Þjóðólfur - 14.06.1907, Blaðsíða 3
ÞJÓÐÓLFUR.
99
inu, þvi að á Akureyrarfundinum 20. f. m.
greiddu þeir báðir atkvæði með þeirri kröfu,
að ísland skyldi vera sviðurkennt frjálst
sambandsland við Danmörku eins og það
var við Noreg eptir Gamla sáttmála, með
fullveldi yfir öllum sínum má!um«. Þessir
þingmenn virðast því að minnsta kosti
horfnir frá þingmannafarargrundvellinum(!),
sem var meginatriðið í desemberyfirlýs-
ingunni, er stiluð var beinlínis á móti
blaðamannaávarpinu. Hafa þeir auðvit-
að séð það, er þeir fengu tíma til að at-
huga málið betur, að sú yfirlýsing var
bæði vanhugsuð og óviðurkvæmileg, enda
mun svo fleirum fara, er fengnir voru til
að skrifa undir hana, þá er Lögréttu-
fumið gegn ávarpinu var i algleymingi
sínum. En siðan hefur það komið í Ijós,
að allur þorri þjóðarinnar er einmitt
fylgjandi blaðamannaávarpinu en ekki
Lögréttuþvergirðingnum, er forkólfum
hans hefði verið sæmra að hefja aldrei.
Og það munu þeir sjá nú, vitanlega nokk-
uð seint til að snúa við með sæmd, en
þó ekki of seint til að ráða bót á glappa-
skotinu, ef andstæðingar þeirra verða svo
ffjálslyndir að draga fjöður yflr hina fyrri
framkomu þeirra og hafna ekki fylgi
þeirra, þótt æskilegra hefði verið, að þeir
hefðu komið um fyrstu, en ekki elleftu
stund. En nvað um það. Sé um alvar-
leg sinnaskipti að ræða í »stjórnarflokkn-
um«, hvort heldur það er af nauðsyn eða
æðri og betri þekkingu, þá er sjálfsagt að
gleðjast af þeim'árangri, sem blaðaávarpið
hefur þar haft, því að aldrei verða
þeir ofmargir, er fyrir rétti Islands berjast
út á við. Og ekki er ástæða til að erfa
það lengi, þótt mönnum geti missýnzt um
sinn. En ávalt er það samt viðkunnan-
legra, að skoðanaskipti manna verði á
þeim tíma, er vonin um fylgi er lítil, heldur
en þegar hún er orðin hér um bil að vissu.
Sjálfsagt líður ekki á löngu, áður en
Lögréttuþvergirðingurinn hér verður að
hismi einu og hégóma, sem enginn fær
hönd á fest. Sambandsmennirnir tveir
nyrðra (Guðl. Guðm. og M. Kr.) hafa riðið
á vaðið til að sópa því gaddavírshapti úr
þjóðgötunni og eiga heiður skilið fyrir.
Eptir því sem séð verður af síðustu
»Reykjavík« 11. þ. m. í greininni »Hvað
ber á milli?« er þar greinilegt undanhald
og auðsæ veðrabrigði í afstöðu blaðsins
nú gagnvart kröfum vorum á hendur Dön-
um, alveg gagnstætt því sem 1 þeim skjá
þaut í vetur eptir birtingu blaðamanna-
ávarpsins, hvað sem það stendur lengi.
Nefndartilnefningin.
I »ísafold« í fyrra dag, er það skýrt
tekið fram, að minni hlutinn, sjálfstæðis-
flokkurinn, g e t i með engu móti átt þátt
í tilnefningu manna í millilandanefndina,
hinir v e r ð i að vera þar einir um hit-
una. Þessi ummæli geta valdið misskiln-
ingi, af þvf að hér virðist talað um ein-
hvern nýjan flokk »sjálfstæðisflokkinn« og
gefið í skyn, að hann hafi gert einhverja
ályktun í þessa átt. En hafi nokkur
flokkur gert ályktun um þetta, sem oss
er öldungis ókunnugt um, þá er það að
eins »Þjóðræðisflokkurinn« einn. Hvorki
Landvarnarmenn né aðrir hafa átt þar
hlut að. Án þess að fara nokkuð frekar
út í þetta efni nú, vildum vér ráða »Þjóð-
ræðisflokknum« að hugsa sig vel um, áð-
ur en hann grfpur til þeirra örþrifráða
að neita að tilnefna nokkurn sinna manna
í nefndina, verði sjálfri nefndarskipuninni
á annað borð ekki frestað fram yfir næstu
þingkosningar hér}
Mannalát.
