Þjóðólfur - 17.01.1908, Page 2
IO
ÞJOÐOLFUR.
€rlenð símskeyíi
til Pjóðólfs.
Kaupm.höfn 10. jan., kl. 3r/a e. h.
Thorefélagið
sendir „Sterling" n beinar ferðir til
Reykjavíkur þetta ár.
Fannfergja.
Snjór hefur stöðvað allar járnbrautar-
ferðir í Danmörku.
Harden ritstjóri
tímaritsins »Zukunft« í Berlín hefur verið
dæmdur í 4 mánaða fangelsi.
13. jan., kt. 1*° e. h.
Samkomutag
um kosningarrétt til sveitarsstjórna er
nú fullgertá milli stjórnarflokksins (Reform-
partiet) og hinna frjálslyndari íhaldsmanna
(Frikonservative).
Fjárstyrkur til skipakaupa.
Fjárlaganefndin leggur til að veita 100
þús, kr. fjárstyrk úr ríkissjóði til að kaupa
skip, er stundi fiskveiðar við Island.
15. jan., kl S e. h.
Holger Drachmann dáinn.
Pólitiskir samningar
viðvíkjandi Eystrasalti (eru að gerast) milli
Þjóðverja, Rússa og Svía. Danir utan við.
*
* *
Hardens-málið,
er svo mikið hefur verið talað um í er-
lendum blöðum nú upp á sfðkastið, þarfnast
frekari skýringa fyrir lesendur Þjóðólfs,
enda hefur mál þettá vakið svo mikla ept-
irtekt, að hin fyrri úrslit málsins, er Har-
den var sýkngður, voru símrituð um all-
an hejín. Af þeim sýknudómi þóttust
mer,'n geta ráðið, að nánustu vinir og
"ráðunautar Vilhjálms keisara væru ekki
aðeins spilltir menn og óhlutvandir, held-
ur væri eitthvað í meira lagi bogið við
siðferði þeirra, því að bað var almennt
álitið, að Harden hefði í tímariti sínu
»Skuld« (»Zukunft«) dróttað svívirðilegum
saurlffisglæp (samræði við karlmenn) að
Kuno v. Moltke greifa, yfirherstjóra Ber-
línarborgar, hinnm voldugasta manni og
vildarvini keisarans. Það styrkti og grun
manna, að Moltke sagði af sér embætti,
eða var látinn segja af sér, eptir að grein
Hardens birtist. Því næst skoraði hann
Harden á hólm, en hann sinnti þeirri á-
skorun engu. Svo var Moltke skipað að
höfða mál gegn Harden,"og úrslit þess urðu
þau, að Harden var sýknaður 29. október
síðastl., en málskostnaður lagður á Moltke.
Harden hafði með vitnaleiðslu sannað,
að „klfkuhringur" örfárra manna hefði
myndazt utan um keisara, og sú klfka hefði
nákvæmlega gætt þess, að enginn »óvið-
komandi« gæti nálgast hann. Á þennan
hátt tókst »klíkunni« að halda öllum áhrif-
unum á keisarann í sínum höndum, og
þau áhrif voru hin verstu og óheppileg-
ustu. Það sannaðist jafnvel, að »klíka«
þessi hefði valdið falli Bismarks 1890.
Menn hugðu, að Harden hefði tekizt að
sprengja til fulls þennan hataða keisara-
hring, og hann varð fyrir stórkostlegum
hyllingaratlotum af lýðnum, í hvert sinn,
er hann kom úr réttinum, en þá er sýknu-
dómur hans varð heyrum kunnur, ætluðu
húrraópin aldrei að linna. Og Harden
var þá dagana ekki aðeins hafinn til skýj-
anna á Þýzkalandi, heldur og vfðsvegar
annarstaðar, og öll stærstu og merkustu
blöð í Norðurálfu fluttu langar skýrslur
um þetta víðfleyga hneykslismál, er næst-
um því snerti hátignina sjálfa, keisarann.
En þessi sigurgleði Hardens varð harla
skammvinn. Moltke fékk saksóknara rík-
isins til að skjóta málimi til æðri réttar,
og höfða þar nýtt einkamál gegn Har-
den fyrir saknæmar aðdróttanir. Með
því varð saksóknarinn aðalsækjandi máls-
ins, en Moltke að eins aukaákærandi
(„Nebenkláger") og öðlaðist við það þau
miklu hlunnindi, að hann mátti sjálfur
bera vitni í réttinum og sverja eið. Har-
den mótmælti svona löguðu málskoti
kröptuglega, en það kom fyrir ekki. Ætla
menn og, að keisarinn hafi vel unnt Har-
den þess að fá skell nokkurn, því að
móðgað hefur hann keisarann sjálfan opt-
ar en einu sinni í tímariti sínu og sætt fang-
elsishegningu fyrir, enda er afarhart tekið
á öllu slíku í Þýzkalandi.
