Þjóðólfur - 11.02.1910, Blaðsíða 3

Þjóðólfur - 11.02.1910, Blaðsíða 3
ÞJ OÐOLFUR! 23 trúað ísafold fyrir leyndarmáli, sem þeir hafa engum öðrum trúað fyrir og máttu engum segja ? Sé svo, hafa þeir valið sér dálaglegan trúnaðarmann! Halli. Hvað er að frétta? Skipstrand. Enskur botnvörp- ttngur strandaði f. m. á Meðallandsfjöru t Skaftafellssýslu. Skipverjar komust eigi land fyr en eftir 12 klukkuttma og urðu að vera í reiðanum allan þann tíma. Mat- sveinninn druknaði en 10 björguðust i land og fótbrotnaði einn þeirra. — Náðu þeir bæum eftir illan leik, en urðu að skilja við félaga sinn, þann er fótbrotinn var, og náðist hann eigi fyr en daginn eftir, og var hann þá enn á lffi, og liggur þar eystra. En hinir fóru utan með Ceres 2. þ. m. Stysfarir. Aðfaranótt 3. þ. m. varð Hjörleitur bóndi á Selskarði á Álftanesi úti á heimleið frá Reykjavík. Þeir voru þrír saman, en i Garðahrauni fældist hestur eins þeirra félaga, svo maðurinn féll af honum, en Hjörleifur fór af baki og elti heStinn. En hinn steig á bak hesti Hjörleifs og héldti þeir svo áfram. Kom Hjörleifur eigi til bæar um kvöldið, en um morguninn var farið að leita hans, og fanst hann þá örendur í hrauninu. Hann var kvæntur og átti börn í ómegð. Próf í stjórnfrseði segir stjórn- arblaðið að Jónas Einarsson hafi tekið við háskólann með x. eink. Kristjón Jóhannesson kaup- félagsstjóri á Eyrarbakka, andaðist þar 7. þ. m. Hann var á fimtugsaldri. Bœar-annáll. Trkklofttö eru ungfrú Hedvig Bar- tels og Ole Blöndal póstafgreiðslumaður. Slys. 4. þ. m. hrapaði þýskur smið- ur við gasstöðvabygginguna ofan af gas- geiminum og mjaðmabrotnaði. Hann heitir Zemmemann. Prestkosningin hér, fer fram 26. þ. m. Á kjörskrá eru alls 3284 menn. Þýskan k>ottt-vörj>ttngf hefir „Islands Falk" nýlega fengið hér sektaðan ttm 1000 kr. Afii og veiðarfæri gert upp- tækt. mojrlýsingrar 27. Jan.: Jón Magn- ússon, Njálsgötu 57, selur Pétri Örnólfs- syni þá húseign með 875 ferálna lóð og öðru tilh. fyrir 2500 kr. Dags. 24. f. m. Magnús Blöndahl alþingism. selur Guð- mundi bókb. Gamalíelssyni húseignina nr. 6 A við Lækjargötu með öllu múr- og naglföstu og tilh. lóð fyrir 26000 kr. Dags. 20. f. m. Pinglýsingar 3. febr. Guðjón Jónsson járnsmiður selur Gunnari Gunnarssyni kaupm. húseign sína Háholt. Dags.31.fi m. Gunnar Gunnarsson kaupm. selur Guð- jóni Jónssyni járnsmið húseign sfna nr. 9 við Vitastíg með öllu tilh. Dags. 31. t. m. Jóhann Jóhannesson kaupm. selur Jó- hanni Hafliðasyni húseign sína nr. 2 við Holtsgötu. Dags. 29. f. m. Jóhannes Reykdal selur Jónatan Þor- steinssyni húseign nr. 3 við Vitasttg. Dags. 31. f- tn. Skiftaráðandi selur Jónatan Þorsteins- syni húseign nr. 32 B. við Laugav. Dags. 6. Okt. 1909. Botttvörp«ngfarnir’. „Jón for- seti“ seldi mánud. 