Hinn 11. f. m. andaðist Sigurður
Jónasson sýslunefndarmaður á Bakka
í Öxnadal (bróðir Sigtryggs Jónassonar
fyr ritstj. Lögbergs) eptir langa legu í
berklaveiki, valinkunnur maður, greindur
vel og þokkasæll.
Hinn 17. s. m. andaðist á Akureyri
ekkjufrú Ragnheiður Oddsdóttir
B1 ö n d a 1, fyrrum gipt Magnúsi Björns-
syni Blöndal, settum sýslumanni í Rang-
árþingi, sem látinn er fyrir 46 árum (1861.)
Voru mjög skamma hríð saman og áttu
ekki börn. Hún var dóttir Odds Stefáns-
sonar Thorarensens lyfsala á Akureyri og
fyrri konu hans Solveigar Bogadóttur frá
Staðarfelli Benediktssonar. Ragnheiður
sál. ólst upp hjá Hannesi prófasti Step-
hensen á Ytrahólmi. Hún var mesta
sæmdarkona í hvívetna, góðsöm og trygg-
lynd. Var komin nokkuð á áttræðisald-
ur, er hún lézt.
Maður varð úti
2. f. m. Vilhelm Hansson að
nafni, milli Snartarstaða og Leirhafnar á
Sléttu. Lagði af stað frá Kópaskeri þá
»Hólar« fóru þaðan, og hafði verið ölvaðui
í meira lagi, og villzt af réttri leið, og
fannst eigi fyr en eptir 11 daga. —
»Drykkjuskapur minnkar lítið, meðan'þess-
ar »fljótandi knæpur« sveima kring um
landið«, segir fregnritinn, er frá slysi
þessu skýrir.
Embœttispróf i læknisfræði
við háskólann tók Kristinn Björnsson
(úr Reykjavík) n. þ. m. með 1. einkunn.
Þingvallafundarkjör.
Um kosningu Þingvallafundarfulltrúa
hefur þetta frétzt: Fyrir Stykkishólms-
hrepp og Helgafellssveit var kosinn 2.
þ. m. Sigurður prófastur Gunnarsson að-
alfulltrúi og varafulltrúi Hjálmar kaupm.
Sigurðsson.
Fyrir Neshrepp ytri Árni verzlunarm.
Magnússon í Vörum á Hellisandi.
Fyrir Breiðuvíkurhrepp Sigurður Guð-
mundsson aðstoðarprestur 1 Ólafsvík.
Fyrir Saurbæjarhrepp í Dalasýslu Bene-
dikt Magnússon kennari í Ólafsdal.
Konungsmyndin.
Nú er ákveðið, að Einar Jónsson (frá
Galtafelli) skuli gera hina fyrirhuguðu
standmynd Kristjáns konungs 9. Það
hefur samskotanefndin nú úrskurðað fyrir
skömmu, er hún hafði séð sýnis-
horn Einars og keppinauts hans (Kai
Nielsens), er send voru hingað. Þótti
henni sýnishorn Einars betra og munu
menn almennt fagna þessum úrslitum.
Veitt læknishérað.
Þórður Pálsson læknir í Axarfjarðar-
héraði hefur fengið veitingu fyrir Mýra-
héraði, er verið hefur læknislaust nú um
hríð.
lírsagnir úr „Fram“.
Heyrzt hefur, að margir félagsmenn 1
»Fram« séu 1 þann veginn eða ætli að
segja sig úr þeim félagsskap, fyrir síð-
ustu afrek þess félags og alla framkomu
þess 1 sjálfstæðismáli þjóðarinnar í seinni
tíð. Þá er allur frjálslyndari hluti fé-
lagsmanna er vikinn burtu verður eflaust
nokkurnveginn einlitur hópur eptir, en
þannig litur, að hann getur ekki lengur
talað 1 nafni heimastjórnarmanna í land-
inu, eða gefið þeim nokkrar fyrirskipanir.
Það er áreiðanlega víst.
Látlnn
er 6. f. m. á fyrirlestraför f Bandaríkj-
unum enski skáldsagnarhöfundurinn og
guðfræðingurinn dr. John Watson, 57
ára gamall, lengi (frá 1880— 1905) fríkirkju-
prestur í Liverpool, nafnkunnur ræðumað-
ur og mjög ötull í allri kirkjulegri starf-
semi. En kunnastur er hann fyrir skáld-
rit sín, er hann reit undir gerfinafninu
»Jan Maclaren«, mestallt smásögur
úr skozku þjóðlífi, er flestum munu hug-
stæðar verða, er lesið hafa, vegna þess hve
höf. tekst vel að slá á hina næmtistu og
smágerfustu strengi mannlegra tilfinninga,
þótt söguefnið sé hvorki stórfenglegt né
umfangsmikið. Hefur sögum hans verið
snúið á ýms mál og þótt mikið 1 þær
varið, þrátt fyrir það þótt enskir ritdóm-
arar margir hverjir gerðu lftið úr þeim,
og brygðu höf. um tilgerð í stílnum og
tilbreytingaleysi í söguefninu. En þetta
hnekkti ekkert vinsældum Maclaren’s hjá
almenningi.
