Þjóðólfur - 01.01.1909, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 01.01.1909, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR. 3 €rlenð símskeyti til Pjóðólfs. Kaupmannahöfn 30. des. ‘ Stórþjófnaður. Stolið var úr Hróarskeldudómkirkju mörgum gull- og silfurkrönzum. íslands- kranzinn kyr. Þjófarnir óhandsamaðir. Jarðskjálftar og manntjón. Stór landskjálpti á Suður-Ítalíu og' Sik- iley. Mörg þúsund rnanna farizt. Mess- ina hálfeydd. Ymsir bæir stórskemmdir. * * I kjallarahvelfingum Hróarskeldukirkju eru, eins og kunnugt er, grafkapellur allra Danakonunga síðan á 16. öld, og miklar gersemar þar saman komnar, bæði í krönzum úr gulli og silfri og öðru skrauti, á'líkkistum konunganna. Er allfátítt, að stolið sé slikum menjum, og má geta nærri, að Dönum þykja það firnXmikil og leggja sng mjög í líma að ná*í sökudólg- ana, áður en þeir íá brætt upp konungs- kranzana. Það var þó heppiiegt, að gull- sveigur sá, er ísland gaf á kistu Krisijáns konungs 9., lenti ekki í höndum^ þessara pilta. Það er að vísu engin nýlunda, að heyra urn jarðskjáipta og manntjón af þeim á Suður-ítalfu, þvi að það verður opt með fárra ára millibili. En þessi jarðskjálpti, er skeytið getur ura, virðist vera einhver hinn voðalegasti, er þar hefur komið um iangan aldur, eins og sést af því, að mörg þúsund manna hafa farizt. Mess- ína er bær á Sikiley við Messínasund með um 150,000 íbúa. Helmingur þessa bæjar féll einnig í rústir í jarðskjáiptun- um miklu, er gengu á Suður-Ítalíu 1783, sama árið og eldurinn kom upp í Skapt- árjökii og ári fyrir jarðskjálptana miklu á Suðuriandsundiriendinu 1784. Um sama ieyti og jarðskjálptinn mikli var í Lissa- hon 1755 gaus Katla,"og fylgdu því gosi jarðskjálptar. Hefur svo optar verið, að jarðskjálpta-umbrot f Suður-Evrópu hafa verið samhliða eða rétt á undan jarð- skjáiptum á íslandi. En vitanlega er lít- ið á því að byggja og engin ástæða að kvíða jarðskjálptum hér von bráðar vegna þessara umbrota á Suður-Ítalíu nú. cSléaífundur »Ekknasjóðs Reykjavíkur« verður haldinn i Good-Templarahúsinu laugardaginn 2. janúar kl. 4 e. m. Aríðandi að félagsmenn mæti. Rvik 80. des. 1908, Giinnar Gnnnarsson. Þakkarávarp. Öllum þeim mörgu, sem næstliðið sumar réttu mér hjálparhönd í hinni löngu og þungu banalegu míns elsk- aða eiginmanns, Stefáns Pálssonar, er and- aðist 25. sept. sl., votta eg hér með mitt hjartanlegasta þakklæti. Mjög margir bændur í sveitinni létu vinna hjá mér meira og minna. Sérstaklega vil eg þó þakka hr. Bjarna Bjarnasyni bónda í Hörgs- dal. fyrir það, að hann gekkst fyrir því að mér yrði hjálpað, og lét sjálfur vinna hjá mér. Auk þess kom hann optlega til okk- ar og reyndi ávalt að styrkja mig og hug- hreysta og var boðinn og búinn okkur til hjálpar, þegar mest iá við. Þessum heiðursbónda, og öllum öðrum, sem á einn eða annan hátt hafa rétt mér hjálparhönd á þessum mínum þungbæru sorgarstundum, votta eg enn mitt hjartans þakklæti og bið guð að launa þeim alt það gott, sem þeir hafa mér auðsýnt. Múlakoti á Síðu, í nóv. 1908. Ragnhildur Ólafsdóttir. Veiðivopn. Góð og áreiðanleg verzlun, sem vill taka að sér sölu á þessari vöruteg- und ásamt öllu því, er til veiðiútbún- aðar og skotfæra heyrir, getur komizt að samningum með því að snúa sér til Villurn Fónss. Vaabenfabrik, Aar- hus, Danmark. Leikfél. Reykjavíkur. Lög'g'ilding' vatnsveitustarfsmanna. «r Þeir, sem óska aó fá löggildingu lil að leggja vatns- æðar í hús inn frá götuæðnnnm, sendi undirrituðum umsókn um það fyrir 4. jan. næstkomandi. Borgarstjóri Reykjavíkur. 28. des. 1908. c?áll Cinarsson. rerðui' leikinn í Iðnaðarinanna- húsinu lanitarcl. ’-£. og suunud. 3. Jan. kl. 8 síðdcgis. Fjármark: Kristófers Kristóferssonar, Þverá í Hörgslandshreppi (V. Skaptafells- sýslu) er: Tvírifað í stúf hægra; tvístigað framan vinstra. Þverá í nóv. 1908. Kr. Kristófersson. Grand llotol liilson, Köben- havn, mælir með herbergjum sin- um með eða án fæðis i veitinga- húsinu fyrir mjög vægt verð. NR. íslenzkir ferðameim fá sér- staka ívilnun. Ársvinnu við »Slippinn« getur duglegur járn- smiður fengið. Semja má til 3. janúar n. k. við Tryggva Gunnargsoii. 