Þjóðólfur - 04.06.1909, Side 1
61. árg
Reykjavík, föstudaginn 4. júnf 1909
JS 24.
Sigurður Daníelsson á Kolviðar-
hóli óskar eptir duglegum og rösk-
um dreng yfir sumartímann. —
Upplýsingar íást hjá Árna Einars-
syni, Laugaveg 28.
Silfur-iirfesti hefur tapazt á hvíta-
sunnudag milli Kolviðarhóls og
Reykjavíkur. Skilist til Gunnars
Einarssonar kaupm. Rvík, eða Sig-
urðar Daníelssonar á Kolviðarhóli.
jslenzkt háskölinn
fyrirhugaði verður í fyrstunni ekki nema
háskóla-vísir, en svo hafa flestir háskólar
verið í upphafi í öðrum löndum. Það
er ekkert einkennilegt fyrir íslenzka há-
skólann, þótt hann byrji í smáum stýl.
Vér vonum, að hann eigi fyrir höndum
að eflast svo og magnast, að hann geti
hlutfallslega þolað samjöfnuð við sam-
kynja stofnanir í öðrum löndum. Og því
verður alls eigi mótmælt, að í öllu, sem
Islenzk fræði snertir, hlýtur íslenzki há-
skólinn að standa öllum háskólum í
heimi framar. Og smátt og smátt mundi
hann geta bætt við sig góðum kennslu-
kröptum í öðrum almennum, sérstökum
vísindagreinum, t. d. í náttúrusögu, efna-
fræði, eðlisfræði, málfræði, stærðfræði o.
s. frv. En að sinni getum vér ekki von-
ast eptir stofnun kennaraembætta við há-
skólann í þessum greinum, að minnsta
kosti ekki öllum. En þegar undirstaðan
er fengin, þá er hægra að byggja ofan á,
eptir því sem efni þjóðarinnar Ieyfa. Og
það er enginn efi á, að þá er stundir
líða þykir þjóðinni vænt um þessa stofn-
un sína og verður fús til að hlynna að
henni eptir föngum. Að vísu verður
nokkuð erfitt uppdráttar í fyrstu, sérstak-
lega meðan ekkert háskólahús er reist,
því að þótt háskólinn geti tekið til starfa,
án þess sérstök bygging sé til handa hon-
um, þá nýtur stofnunin sín ekki til fulls,
fyr en hún getur haft alla bækistöð sína
i sérstöku húsi. Fyrst í stað mætti Ifk-
lega notast við efra loptið í almenna
menntaskólanum, en auðvitað væri það
að eins til bráðabirgða, óviðunandi til
frambúðar.
Aðalkostnaðurinn við háskólastofnun-
;ina er vitanlega bygging háskólahúss, þvf
að öðru leyti er kostnaðaraukinn sára-
lítill fram yfir það, sem nú er við hinar
'þrjár menntastofnanir, er vér höfum:
iprestaskólann, lagaskólann og læknaskól-
ann. Og úr því að lögin eru nú $am-
þykkt af þinginu og konungsstaðfesting
þeirra viss nú þegar, þá er engin ástæða
til að Iáta þau liggja lengi í salti, án
þess að koma til framkvæmda,- Það ætti
líka mjög vel við, eins og stungið hefur
verið upp á, að háskólinn íslenzki gæti
tekið til starfa 1911, á 100 ára afmæli
Jóns Sigurðssonar, er fyrstur manna varð
til þess að hreyfa háskólahugmyndinni í
þjóðskóla-uppástungu sinni 1845. Og
þótt stofnsetningin væri ekki hnitmiðuð
við afmælisdaginn 17. júní, þá mætti
kalla að svo væri, þá er fé væri veitt til
skólans frá 1. júlí s. á. og kennslan
byrjaði 1. okt. Aukafjárhæð þá, er þyrfti
til viðbótar (fyrir heimspekisdeildina) þann
árshelming, mætti veita á aukafjárlögum
1911. Lengur en til 1914 eða 1915
mætti svo byggingin naumast dragast, ef
ekki væri veitt fé til hennar á fjárlögun-
um 1912 og 1913, sem æskilegast væri.
Fyrir landsjóð skiptir það hér um bil
engu, hvort féð er veitt árinu fyr eða ár-
inu síðar, en stofnunina getur skipt það
miklu að vera sem skemmstan tíma leigu-
liði ( óhentugu húsnæði. Jafnvel þó það
muni vera hlutverk hins svonefnda bygg-
ingarsjóðs að reisa háskólahús, þá má ef-
laust lengi bíða eptir þv(, að hann hafi
nægilegt fé til umráða, svo að útgjöldin
lenda í raun réttri á landsjóði. Sam-
kvæmt áætlun stjórnarinnar í ástæðunum
aptan við háskólafrumvarpið, er gert ráð
fyrir, að sæmilegt háskólahús, sem þar er
nánar gerð grein fyrir, mundi kosta
158,500 kr., og fór stjórnin þvf fram á,
að alþingi veitti allt að 160 þús. kr. til
að reisa háskólahús, en þingið sá sér það
ekki fært, fjárhagsins vegna, að þessu
sinni.