Vestmanna-fagnaður
svo nefndur var haldinnhér í Báruhús-
inu að kveldi 8. þ. m. til að fagna lönd-
um vorum, sem komu frá Vesturheimi nú
með »Lauru« og »Sterling«. Blaðamanna-
félagið gekkst fyrir þessum viðtökum. Veit-
ingar voru súkkulaði, kafifi og óáfengir
drykkir. Frummælandi ræðumanna Björn
Jónsson ritstjóri, en auk hans héldu ræður:
Briet Bjarnhéðinsdóttir, Einar Hjörleifsson,
Guðm. Finnbogason, Hannes Blöndal
(fyrir hönd heimflytjenda) Haraldur Níels-
son, Jón Ólafsson, Valtýr Guðmundsson
og Þórhallur Bjarnarson. Sungið var ný-
ort kvæði eptir Þorstein Erlingsson og
söngflokkur skemmti með söng. Skemmt-
un þessi stóð alllangt fram yfir miðnætti
(frá kl. 81/2)
Sumargjöf
3. árg. Utgefendur Bjarni Jónsson frá
Vogi og Einar Gunnarsson, er nýprentuð
og allfjölbreytt að efni. Þar er nýtt lag
eptir Árna Thorsteinsson við Vorvfsur
Jónasar: »Vorið góða grænt og hlýtt« og
er lagið tileinkað Ólafi H. Johnsen fyrr-
um yfirkennara í Odense. Kvæði eru all-
mörg í bókinni: eptir Indriða Þorkelsson
á Fjalli tvö, bæði vel kveðin, eitt eptir
Huldu (húsfrú Unni Benediktsdóttur) nokk-
ur eptir Bjarna Jónsson frá Vogi, eitt
eptir Þorstein Erlingsson, eptir Einar
Pál Jónsson og Jóhann heit. Sigurðs-
son. I óbundnu máli kveður þar mest að
»Næturhugsunum á Öræfunum« eptirÞor-
gils gjallanda. Er það nokkurskonar ein-
tal sálarinnar eða heimspekilegar hugleið-
ingar um lífið og lífsbaráttuna m. fl., og
bera ljóslega með sér snilldareinkeuni
höfundarins í meðferð máls og efnis. Enn
má geta smágreinar um »Lífsgleðina« eptir
Indriða Þorkelsson, og er sá smápistill
laglega saminn. Ennfremur er þar prent-
uð ræða Guðm. Björnssonar landlæknis
um almennan kosningarétt, er hann hélt
nýlega á borgarafundi hér í bænum. Helgi
Jónsson grasfræðingur ritar þar smágrein
um að klæða landið skógi og Bjarni bróðir
hans þýðir þar eina smásögu (»Einvígið«)
eptir Guy de Maupassant. Baldur Sveins-
son ritar um Jóhann G. Sigurðsson og dr.
Helgi Pétursson leggur þar orð í belg um
Unni Marðardóttur. Eins og menn sjá, er
efnið í árgangi þessum allmargbreytt og
margir höfundar leiddir fram á sjónarsvið-
ið. Er því ekki ólíklegt að marga fýsi
að sjá ritið.
Með „Sterling“
fóru 9. þ. m. til Akureyrar Þórður J. Thor-
oddsen, bankaféhirðir, með konu sinni, Pét-
ur Zóphóníasson, ritstjóri, með konu sinni,
Einar Finnsson, verkstjóri, með konu sinni,
Halldór Jónsson, bankaféhirðir, Sveinn Jóns-
son, trésm., Jón Þórðarson, kaupm., Þor-
steinn Gíslason ritstjóri, Þorsteinn R. Jóns-
son, Grund, frú Guðrún Hermannsdóttir frá
Breiðabólstað, Guðm. Þorbjarnarson, Hvoli
í Mýrdal, Jóhann Jóhannesson, kaupm, Helgi
Helgason, verzlm., Borgþór Jósepsson, verzlm.
Ásgr. Magnússon, kennari, Otto N. Þorláks-
son, skipstjóri, Pétur Jónsson, blikksm., Jón
Árnason, prentari, Þórður Edilonsson læknir
í Hafnarfirði, allir á Stórstúkuþing templara,
og eru væntanlegir aptur með Sterling. Alls
fóru á þing þetta um 40 manns héðan.
