Þjóðólfur


Þjóðólfur - 23.10.1908, Qupperneq 3

Þjóðólfur - 23.10.1908, Qupperneq 3
ÞJOÐOLFUR. 179 bekkjarbræöur alla tíð gegnum lærða skólann. Þeir önduðust og báðir í sömu vikunni og lifðu lengst þeirra manna, er útskrifuðust 1861. Eptirmæli. Hinn 1. ágúst slðastl. andaðist, eins og getið hefur verið um í Þjóðólfi, Magn- ú s Magnússon óðalsbóndi á Laugar- vatni í Laugardal. Hann var fæddur að Stokkalæk á Rangárvöllum 1840. Faðir hans Magnús Guðmundsson á Stokka- læk, drukknaði í Þorlákshöfn á 1. hjú- skaparári stnu, og fæddist Magnús son hans eptir lát hans og bar nafn hans; en kona Magnúsar á Stokkalæk var Vigdís Guðmundsdóttir frá Haugum í Stafholts- tungum Ólafssonar og Ragnhildar Brands- dóttur systur (sammæðra) Steinunnar Sveins- dóttur konu Guðmundar Guðmundssonar verzlunarstjóra á Búðum. Faðir Magn- úsar á Stokkalæk var Guðmundur á Keld- um Magnússon frá Núpakoti undir Eyja- fjöllum, Einarssonar á Leirum Oddssonar I Steinum Einarssonar. Bróðir Guðmund- ar á Keldum var Þorsteinn 1 Núpakoti faðir Tómasar prests á Sauðárkróki, Sig- rlðar konu séra Bergs Jónssonar í Valla- nesi, Agnesar konu séra Benedikts E. Gudmundsen 1 Vatnsfirði, Guðlaugar konu séra Páls J. Matthiesen í Arnarbæli og þeirra fleiri systkina. Með Vigdísi móður sinni fluttist Magn- ús heitinn að Austvaðsholti á Landi, þá er hún giptist bóndanum þar, Jóni Þor- steinssyni (3. maður hennar var Jón Björns- son í Austvaðsholti), og reyndist hann stjúpsyni slnum sem bezti faðir. Vorið 1863 byrjaði Magnús heit. búskap í Bjalla á Landi, og gekk þá að eiga Arnheiði dóttur merkishjónanna Böðvars Tómas- sonar og Guðrúnar Halldórsdóttur á Reyð- arvatni. 1872 flutti Magnús að Holts- rnúla á Landi, en 1880 að Úthlíð í Bisk- upstungum. Þar missti hann Arnheiði konu sína haustið 1887. Höfðu þau átt II börn, dóu 2 þeirra í æsku og hið 3. uppkomið, en hin lifa, öll hin efnilegustu. Meðalþeirra eruBöðvar hreppstj. áLaugar- vatni og Brynjólfur bóndi í Nesjum í Grafningi. Vorið 1888 flutti Magnús heit. frá Úthlíð að Laugarvatni og gekk að eiga Ragnheiði Guðmundsdóttur, ekkju Eyjólfs bónda Eyjólfssonar, er þar hafði búið, og lét eptir sig 10 börn, sum í ómegð. Var þar ærið að starfa fyrir Magnús heitinn, með því að ala önn fyrir 20 börnurn þeirra beggja hjónanna, en það tókst á- gætlega. Bjó hann. jafnan rausnarbúi og var mesti bjargvættur sveitar sinnar. Síð- astl. vor lét hann af búskap eptir 45 ára fyrirmyndarstarf í bændastöðu, enda var þá æfidagur hans að kveldi kominn. — Hann var dugnaðarmaður og þrekmaður með afbrigðum, svo að hann mun hafa átt fáa sína jafningja, og að þvi skapi var áhuginn mikill og eljan óþreytandi. Mátti óhætt telja hann tveggja maka til allrar vinnu. Hann var þéttur á velli og þétt- ur í lund, fáskiptinn hversdagslega og ekki margmáll, en einarður og hreinskilinn, og sagði hispurslaust meiningu sína, er því var að skipta. Hann hataði leti og ó- mennsku, enda urðu fæstir að slæping- um, er undir stjórn hans stóðu. Hann bjó jafnan mjög góðu búi, þrátt fyrir afar- mikla ómegð, og var manna hjálpfúsastur og greiðviknastur, enda leituðu hans margir. Hann var vel greindur maður °g að öllu drengur hinn bezti, einn af þessum fáu, góðu, gömlu íslenzku bænd- um með ósvikinn merg, traustur og áreið- anlegur um allt, sem bjarg, er ekki bifast, en enginn yfirlætismaður eða fordildar, vildi heldur vera en sýnast. Betur að ís- land ætti marga bændur af sömu gerð. H. Að Hóli í Lundarreykjadal andaðist hinn 15. ágúst síðastl. Jóhannes bóndi Jónsson. Hann var fæddur í Deildar- tungu 1832. Bjuggu þar foreldrar hans, Jón bóndi Jónsson bónda sama staðar Þorvaldssonar, og Guðrún Böðvarsdóttir frá Skáney, dugnaðarkona mikil. Er ætt þessi vei kennd 1 Borgarfirði og víðar.