Þjóðólfur - 22.05.1908, Qupperneq 1
ÓLFUR.
60. árg.
Reykjavík, föstudaginn 22. maí 19 08.
Jts 24.
e|n ðarf r umvar)) ið
og undirtektirnar undir það.
Blaðskeytabandalaginu hér barst svo
látandi símskeyti, ds. Kaupm.höfn 18. maí:
»Flest dönsk blöð með nefndarfrum-
varpinu. Þó segir »VortLand« [lítt merkt,
stækt hægrimannablað]. »í nefndinni hefur
náðst samkomulag um þessar tvær skoð-
anir (Dana og íslendinga), á þann ein-
falda hátt, að skoðun Islendinganna hefur
1 öllum atriðum haft yfirhöndina. Þetta
er heigulskapur, uppgjöf, svívirðing. Eina
vonin er, að íslendingar verði svo dramb-
samir yfir því, hversu vel þeir hafi komið
ár sinni fyrir borð í nefndinni, að alþingi
dirfist að setja ný skilyrði, því að þá
fellur trumvarpið niður og allt situr í
sama horfinu, eins og nú er«. — Útlend
blöð, ensk og þýzk, líta svo á, að ísland
sé (með frumvarpinu) viðurkennt fullveðja
ríki. — Lundborg [ritstjóri í Uppsölum]
segir fsland viðurkennt konungsríki með
fullveldi, og sambandið verði nálega eins
og sambandið var milli Noregs og Svf-
þjóðar. Óuppsegjanlegu málin sameigin-
legu séu hin sömu sem milli Austurrfkis
og Ungverjalands. Þessu muni Þjóðræðis-
raenn óefað taka, og Landvarnarmenn
ættu að gera það líka. — Hagerup sendi-
herra Norðmanna (í Kaupm.höfn) hefur
'eyft að hafa eptir sér, að ísland sé með
fiumvarpinu viðurkennt »suveræn Stat«
(fullveðja, sjálfstætt rfki).
:fí
* *
Það leynir sér ekki í skeyti þessu, er
»Reykjavfk« og »Lögrétta« prentuðu undir
ems í sérstökum fregnmiða, að sendandi
þess (dr. Valtýr) símar þetta til að efla
gengi frumvarpsins hér heima og fá menn
til taka því tveim höndum. Er því
auðséð, að h a n n hefur tekið öldungis
ákveðna afstöðu m e ð frumvarpinu ó-
breyttu, hversu mikill vinningur, sem það
''erður fyrir framgang málsins. Um það
skal engu spáð að sinni. En enginrt skyldi
láta blekkjast af því, þött einhver lítt merk
ofstækisfull hægri manna blöð fari ómjúk-
uni orðum um eptirlátssemi Dana í nefnd-
ínm, þvf að vitanlega er sú alda allsterk
rrieð Dönum, sérstaklegaundirniðri, að sinna
kröfum vorum að engu.ogslaka ekkert á
klónni, ekki einu sinni á pappfrnum. Það
sannar því ekkert um ágæti frumvarpsins
í sjálfu sér oss til handa, þótt slíkum
Stór-Dönum finni.t að oss sé gert of-
hátt undir höfði. Þá vantar nfl. öll skil-
yrði til að skilja stjórnmálabaráttu vora
og höfuðatriði hennar, eru því máii sv0
ókunnugir, að dómar þeirra verða ekki
og geta ekki annað orðið en sleggju-
dómar. Þeir geta ekki skilið, hversvegna
ísland getur ekki látið sér lynda, að vera
að eins amt úr Danmörku, eins og Fær-
eyjar. Þetta á auðvitað við þann flokk
danskra manna, er Stór-Danir kallast
réttu nafm, en ekki Um þáj er unna vjjja
oss sjálfstæðis að meiru eða minna leyti,
og rangt vseri að vanþakka.
Ummæli þeirra Lundborgs 0g Hage-
rups, þótt rétt hermd væru, geta ogheld-
ur ekki verið óyggjandi mælisnúra fyrir
oss til að fara eptir, því að þótt báðir
mennirnir séu skýrir og skilgóðir, þá er
ekki víst, að þeir hafi átt kost á að kynna
sér mál þetta ítarlega, og miklu líklegra,
að svo hafi ekki verið. Auk þess virðast
ummæli Hagerups hermd eptir munnlegu
samtali (við dr. Valtý?), og er því var-
legra að leggja ekki mikið upp úr slíku
að svo stöddu.
Annað símskeyti fékk blaðskeytabanda-
lagið frá fregnrita sfnum í K.höfn (dr.
V. G.) í fyrra dag svo látandi:
»Stúdentafélag samþykkt þökk fylgi
nefndargerðum ig gegn 15. Barist á
tveim fundum«.
Þetta er eflaust svo að skilja, að ísl.
stúdentafélagið í Höfn (f sameiningu við
»Kára«?) hafi eptir harðar rimrnur átveim
fundum vottað nefndarmönnum þökk og
heitið fiumvarpinu fylgi, með 19 atkv.
gegn 15. Félagið hefur þá klofnað svo
að segja í tvo jafna hluti, með og móti
frumvarpinu, ef ekki er tekið tillit til þess,
er frétzt hefur úr annari átt, að 14 hafi
ekki greitt atkvæði, ekki þótt málið nógu
skýrt til að taka ákveðna afstöðu í þvf,
og verður þá auðvitað annað uppi á ten-
ingnum.