Þetta sfðara mál Hardens hófst um
miðjan desember. Var Harden þá veikur
(hafði legið í lungnabólgu) en kom þó í
réttinn móti ráðum læknis síns, og varði
sig þar eptir því sem unnt var. En það
mátti fljótt sjá, að nú hafði breytzt veður
f lopti, og gengu Harden nú allar vitna-
leiðslur mjög erfiðlega. Eulenburg fursti,
er Harden hafði minnzt miður loflega á í
grein sinni, kom nú í réttinn, og gekk
vitnisburður hans Moltke mjög í vil. Aðr-
ir, er áður höfðu vitnað mjög óþægilega
gegn honum, drógu nú á ýmsan hátt úr
þeim ummælum sínum, þar á meðal hin frá-
skilda konu Moltkes, og báru það fyrir,
að þeir hefðu áður verið blekktir á sakar-
efninu af fylgismönnum Hardens. Har-
den sjálfur hélt þvf fram, (líklega eptir
ráðum vina sinna) að í grein sinni fælust
engar aðdróttanir til Moltke um svívirði-
lega saurlffisglæpi, og það hefði aldrei
verið ætlun sfn að ærumeiða hann, held-
ur að eins að hnekkja keisaraklíkunni
(„Kamarillaen") af pólitiskum ástæðum.
Þótti Harden nú draga mjög inn seglin,
og snerist almenningsálitið nú gegn hon-
um, en með Moltke. Hin löngu réttar-
höld þreyttu Harden svo, jafnlasburða
sem hann var, að hann hné stundum í
ómegin í réttinum, og er þess þá sérstak-
lega getið, að Moltke hafi flýtt sér að
koma honum til hjálpar. Vinir Hardens
réðu honum að leita sætta við Moltke til
að losna við fangelsisvist, er þeir töldu
Harden vísa. Leit svo út um sinn, eptir
því sem sjá má af síðustu blöðum, að
sættum yrði komið á. En það hefur ekki
orðið, því að samkvæmt símskeytinu, sem
Þjóðólfur nú flytur, hefur Harden verið
dæmdur í 4 mánaða fangelsi. — Þá er
Harden kom út frá réttarhöldunum í þessu
síðara máli, tók mannfjöldinn honum með
dauðaþögn, sami mannfjöldinn, semmán-
uði áður ætlaði að rifna af húrraópum og
hyllingarfögnuði fyrir honum. Svona er
veður fljótt að breytast í lopti hjá lýðnum,
eptir því hver verður ofan á í það og
það skipti.
Brœðingur
sá, sem nú er orðinn milli stjórnarflokks-
ins danska og hinna frjálslyndari íhalds-
manna, leiðir að líkindum til þess, að ein-
hver breyting verði á ráðaneytinu bráð-
lega. Og er þá ekki ósennilegt, að Al-
berti fái brottfararvottorð.
Holger Drachmann,
er mun hafa látizt í fyrra dag (sbr. sím-
skeytið) var eins og kunnugt er, höfuð-
skáld Dana, og liggur eptir hann afar-
mikið, bæði í bundnu og óbundnu máli
(ljóðmæli, skáldsögur og leikrit), er flest
lýsir mikilli snilld, enda var hann fyrir
löngu viðurkenndur skáldkonungur Dana.
Hann var á 62. aldursári, (fæddur 9. októ-
ber 1846).
Dáinn
er hér í bænum 14. þ. m, Andrés
Bjarnason söðlasmiður og kaupmaður
51 árs að aldri. Hann hafði fengið heila-
blóðfall næstl. sumar, er hann var á ferð
uppi á Mýrum, lá þar alllengi, en var svo
fluttur hingað suður, og tekinn að hress-
ast svo, að hann var á ferli, en fékk svo
allt í einu nýtt slag og dó þegar. Hann
var greindur maður, ráðdeildarsamur og
vandaður í hvívetna. Hann var tvíkvænt-
ur og lifir slðari kona hans, Guð-
laug Jbnsdóttir (prófasts í Hjarðarholti
Guttormssonar) og ein uppkomin dóttir
af fyrra hjónabandi, en 4 piltar af hinu
síðara.
