Þjóðólfur - 23.10.1908, Qupperneq 2
178
ÞJÓÐOLFUR.
*>
bót á fjárhagnum, og ef nauðsyn krefur,
að setja milliþinganefnd í það mál.
H Fundurinn skorar á þing ogstjórn,
að vinda bráðan bug að því, að ráða bót
á peningavandræðunum í landinu.
4. A ðflu tningsbann:
S Fundurinn óskar, að þingmennirn-
ir styðji af fremsta megni að því, að
þingið semji frumvarp til laga um bann
gegn aðflutningi áfengra drykkja, er síð-
an verði borið undir atkvæði þjóðarinnar.
H Samhljóða tillaga.
5. Samgöngumál:
a. Talsími: S F'undurinn krefst
þess, að á fjáraukalögunum fyrir 1909
verði veitt ‘fé tilj talsímalínu frá Reykjavík
austur 1 Rangárvallasýslu, sem verði lögð
algerlega á landsjóðs kostnað, og að
aukalínur verði styrktar af landsjóði að
% hlutum.
H Samhljóða ályktun.
b. Vegamál: N 1. Fundurinn skor-
ar á alþingi að breyta vegalögunum í þá
átt, að létta af sýslunni viðhaldi brautar-
innar yfir Ölfusið og Flóann, fresta út-
tekt annara vega, þar til í júnímánuði
1910, og loks, að sýslunefndin hafi heim-
ild til að útnefna úttektarmann með land-
sjóðsverkfræðingnum, en þeir velja sér
oddamann.
H Samhljóða.
2. S Fundurinn skorar á þingið, að
veita fé til flutningabrautar upp Grímsnes.
H Samhljóða.
3. N Fundurinn skorar ennfremur á
þingið, að veita fé á aukatjárlögum 1909
til þess að afstýra skemmdum af vatns-
ágangi á brautina upp Breiðumýri, með
því að gera vatninu tryggan farveg til
sjávar.
c. Hafnarmál: S Fundurinn skor-
ar á alþingi, að veita ríflegt fé, allt að
6000 krónum, til þess að fá vanan og
hæfan hafnfræðing til þess að rannsaka
hafnarstæði austan fjalls, einkum milli
Þjórsár og Ölfusár.
H Fundurinn skorar á þingið, að veita
nægilegt fé til að fá hæfan mann til að
rannsaka hafnarstæði í Arnessýslu.
d. Skipaferðir: H Fundurinn
skorar á þingið, að koma á beinum og
tfðum samgöngum milli Reykjavíkur og
Englands, með gufuskipum er hafi kæli-
rúm.
e. Járnbrautir: H Fundurinn
er hlynntur því, að járnbraut verði lögð
úr Reykjavík austur í Árnessýslu, ef stjórn-
in kemst að hagkvæmum tilboðum í því
máli, án þess að lagningin baki land-
sjóði ókleyfan kostnað.
6. Búnaðarmál:
a. -S Fundurinn skorar á alþingi, að
semja frumvarp til laga um áveituna yfir
Flóann, er síðan verði lagt fyrir búendur
á áveitusvæðinu til umsagnar. Og enn-
fremur, að veitt verði fé til frekari und-
irbúnings því verki.
b. S Fundurinn skorar á þingið, að
veita ekki minna fé til búnaðarfélaga og
smjörbúa en að undanförnu.
H Samhijóða.
c. S Fundurinn skorar á þingið, að
veita fé til Búnaðarsambands Suðurlands,
hlutfallslega við önnur búnaðarsambönd.
H Samhljóða.
d. S Fundurinn skorar á þingið, að
skipa ullarmatsinenn á helztu ullarútflútn-
ingsstöðvum landsins.
H Samhljóða.
e. H Fundurinn skorar á þingið, að
semja lög um heimild fyrir sýslunefndir
til að gera samþykktir um skyldu-fjár-
baðanir.
7. Menntamál:
S Fundurinnn skorar á þingið, að
styðja að því, að lýðskóli komist sem
fyrst á fót á hentugum stað í sveit fyrir
Árness- og Rangárvallasýslur, og veita fé
til hans.
H Fundurinn skorar á þingið, að
styðja að því með fjárframlagi, að lýð-
skóli komist á sem fyrst í Árnessýslu, ef
völ er á álitlegum manni til forstöðu.
