Þjóðólfur - 03.09.1909, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR.
145
þráða marki: norðurheimsskautinu. Það
er Ameríkumaður, sem hefur getið sér
ódauðlega frægð með þessu afreki, ekki
sízt vegna þess, að vér minnumst ekki að
hafa heyrt getið þessa manns sem norð-
urfara, og hetur því líklega f kyrþey og
upp á eigin spýtur unnið þetta þrekvirki,
er lengi mun uppi. En nánari fregnir
skorta ennþá og verður þeirra eflaust
ekki langt að bíða. Þessi nýi Cook verð-
ur enda frægari en hinn gamli nafni hans,
enski landkönnuðurinn James Cook (J-
1779). Þeir gera báðir nafnið Cook frægt
í sögunni.
Markaðsskýrslur
um íslenzkt smjör.
Frá J. V. Faber & Co. í Newcastle
on Tyne hefur Þjóðólfi verið send
eptirfarandi markaðsskýrsla dags. 13.
f. m.:
»Með s/s „Ceres“ kom 5. ágúst
næsta smjörsending, og oss er ánægja
að geta frá því skýrt, að allt það
smjör er selt.
Gæðin voru jafnari en áður, smjör-
ið ekki heldur eins gamalt, og árang-
urinn fyrir því yfirleitt hærra verð.
Eins og símritað var hér um dag-
inn, seldist allt betra smjörið á 84—
88 kr., en fyrir hið lakara fengust
78—82 kr.
Hlutfallsverðið var sem hér segir:
50% seldist fyrir hæsta verð,
30°'o — — meðalverð,
2o°/o — — lægra verð.
Það er töluverð framför frá fyrri
árum. Vér höfum ’hér ekki getið
annars smjörs, en þess, sem vér höf-
um fengið sjálfir.
Markaðurinn hefur lágast, verðið
er stöðugra og horfur á, að svo verði
eptirleiðis, svo að vér gerum oss von
um, að góður árangur verði af vænt-
anlegum sendingum.
»lngólfi« f gær, og aðalmarkmiðið tekið
fram í 1. gr.:
1. að verja persónulegt frelsi einstaklings-
ins, og vinna á móti hverskonar nauð-
ung og skerðing á almennum mannrétt-
indum.
2. að vinna að því, að lögin um aðflutn-
ingsbann á áfengi eigi sér sem skemmst-
an aldur.
3. að vinna gegn ofnautn áfengra drykkja
og skaðlegum drykkjusiðum með öll-
um þeim ráðum, sem mannfrelsinu eru
samboðin, svo sem frjálsum bindindis-
samtökum og fræðslu um skaðsemi
áfengra drykkja.
4. að vinna að frjálsri menningu 1 öllum
greinum og stuðla að því, að efla and-
lega og llkamlega heilbrigði þjóðar-
innar með sjálfstjórn og sjálfsaga.
Ný bók.
íslenzk málfræði handa byrj-
e n d u m, eptir séra Jónas Jónasson, er
nýprentuð á Akureyri hjá Oddi prentara
Björnssyni. Bókin er rúmar 90 bls. að
stærð f 8vo. Hún er með öðru sniði en
tíðkazt hefur í málfræðisbókum; virðist
niðurskipun efnisins mjög hagfelld og
betur við hæfi nemendanna, heldur en
menn hafa átt að venjast í samkynja bók-
um, og allt skýrt nákvæmlega með dæm-
um. Er auðséð, að höf. hefur sjálfur við
kennslu fengizt og kann að haga niður-
skipun efnisins á þann hátt, er nemend-
unum geti komið að sem beztum notum.
En það getur enginn svo vel fari, nema
sá, er sjálfur hefur reynsluna fyrir sér,
hefur sjálfur kennt. Séra Jónas er og
sagður ágætur kennari og einkarvel að
sér um margt. Hefur hann um hríð gegnt
2. kennaraembættinu við gagnfræðaskól-
ann á Akureyri, jatnframt prestsembætti
sínu. Þessi málfræði hans verður eflaust
mikið notuð í unglingaskólum, og virðist
vera einkarvel til þess fallin.
um, er hvolfdi á siglingu í góðu veðri, og
komust báðir mennirnir í fyrstu á kjöl,
en öðrum þeirra skolaði aptur af kjöln-
um, en hinum varð bjargað. Sáerdrukkn-
aði, var 18 ára gamall piltur, Guðjón
Guðmundsson frá Gerðum.
Dáinn
er í Kaupmannahöfn í f. m. F. A.
Bald timburmeistari, 67 ára gamall,
kunnur meðal annars hér á landi, sfðan
hann var yfirsmiður alþingishússins. Holds-
veikisspítalinn í Laugarnesi er og smíðað-
ur eptir hans fyrirsögn, ennfremur frakk-
neski spftalinn hér og Nolseyjarviti á
Færeyjum.
