Þjóðólfur - 19.06.1908, Side 3
ÞTOÐOLFUR.
105
ins sDrengurinn minn«. sem hér á landi
hefur leikinn verið, Redvers Buller
nafnkunnur enskur hershöfðingi, ogyfirmað-
ur alls Bretahers í upphafi ófriðarins við
Búa, en settur frá herstjórn vegna mis-
taka og ófara, ennfremur dr. M. V.
F a u s b ö 11, fyrrum kennari í indversk-
um málum við Kaupm.hafnarháskóla, vls-
indamaður allfrægur (f. 1821).
Jón Kristjánsson,
laeknisnemi, hefur dvalið í Kaupmanna-
höfu í vetur og tekið fullnaðarpróf með
beztu (1.) eink. í nuddlækningum (massage)
og sjúkraleikfimi hjá dr. Clod-Hansen yfir-
lækni við nuddlækningadeildina á Friðriks-
spítala. Hann mun taka bráðlega til starfa
hér í bænum.
Verzlunarblaó
eru þeir Grímúlfur H. Olafsson og Ólafur
Ólafrson verzlunarmenn hér í bænum farnir
að gefa út. Blaðið kemur út 1 sinni á mán-
uði og kostar 3 kr. árg. Það er í sama broti
og „Óðinn" og fyrsta blaðið er 20 bls.
Heiðurssamsæti
héldu Reykdælir fyrverandi sóknarpresti
sínum, Guðmundi próf. Helgasyni, að Deild-
artungu sunnud. 31. f. m., að viðstöddum
nær 100 manns. Veður var hið blfðasta.
Sól skein í heiði og íslenzka náttúrufegurðin
blasti fyrir augum aðkomenda með öllum
sínum töfraljóma. Mátti með sanni segja,
að Fjallkonan gamla, jökulkrýnda, breiddi
fagnandi faðminn móti gestunum, og biði
þá velkomna, og að hún væri þeim sam-
taka í því, að gera þeim daginn ánægju-
legan. — Að líðandi hádegi var gengið til
sætis í hinum stóra samsætissal, sem skip-
aður var margsettum bekkjaröðum. Voru
þá veitingar bornar fram, og er gestirnir
höfðu gert þeim góð skil, þá stóð upp úr
sæti sínu Ingólfur hreppstjóri Guðmundsson
á Breiðabólstað, og hélt tölu fyrir minni
heiðursgestsins. Lýsti hann með vingjarn-
legum orðum veru hans og starfsemi í þessu
bygðarlagi. Þar næst lýsti hann því yfir,
að innan fárra daga yrði flutt inn á heimili
hans vandað skrifborð, gjöf frá Reykdælum,
sem lítil þakklætisviðurkenning fyrir alla
starfsemi hans og góða framkomu í þessu
byggðarlagi. Þar næst var sungið kvæði,
sem Kristleifur bóndi Þorsteinsson á Stóra-
Kroppi hafði ort fyrir minni heiðursgestsins.
Að því búnu talaði heiðursgesturinn sjálfur;
fór hann mjög hlýjum þakkarorðum um vel-
vild þá, er sér væri sýnd við þetta tækifæri.
Jafnframt þakkaði hann fyrir alla góða sam-
vinnu, árnaði sveitinni og héraðinu allra
heilla. Bað gestina að bera kveðju sína
öllum þeim af sveitarmönnum, sem ekki
væru þar viðstaddir. — Því næst talaði Árni
Þorsteinsson bóndi á Brennistöðum fyrir
minni Reykdæla. Minntist hann á hina
fornu höfðingja og landsnámsmenn þessarar
sveitar o. s. frv. Þá var sungið kvæði, sem
Kr. Þ. hafði ort fyrir minni Reykdæla. —
Eptir það drógu menn að sér nýtt lopt undir
berum himni litla. stund. Þá var aptur
gengið til sætis og drukkið kaffi. Þá talaði
fyrir minni íslands Sveinn Árnason á Stóra-
Kroppi. Minntist á náttúrufegurð landsins,
og að hve miklu leyti íbúarnir hefðu lagt
fram sína krapta, til að bæta og prýða
landið, sem til skamms tíma hefði verið
næsta lítið. Jafnframt minntist hann á, hversu
mikil betrandi áhrif ættjarðarkvæði J. H.
hefðu haft á (slenzka þjóðlífið. Sungið á
eptir hið alkunna kvæði „Eldgamla ísafold".