3i.f.in.afla sinn á Eng- landi fyrir 720 £ = 12,960 kr. Skömmu stðar (á miðvikud.) seldi s/s „Mars" fyrir 478 £ = 8604 kr. Bæði skipin voru jafn lengi að veiðum. S/s „Jón forseti" hefir þá á tímabilinu ’°9 til '10 aflað fyrir 49,392 kr., sem er óneitanlega góður afli. „Sterling“ kom hingað 8. þ. m. Farþegar voru: Ó. Ólafsson kaupm., Trolle kapt, Olsen ráðsmaður við Brydes- verslun og frú hans, Gunnar Egilsson og trú hans, A. V. Carlquist kaupm., Snæ- björnNorðfjörð verslunarm., Bjarni Bjarna- son klæðskeri, Thaulow (frá Höfn), Ás- geir Gunnlögsson student o. fl. Kafli úr kunningjabréfi. » . . . I gærkvöldi, þegar jeg var hátt- aður, lánaði vinur minn mér hina svo- kölluðu »rauðubók« bankanefndarinnar, og varð það til að halda vöku fyrir mér megnið af nóttinni. Ekki furðar mig svo mjög, að lesa slíkt á prenti eftir þá,menn, sem samið hafa, en sorglegt er, að eiga stjórn, sem lætur sér sæma að prenta slfkt og bjóða okkur til sölu. Jeg getekkibet- ur séð, en að öll „feilin", sem nefndin þykist þykist finna, séu bygð á ágiskun- um og misskilningi, þar sem „ísafold" er eina blaðið, sem nú orðið berst hingað í mitt bygðarlag með góðum skilum, full- yrðir, að tap bankans sé 400 þús. kr., þá hélt eg, að eg mundi finna eitthvað í nefndarálitinu, sem sannaði það, en því fer fjarri, sem eg skal sína með dæmi því, sem eg set hér á eftir, af manni sem býr hér skamt frá mér og er mér mjög kunn- ur; hann byrjaði félagsskap með fleiri mönnum fyrir nokkrum árum með 9,000 kr. böfuðstól, félagsskapur þessi hélt á- fram að starfa í 2 ár og tapaði á þeim árum 16 þús. kr.; býst hann við, að sum- ir af þeim meðlimum séu nú komnir á svörtu töfluna; segist hann ekki sjá svo mjög eftir sínu tapi, enda þótt það hafi gert hann eignalausan í bili; hann hafi lært af því, og þakkar bankanum þann lærdóm, því þar var rekstursféð að nokkru fengið að láni. Aftur byrjaði sami mað- ur annað fyrirtæki eignalaus, með öðrum manni aðeins, án þess að hafa nokkurn höfuðstól, en með þvt að fá smálán hjá verslun um tíma og tlma; sá félagsskapur gekk þanmg, að á miðju fyrsta ári var fé- lagið skuldlaust og á miðju öðru ári var það einnig skuldlaust; að tveimur árum liðnum var gert upp og þessi kunningi minn seldi sinn helming af eignunum fyr- ir 8,148 kr. Þannig hafði hann á þessum tveimur árurn grætt á þessu fyrirtæki 8,148 kr. Með þessu dæmi, ásamt mýmörgum öðrum, má sanna, að ekki er mikið byggj- andi á fullyrðingum nefndarinnar um tap bankans, þótt menn virðist eignalitlir 1 bili. — Ef þú, vinur minn, ert kunnugur einhverjum úr nefndinni, þá máttu gjarn- an segja þeim frá mér, að heldur vilji eg bera nafnið, sem þeir velja okkur fátæk- lingum, »sveitarlimir«, með réttu, heldur en að vera í þeirra sporum nú, því mér finst þeir vera sannir krabbar í þjóðlík- amanum. Mér þykir hálf leiðinlegt skammdegið núna, því helsta skemtun mín hefir verið að lesa blöðin, sem kunningjar mínir og nágrannar lána mér, en nú síðan um ný- árið hefir varla komið fyrir, að nokkurt blað hafi komið með skilum, nema »ísa- fold«, sem altaf er að korna, enda þótt bréfhirðingastaður sé hér á næsta bæ við mig . . . «. Álnavara nýkomin með »Ceres« í verslun Síurlu cJónssonar. V eðnrskýrslnágr ip frá 29. Jan. til 10. Febr. 1910. Jan. Febr Rv. ffi Bl. Ak. Gr. Sf. 29. 