Þjóðólfur - 26.07.1907, Blaðsíða 1

Þjóðólfur - 26.07.1907, Blaðsíða 1
 Þ JOÐOLFUR. 59. árg. Reykjavík, föstudaginn 26. júlí 1907. 32. Alþingi IV. Stjórnarskrárbreyting. Þjóðræðisflokkurinn allur í neðri deild þeir Skúli Thoroddsen, Ólafur Ólafsson, Björn Kristjánsson, Magnús Andrésson, 'Ólafur Briem, Ólafur Thorlacius, Stefán Stefánsson kennari og Einar Þórðarson bera upp frumvarp til breytinga á stjórnar- skránni, sem er svo látandi að efni til: 1. Orðin »í ríkisráðinu* í 2. gr. stjórn- arskrárinnar falli burt. 2. Alþingi kemur saman á hverju ári. 3. Alþingi skipa að eins þjóðkjörnir menn, 36 að tölu: 12 í efri deild og 24 í neðri deild. Tölu þingmanna má þó breyta með lögum. Kosningar gildi um 3 ár að jafnaði. 4. Þingmenn í efri deild kýs alþingi í heild sinni með hlutfallskosningu fyrir allan kjörtímann, fyrsta sinn er það kem- ur saman eptir nýjar kosningar. 5. Konur jafnt sem karlar, hverrar stéttar sem eru, hafa kosningarrétt og kjörgengi til alþingis, 25 ára eða eldri, giptar sem ógiptar. 6. Kjörgengisaldurinn breytist úr 30 árum í 25. 7. Það sviptir engan kjörgengi, þótt hann sé í þjónustu annars ríkis en Danaveldis, ef hann er ekki beint þegn þess. Og .orðið »Danaveldi« í kjörgengisgreininni (18. gr.) breytist í »Danakonung«. 8. Fjárhagstímabilið sé eitt ár. í fyrra dag var stjórnarskrárbreytingin á. dagskrá í neðri deild, og hóf S k ú 1 i Thoroddsen umræðurnar. Hann byrj- aði á því, að þótt stutt væri síðan að stjórnarskránni hefði verið breytt, væri þó eðlilegt að þetta frv. kæmi nú fram, því mikil óánægja hefði verið yfir rlkisráðs- ákvæðinu, en þingin 1902 og 1903 hefðu neyðst til að sarnþykkja frv. stjórnarinnar óbreytt, því óneitanlega hefði framför verið að þvf. — Hefði það verið þá fellt, væri óvíst að það mál væri enn útkljáð, og hefði það staðið þjóðinni mikið fyrir þrifum. Þingið 1903 hefði og reynt að gera ríkisráðsákvæðið sem hættuminnst, Og gerði það að skilyrði, að gæta réttinda landsins, og hefðu allir sætt sig við það, en það hefði ekki verið haldið, og hefði forsætisráðherra Dana blandað sér í málið. Sumum mundi ef til vill finnast, að of- snemmt væri að koma^með þessar breyt- ingar, þar sem semja ætti ný sambands- lög, en þar sem engin vissa væri fyrir því, hvenær þau sambandslög kæmust á, og ekki heldur mundum vér vita, hvort samkomulag næðist, og alþingi og ríkis- þingið féllist á samningana, væri ekki rétt að skjóta á frest nauðsynlegum breyt- ingum á stjórnarskránni. — Þegar blaða- mannaávarpið hefði komið fram, hefði ágreiningurinn verið lítill. — Lögréttu- menn hefðu verið samþykkir því í öllum greinum, nema 1 ríkisráðsákvæðinu, sem þeir hefðu talið, að eigi kæmi sambands- lögunum við, heldur væri íslenzkt sérmál, en vonuðust þó til að geta sýnt ssamvinnu- fúsleik, sinn, þegar til samninga kæmi.