Síðar um daginn talaði Árni Sveinbjarn-
arson frá Manitoba ( Canada, sem hér var
á kynnisferð meðal frændfólks síns, og var
þar staddur. Talaði hann um þær fram-
farir, er hér hefðu orðið hina síðustu ára-
tugi. Jafnframt lét hann ánægju sína í ljósi
yfir íslandsferð sinni og hinum góðu við-
tökum, er hann hefði haft heima. Hafði
hann orð á að flytja hingað alkominn síðar,
þótt hann gæti ekki sagt neitt ákveðið um
það að svo stöddu. Þá hélt heiðursgestur-
inn enn á ný tölu og kvaddi alla samsætis •
gestina með innilegu þakklæti. — S(ðast
talaði Jón Hannesson ( Deildartungu. Meðal
annars bað hann velvirðingar á því, sem
ábótavant hefði verið með útbúnað og við-
tökurnar í heild sinni. Var þv( mótmælt,
að í nokkru væri ábótavant, enda létu veit-
endur sér annt um það, að allt væri sem
fullkomnast, og var ekkert til þess sparað.
Á milli ræðuhalda söng sön ;flokkur undir
forustu organleikara Bjarna Bjarnasonar frá
Hurðarbaki ýms kvæði, svo sem „Hvað er
svo glatt", „Ó, fögur er vor fósturjörð" m. m.
Áður en samsætinu var slitið, var sungið
kvæðið „Kveðja til séra Guðm. Helgasonar",
eptir ,Kr. Þ.
Nokkrir utansveitarmenn tóku þátt í sam-
sætinu ásamt konum sínum, og voiu þeir
þessir: Hjörtur Snorrason skólastj. á Skelja-
brekku, héraðsl. Jón Blöndal í Stafholtsey,
Björn bóndi Þorsteinsson í Bæ, Jakob bóndi
Jónsson á Varmalæk, Guðm. bóndi Auð-
unsson á Skálpastöðum. — Samsætið stóð
til kl. 8 e. m. Er það óefað, að Ijúfar sakn-
aðarendurminningar hafa hreyft sér í brjóst-
um margra sveitarmanna, sem áttu nú á
bak að sjá sínum nýtasta manni, þeim manni,
sem veitt hafði mörgum hollum straumum
inn ( félagslíf Reykdæla og sem sjálfur var
fyrirmynd og frömuður margra nytsemdar-
fyrirtækja og framfara. Til dæmis þess
hve hann lét sér annt um hag og framgang
þessarar sveitar til síðustu stundar, sem
hann dvaldi þar, á vel við að geta þess, að
á málfundi að afloknu manntalsþingi á
Sturlureykjum 1. þ. m. hreyfði liann því,
að sett væri á fót kornforðabúr í sveitinni,
svo að bjarga mætti fénaði manna, ef harð-
indi bæru að höndum. Bauð hann að leggja
fram frá sjálfum sér 200 kr. að gjöf til
styrktar þessu fyrirtæki. Mun ekki ólíklega
til getið, að einhverjir Reykdælir feti í
spor hans og styðji að fyrirtækinu með
fjárframlögum og góðum ráðum.
í sambandi við þetta vil eg geta þess, að
Hálssveitungar héldu séra Guðm. samsæti
næstliðið haust. Var það haldið í Stóra-
Ási. í því tóku þátt öll hjón í Hálsahreppi.
Færðu þeir honum fingurgull að gjöf. Sýnir
það bezt hinar almennu vinsældir, sem hann
hefur notið í sóknum sínum.