Valurinn „(Islands Falk“)
kom hingað í fyrra kveld með ráðherr-
ann, er hafði haldið þingmálafund á Akur-
eyri 8. þ. m. Var þar meðal annars sam-
þykkt traustsyfirlýsing til stjórnarinnar fyrir
aðgerðir hennar 1 ritsímamálinu o. fl. Um
sambandsmálið sjálft voru ekki samþykkt-
ar neinar ákveðnar tillögur, heldur að eins
að skipun sambandsnefndarinnar væri æski-
leg, og að ekki yrði gert út um málið,
fyr en þjóðin ætti kost á að kynna sér
það eptir að nýjar kosningar hefðu farið
fram og liggur það auðvitað í hlutarins
eðli, en mun hafa verið samþykkt aðeins
til að koma þvl að, að þingrof hefði verið
óþarft, eins og nú stóð á.
Yítayerð ókurteisi.
Eg leyfi mér, herra ritstjóri, að biðja
yður að ljá eptirfylgjandi línum rúm í
yðar heiðraða blaði, öðrum til viðvör-
unar.
Eg hefi eigi allsjaldan haft ánægju af
að koma inn í hið nýja veitingahús
»Hótel Island« til þess að kaupa kaffi og
fleira, sem þar er verzlað með, þangað til
1 gærkveldi, er eg kom þar inn, og bað
um að fá keypt kaffi. Eg var i mínum
vinnufötum, en búinn að þvo mér, og get
sannað, að eg kom kurteislega fram, og
var alveg ódrukkinn. En af því eg var
í mínum vinnufötum var mér vísað úr
einu horni í annað, þar sem eg sá ekkert
sæti. Eg áleit þetta væri til að verða af
með mig, og spurði veitingaþjóninn, er
eg átti við, hvernig stæði á þessu. Hið
eina svar, sem eg fékk var þetta: »Naar
man ikke er rigtig paaklædt saa«. Hann
endaði ekki setninguna, en eg fann mig
knúðan til að ganga í brott. Eg vil því
ráðleggja þeim, er vilja fara inn á nefnt
veitingahús til þess að verða af með aura
að vera helzt prúðbúnir.
Reykjavík, 11. júní 1907.
Sigurgeir Finnsson,
járnsmiður.
Yeðnráttnfar í Kvík í maí 1907.
Meðal/titi áhádegi.+ 7.2 C.
—- nóttu . + i.7 „
Mestur hiti - hádegi. + 1 „
Minnstur— - — . —- 12 „ (10.).
Mestur — - nóttu . + 7 „
Minnstur— - — . -+ 4 „ (10.).
Framan af mánuðinum var kalt, vetrar-
legt og snjóaði, svo jörð varð hér hvít um
fótaferðartíma, öll fjöll niður að sjó hvít;
var við norðanátt; opt hvass til djúpa og
eins hér og gaddur um tíma á hverri nóttu.
Um miðjan mánuð hlýnaði í lopti og varð
bezta veður, vorveður með sólskini og hlý-
indum dagl. Loptþyngdarmælir stóð slðari
hluta mánaðarins mjög hátt og komst upp
í 777 M.meter. Haggast lítið enn þá.
V6—'07.
J. Jónassen.
glNæsta Þlað Pjóðólís kemur
út miðTÍkudaginn 19. þ. m. (en ekki
á föstudaginn).
Yftlliam Stephens Xress
prestur frá Cleveland, nafnfrægur
mælskumaður alkunnur í flestum stór-
borgum Ameríku og Evrópu heldur
ræður á ensku í Kaþólsku kirkjunni
dagana 16.—23. þ. m., sunnudagana
kl. 6, og virku dagana kl. 8V2 e. h.
Þeir sem óska að spyrja um eitt-
hvert trúaratriði, mega skrifa spurn-
ingar sínar á seðil á hvaða tungumáli
sem þeir vilja og leggja hann f spurn-
ingakassa, sem hangir í fordyrum kirkj-
unnar og verður spurningunum svarað
sama kvöld.
leffóbak,
|{(‘ylvíóbalt og
Vindlingar (Cigaretter)
bezt og ódýrast í AustuPStr 1.
Ásgeir G. Gunnlaugsson & Co.
Alinainiarómur: Bezt er að
rerzla Tið Ben. S. Pór. Reynslan
kennir það liTerjum, er reynir, að
bezt sé — það aorgi sig bezt, —
uð e ga öll vínkaup og brenni-
vínskaup tíö vínverzlun Ben-
S. Þórarinssouar.