8. Stjórfiars krárbreyting:
S Verði stjórnarskrárbreyting gerð á
næsta þingi, leggur fundurinn sérstaka á-
herzlu á, að konungkjörnir þingmenn
verði afnumdir, og að sæti þeirra verði
skipuð þjóðkjörnum þingmönnum.—Fund-
urinn er og meðmæltur aðskilnaði rlkis
og kirkju, og almennum kosningarétti.
H Fundurinn vill: a) afnema kon-
ungkjörnu þingmennina, b) veita kosn-
ingarétt öllum fullveðja mönnum: konum
og körlum.
9. AIþingiskosningar:
S Fundurinn er mótfallinn frumvarpi
stjórnarinnar frá síðasta þingi um kjör-
dæmaskipting og hlutfallskosningar.
H Samhljóða, með þessum viðáuka:
Fundurinn telur nauðsynlegt að breyta
kjördegi og færa hann til 1. nóvember.
10. Embœttastofnanir og launahœkk-
anir:
S Fundurinn er mótfallinn stofnun
óþarfa embætta og launahækkunum em-
bættismanna.
Flestallar ályktanirnar á báðum þess-
um fundum voru samþykktar í einu hljóði,
eða því sem næst.
Stórbruni á Oddeyri.
Aðfaranótt 18. þ. m. brunnu á Oddeyri
þrjú hús: verzlunarhús Sigurðar kaupm.
Fanndals, veitingahúsið »Hótel Oddeyri«
og geymsluhús, er því tilheyrði. — Kldur-
inn hafði komið upp í verzlunarhúsinu
kl. 2 um nóttina, og hafði verzlunarmað-
ur setið um kveldið við spil með nokkr-
um mönnum í herbergi inn af búðinni,
og er talið hugsanlegt, að eldur úr vindli
eða vindlingi hafi valdið brunanum. —
Engu var bjargað úr verzlunarhúsinu,
nema verzlunarbókunum; en eptir brun-
ann fundust þær hvergi, og er talið lík-
legt, að þær hafi aptur lent í eldinn.
Skaði Sigurðar Fanndals er talinn mikill,
og höfðu innanstokksmunir hans verið
óvátryggðir, sömuleiðis annars manns,
Péturs Jónssonar, er leigoi í húsinu. —
Húsið hafði Sigurður keypt fyrir 2 árum á
12 þúsund krónur, en var að eins vátryggt
fyrir 8 þús.; vörur hans voru vátryggðar
fyrir 14 þús. krónur.
»Hótel Oddeyri«, eign Önnu Tómas-
dóttur ekkju Óiafs Jónssenar veitinga-
ingamanns á Oddeyri, var nýttogvandað
hús og vátryggt íyrir 40 þús. krónur með
húsbúnaði öllum, og er talið afar lágt. i
Skaða hafði folk, er bjó þar, orðið fyrir |
miklum, því það missti allt sitt óvátryggt.
Ennfremur var hús J. Havsteens etazráðs
í hættu, og var borið úr því húsbúnaður
og vörur, er skemmdust mikið. Varð
hann og fyrir miklu tjóni af eldinum. —
Eru enn eigi komnar greinilegar skýrslur
um hvað skaðinn nemur miklu.
Bókasafn Alþýðulestrarfél. Rvíkur
í Pósthússtræti 14 (hús Jóns trésm, Sveins-
sonar) er nú opið á ný til atnota alla
virka daga kl. 5—8 siðd.
Bókasafnið er nú orðiðrúmnoo bindi,
þar á meðal eru flestallar íslendingasög-
ur, F’ornaldarsögur Norðurlanda, Noregs-
konungasögur, fjöldi af skáldsögum og
skáldritum, Iðunn öll, Huld öll, sögusafn
Péturs biskups, Sögusafn Þjóðólfs og sögu- I
safn Þjóðviljans, Ný félagsrit, Tímarit !
Bókmenntafél., Andvari, Dýravinurinn, Al-
manök Þjóðvinafél., Safn til sögu íslands,
Mannkynssaga P. M., Alþingistlðindi, ýms- |
ar ljóðabækur og leikrit, æfiminningar
ýmsra merkra manna og þess utan margs-
konar fræðibækur, yngri og eldri. —Líka
befur bókasafnið talsvert af dönskum bók-
um, sem eru margar bæði fræðandi og
skemmtandi, þar á meðal er mikið af
Kringsjá o. fl.