8/6 ’o8. S. Á.
Minni séra Guðm. Helgasonar
í samsæti ! Deildartungu 31. maí ’o8.
Vér komum hér að kveðja
vorn kæra sóknarprest.
Það gekk oss enn að óskum,
að eiga hann nú að gest,
svo honum mættum helga
vorn hinnsta þakkarvott,
sem merki þess vér myndum,
hve margt hann sýndi’ oss gott.
í lífsins beztum blóma
hann bústað valdi sér,
sem fornan frægðarljóma
hins fróða Snorra ber.
En árin tvisvar tíu
og talin þrjú við bætt,
í hafið tímans horfna
nú hafa síðan flætt.
Og frá þeim fyrstu árum
og frarn á þennan dag
Hann var með oss á verði,
að vernda okkar hag;
Með sannleik fyrir sjónum
að samningsmálum gekk,
og átti á öllum mótum
( öndveginu bekk.
Hann kenndi fögur kvæði
og flutti heilagt mál,
með ást og trú í anda
og eld og krapt í sál,
svo hver og einn varð hrifinn
og hreyfing kom á blóð,
og til var ekkert eyra,
sem opið þá ei stóð.
Svo geymum vel og virðum
hans viturlegu orð,
sem miklu fleiri muna,
en mætast hér við borð.
Hann er sá heiðursgestur,
sem hjörtu okkar vann.
Og náði sæmd með sigri,
því syngjum: Lifi hann !
K. Þ.
Minni Reykdæla.
Sungið í samsæti í Deildartungu 31. maí ’o8.
I þessum hreppi’ vér hlutum skjól
og hér varð okkar saga.
Þar vermdumst fyrst af vonarsól
um vora beztu daga.
En nú þótt skúrir skyggi á
og skinið sé að baki,
er nokkuð minni þörfin þá,
að þjóðin starfi, vaki ?
Að vaka, er okkar vilji einn,
að vinna, hugur mestur.
en þar í götu er þungur steinn,
oss þekking næga brestur,
að breyta þýfi í græna grund,
svo grasið vélar sníði.
að klæða holtin laufgum lund
með litarskrúði og prýði.
Öll jörð er hér af frjósemd full,
um fargið þarf að losa,
því hver ein þúfa geymir gull,
þótt gráum klæðist mosa.
Með brýndan plóg að brjóta reit
hver bóndasonur læri,
eg veit að okkar varma sveit
þeim verkalaunin bæri.
Og ef þeir láta hug og hönd
að heillaverkum starfa.
Þá grárra feðra gleddist önd,
er gagnið sæju að arfa.
En mest er vert að bræðraband
þá byndi einum huga,
því til að frelsa fósturland
má félagsandinn duga.
Dánarfregn.
Blaðið „Heimskringla" 1 Winnipeg hefur
óskað, að Þjóðólfur birti eptirfarandi dánar-
minningu:
Guðrún Grímsdóttir, háöldruð ekkja
og þrotin að heilsu, andaðist að heimili sínu
hjá Grími syni sínum, hinn 21. febr. síðastl.,
( Gardar bygð, N. Dak. Hún var vel greind
dugnaðar- og ráðdeildarkona í bezta lagi.
Fædd ( Sfðumúla í Mýrasýslu og ólst upp
hjá foreldrum sínum og flutti með þeim að
Grímsst. í Reykholtsdal. Foreldrar hennar
voru Grímur Steinólfsson bóndi á Svíra og
Klett Jónssonar á Hvanneyri og kona Gríms
Guðrún Þórðardóttir prests að Lundi í Borg-
arfjarðarsýslu Jónssonar að Möðruvöllum í
Kjós og Flekkudal Jónssonar prests á
Reynivöllum. Áttu þau hjón alls 15
börn, og komust 11 af þeim til fullorðins
ára og var elzt þeirra Magnús prestur Gríms-
son á Mosfelli, dáinn 1860. Öll þau systkin
vel greind og mannvænleg.