— En þessi litli ágreiningur, sem í vetur hefði verið, hefði alltaf vaxið meira og meira. En allir ættu að geta orðið sam- mála og athuga málið rólega og með skynsemi, en láta ekki flokkadeilur kom- ast að. Nauðsynlegt að þetta frv. kæmi fram vegna þjóðarinnar, svo hún gæti vitað glöggt um afstöðu þingmanna, en ekki allt á huldu, enda ætti þjóðin heimting á, að þingmenn kæmu fram hreinir og beinir. Þm. stjórnarfl. gæfist nú færi á, að sanna hvað þeir vildu, og koma fram sem góðir drengir, og láta þjóðina vita um skoðun þeirra. Nauðsynlegt að danska stjórnin vissi eitthvað um vilja okkar. Okkur fslendingum er það afar mikils- varðandl, að þau mál, sem við ekki fel- um Dönum, yrðum við algerlega einráðir um með konungi, og gætu Danir ekki bland- að sér í þau að neinu leyti. — En sam- bandslaganefndin gæti ekkert starfað, án þess að komast inn á þetta mál, og yrðu Danir að vita, að þetta er okkur íslend- ingum mikið áhugamál, að sérmál okkar yrðu ekki borin upp fyrir konungi í ríkis- ráði Dana. En þetta kostar ekkert, þar sem nýjar kosningar fara fram hvort sem er, fyrir næsta þing. Ymsar aðraf knýj- andi ástæður fyrir hinum breytingunum, sem farið er fram á. Þjóðfélagið er allt af á framfaraskeiði, og þarf þing að vera á hverju ári. Pólitiska lífið miklu fjörugra, en þótt það hafi einhverja ókosti, þá eru þó kostirnir miklu meiri, því margt gott kemur fram í fundarhöldum og blaða- greinum. A konungkjörnum þingmönnum væri núekki lengurþörf, því þjóðin hefði nóg- um hæfum mönnum á að skipa. Óheppi- legt að stjórnin kysi þingmenn, því það drægi úr þjóðræðinu, nema sú krafa yrði gerð til stjórnarinnar, að hún yrði að fara frá völdum, ef hún hefði ekki helming þjóðkjörinna þingmanna með sér. Annars gæti stjórnin setið í trássi við meiri hluta þjóðarinnar, ef hún hefði að eins meiri hluta allra þingmanna. Krafa um afnám konungkjörinna þingmanna hefði opt komið frá þjóðinni. Þingmannatalan 12 í efri deild og 24 í neðri, virðist mega nægja í bráðina, enda hægurinn hjá að Qölga þeim. Kosningarétturinn takmarkaður á þann hátt, sem ekki er heppilegt. Almennur kosningaréttur ættí að komast á, ekki að eins sem lrv. stjórnarinnar færi fram á, heldur einnig ætti að veita kvennfólki sama rétt og karlmönnum, því það er réttlætiskrafa, sem ekki yrði á móti mælt. 10,927*) konur hefðu sent þinginu áskor- anir um kosningarrétt. Óskaði að málinu yrði vísað til 2. um- ræðu og 7 manna nefnd sett í það. Lárus H. Bjarnason: Þetta frv. mætti skoða frá öðru sjónarmiði en flm. hefði gert. Annars væri einkennilegt, að minni hlutinn héldi nú fram allt öðrum skoðunum, en hann hefði gert á þingmála- fundum og á Þingvallafundi, nema þeir séu nú viknir frá sínum fyrri skoðunum. En það væri ekki ofdjúpt tekið i árinni, að frv. hefði átt að bíða, svo framarlega sem menn vonuðust eptir nokkrum árangri af sambandslaganefndinni. Stjórnarskránni yrði að breyta, þótt vér t. d. fengum engu öðru breytt en um útborgun höfuðstóls- ins af tillagi Dana. Frv. væri því ótíma- bært og færi að sumu leyti of skammt. Nefndi hann nokkur atriði, er breytingar þyrftu, ef endurskoðun ætti á annað borð að fara fram. Stjórnarskrárbreytingu þyrfti ekki til að halda þing á hverju ári, held- ur sérstök lög. Ríkisráðsákvæðið hefði ekki reynzt illa, þar hefði t. d. lagaskóli verið *) Talan er nú komin upp í 11,044. staðfestur, sem okkur hefði verið neitað