„Kong Helge"
kom hér snöggvast í fyrra dag snemma
af Vestfjörðum, en hafði hér svo að segja
enga viðstöðu, og hélt þegar til útlanda.
Að vísu átti skipið ekki að koma
hingað. Er það afaróþægilegt, þá er
skipin þjóta þannig burtu næstum fyrir-
varalaust, enda þótt þau hafi enga fast-
ákveðna ferðaáætlun. Thorefélagið ætti
að sjá hag sinn við að láta skip sfn standa
hér við, að minnsta kosti ekki skemur en
hálfan dag. Nú mun naumast hafa verið |
unnt að senda nokkurn nýjan póst til
útlanda með þessu skipi, hvað þá heldur
annað. Frá Dýrafirði var fluttur með því
til lækninga hingað suður Gísli Oddsson
dbrm., faðir Odds Gfslasonar málaflutn-
ingsmanns. Með skipinu var og Páll
Torfason frá Flateyri á leið til útlanda.
Prófastup
settur í Skagafjarðarprófastsdæmi séra
Árni Björnsson á Sauðárkrók.
Bœjarstjórnarkosningar.
Þær eru nýlega um garð gengnar á
Akureyri og Seyðisfirði. Á Akureyri hlutu
kosningu: Jón Kristjánsson ökumaður,
Magnús Kristjánsson alþm., Sigvaldi Þor-
steinsson kaupm. og Vilhelm Knudsen
kjötsali. Á Seyðisfirði voru kosnir 2 menn
í bæjarstjórnina: Hermann Þorsteinsson
skósmiður (endurkosinn) og Jón Jónsson
í Firði (í stað Friðriks heit. Gfslasonar).
Hér í bænum munu kosningarnar fara
fram næstk. föstudag 24. þ. m. Á þá að
kjósa alla bæjarstjórnina, 15 rnenn alls,
samkvæmt hinum nýju lögum. Eru kjós-
endur alls rúm 2800, þar af um 1100
konur. Með því að kvennfólkinu er heim-
ilt að skorast undan kosningu, verða þær
fyrirfram að gefa kost á sér, svo að ugg-
laust sé, að kosningin verði ekki ónýt
vegna neitunar eptir á. Þessar 4 konur
hafa gefið kost á sér í bæjarstjórnina:
ekkjufrú Bríet Bjarnhéðinsdóttir, ekkjufrú
Guðrún Björnsdóttir (frá Sauðanesi), frú
Katrín Skúladóttir (kona Guðm. Magnús-
sonar læknis) og landlæknisfrú Þórtinn
Jónassen. Þessi forréttindi, að geta skor-
azt undan kosningu, hefur kvennfólkið
fram yfir karlmennina, sem í fyrsta skipti
eru skyldir að taka á móti kosningu í
bæjarstjórn, þótt þeim sé þvernauðugum
dembt á fulltrúalistana. Allmargir listar
eru nú þegar fram komnir frá ýmsum
félögum í bænum, og verða eflaust að
lokum mun fleiri, en tala fulltrúa þeirra,
er velja á, svo að útlit er fyrir, að sumir
listarnir nái ekki einu sinni efsta mann-
inum. Annars eru þessi hlutfallskosninga-
lög ekki vinsæl hér í bænum meðal kjós-
enda, þykja óhagfelld og ófrjálsleg á
margan hátt.
„Vaiurlnn"
(slslands Falk«) enn ókominn hingað.
Var þó ferðbúinn frá Höfn 8. þ. m., en
hefur líklega ekki lagt af stað fyr en h.
9. eða 10. þ. m. Yfirmaður hans verður
nú þetta ár Jöhnke, sonur F. H. Jöhnke
admiráls, fyrrum ráðherra.
Mannalát.
Hinn 3. þ. m. andaðist í Hjarðarholti
í Stafholtstungum merkiskonan Ragn-
hildur Ólafsdóttir á 7=;. aldursári.
Hún var fyr gipt Ólafi bónda Ólafssyni
á Lundum (J- 1861) bróður Þorbjarnar
heit. á Steinum, en síðar Ásgeiri dbrm.
Finnbogasyni s.st. (f 1881). Börn henn-
ar af fyrra hjónabandi eru: Ragnhildur
ekkja Péturs Kristinssonar í Engey, Ólaf-
ur búfræðingur í Lindarbæ og Guðmund-
ur bóndi á Lundum, en með síðari manni
sínum átti hún 3 dætur og eru 2 þeirra
í Ameríku, en ein Sigríður, síðari kona
Jóns bónda Tómassonar í Hjarðarholti.