Þá er háskólamálið er nú leitt til sig-
urs eptir langa baráttu, væri ástæða til
að rifja nú upp aðalatriðin í sögu þess
hingað til, en bæði hefur það verið gert í
Þjóðólfi áður, í tveimur allítarlegum grein-
um (1895 og 1907) og auk þess nokkr-
um sinnum á alþingi og í nefndarálitum,
svo að almenningi mun það nokkuð
kunnugt. En síðar munum vér ef til vill
taka mál þetta til nánari athugunar, eins
og það horfir nú við, samkvæmt lögum
þeim, er alþingi samþykkti, og birtum
vér þau í heild sinni hér á eptir, bæði
lögin um stofnun háskólans og lögin um
laun kennaranna.
1. gr. í Reykjavík skal setja á stofn há-
skóla. Skólinn nefnist „Háskóli íslands".
2. gr. í háskólanum skulu fyrst um
sinn vera þessar fjórar deildir: guðfræðis-
I deild, lagadeitd, læknadeild og heimspekis-
deild. Koma hinar þrjár fyrstu í stað
hinna æðri mentaskóla, sem nú eru, presta-
skóla, lagaskóla og læknaskóla. En í 4.
deildinni skal kenna heimspeki, íslenzka
málfræði, sögu íslands og sögu íslenzkra
bókmenta að fornu og nýju.
3. gr. Stjórn háskólans er falin rektor
háskólans og háskólaráði.
Háskólaráðið helur úrskurðarvald 1 öll-
um þeim málum, er snerta starfsemi há-
skólans, samkvæmt reglugerð, sem kon-
ungur setur. Háskólaráðið fer með undir-
búning þeirra mála, er leggja á fyrir kon-
ung, löggjafarvald eða stjórnarráð, og
snerta háskólann. Það lætur stjórnarráð-
inu í té allar þær upplýsingar, sem það
þarf á að halda og snerta háskólann sér-
staklega.
4- gr. Rektor er kosinn á almennum
háskólakennarafundi fyrir eitt ár í senn.
Prófessorar einir eru kjörgengir, en kosn-
ingarrétt eiga allir kennarar háskólaná.
Sá prófessor er rétt kjörinn rektor, sem
fengið hefur meiri hluta greiddra atkvæða
enda hafi tveir þriðju hlutar kosningar-
bærra kennara átt þátt í atkvæðagreiðsl-
unni.
Rektorskosningin fer fram í lok hvers
háskólaárs.
Hafii enginn fengið yfir helming atkvæða,
skal kjósa af nýju um þá tvo eða fleiri,
er flest atkvæði fengu, og er sá þá rétt
kosinn, sem flest atkvæði fær. Séu at-
kvæði jöfn, ræður hJuíkesti.
Rektor má endurkjósa, en ekki er hann
skyldur að1 taka við endurkjöri fyr en ár
er liðið frá því er hann lét af rektorsstörf-
um.
Birta skal stjórnarráðinu úrslit rektors-
kosningar.
Verði rektor að fara frá áður en rekt-
orsár hans er úti, skal sá af deildarfor-
setum háskólans, sem elztur er að embættis-
aldri, hafa störf hans með höndum, þang-
að til nýr rektor getur tekið við.
Rektor tekur við störfum með byrjun
háskólaárs.
5. gr. Rektor og forsetar deildanna
tjögra eiga sæti í háskólaráði. Rektor er
sjálfkjörinn forseti ráðsins. En varafor-
seta kýs háskólaráðið sér sjálft úr sínum
hóp.
Háskólaráð heldur fund eptir þörfum.
Æski tveir menn úrháskólaráði fundar, er
rektor skyldur að boða til þess fundar.
Svo er og ef einn þriðji hluti kennara
æskja fundar. Sé fundur haldinn eptir
ósk kennara, er ekki eiga sæti í ráðinu,
eiga hvatamenn fundar rétt á að senda
jafnmarga fulltrúa á fundinn og margir
eru menn í háskólaráðinu, og hafa þeir
fulltrúar þá málfrelsi, en atkvæðisrét eiga
þeir ekki.
6. gr. Háskólaráð setur nánari reglur
um starfsvið sitt og rektors og eru þær
reglur gildar, er staðfesting stjórnarráðs
kemur til.
7. gr. Kennarar háskólans eru prófess-
orar, dósentar og aukakennarar, en auka-
kennarar eru þeir kennarar nefndir, sem
jafnframt gegna embættum eða öðrum
aðalstörfum.
Konungur skipar prófessorana, en ráð-
herra dósenta og aukakennara að svo
miklu leyti sem aukakennarar eru sér-
staklega skipaðir til kenslunnar.