um alla tíð síðan 1845, sömuleiðis lög um lækkun eptirlauna og ráðherraábyrgð. Nógur tími að berjast gegn ríkisráðs- ákvæðinu’ þegar ástæður eru fyrir hendi. — Vonandi að einhver árangur yrði af millilandanefndinni. — Stjórnin ætti að leysa upp þingið, þegar nefndarálitið kæmi fram, svo þjóðinni gæfist kostur á að segja álit sitt um það, og ekki væri hægt að segja á eptir, að þjóðin hefði verið »nörruð«, eins og sagt er um síðustu stjórnarskrárbreytingu, þótt það sé á eng- um rökum byggt. — Sagði að frv. þessu væri hleypt af stokkunum að eins til að sýnast. Guðlaugur Guðmundsson. Furð- aði ekki svo mikið, þótt minni hlutinn kæmi fram með þessar breytingar. Alið á óánægju hjá þjóðinni um stjórnarfyrir- fyrirkomulagið, og hefði betra verið að hreyfa þessu máli eigi nú. Hafa líklega fundið sig knúða til að standa við sín stóru orð, er þeir hafi viðhaft í sínum svæsnu blaðagreinum. Ríkisráðsákvæðið heyri ekki undir sambandsmálið, og væri það algerlega rangt, að ræða um það í sambandi við sambandslögin. Það er ís- lenzkt sérmál, sem við leggjum fyrir ráð- herrann, en hann aptur fyrir konung, hvort við fáum því breytt eða eigi. Það er að selja útlendingum rétt sinn, sem við erum búnir að vinna, og gera það að bónarvegi, sem við höfum rétt til. — Lögréttufélagið ekki nokkur pólitiskur flokkur.-------— — — — Sérlega mis- ráðið að efna til þessa deilumáls með- an önnur deilumál eru óútkljáð, og spillir það afstöðu okkar, með því að gera Dönum gramt í geði. Gæta þess, að við erum að semja við þá, sem eru okkur of- jarlar, og höfum ekkert nema réttlætis- kröfu gegn þeim. Þetta er ófriðarfáni, sem er dreginn upp á móti konungi og okkar tignu gestum. Það spillir fyrir því, að við fáum sem mest vald yfir okkar málum. — Stjórnarskipunin í verklegri framkvæmd hefur reynzt vel. Tfðar breyt- ingar á stjórnarskrá ekki hollar. Skúli Thoroddsen svaraði ríkis- ráðsprédikun Guðlaugs, og kvað hann eiga að vita það, að Danir skildu þetta öðruvlsi en vér, og þeim misskilningi yrði að útrýma, en það yrði ekki gert á annan veg, en að málið yrði rætt 1 sam- bandslaganefndinni, og það hlyti því að koma þar fram. Engum dytti í hug að leggja mál þetta undir atkvæði ríkisþings- ins, heldur fylgja því fram, að fá viður- kenning Dana fyrir því, að sérmál vor ættu ekki að berast upp og yrðu ekki borin upp 1 ríkisráðinu. Allt yrði að vera hreint í þessu máli, en það væri það ekki, ef við segðum ekki Dönum hvað við vildum hafa, og væri það ekki að draga upp neinn »ófriðarfána«. L. H. Bj. Engin skapraun fyrir Dani, þótt minnst yrði á þetta. Spurði flm. á hvern hátt þeir vildu gefa Dönum kost á að kynna sér íslenzk sérmál, ef þau yrðu ekki borin upp í ríkisráðinu. G u ð 1. G u ð m . svaraði Sk. Th. og Stefán Stefánsson svaraði Guðl., er mest snerist um fund, er haldinn hafði verið í fél. »Skjaldborg« á Akureyri í vor. Eptir að umræðurnar höfðu staðið í 2 klukkustundir, var samþykkt með 16 : 8 atkv. með nafnakalli að fresta 1. umræð- unni og kjósa 7 manna nefnd 1 málið, og voru kosnir með hlutfallskosningu: Guðl. Guðmundsson, Guðm. Björnsson, Skúli