30- 31- 1. 2. 3- 4- 5- 6. 7 8. 9- 10. -5- 6,3 -f- 9,0 -s- 2.0 —f— 0,6 = 2.5 8-3 = 1.5 -4- 2,0 -F 2,5 -r-II,8 + 5.9 -r- 4,0 + 0,5 +- 9-4 +- 7,2 +- 4,2 +- 40 +- 4,2 +- 4.2 +- 2,6 +-IO, I +-10,8 +- 4.3 + 0,2 +- 7,i +-I4.9 +- 4,o +- 7,o +- 1,4 +- 1.7 +- 6.7 +- 8,4 -i~ 6,0 +-10,0 +-II.0 +- 6,0 + 1,2 +- 6,2 +-i3,o +- 5,5 +- 3,o +- 5,5 +- 4.o +- 9,o +- «.5 +- 4-0 +- 7,6 +-11.1 + 12,7 + 2,0 +- 9.0 +-19,5 +- 7,o +- 3-5 +- 9-5 +- 7,o +- 4,0 -s- 5,5 +- 9,0 +-13,° +-16,0 +-n,o = 2,5 +- 5,3 +-10.7 +- 2,3 +- 2,0 +- 0,2 +- 3.0 +- 3,6 +- 1,1 +- 33 +- 8,3 +- 9,2 +-IO,2 -1- 4,8 teikfélag Reykjaviknr: Sinnaskifti verður leikið í Iðnaðarmanna- húsinu Laugardag 12. Febr. II. 8 sM. Til leigu óskast 3—4 herbergja íbúð, helst f miðbænum. Tilboð merkt „íbúð" sendist afgreiðslu Þjóðólfs á Laugavegi 19. &ilRynning. Jónas Jónsson frá Hriflu hefar Í „Ingólfi" síðast sent mér kveðju af sama toga spunnin — sem undanfar- ið f því blaði — og finn eg enga á- stæðu til að svara pilti þessum frek- ara, en eg hefi þegar gert, á annan hátt en með málshöfðun, sem eg nú þegar hefi undirbúið. Vel getur svo farið, að málshöfðun þessi geti orðið þess valdandi, að lítið eitt kvarnist úr gjafafé því, sem honum hefur hlotn- ast, en það er hans sök, en ekki mfn; þó er ekki með öllu óhugsandi, að hann geti fengið skaðann bættan með nýum samskotum, því ætla má, að hluttekning með þeim, sem bágt eiga, verði hin sama, þrátt fyrir lestur bóka minna — enda þótt Jónas kunni að draga það í efa. Reykjavík 7. Febr. 1910. Jóh. Jóhannesson. Góö skemtun! Stúkan „Hlín" heldur afmælishátíð sína næstk. laugardag 12. þ. m. Að- göngumiðar í bókav. Sig. Kristjáns- sonar, bókav. Guðm. Gamalfelssonar, Lækjarg. og verslun Jóns Jónssonar frá Vaðnesi. Skemtun: Sjónleikur, skrautsýning, söngur, hljóðfærasláttur, upplestur, ræður o. fl. Aðeins fyrir Templara. Kjörínndar. Kosning prests í 2. prestsembættið við dómkirkjuna í Reykjavik fer fram Laugardaginn 26. þ. m. í barna- skólabyggingu Reykjavíkurbæjar, og byrjar kl. 11. f. h. Prófasturinn í Kjalarnessprófastsdæmi, Görðum, 9. Febrúar 1910. Jens Pálsson. Forend de nye Varer kommer giver vi 15° 0 af ViRterkaabestoffer Kjjill Jacobsen. dijörsKrá til prestskosningar í annað prestsembættið í Reykjavíkur- prestakalli liggur frammi, kjósandum til sýnis, í búð Einars Árnasonar kaupmanns, Aðalstræti 14. frá S.—14. þ. m. gjfly Kærur yíir kjörskránni skal senda oddvita sóknarnefndarinnar innan 21. Febrúar. 8. Febrúar 1910. Æáftnarnafn&in.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.