Um undirtektirnar hér á landi má segja
það nú þegar með nokkurn veginn vissu,
að þær verða ekki á einn veg. En hvort
meginþorri þjóðarinnar snýst gegn frum-
varpinu eða með því, verður ekki fullyrt,
fyr en allar málsástæður eru kunnar og
menn geta gert sér ljósa grein fyrir hverju
einstöku atriði. Við þá athugun getur
ýmislegt breytzt. En fyrirsjáanlegt er ekki
annað nú sem stendur, en að meiri hluti
þjóðarinnar verði andstæður frumvarpinu,
að minnsta kosti óbreyttu. En hitt j
er alls ekki víst, að andstæðingar þess
verði almennt hlynntir skilnaði, þótt hann
sé nú ofarlega eða efst á baugi í álykt-
unum þeim, sem einstök félög hafa þegar
tekið í málinu og frétzt hefur um. En
vitanlega hafa slíkar ályktanir alltakmark-
aða þýðingu, samþykktar, eins og opt
vill verða, að lítt hugsuðu máli og í fijót-
ræðisúkafa. Það getur orðið annað uppi
á teningnum, þá er kólnar í kolunum. —
Stjórnmálafélag Seyðisfjarðar kvað fyrst
upp úr með allsvæsnum ummælum um
frumvarpið, og taldi skilnað sjálfsagðan,
er konungssamband eitt væri ófáanlegt.
Hér í Reykjavík hefur félag Landvarnar-
manna »Landvörn« og »Stúdentafélagið«
samþykkt ályktanir í þá átt, að þeim
þætti frumvarpið slæmt, og réttast væri
að taka skilnaði, ef hann væri í boði.
En hins vegar hefur oss verið skýrt frá,
að flokksstjórnir Landvarnar- og Þjóð-
ræðismanna hafi ákveðið að taka enga
fasta afstöðu í málinu, fyr en það væri
nægilega gagnrýnt og öll málsskjölin
komin oss í hendur. Annars skiptist mót-
spyrnan gegn frumv. og fylgi við það alls
ekki eptir hinum gömlu stjórnmálaflokkum.
Austfirðingar virðast vera einna ákveðn-
astir nú þegar að hafna frumvarpinu.
Segir svo í
Talskeyti ýra Seydisfirði /<?. waí.
Allur Austfirðingafjórðungur móti milli-
landanefndarfrumvarpinu, það er til
hefur spurzt. »Austri« eindreginn. Ókunn-
ugt enn um Eskifjarðarblaðið.
Sunnmýlingar hafa skorað á Jón Bergs-
son á Egilsstöðum og Jón frá Múla, að
gefa kost á sér. Þeir taldir líklegir að
ná kosningu. — Jón frá Múla eindreginn
á móti gerðum nefndarinnar.
Talskeyti frá Akureyri s. d.
segir svo:
Samþykkt í einu hljóði á fjölmennum
fundi í félaginu »Skjaldborg« 17. maí:
»Félagið »Skjaldborg« á Akureyri telur
frumvarp millilandanefndarinnar byggt á
allt öðrum grundvelli, en kröfur Þing-
vallafundarins. Fáist þeim ekki fram-
gengt, telur það ekki annað fyrir hönd-
um, en skilnað«.
Af Reykjavíkurblöðunum virðast »Lög-
rétta« og »Re}'kjav(k« harðánægð yfir úr-
slitunum og þakka, »Lögrétta« fyrir munn
Jóns Ólafssonar, sem nú er risinn þ a r
upp, og »Reykjavík« fyrir munn einhvers
stjórnmálaspekings, sem er að ónotast við
Blaðamannaávarpið og Þingvallafundinn,
sem hvorutveggja má þó eflaust þakka að
miklu leyti, að frumvarpið er þó ekki
lakara en það er, og að desemberyfirlýs-
ingin nafnkunna var ekki gerð að hyrn-
ingarsteini þess. Úr því að farið var að
rifja þetta upp nú, sem óþarft var og
annað nær fyrir hendi, var sæmra að
segja söguna alla og segja satt.
Skattanefndin,
sem setið hefur hér á ráðstefnu síðan í
marzmánuði, lauk fundahöldum um miðj-
an þ. m. Ekki hefur hún þó algerlega
lokið störfum sínum enn, og er ráðgert,
að hún komi saman aptur á Akureyri 1
byrjun ágústmánaðar. Eptir því, sem ein-
stakir nefndarmenn hafa látið uppi, er
nefndin samt þegar komin að nokkurn
veginn ákveðinni niðurstöðu, og því lítið
annað eptir, en að leggja smiðshöggið á
tillögurnar og ganga frá nefndarálitinu.