Ólafur Björnsson
cand. polit., sonur Björns ráðherra, tekur
nú við ritstjórn »ísafoldar« í stað Einars
Hjörleifssonar, er hefur haft millibilsrit-
stjórn blaðsins á hendi nú uro tíma. Ól-
afur er efnismaður, greindur og gætinn,
og má gera sér góðar vonir um ritstjórn
hans.
Ari Jónsson
cand. jur., alþm. er orðinn aðstoðar-
maður á 3. skrifstofu stjórnarráðsins í
stað Karls Einarssonar, er fengið hefur
Vestmanneyjasýslu.
Veðurskýrsluágrip
Jrá 21. ág. til 3. sept. 1909.
ág. Rv. íf. Bl. Ak. Gr. Sf.
21. + 7,5 + 2,7 + 7,2 + 6,5 + 3,° + 6,3
22. + 7,5 4- 7,5 + 6,6 + 7,5 + 3,5 + 6,4
23- + 7,2 + 6,0 + 7,5 + 6,9 -f 7,1 + 2,6
24. + 8,5 + 8,0 + 7,9 + 7,4 + 7,5 + 9,3
25- + 9,4 +10,5 + io,5 +11,0 + 8,5 + 8,5
26. +io,5 + 8,6 + 11,2 + 10,5 + 9,51 + io,9
27. + 9,i + 7,8 + 8,7 + 11,0 - 9,0 +ii,4
28. + 7>oi-r 4»2 + 5,7 + 7,o - 3,5 + 9,i
29. + 3,6 + 5,6 + 2,5 + 4,6 - 2,5 + 6,0
3°- + 7,6 + 5,7 + 7,0 + 5,o - 2,5 + 6,3
3i- + 3,6 + 3,3 + 3,o + 5,4 - 2,6 + 6,8
I. + Á3 + 8,5 + 9,4 + 8,6 r 9,5 + 5,7
2. + 9,2 + 9,o + 8,5 + 11,0 +10,5 + 8,8
3- + 7,5 + 7,6 + 74 + 7,4 + 5,7 + 6,6
í 12 bindum kaupi eg fyrir allt
að 60 kr., og borga þær sam-
stundis.
<36R. <3ófíannesson,
Bergstaðastræti 11 A.
Til leigu
heil hús og einstakar íbúðir
á beztu stöðum.
Gisli Þorbjarnarson.
Tímakensla
fyrir byrjendur og tilsögn í ýmsum
öðrum námsgreinum, fæst með
góðum kjörum nú þegar.
Jóhannes Stefánsson.
Vesturgötu 48.
Heima kl. 4—5 síðd.
Nokkrar góðar lcýr helzt snemmbærar
kaupi eg og borga háu verði.
Kristján Magnússon.
Korpúlfsstöðum.
Til sölu
hús og jarðir
með gjafverði.
Gísli Þorbjarnarson.
Umboðsmenn óskast,
til að veita viðtöku pöntunum á
»bromid« stækkunum og »semi-
emalje« myndum eptir ljósmynd-
um, fyrir stærstu stækkunarstofn-
un í Skandinavíu. Tilboð merkt:
»Höj Provision« sendist Heroldens
AnnonceBureau, Christiania, Norge.
Eigandi og ábyrgðarm.:
Hannes Þo r ste i n sso n.
Herra L. Zöllner í Newcastle sím-
ar 28. f. m.:
„Smjörið, sem kom hingað meðs/s
„Sterling", síðast seldist á 106 til 109
shillings hundrað pundin. Brúttósala.
Herra J. V. Faber & Co. f New-
castle sfmar 31. f. m.:
„Smjörið, sem kommeð s/s „Lauru"
og „Vestu", er allt selt og seldist
bezta tegund á 86 til 91 krónu hundr-
að pundin, en lakari tegundir á 75
til 83 krónur hundrað pundin. Þetta
verð er fyrir smjörið flutt á skips-
fjöl hér í Reykjavík".
,,l»jóðvörn“
nefnist nýja félagið, er stofnað var hér
í bænum í vor, til að vinna gegn að-
flutningsbannslögunum og bannstefnunni
í heild sinni. Voru samþykkt lög fyrir
félagsskap þennan á fundi 30. f. m. og
kosin stjórn og endurskoðunarmenn. í
stjórnina voru kosnir: Einar Helgason
garðyrkjufræðingur, Halldór Daníelsson
yfirdómari, Júlíus Halldórsson læknir,
Magnús Einarsson dýralæknir, Matthías
Einarsson spítalalæknir, Sigurður Briem
póstmeistari og Sigurður Thoroddsen
adjunkt. Endurskoðunarmenn: Eggert
Claessen yfirréttarraálaflutningsmaður og
Guðjón úrsmiður Sigurðsson.
