Þjóðólfur - 27.08.1909, Blaðsíða 4
142
ÞJOÐOLFUR.
ráðaneytið. Þeir, sem fyrir þessu hafa
staðið, hafa því viljað vita fyrirfram,
hvort konungur veitti þeim áheyrn, en
því hefur hann neitað, og verður þá lík-
lega ekkert af samblæstrinum.
Guðmundur Hannesson
héraðslæknir kom úr utanför sinni
með »Ingólfi« í fyrra kveld. Fór hann
fyrst til Kaupmannahafnar, var þar hálf-
an mánuð, og þaðan til Svíþjóðar til að
skoða safn lækninganema við háskólann
í Lundi, því næst til sýningarinnar í Ár-
ósum og þaðan norður til Aars, Álaborg-
ar og Friðrikshafnar á Norður-Jótlandi,
en þaðan til Gautaborgar, Kristjaniu og
Björgvinar.
Dáinn
er 6. þ. m. séra Einar Þórðarson
á Bakka í Borgarfirði eystra, 42 ára gam-
all. Hann var sonur Þórðar á Skjöldólfs-
stöðum á Jökuldal Einarssonar prests í
Valianesi Hjörleifssonar og Pórdísar Ei-
ríksdóttur, og var fæddur á Kollsstöðum
á Völlum 7. ágúst 1867. Hann var 4 vet-
ur í lærða skólanum (1882—86) og útskrif-
aðist utanskóla í október 1888 með 3. eink-
unn, tók embættispróf á prestaskólanum
1890 og var vígður prestur að Hofteigi 7.
júní 1891. 1904 fékk hann Desjarmýrar-
prestakall og fór að búa á Bakka í Borg-
arfirði, var þá þegar orðinn þjáður af
brjósttæringu og varð að hætta prestsskap
1906, sigldi þá á heilsuhæli til Jótlands,
en fékk enga meinabót. — Hann var
þingmaður Norðmýlinga eitt kjörtímabil
(á þingunum 1903, 1905 og 1907), en gat
vitanlega ekki notið sín þar vegna veik-
inda, og ekki tekið nokkurn þátt í um-
ræðunum tvö síðari þingin. Hann var
annars áhugamaður og framfaramaður
meðan hann hélt heilsu, og lét sér sér-
sérstaklega annt um búnaðarframfarir á
Austurlandi. Hann var kvæntur Ingunni,
dóttur Lopts Þorkelssonar, er lengi bjó á
Kleppi, og síðar í Reykjavík, bróður Ög-
mundar bónda í Oddgeirshólum ogþeirra
systkina.
140
„Sterling“
fór héðan til útlanda að kvöldi 21. þ,
m. með fjölda farþega. Þar á meðal voru
Bjarni Jónsson alþm. og viðskiptaráðu-
nautur með frú sinni, Guðlaugu Magnús-
dóttur (giptust sama kvöldið og „Sterling"
fór), ennfremur Ólafur Johnsen fyrv. yfir-
kennarifrá Odense, D.Thomsen konsúll(til
Færeyja), Ólafur Dan Daníelsson magister,
Haraldur Árnason kaupm., frú Valgerður
Benediktsson með börn sln, stúdentarnir
Pétur Á. Jónsson, Halldór Kristjánsson,
Júl. Havsteen, Guðjón Samúelsson,Sfmon
Þórðarson og Ólafur Pétursson, einnig Ól-
afur og Halla, börn Sigurðar sýslumanns
Ólafssonar í Kaldaðarnesi, frk. Solveig
Guðmundsdóttir (frá Háeyri) og fjöldi af
enskum og þýzkum ferðamönnum.
„Hólar“
komu norðan og austan um land 22.
þ. m., með nokkra farþega, þar á meðal
voru ekkjufrú Sigríður Eggerz frá Búlands-
nesi, Þórhallur Daníelsson kaupm. á Horna-
firði og Þorvaldur Pálsson læknir Horn-
firðinga.
„Laura“
fór áleiðis til útlanda vestur og norður
um land 24. þ. m.
islenzki háskólinn.
Það gleymdist að geta þess síðast, er
minnzt var á ummæli »Times« um hinn
fyrirhugaða háskóla vorn, að Ragnar Lund-
borg ritstjóri hefur einnig ritað rækilega
og vingjarnlega um hann í blað sitt „Up-
sala“ í Uppsölum.
Annað kennaraembættið
við gagnfræðaskólann á Akureyri er veitt
Árna Þorvaldssyni kandídat í málfræði.
Drukknun.
Nýlega drukknaði maður í Jökulsá á
Sólheimasandi, Eyjólfur Halldórsson að
nafni, bóndi í Mýrdal.
Stúlka getur komizt strax að við hjúkrun
á Kleppi.
Kjarakaup — Útsala.
H/f Sápuliúsið, Austurstræti 6
og
Sápulnísið í Haínarfirði.
Grænsápa, bezta teg.
Brún krystalssápa
Marseillesápa . .
Salmiaksápa . .
Úrgangs stangasápa
Stangasápa . . .
Sápuspænir. . .
Lútpúlver . . .
Bleikjusódi . . .
6 öskjur Pudsepomade
— Jims stígvélaáb.
— 25 au. stígvélaáli
— ofnsvertu . . .
stk. Violsápá . . .
— Vaselínsápa . .
— Urinsápa . . .
Munið
. 14
. 17
. 22
. 26
. 19
12—16
. 32
. 18
7
. 25
. 25
18
21
25
25
25
1 stk. ítölsk skeggsápa
25 au. Xeroformsápa
35 — Lanolinsápa.
25 Patentklemmur .
100 Tauklemmur
1 sterkur gólfklútur
1 stór karklútur . .
1 sterk greiða . . .