3.—9. jan. 1909 verða samkomur haldnar i Betel. sem hér segir: Sunnudaginn kl. 61/* síðdegis. Vikudagana hina kl. 8 síðd. Allir eru hjartanlega velkomnir. D. Östlund. hef eg nú stærsta úrval al: Hvitum og mislitum Kvennsokkum, hvít- um Uudirlífum og hvítum Millipilsum, Silkiklútnm, Skinnhðnzkum hvitum og mislitum fyrir konnr og karla, Hvitum og misl. Kvenna- og Karla-Slipsum, Hvítum og misl. Samkvæma-vestnm úr silki og »flöjeli«, Hvitum og misl. Manchettskyrtum, og svörtum og röndótt- um »15all«-sókkum fyrir karlmenn. BRAIJNS verzlun „Hamborg-11. Aðalstræti 9. Talsími 41. saumar allskonar karlm.fatnaði, hetur Iðunnardúka á boðstólum. — Einnig ýms önnur fataefni og allt sem til fata þarf. Vönduð vinna, og allt sniðið eptir því sem hver óskar Hvrrgi ódýrara í bœnum. Reykjavík 8/io ’o8. Suém. Sigurésson, klæðskeri. Sannar og góðar Sög"ur rt 1 n er ómótmælanlega bczta og langódýrasta U A ll liftryggingarfélagið. — Sérstök kjör fyrir bindindismenn. — Langhagfeldustu kjör fyrir sjó- menn. A-llir ættu að vera líftrygðir. Finnið að máU aðalumboðsm. D. 0STLUND. Rvik. af albragðs skepnunt óskast i »Dýr.i\iniiiin(, sem séu sendar íyrir 1. april n. k. ti) Eigandi og ábyrgðarm.: Hannes Þorsteinsson. Tryggva Gunnarssonar. Prentsmiðjan Gutenberg. Áramótaguðsþjónusta i BETEL: Nýársdag kl. 6V2 síðdegis. Allir velkomnir. D. Östlund. Hinn 9. desember 1908 var dregið urn fortepiano það, sem haldið var lot- terí á til ágóða fyrir „Ekknasjóð Reykjavíkur" og kom upp töluseðill- inn 657. Handhafi þessa seðils gefi sig fram tyrir síðasta marz 1909. í umboði stjórnarinnar. Gunnar Gunnavsson. Jör óin H n a u s a r í Húnavatnssýslu og hálfur Sauðadalur er til kaups og ábúðar í næstu far- dögum. Jörðinni þarf ekki að lýsa; hún er, eins og kunnugt er, ein af beztu jörðum sýslunnar ; slægjur og hagaganga óþrjótandi, talsverð sil- ungsveiði rétt hjá túninu, og fleiri góðir kostir. Skilmálar aðgengilegir. Semja má við Steingrím Guðmundsson snikkara í Reykjavík, fyrir 1. febr. n. k. 99 »Já, mælti móðurbróðir minn. »Belcher hefur lofað að æfa yður undir hina væntanlegu kappþraut, ef þér fallizt á það«. »Eg er yður sannarlega mjög þakklátur*, mælti Jim vingjarnlega. »Ef frændi minn vill ekki sjálfur æfa mig, þá vil eg engan fremur en Belcher*. »Nei, Jim! mælti Harrison. »Eg verð hjá þér nokkra daga, en Belcher kann betur lagið á þessu en eg. Hvar ætlið þið að dvelja?« »Eg held, að hentugasti staðurinn væri í »George« í Crawley. Eruð þér samdóma því? »Tá, öldungis«, svaraði Jim. »Þér eruð þá í minni þjónustu frá þessari stundn, skiljið þér það?« mælti Belcher. »Eg borða sama mat og þér og sef jafnlengi, og þér verðið að eins að gera það, sem yður er sagt. Vér megum engri stundu sleppa, því að Wil- son hefur þegar æft sig að nokkru leyti heilan mánuð. Þér sáuð, að hann bragðaði ekki vín í kveld«. »Víð skulum báðir fylgja yður til Crawley á morgun*, mælti Harrison. »Góðar nætur hr. Charles*. »Góða nótt, Roddy*. mælti Jim. »Þú kemur sjálfsagt til Crawley ogheina- sækir mig. Gerirðu það ekki?« Eg lofaði því alls hugar feginn. »Þú verður að vera varkár, frændi«, mælti móðurbróðir minn, er við ók- um heimleiðis. »Á bernskudögunum hættir mönnum rajög við, að láta leiðast fremur af tilfinningum sínum en skynseminni. Jim Harrison virðist vera mjög heiðvirður, ungur maður, en þá er á allt er litið, er hann ekki annað en að- stoðardrengur hjá járnsmið og hnefleikamannsefni. Það er geysibreitt djúp stað- fest milli hans og nákomins ættingja mins, og þú verður að láta hann verða þess varan, að þú sért honum fremri«. »Hann er elzti og kærasti vinurinn, sem eg á í þessum heimi«, svaraði eg. »Við drengirnir vorum ávallt saman, og hafði annar aldrei þau launmál, er hinn fékk ekki að vita. Eg veit ennfremur ekki, hvernig eg ætti að sýna yfir- burði mína, því að mér er svo vel kunnugt um, að hann er mér fremri«. »Hum!« sagði móðurbróðir minn þurlega, og það var síðasta otðið, sem haan sagði við mig það kveldið.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.