja samkvæmt réttum skilningi, því að það er lítill vafi á, að þjóðin skoðar það í hinni réttu og eðlileg- ustu merkingu, en lætur sér ekki lynda skýringuna um jafnréttháan samnings- aðila(l) og annað ekki. /jlmennur borgarafundur var haldinn í Iðnaðarmannahúsinu 21. þ. m. til að ræða um leigu á nýju bryggj- unni og samþykkt bæjarstjórnarinnar um það mál. En meiri hluti hafði þar fengizt fyrir því að leigja bryggjuna einhverju fé- lagi, er samningar tækjust við, fyrir 1000 kr. gjald á ári. Fundurinn var móthverf- ur slíkri leigu og var þár samþykkt með 89 atkv. gegn 9 svolátandi tillaga: »Fundurinn skorará bæjarstjórn Reykja- vlkur að taka að sér umsjón með hafnar- bryggjunni með uppskipunartækjum, lóð ..og húsum og að setja hæfan mann til að hafa eptirlitið á hendi með bryggjunni húsum og áhöldum«. Ennfremur samþykkt í einu hljóði svo- látandi tillaga: »Ennfremur að kaupa fyrir hæfilegt verð pakkhús Landsbankans við hafnarbryggj- una eða láta flytja það burtu og byggja þar þá nýtt pakkhús til vörugeymslu fyrir almenning«. SJálfsmorð. Frá Seyðisfirði er símað 18. þ. m. að Ha 11 grímur Þorsteinsson útvegs- bóndi á Nesi íf Norðfirði, ókvæntur mað- ur og efnaður, hafi hengt sig þá um nótt- ina í rúmi sínu. Veðurátta hefur verið hér mjög hlý undanfarna daga, og eins hefur verið alstaðar um land, eptir því sem frétzt hefur. Frá Seyðisfirði símað 18. þ. m., að þar sé blíðviðri á dag- inn en þó frost á nóttum. Talsverður snjór í fjörðunum. Jóhannes Jósepsson aflrauna- og glímumaðurinn frá Akureyri, er fyrsti stofnandi Ungmennafélagsins hér á landi, sem þegar er orðið töluvert út- breitt. Meðlimir Ungmennafélagsins hérí bænum héldu þeim félögum Jóhannesi og Jóni Pálssyni fagnað á mánudagskveldið var. Var fyrst kaffidrykkja og ræðuhöld í Bárubúð, en á eptir gengu allir suður á Mela, og skemmtu menn sér þar við söng, hlaup o. fl. —Þótti öllum kveldstund þessi hin skemmtilegasta. — * Skip sekkur. Aðfaranóttina 11. þ. m. sökk frakknesk fiskiskúta á Isafjarðardjúpi í svonefndri Selvík nálægt Ögurhólmum og drukknaði öll skipshötnin. Það var á að gizka 80 faðma frá landi og stóðu möstrin upp úr sjónum. Haldið að skipverjar hafi verið villtir og ætlað að þeir væru á Breiðafirði- Skipið kvað hafa verið frá Paimpol. „Ceres“ kom af Isafirði í fyrra dag og með henni dr. Björn Bjarnason með fjölskyldu sína alfluttur af Isafirði hingað til bæjarins. Ný bréfspjöld átta að tölu eru nýkomin út á kostnað hr. Ólafs Ólafssonar bréfspjaldaútgefanda, Eru fimm þeirra með myndum afíslenzk- um skáldum, tvær og þrjár myndir saman á einu spjaldi, Bjarni Thorarensen, Jón Thoroddsen og Kristján Jónsson á einu, Bened. Gröndal og Steingr. Thorsteinsson á öðru, Matth. Jochumsson og Valdimar Briem á hinu þriðja, Páll Ólafsson, Grím- ur Thomseu, Þorst. Erlingsson á hinu 4.. og á hinu 5.: Gestur Pálsson, Einar Hjör- leifsson og Guðm. Guðmundsson. Hin 3 bréfspjöldin §ru með myndum íslenzkra tónskálda, Sveinbjörn Sveinbjörnsson á einu, bræðurnir Jónas og Helgi Helgasynir á öðru, og Bjarni Þorsteinsson, Arní Thorsteinsson og Jón Laxdal á hinu 3. €rlenð simskeyti til Pjóðólfs frá It. B. Kaupmannahöfn, 21. maí kl. 5,50 e. h. Mœlingarskip. Herskipið »Beskytteren« leggur af stað 27. maí til mælinga við Island. Frakkneskt herskip Chanzy strandaði í Austurasíu. Menn björguðust. Samsœri uppgötvað. Skýrt var frá því í rússneska þinginu í gær, að uppvíst hefði orðið um vlðtækan viðbúnað til að ráða keisarann af dögumr en þeirri fyrirætlun hefði verið hnekkt. Látinn er Baker byggingameistari, sá er byggði brúna yfir Forthfjörðinn á Skotlandi. Róstuv á Póllandi. Morð hafin að nýju í Lodz og Varsjá. Eptir rán á póstflutningi f Lodz ruddust Kósakkar inn í verksmiðju skutu af handa- hófi 15 menn en særðu 30.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.