Aður en kennari er settur eða skipaður
við háskólann, skal ávalt leita umsagnar
hlutaðeigandi háskóladeildar um kennara-
efnið.
8. gr. Hver háskóladeild velur úr sín-
um hóp deildarforseta (dekani) og er
hann jafnframt sjáltkjörinn í háskólaráðið.
Deildarforseta skal kjósa til eins árs í
senn. Þó má endurkjósa deildarforseta,
en rétt hefur hann til að neita endurkjöri
þangað til ár er liðið frá því er hann
síðast gegndi deildarforsetastörfum.
Allir deildarkennarar eiga atkvæði um
kjör deildarforseta, en próíessorar einir
eru kjörgengir.
9. gr. Hver hásKóladeild heldur fundi
eptir þörfum. Deildarforseti boðar fund
og eiga þar sæti allir kennarar deildar-
innar.
Heimilt er rektor að taka þátt í með-
ferð mála í öllum deildum eptir því sem
honum lízt sjálfum, en atkvæðisrétt hefur
hann þó að eins 1 sinni deild.
10. gr. Hver deild semur lestrar- og
kennsluáætlun fyrir sig og skal þar gerð
nákvæm grein fyrir því, hvað heimtað er
til embættisprófs og skýrt frá þvl hvernig
kennarar hagi kennslu sinni.
n. gr. Deildarforsetar skulu sjá urc,
að til séu í tæka tíð* nákvæmar skýrslur
um alla fyrirlestra og æfingar, sem halda
á innan hverrar deildar á kennslumissiri
því, sem í hönd fer. En rektor athugar
áður en skýrslurnar eru prentaðar, hvort
þær séu í samræmi við kennsluáætlanir
deildanna.
12. gr. Stjórnarráðið skipar ritara við
háskólann. Ritarinn hefur á hendi reikn-
ingsfærslu sjóða þeirra, er háskólinn eign-
ast og hefur umsjón með byggingum há-
skólans og innanhúsmunum. Hann ann-
ast nauðsynlegar útveganir og endurbæt-
ur, tekur á móti skrásetningargjöldum stú-
denta og prófgjöldum.
13. gr. Kennsluár háskólans skiptist í
tvö kenslumissiri: nær annað frá 1. októ-
ber til 15. febrúar, en hitt frá 15. febrúar
til 30. júní.
14. gr. Fyrirlestrar fara fram í heyr-
anda hljóði. Yfirheyrsla og æfingar eru
þó fyrir stúdenta eina.
Alla fyrirlestra, æfingar og próf skal
halda á háskólanum sjálfum að svo miklu
leyti sem því verður við komið.
15. gr. Heimilt skal hverjum kennara
háskólans að halda fyrirlestra á háskólan-
um um sjálfvalin efni, að svo miklu leyti
sem það kemur ekki 1 bága við skyldu-
kennslu, en tilkynna skal hann rektor há-
skólans það áður.
16. gr. Öll lögskipuð háskólapróf, hvort
heldur eru undirbúningspróf eða fullnaðar-
próf, skulu haldin í sfðasta mánuði kennslu-
misseris.
Hver deild ræður sjálf hvort hún heldur
uppi kennslu meðan á prófi stendur eða
ekki.
17. gr. Hver sá, kona sem karl, er lok-
ið hefur stúdentsprófi við hinn almenna
menntaskóla eða annan lærðan skóla hon-
um jafngildan, á rétt á að verða skrásettur
háskólaborgari gegn því að greiða skrá-
setningargjald til háskólasjóðs, enda sé
mannorð hans óflekkað.
Sama rétt getur háskólaráð veitt útlend-
ingura, er fullnægja ofangreindum skil-
yrðum.
Hver sá, er æskir skrásetningar, skal
fyrir byrjun kenslumisseris tilkynna það
ritara háskólans, og tekur ritari við skrá-
setningargjaldinu.
Skrásetningargjaldið er iskrónur.
18. gr. Skrásettur stúdent fær háskóla-
borgarabréf hjá rektor.
19. gr. Skrásettui stúdent segi forseta
þeirrar deildar, sem hann ætlar að stunda
nám í, til sín þegar eptir skrásetninguna,
en forseti rítar nafn hans á skrá yfir
nemendur þeirrar deildar.
Skipti stúdent um námsgrein ber hon-
um að tilkynna það forseta þeirrar deild-
ar, sem hann áður var í, jafnframt því
sem hann lætur skrásetja sig af nýju í
deild þeirri, sem hann ætlar sér eptirleið-
is að stunda nám í.
I byrjun hvers skólaárs skulu allir stú-
dentar háskólans rita nafn sitt, bústað
sinn og nárasgrein í bók, sem geymd er
á skrifstofu háskólans.
20. gr. Stúdentar mega ganga undir
embættispróf þegar þeim sýnist, hafi þeir
áður staðist fyrirskipuð undirbúningspróf,
þar á meðal próf í heimspekilegum for'
spjallsvísindum.