Alþýðulestrarfélagið var stofnað 1902
fyrir tilhlutun F'ramfarafél. Rvíkur og for-
göngu bankastj. Tryggva Gunnarssonar.
Voru þá fyrst hafin frjáls samskot til að
byrja með og nokkrir málsmetandi menn
gerðust meðlimir fél. með tveggja kr. árs-
tillagi og því næst gáfu ýmsir bæjarmenn
fél. bækur, svo það gæti sem fyrst orðið
að notum.
Fiestar og beztar bækur hafa gefið
Tryggvi Gunnarsson, Magnús Steph. lands-
höfð., Ásgeir Sigurðsson kaupm., Sigurð-
ur bóksali Kristjánss., Sigurður Jónss. bók-
bind., Sigurður Erlendsson bóksali, Bjarni
Jónsson kennari, Pétur Zóphóníasson rit-
stj., Bjarni Sæmundss. cand. mag., Þórð-
ur Ólafsson múrari, Bogi Th. Melsteð,
ungfrú Sigríður Sigurðardóttir, frú Pálfna
Magnúsd., ungfr. Ólafía Jóhannsd., Björn 1
M. Ólsen skólastj., Einar Gunnarss. ritstj.,
Skúli Thoroddsen ritstj., Bókmenntafél.
(Rvíkurdeildin), Þjóðvinafé!., Verzlunar-
mannafél. og Iþaka. Ymsir aðrir hafa
lfka rétt félaginu hjálparhönd með bóka-
gjöfum. Allar þessar bókagjafir eru virð-
ingarverðar fyrir að styðja jafn-þarflega
stofnun.
Meðlintir félagsins með árstillagi (2 kr.)
hafa verið og eru enn alt of fáir til þess að
það geti borið sig af eigin rammleik og stað-
izt óuntflýjanlegan kostnað, bæði húsaleigu
(sem er stærsti þátturinn, yfir 200 kr.), og
rnargt annað, sem er allt með sparnaði og
af skornum skamti af peningaþröng, enda
hafa bókakaupin til skamms tíma verið í
smáum stfl. Tombólur voru haldnar fyrstu
árin féiaginu til styrktar, sem hjálpuðu til
þess, að það hefur getað varizt skuldum.
Úr þessu hefur nú talsvert raknað síð-
an félagið fékk styrk úr landsjóði og bæj-
arsjóði, enda hafa bókakaupin þar af
leiðandi aukizt nýlega að mun.
Heiðraðir bæjarhúar ættu að gefa þessu
bókasafni alvarlegan gaum sér til fróð-
leiks og skemmtunar, og með því móti,
að sem flestir vildu færa sér það í nyt,
gæti því fljótt vaxið fiskur um hrygg til
mun meiri bókakaupa, en verið hefur, og
yfir höfuð til þess, að geta meir og meir
orðið að tilætluðum notum, samkv. lögum
fél., nefnil »til þess að auka þekkingu og
menntunarfýsn alþýðu í Reykjavík«.
N. Á.
Aðflutningsbannið.
I Snæfellsnessýslu voru 176 með, en253
á móti, og f Austur-Skaptafellssýslu voru
56 með, en 61 á móti. Hafa þannig alls
4645 verið með banninu, en 3181 á
móti. Eru því tæpir 3/s (59,36%) með
þvf. — Ófrétt er enn úr Norður-ísafjarðar- 1
sýslu.
Brunar.
Bærinn Höfði í Grunnavík brann ný-
lega til kaldra kola; þar með hlaða og
þrjú kýrfóður af heyi. Allt var óvátryggt.
Fólk bjargaðist. (»Vestri«).
Þess hefur gleymzt að geta, að aðfara-
nóttina 10. f. m. brann gistihúsið Hlíð-
arendi á Seyðisfirði til kaldra kola.
Það var áður eign Stefáns Steinholts kaup-
manns, og hét þá Steinholt, en nú átti
það Gunnar Jónsson. Húsið, innanstokks-
munir og vöruleifar var vátryggt fyrir
11,150 krónur.
Heiðursmerki.
Hallgrímur biskup Sveinsson hafði 19. |
f. m. orðið kommandör af 1. flokki.