Samþykkt var á fundinum, að félagið
héti »Þjóðvörn«. Lög þess eru birt 1
Simalínan austur
að Eystri-Garðsauka er nú fulllögð, og
hefur lagningin kostað minna en áætlað
var. I næstu viku verður unnt að sím-
tala alla leið millum Reykjavlkur og
Garðsauka, og í fyrra dag hafði ritstjóri
þessa blaðs símtal við Eyrarbakka. Eptir
því sem Sroith símamaður skýrði oss frá
í því samtali, verða á leiðinni þessar
stöðvar: Grafarholt, Geitháls, Kolviðar-
hóll, Kotströnd, Ölfusárbrú (Tryggvaskáli),
Eyrarbakki, Stokkseyri, Hraungerði, Þjórs-
ártún, Ægissiða og Eystri-Garðsauki. Lína
þessi kemur auðvitað ekki að fullum
notum, fyr en aukalfnur eru lagðar út frá
henni, t. d. í Árnessýslu ein að minnsta
kosti um Skeiðin og upp í Hreppa, og
önnur upp í Grímsnes og Biskupstungur,
og það verður að líkindum von bráðar.
Það hefur að lokum ræzt vel úr með
símann austur, þótt beita ætti ósanngirni
við Árnesinga og Rangæinga, með því
að heimta af þeim óhæfilega hátt tillag
til símans þvert ofan í tilætlun alþingis
1905, og þrátt fyrir það, þótt íjöldamörg
önnur héruð landsins fengju símasam-
band, þeim öldungis að kostnaðarlausu.
En með þvl að Árnesingar kusu heldur
að bíða en ganga að afarkostum, kom-
ust þeir að viðunanlegum kjörum með
símann.
Drukknun.
Hinn 25. f. m. drukknaði maður af
bát suður í Garðsjó. Voru tveir á bátn-
Prentsmiðjan Gutenberg.
141
þar og fá að vita nokkuð, sem yður mun þykja ákaflega mikils um vert. Eg
sárbæni yður að koma eins fljótt og þér getið, en þangað til er eg sá, sem
þér kannist við sem
James Harrison".
„Jæja, systursonur?" spurði frændi.
„Nei, eg skil ekkert, hvernig í þessu liggur, sir“.
„Hver fékk yður bréfið, Cummingsr"
„Það var Jim Harrison sjálfur, sir, þó að eg ætlaði ekki í fyrstu að þekkja
hann, því að hann var likari vofu en mennskum manni. Honum var svo um-
hugað um, að bréfið kæmist til yðar, að hann vildi ekki skilja við mig fyr en
eg var sestur í vagninn og ók á stað. Hann fékk mér eitt bréf til yðar og annað
til sir Lothian Hume. Guð gæfi, að hann hefði valið sér betri sendiboða".
„Þetta er sannarlega óskiljanlegt", sagði frændi minn og hleypti brúnum.
„Hvað á hann að vilja i þetta alræmda hús? Og hversvegna skrifar hann sig
„sá sem þér kannist við sem James Flarrison" — hvernig ætti að kannast við
hann undir öðru nafni? Harrison, þér getið upplýst þetta, og eg séþaðáyður,
frú Harrison, að þér skiljið, hvernig í þessu liggur".
„Það má vel vera, sir Charles, en við erum óbreytt almúgafólk, hann Jack
minn og eg, við förum veginn á meðan við sjáum hann, en þegar við missum
sjónar á honum, þá nemum við staðar. Svona hefur það verið í tuttugu ár, en
nú viljum við vlkja til hliðar og láta þá, sem okkur eru fremri, ganga á undan,
og ef þér viljið fá að vita, hvernig á bréfi þessu stendur, vil eg ráða yður til að
aka til Kongsklappar, því þar fáið þér að vita það".
Frændi minn stakk bréfinu í vasann.
„Eg fer ekki fyr en læknirinn er búinn að líta á yður, Harrison".
„Verið þér ekkert að hugsa um mig, sir. Eg get ekið með konunni minni
í léttivagninum niður til Crawley, og svo þarf eg ekki nema eina alin af hepti-
plástri og dálítið af hráu kjöti til þess að komast aptur á lappir".
En frændi minn lét ekki undan; hann ók hjónunum til Crawley, og þar
skildi hann við smiðinn, undir umsjá konunnar, á því bezta gestaherbergi, sem
unnt var að fá leigt. Þvínæst snæddum við hádegisverð 1 skyndi og sfðan
héldum við suður á leið.
„Þetta verða síðustu afskipti mín af »hringnum«, frændi", sagði móðurbróðir
minn. „Eg sé, að engin ráð eru til þess að halda honum ómenguðum af alls-
konar hrekkjabrögðum. Eg hef verið svikinn og prettaður, og á endanum fær
maður nóg af slíku, og eg ætla mér ekki framar að stofna til hnefleiks".
Ef eg hefði verið eldri, eða, ef hann hefði ekki sýnt eins mikið yfirlæti,