— Árið 1864 fór Jóhannes að búa á Hóli, og giptist þá Kristfnu Björnsdóttur Korts- sonar á Möðruvöllum í Kjós Þorvarðs- sonar í Brautarholti, og Helgu Magnús- dóttur prests í Steinnesi Árnasonar bisk- ups á Hólum Þórarinssonar. Bjuggu þau Jóhannes á Hóli alla tfð slðan, unz Krist- ín andaðist árið i8g8; brá hann þá búi og dvaldist síðan hjá Birni syni sínum á Hóli. — Jóhannes. sál. var auðnumaður; má þar fyrst og fremst telja til, að hann kvæntist þeirri manngæðakonu, að fáar getur slíkar; enda var hann henni vel unnandi og eptirlátur. Var heimili þeirra frábært að gestrisni og þeir dagar voru fáir, að eigi væru þar gestir fleiri eður færri; var öllum veittur beini með stalcri alúð, og aldrei þeginn eyrir fyrir. Eigi að síð- ur var Jóhannes lengstum annar helzti bú- höldur sveitar sinnar; gerði þó fjárkláð- inn og harðindin eptir 1880 honum sem fleirum á þeim árum, ærið þungt fyrir fæti. En með fyrirhyggju tókst honum að halda risnu sinni og heimilisháttum alla tlð. Börn þeirra hjóna, er upp komust, eru: Björn óðalsbóndi á Hóli, Helga, kona Jóns skipstjóra Árnasonar í Heimaskaga, Ástríður, kona séra Magnúsar Þorsteins- sonar í Selárdal, Guðrún, ekkja eptir Lopt Loptsson frá Bollagörðum skipstjóra; og eru þau öll vönduð og vel látin, og Rann- veig, á Hóli, vanheii. St. G. Laust prestakall. Staðarhóll í Dalaprófastsdæmi (Staðarhóls-, Skarðs- og Garpsdalssóknir, samkvæmt lögum nr. 45, 16. nóvbr. 1907 um skipun prestakalla). Veitist frá fardögum 1909 með launakjör- um eptir nýju launalögunum. Umsóknarfrestur til 15. desbr. næstk. Veðurslíýrsluágrip frá 16.—22. okt. 1908. okt. Rv. Bl. Ak. Gr. Sf. Þh. ió. + 5,8 + S.i + 4,1 + 4,° + 10,0 b 7,o U- ~r 3,2 + 4,i + 3,4 + i,5 + 9,2 -10,8 18. + 2,1 -r- 2,0 -j- 0,5 -+ 2,8 + 5,8 - 9,7 19- + 7,7 + 2,3 + 3,4 + 6,6 + 9,2 + 10,3 20. + 9,4 + 5,8 + 8,3 + 6,5 -f 8,3 + 9,5 21. + 7,7 + 10,0 + 7,° + 8,o +13,5 + 9,5 22. + 7,6 + 9,4 + 9,2 + 5,5 +12,9 + n,5 Sigurð H. Sulbransen Arkiíekt — Bygmeðter. Torvet 9 n!. Tlfn 6379. Kristiania. Leverer Tegninger til alle Slags Huse og Opförelse af alle Slags Bygninger i Mur som Træ til rime- lige Priser. Kommissionær for Kjöb af alle Slags Bygningsartikler. kemur út einu sinni í mánuði. Mynd- ir í blaðinu við og við. Flytur ýmsan verzlunarfróðleik. — Eina verziunar- blaðið á landinu. Allir kaupmenn og verzlunar- menn œttu að kaupa « Verzlunarblað Islands «. Utanáskript: » Verzlunarblaðíslands«. Pósthólf 96. Reykjavík. Til sölu góð jörð í Grímsnesi. Íiísli Þorbjarnarson. Förmingarkort —Trúlofon- arkort — Brúðkaupskort og öll önnur tækifæriskort. Nýkomið mikið úrval. Fást í Þingholtsstræti 18. Svanlaug Benediktsdóttir. Manudaginn 26. október kl. 4 síðd. verða seldar í Breið- fjörðshúsi hækur Guðjóns sdl. Guðmundssonar rdðnnauts Búnaðarfelags Islands. Eg undirskrifaður Valdimar Guð- mundsson frá Vallholti lýsi því hér með yfir og geri mönnum kunnugt, að