Heiðursgjaflr
úr styrktarsjóði Kristjáns 9. hafa þeir
Halldór Jónsson umboðsmaður f
Vík f Mýrdal og Ólafur Finns-
son á Fellsenda í Döium fengið, 140
kr. hvor, fyrir framúrskarandi dugnað í
jarðabótum.
Gagnfrasðaskólinn
á Akureyri. — Þar hefur Þorkell Þor-
kelsson cand. mag. verið settur 1. kenn-
ari, og séra Jónas Jónasson á Hrafnagili
2. kennari.
Mannalát.
Hinn 29. f. m. andaðist á ísafirði ekkjan
Guðrún Ágústína Vedholm rúm-
iega sjctug (f. 16. ágúst 1838). Hún var
dóttir Sigurðar Tómassonar prestsl Grfms-
ey, giptist 18. ágúst 1865 Jóni Vedholm
hafnsögumanni á Isafirði. Einkason þeirra,
Viggo verzlunarmaður á Isafirði, er og
dáinn fyrir nokkrum árum.
„Ceres“
kom hingað norðan og vestan um land
16. þ. m. og fór aptur í morgun vestur og
norður um land. Með henni kom hing-
að snögga ferð Jón Stefánsson ritstjóri
»Norðra«, en til langdvalar ekkjufrú Anna
Vigfússon (fædd Schiöth), nii gipt Kle-
mens Jónssyni landritara.
Árni umboðsmaður
í Höfðahólum kom hingað til bæjarins
19. þ. m. með »Ingólfi« úr Borgarnesi og
dvelur hér í bænum nokkra daga.
Smjörsalan.
Faber í Newcastle skýrir frá því, að
smjörsendingar, er komu héðan með »Cer-
es«, hafi selst á 91—96 kr. hver 100 pd.
(þ. e. 91—96 a. pd.). Hann segir, að ís-
lenzka smjörið sé að ná betra og betra
áliti á enska markaðinum, og horfurnar
á sölu þess næsta ár séu allgóðar, svo
framarlega sem skipaferðum sé dálítið
betur hagað, þannig, að smjörið komi til
Englands á föstudögum og laugardögum,
svo að það geti verið sem allra nýjast á
mánudagsmarkaðinum, en nú verði það
stundum að bfða nær viku til söludags
og sé þá kominn að því einhver afkeirn-
ur og olíubragð. Það er nauðsynlegt, að
bendingar þessar séu teknar til greina,
því að nú sem stendur eru það einmitt
peningarnir fyrir smjörið, sem bjarga
sunnlenzku bændunum úr allra verstu
peningakröggunum. Væri sú tekjugrein
ekki, væru margir sannarlega illastaddir,
eins og peningaástandinu í landinu nú er
háttað. Það er því sannarlega tilvinn-
andi, að gera eitthvað til að . loka ekki
lfka þessari einu lind.
Dáinn
er 12. þ. m. Eggert Sigfússon
prestur að Vogsósum. Hann var á leið
heim til sfn frá Krísuvík, kom við í Her-
dísarvík og kenndi þar lasleika, en 'nélt
þó áfram með fylgdarmanni þaðan, en
hné dauður niður, er hann kom heirn
á túnið í Vogsósum. Hann var fæddur
á Eyrarbakka 22. júní 1840, son Sigfúsar
trésmiðs Guðmundssonar, Ólafssonar Sig-
fússonar Þorlákssonar prests í Glæsibæ,
Sigfússonar, en móðir Eggerts prests var
Jarþrúður Magnúsdóttir. Hann kom í
skóla 1855, og var útskrifaður þaðan 1861
með 2. eink. og af prestaskólanum 1863
með 2. eink. Vígður var hann 29. ágúst
1869 að Hofi á Skagaströnd, fékk Klaustur-
hóla 1872 og Selvogsþing 1884. — Esgert
prestur var mjög^einkennilegur maður og
sérlundaður, og batt eigi bagga sfna
sömu hnútum sem aðrir samferðamenn hans.
Lítt gaf hann sig að almennum málum,
og varíhlutunarlítill um annarahag. Dreng-
ur var hann góður og embættisverkum
sínum gegndi hann svo, að ekki varð fundið
að. Hann var ókvongaður alla æfi og
átti engin börn. — Þeir Jón Hjaltalfn
skólastjóri á Akureyri voru jafngamlir, og