Thoroddsen, Pétur Jónsson, Hannes Þorsteinsson, Einar Þórðarson og Jón Jónsson. Form. nefndarinnar er Guðl. Guðmundsson, en skrifari Guðm. Björns- son. Þess skal getið, að réttara þótti að kjósa ekki í nefndina sömu mennina og meiri hlutinn hefur tilnefnt f millilanda- nefndinni (frá L. H. B. og J. Magn.). Vegamál. Nefndarálit 'í því máli er nú komið, en ekki er unnt að svo stöddu rúmsins vegna, að gera nákvæmar grein fyrir breytingartillögum nefndarinnar, er fall- izt hefur á aðalstefnu frv., með vissum skilyrðum. Er nánar skýrt frá þessu í einum kafla nefndarálitsins, sem er svo látandi: „-----1 vegafrumvarpi þessu eru ekki að eins fólgnar þýðingarmiklar breytingar á núgild- andi vegalögum og viðaukar við þau, held- ur markar frumvarp þetta algerða stefnubreyt- ing í vegamálum landsins að þvf leyti, að viðhaldskostnaður flutningabrauta og ak- færra þjóðvega er fluttur af landsjóði yfir á sýslur þær, er vegirnir liggja í með Örfáum undantekningum, er landsjóður á að kosta viðhald á, eins og að undanförnu. Ástæð- an fyrir þessari breytingu er aðallega talin sú, að með þeim kröfum, sem nú sé farið að gera til vegalagninga og eptir hinni vax- andi vegaþörf, sé landsjóði öldungis ókleift, bæði að leggja vegina og kosta viðhald þeirra. Landsjóður hafi í svo mörg horn að líta, svo mörgum þörfum og kröfum að sinna, að hann geti ekki fullnægt vegalagn- ingarkröfum nema í mjög litlum mæli, ef hann eigi jafnframt að kosta viðhaldið, eins og að undanförnu. En sá dráttur á nauð- synlegum vegagerðum, er af þessu mundi stafa, yrði afar óheppilegur og tilfinnanleg- ur fyrir landsmenn. Nefndin hefur orðið samdóma um, að naumast verði hjá því komizt, að gera breytingu á núgildandi vegalögum í þá stefnu, er frv. fer fram á, en stingur hins- vegar upp á ýmsum ívilnunum, er geri sýslufélögunum léttara fyrir að taka að sér þær byrðar, er frv. leggur þeim á herðar. Samkvæmt uppástungum landsverkfræð- ingsins yrði árlegur viðhaldskostnaður, er sýslufélögin ættu að greiða, rúm 49,000 kr., þ. e. að segja, þá er allar þær vegagerðir, er frv. gerir ráð fyrir, eru komnar í kring, Og þessi viðhaldskostnaður kæmi mjög mis- munandi niður á hin Jeinstöku sýslufélög, eins og eðlilegt er, því að vegaþörfin er svo mismunandi. Þau héruð, er hafa svo að segja engin not af strandferðunum þarfn- ast einmitt veganna mest, og þessi kostnað- ur kemur harðast niður á þ'eim, t. d. Árnes- sýslu 7500 kr., þá er vegir þar eru komnir í það horf, er frv. gerir ráð fyrir, enda er sú sýsla langhæst með þetta gjald. Næst kemur Húnavatnssýsla með 5300 kr., þá Mýrasýsla með 4630 kr., þá Eyjafjarðarsýsla með 4440 kr., Þingeyjarsýsla með 4330 kr. o. s. frv. Að vísu er ekki enn lagður full- ur helmingur þeirra flutningabrauta, sem frv. tiltekur, svo að viðhaldskostnaðurinn verður fyrst um sinn ekki nándanærri svona hár. Viðhald þeirra vega, sem nú eru lagðir yrði sýslufélögunum því naumast ókleift, en við það má ekki miða, heldur við vegavið- haldið, eins og það yrði, þá er ákvæði frv, eru komin til framkvæmda.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.