eg með þessari auglýsingu skipti um heiti á eignar- og ábýlisjörð minni Skinnþúfu í Seiluhreppi. Landeign sú, er hér um ræðir, var áður á tímum greind í tvö býli Skinn- þúfu og Fornuvelli. Nefni eg hana hér eptir Vallanes, sem mér þykir bæði viðkunnanlegra og betur viðeig- andi, þar sem meginhluti landsins er valllendi, og hjartaskákþess Fornuvalla- nesið, er Héraðsvötn mynda. Vallanesi io. okt. 1908. H. Valdimar Guðmundsson. Kensla. Undirritaður tekur að sér að kenna byrjendum ensku og dönsku gegn mjög vægri þóknun, — 50 aura um tímann -—. Þeir sem kynnu að vilja sinna þessu eru beðnir að semja við mig hið fyrsta. Mig er að hitta á Lauga- veg 70 frá kl. 12—3. Jön Leví. VeiðiYopn. Góð og áreiðanleg verzlun, sem vill taka að sér sölu á þessari vöruteg- und ásamt öllu því, er til veiðiútbún- aðar og skotfæra heyrir, getur komizt að samningum með því að snúa sér til Villutn F'ónss. Vaabenfabrik, Aar- hus, Danmark. S krautritun ! á kort og bækur, svo og að draga ! fangamörk og heil orð, eptir óskum, j tek eg að mér. Heima kl. 4—7 ! síðd. alla virka d. nema laugard. Lækjarg. 12 B3 Inng. frá Vonarst. Steindór Björnsson. I getur fer^gið atvinnu nú þegar í vefn- | aðarvörubúð hér í bænum, með 30 | króna kaupi um mánuðinn. Tilboð I merkt 300 sendist afgreiðslu blaðsins. Úrval af beztu SaiMYélum hjá jllíagnúsi jjenjammssyni, Veltusundi 3. Nokkrar nýjar undir- og yfir- sængur til sölu með afslætti hjá undirrituðum til I. nóv. úóR. túóRannasson, Bergstaðastrætí li A. L.INS og að undanförnu kaupi eg allar íslenzkar þótt þær seu brúkaðar, og borga þœr samstundis með peningum. c3óR. c^óRannessonj Bergstaöastr. II A. Trœlast. Et af Trondhjems större Trælast- firmaer söger Agent for Island. An- sögninger med Referencer sendes under Mærke »Trælast« til Höijdahl Ohmes Annonce Expeditions Filial, Trondhjem. Lifsafl, og þar með framlenging mannsæf- innar, — sem í flestum tilfellum er alt of stutt, — fæst ineð því að neyta daglega hius heimsfræga heilsubitt- ers Kína-li'fi-elixírs. lArampt og taugaveiklun. Eg undirrituð, sem í mörg ár hef verið þjáð af krampa og taugaveikl- un og þeim öðrum lasleika, sem því eru samfara, og árangurslaust leitað margra lækna, votta með ánægju, að eg hef fengið ósegjanlegan bata við það að neyta hins fræga Kína- lífs-elixírs frá Waldemar Petersen, og finn, að eg má elcki án hans vera. Agnes Bjarnadóttir. Hafnarfirði, íslandi. jflóöursýKi og lijartveikí. Eg undirrituð hef í mörg ár ver- ið þjáð af móðursýki, hjartveiki og þar af leiðandi tauga-óstyrkleik. Eg reyndi Kína - lifs - elixír Waldemars Petersens, og þegar eg var búin að neyta að eins úr 2 flöskum, fékk eg bráðan bata. Olafía Guðmundsdóttir. Þurá í Ölfusi, íslandi. Steinsótt. Eg undirritaður, sem í 14 ár het verið þjáður af steinsótt og árang- urslaust leitað margra Iækna, reyndi síðastliðið sumar hinn heimsfræga Kína-lífs-elixír Waldemars Petersens, og með því að neyta 2 matskeiða af honum daglega, er eg nú orðinn hressari og glaðari en um langan undanfarinn tima og get stundað störf min bæði úti við og heima. C a r 1 M a r i a g e r, Skagen. <5ætiö þess vel, að hver ilaska sé með mínu löghelgaða vörumerki, sem er Kínverji með glas í hendi og VFP* í grænu lakki á flöskustútnum.

x

Þjóðólfur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.