Foreldrar Ragnhildar heit. voru Ólafur
bóndi Sigurðsson í Bakkakoti í Bæjar-
sveit og Oddný Eleasarsdóttir frá Þing-
nesi Þorvarðssonar, en móðir hennar var
Ragnhildur Runólfsdóttir frá Geitabergi
Þorgeirssonar i Arnardrangi Oddssonar,
og var Runólfur bróðir Valgerðar f. k.
Páls klausturhaldara Jónssonar á Elliða-
vatni, sem mikil ætt er frá komin. —
Ragnhildur heit. var mesta atgerviskona
í sjón og raun, og flestum þeim kostum
búin, er kvennmann mega prýða, að vitni
þeirra, er hana þekktu.
S. d. andaðistl merkiskonan V i g d í s
Árnadóttir, kona Brynjólfs Stefáns-
sonar, fyr hreppstjóra á Selalæk á Rang-
árvöllum, 89 ara gömul.
Bankavextlr
eru nú farnir að lækka erlendis. Sam-
kvæmt símskeytum til bankanna hér hef-
ur Englandsbanki fært vextina niður í 6°/.
úr 7%, og eitthvað hafa þýzkir bankar
einnig lækkað vextina. En hér verður
eflaust engin breyting á vöxtunum, fyr en
dönsku bankarnir lækka sig. Islands-
banki var fljótur á sér að hækka vextina*
upp í 8i/2%, jafnvel áður en frétt var um-
hina miklu hækkun í þjóðbankanunv
danska. Vonandi líður ekki á löngu, áð-
ur en hann færir vextina niður. Lands-
bankinn hefur hinsvegar aldrei farið hærra
en upp í 7°/0, og munar lántakendur um
minna en iI/=°/°. er þeir verða að greiða
hærra í Islandsbanka.
Taugaveiki
geisar í Flensborgarskólanum í Hafnar-
firði, og hefur honum verið lokað um
sinn, en kennaradeildin heldur samt áfram,,
því að hún er f öðru húsi. Heimavistar-
híbýli nemendanna í skólahúsinu eru
talin óhæfileg, og þar kom veikin upp.
En ætlun læknis er, að hún stafi af
vondu neyzluvatni, er tekið var úr brunni,
sem venjulega hetur ekki verið notaður..
Hefur brunnurinn nú verið fylltur sam-
kvæmt skipun læknis. Sýkzt hafa 13.
nemendur, að því er síðast hefur frétzt.
Veðurátta
er nú tekin að spillast, allmikil snjó-
korna til sveita, en fremur frostvægt enn
sem komið er.
Stjórnvalda-birtingar.
Sýslumannsembættið í Skaptafellssýslu,
Árslaun 3000 kr. Umsóknarfrestur til 1. marz.
Héraðslæknisembættið í Hafnarfjarðar-, Svarf-
dæla-, Akureyrar-, Axarfjarðar- og Þistilfjarð-
arhéruðum. Laun 1500 kr. í hverju. Umsókn-
arfrestur til 5. apríl. Sömul. er laus aðstoð-
arlæknissýslanin í Isafjarðar- og Akureyrar-
héruðum með 800 kr. launum. Umsóknar-
frestur til 5. apríl.
Umsóknir um 750 kr. styrk til að halda
uppi reglubundnum mótorbátsferðum frá
Borgarnesi upp eptir Hvftá og 250 kr. styrk
til að halda uppi reglubundnum mótorbáts-
ferðum á milli Reykjavíkur, Kjararness, Lax-
vogs og Hvalfjarðar verða að vera komnar
til stjórnarráðsins fyrir 15. apríl næstk. — Iðn-
aðarmenn, er vilja sækja um 1500 kr. styrk
úr landsjóði til náms erlendis, verða að vera
búnir að senda stjórnarráðinu beiðni um það>
fyrir 1. júní næstk., ásamt meðmælum, og
jafnframt verður að geta aldurs umsækjanda,
hverja iðn hann stundi, og á hvern hátt hann
hugsi sér að nota styrkinn.
Bæjarfógetinn í Reykjavík kallar með 12
mánaða fyrirvara frá 20. nóv. f. á. eptir skulda-
kröfum f þrotabúi Benónís kaupmanns Ben-
óníssonar í Reykjavík.
Landsbankinn augl. með 6 mánaða fyrir-
vara frá 4. f. m, glataðar sparisjóðsbækur
nr. 12244 3 — 74 og nr. 10880 — Ö —
130 við sparisjóðsdeild landsbankans.
Bæjarfógetinn í Reykjavík kallar með 12
mánaða fyrirvara frá 23. f. m. eptir skulda-