1 franskur tannbursti
Nýtt súkkat, pundið
10 au. krydd . . .
5 — krydd . .
10 — bökunarpúlver
5 — ----
3 Florians búðingspúl
Okkar viðurk. rísstívelsi
er
pd.
14
18
18
33
35
18
8
24
10
65
7
4
7
4
23
27
að Flórians eggjapúlver jafnast á við 6 egg.
Ósvikin jurtasápa */3 pd-> stykkið 0,13.
Ivæmpe Lanolin Cranesápa (mjúk og hörð) 0,32.
Skrautkambar og hárspennur, afaródýrt. Hárburstar og fata-
burstar með innkaupsverði. Svampar. Eau de Quinine ilmvatn,
mjög ódýrt. Allt á að selja til þess að rýma fyrir nýjum vöru-
birgðum.
Útsalan byrjar 1. september, og endar 14.
lotift tækifærið!
H/f Sápuhúsið Sápu lx úsið
í Reykjavílf. í Haínaríii'öi.
kaupi eg undirritaður frá í dag til loka septembermánaðar
næstk. Á þeim má elcki hvíla annað en veðdeild. En þá
eru þau samstundis borgnð með allskonar verzlunar-
vörum og peningum.
Jóh. Jóhannesson,
Bergstaðastræti 11 A.
kumlaða andlitið á honum. „Það er verra nú, heldur en þegar þú lumbraðir á
honum svarta Barúk, og ef eg þekti þig ekki af frakkanum, þá gæti eg svarið
fyrir, að þú værir maðurinn, sem leiddir mig upp að altarinu. Þó að sjálfur
Englandskonungur biðji mig um það, þá leyfi eg það ekki“.
„Jæja, kelli mín, eg sver þér, að eg skal aldrei gera það framar. Það er
betra, að eg snúi baki að hnefleikunum, áður en hnefleikarnir snúa bakinu að
mér“. Hann fékk sér drjúgan sopa úr ferðapela sir Charlesar og gretti sig
um leið. „Þetta er dýrindis-metall, sir; en varirnar á mér eru svo aumar, að
mig svíður 1 þær undan þessu. En — þarna kemur þá Cummings, ekki ber á
öðru, og hann lætur, eins og hann sé að leita að vitfirringalækni".
Það var líka sannarlega einkennileg mannskepna, sem við sáum koma út
eptir móanum. Hann var blóðrauður í framan af víndrykkju og æddi hattlaus
frá einum hópnum til annars, eins og hann væri hamstola. Rétt á eftir sáum
við hann staðnæmast við gula vagninn og rétti sir Lothian Hume eitthvað. Síð-
an hélt hann áfram og þegar hann kom auga á okkur, rak hann upp fagnaðar-
óp og kom hlaupandi til okkar með bréf í hendinni.
„Þú ert dálaglegur náungi, John Cummings", sagði Harrison í ásökunar-
róm. „Sagði eg þér ekki, að þú mættir ekki bragða nokkurn dropa fyr en þú
hefðir komið skilaboðunum frá mér til sir Charlesar?"
„Já, eg á svei mér skilið, að eg sé tekinn duglega til bæna, það veit trúa
mín“, sagði Cummings og var harla eymdarlegur á svipinn. „Eg spurði eptir
yður, sir Charles, en fann yður ekki, og svo var eg svo glaður yfir veðmálun-
um, af því að eg vissi, að Harrison mundi verða í hnefleiknum, og svo vildi
veitingamaðurinn í „Georg" endilega, að eg prófaði ölföngin hans, og svo drakk
eg mig alveg útúr fullan. Og nú finn eg yður fyrst eptir að allt er um garð
gengið, sir Charles, og ef þér látið svipuna dansa á hryggnum á mér, þá á eg
það fyllilega skilið“.
En frændi minn hlustaði ekki á þetta sjálfsásakanavæl mannsins. Hann
hafði opnað bréfið og lesið það og lypti um leið ofurlítið brúnunum, en það var
eitthvert það mesta undrunarmerki, sem nokkurn tíma varð 'vart við hjá
honum.
„Botnar þú nokkuð í þessu hérna, frændi?" spurði hann og rétti [mér
bréfið.
Eg las bréfið, sem hljóðaði þannig:
„Sir Charles Tregellis!
Komið þér, í öllum guðanna bænum, undir eins og þér fáið þennan miða,
til Kongsklappar og tetjið sem allra minnst á leiðinni. Þér munuð finna mig
íbúð. Björt og rúmgóð 4 her- bergja íbúð ásamt eldhúsi og stórri geymslu, fæst til leigu nú þegar eða 1. október. — Leigan lág. — Staðurinn á- kjósanlegur. Semjið við Jóh. jóhannesson, Bergstaðastr. 11 A.i Ccjgert Glaess&n yflrréttarmÉilafltttnmgginaöur. Fósthússtrætl 17. Venjulega heima kL to—ii og 4—5. Tals. 16.
Foningur
í 12 bindum kaupi eg fyrir allt að 60 kr., og borga þær sam- stundis. %36R. <36/iannesson, Bergstaðastræti 11 A.
Til leigu heil hús og einstakar íbúðir á beztu stöðum. Gísli Þorbjarnarson.
Umboðsmenn óskast, til að veita viðtöku pöntunum á )>bromid« stækkunum og »semi- emalje« myndum eptir ljósmynd- um, fyrir stærstu stækkunarstofn- un í Skandinavíu. Tilboð merkt: »Höj Provision« sendist Heroldens AnnonceBureau, Christiania, Norge.
Til sölu luis og jarðir með gjafverði. Gísli Þorbjarnarson.
Eigandi og ábyrgðarm.: Hannes Þorsteinsson.
Prentsmiðjan Gutenberg.