Þessar eru helztu breytingarnar, sem
nefndin hefur þegar orðið ásátt um:
Nefndin vill afnema ábúðar- og lausa-
fjárskattinn, húsaskattinn og tekjuskattinn, |
en setja í þeirra stað 3 nýja skatta, fast-
eignarskatt, eignarskatt og tekjuskatt.
Fasteignaskattur greiðist af öllum
fasteignum, jafnt 1 sveitum sem kaupstöð-
um og jafnt af lóðum sem húsum, og auk
þess af skipum. Er hann 3%° (3 af þús-
undi) af virðingarverði eignanna (eða
helmingi hærri en húsaskatturinn er nú).
Ennfremur eru þinglesnar veðskuldir ekki
dregnar frá áður en skatturinn er lagður
á, svo sem nú á sér stað um húsaskatt-
inn. Skatturinn hvílir á eiganda fasteign-
irinnar, en af leiguliðum, sem nú greiða
ábúðarskatt, geta eigendurnir krafizt end-
urgjalds fyrir þann gjaldalétti, er afnám
ábúðarskattsins hefur f för með sér. 10.
hvert ár verða allar fasteignir á landinu
1 virtar upp til peningaverðs af nefndum,
sem til þess eru skipaðar, og við þær
virðingar verður skatturinn miðaður. Fell-
ur þar með í burtu gamla jarðamatið og
hundraðatalið.
Eignarskattur er i°/oo (1 af þús.)
af allri skuldlausri eign. Aptur á móti á
tekjuskattur af eign ekki að vera hærri
en tekjuskattur af atvinnu.
T e k j u s k a 11 u r er lfkur því sem
tekjuskattur af atvinnu er nú. Þó er lág-
mark skattskyldra tekna fært niður úr
1000 kr. 1 300 kr., og greiðist V20/0 af
þeim tekjum, sem þar eru í milli, en
aptur á móti er ekki einungis dreginn frá
allur reksturskostnaðúr, áður tekjurnar eru
taldar til skatts, heldur einnig framfærslu-
eyrir handa börnum skattgreiðanda, sem
eru yngri en 14 ára, 50—100 kr. fyrir
hvert. Af öðru þúsundinu (1000—2000 kr.)
greiðist 1% eins og nú, og eins hækkar
um V*0/0 það sem greiðist af hverju þús-
undi, sem við bætist, unz skatturinn er
orðinn 6% (nú verður hann ekki hærri
en 4°/o).
Framtalsskýlda á að hvíla á öllum gjald-
endum eignar- og tekjuskatts.
Ætlazt er til, að bæði fasteignaskattur-
inn og eignar- og tekjuskatturinn séu
hreyfanlegir, þannig að hækka megi
hundraðsgjaldið (%) eða lækka eptir at-
vikum á hverju fjárhagstímabili.
Verðlagsskráin fellur í burtu með lausa-
fjárskattinum, en þau gjöld, sem enn eru
ákveðin eptir landaurum, reiknast eptir
meðalverði sfðustu 10 ára.
Stimpilgjald er nýr skattur, sem
nefndin leggur til að leggja á öll skjöl,
er verðmæti hafa, og fer hann hækkandi
eptir verðhæð skjalsins, nema af ýmsum
smærri skjölum, svo sem umsóknum og
leyfisbréfum, er gjaldið fast.
Erfðafjárskattinn vill nefndin
hækka. Skattur af arfi, sem fellur til
eptirlifandi hjóna eða afkomenda, hækkar
úr %% UPP f 1%, af arfi til foreldra og
niðja þeirra úr %°/o upp f 6%, og af
arfi til annara fjarskyldari úr 4%% upp
í 12%.
Aðflutningsgjald vill nefndin
hækka nokkuð frá því sem nú er (með
tollaukanum), nema á sykri; tollinn á
honum vill nefndin lækka. Við útflutn-
ingsgjaldinu á aptur á móti ekki að
hreyfa neitt.
Með þessum breytingum gerir nefndin
ráð fyrir, að tekjur landsjóðs muni auk-
ast um 240 þús. kr. á ári. Þessi tekju-
auki fram yfir það, sem nú er, er ætlazt
til að skiptist þannig niður á hina ein-
stöku skatta:
Beinu skattarnir . . . .121 þús. kr.
Aðflutningsgjald .... 86 — —
Stimpilgjald................30 — —
Erfðafjárskattur .... 3 — —
240 — —
Auk landsjóðsskattanna hefur nefndin
einnig athugað sveitargjöldin og
sóknargjöldin. Leggur hún til, að greiða
skuli til sveitar fasteignarskatt, tekjuskatt
og eignarskatt, eptir sömu reglum sem til
landsjóðs, og verða þá aukaútsvörin lægri
eða hverfa sumstaðar jafnvel alveg.
Á sóknargjöldunum vill nefndin
gera gagngerða breytingu, afnema öll nú-
verandi gjöld til prests og kirkju, en setja
í þeirra stað nefskatt, 1 kr. 50 au. á hvern
fermdan safnaðarmann til prests, en 75
au. til kirkju. En þessi gjöld eiga að
vera hreyfanleg, svo að sóknarnefndir geti
fært þau upp eða niður fyrir hvern söfn-
uð eptir atvikum.