Guðrún sál. giptist frá jforeldrum sínum
um tvítugsaldur yngismanni Þórði Árnasyni
á Bjarnastöðum í Hvítársíðu, velgáfuðum
þjóðhagasmið. Byrjuðu þau þar búskap með
næg efni, og fluttu þaðan að Stað við Hrúta-
fjörð og svo þaðan að Dalgeirsstöðum í Mið-
firði. En til Ameríku fluttu þaú 1873, og
Ientu þá í Milwaukee. Missti hún þar mann
sinn eptir mánaðar veru, —- þoldi ekki vinn-
una og loptslagið, var bilaður fyrir brjósti.
Þá um haustið flutti hún með börn sín út í
norska bygð, 80 mílur út á land, og var þar
til 1877. Þá flutti hún til Shewano, íslenzka
nýlendu í Wisconsin, og svo 1880 til Gardar
í N. Dakota, hvar hún tók land ásamt Grími
syni sínum, og hafa þau búið þar síðan
fyrst við lítil efni, en þó lengst af við all-
góð efni. Var hún nú fyrir nokkrum árum
hætt við búskap, en hann giptur og búnað-
ist ágætlega. Kona hans er Ingibjörg Snæ-
björnsdóttir.
Börn hennar eru þessi, sem uppkomust öll
í Ameríku:
1. Grímur, velmegandi bóndi í Gardar
bygð (áður nefndur).
2. Þórður læknir, fyr ritstjóri „Vínlands" í
Minneota, Minn., hálærður gáfumaður.
3. Hjörtur, rafmagnsfræðingur (einn hinn
mesti í Ameríku), í Chicago, stóreigna- og
rafmagnsverkstjóri þar. Giptur íslenzkri konu.
4. Árni, bóndi í Californíu, giftur.
5. Guðrún, ógpft, og var hjá móður sinni.
6. Ingibjörg, ekkja í Gardarbygð.
Öll mannvænleg og vel gefin.
Kappglima
grísk-rómversk fer fram í Bárubúð á
mánudaginn, milli Jóhannesar Jósepssonar
og Svía nokkurs, Gottfrids Thoren frá
Stokkhólmi, er boðið hefur Jóhannesi út,
og þykist hafa glímt í Svíþjóð, Bandaríkj-
unum og á Englandi.
Fimdaboð.
Með því að við undirritaðir höf-
um ákveðið að gefa kost á okkur
til þingmennsku fyrir Árnessýslu
við kosningarnar 10. sept. næstk.,
boðum við hér með kjósendur í
kjördæminu til viðtalsfunda, sér-
staklega um sambandsmálið, á þess-
um stöðum:
Við Ölfusárbrú (fyrir Flóa og
Ölfus) laugard. 27. júni kl. 9 árd.
Á Stokkseyri (eða Eyrarbakka)
sunnud. 28. kl. 4 siðd.
Á Húsatóptum á Skeiðum mánu-
dag 29. kl. 12 á hád.
Á Yatnsleysu í Biskupstungum
þriðjud. 30. kl. 12 á hád.
Á Stóruborg í Grímsnesi mið-
vikud. 1. júlí kl. 1 síðd.
Reykjavík í júní 1908.
Hannes Porsteinsson.
Sigurður Sigurðsson.
Bjöm Árnason
gullsmiður
(frá ísafirði) smíðar á
Laugavegi £»
allskonar nýja
íi’llll‘V’VÍpÍ.
Cggzrt @laassen
jlrréttariálaflutningsiaJiir.
Pósthússtræti 17. Venjulega heima kl.
10—11 og 4—5. Tals, 16.
úr nýsilfri og járni, beizliskeðjur,
peniugabuddur, hárgreiður, kamb-
ar o. m. 11. nýkomið, selt m j ö g
ó d ý r t í Austurstræti 1.
ÁSG. G. GVNNLAUGSSON,