Þjóðólfur - 09.03.1910, Side 1

Þjóðólfur - 09.03.1910, Side 1
'Y 62. árg. Reykjavík, Miðvikudaginn 9. Mars 1910. M ÍO. Dmræður í þjóðþiugmu dausku um ísleusk lál. N. Neergaard (framsm. fjárlaganna, fyrv. forsætisráðherra): »Það er ekki undarlegt, þó að allur þorri manna, og sérstaklega þjóðþingið, hafi mikið hugsað um Islensk mál. Eðlileg afleiðing af því hefir verið, að fjárlaga- nefndin hefir óskað eftir ráðum hjá hin- um háttv. forsætisráðherra og beðið hann um ýmsar upplýsingar viðvíkjandi íslandi. Hin fyrsta spurning, sem dregið hefir að sér athygli manna, er sambandsmálið. Menn muna að sjálfsögðu ennþá vel eftir því, að eg í fyrra, þegar eg sem forsætis- ráðherra lagði fram frumvarp nefndar- innar um samband Danmerkur og Islands, tók það fram, að frumvarpið væri frá danskri hlið enginn grundvöllur til samn- inga. í millilandanefndinni var það álit vor Dana — menn muna, að í þessu máli vorum við allir sammála — að hér ættum við elcki að vera harðir 1 skilyrðum, en að mest væri undir því komið, að slaka eins mikið til og hægt væri, ef eining rikisins Ætti að varðveitast. Því hér áttum við við nákomna vinaþjóð, sem er raunar einn hluti danska ríkisins. Það gerðum við-, vér buðum hið mesta, sem hægt var-, afleiðing þess er einnig það, að nokkuð verulegt meira getum við ekki boðið. Auðvitað gætu breytingar á orðalaginu átt sér stað, en frekari efnisbreytingar alls ekki. Þetta lét eg í ljósi í fyrra, þegar málið var til umræðu. Að því leyti hefðu allir átt að vera vissir um af- stöðu stjórnarinnar. Ekki gátu menn heldur verið í vafa um, að afstaða þessi studdist við foringja flokkanna í þjóð- þinginu, og sér í lagi þá þingmenn, sem sjálfir höfðu átt sæti í nefndinni, og því hafa haft til að fylgja gangi málsins frá því fyrsta. En á síðasta alþingi var sam- þykt frv., sem gekk margfalt lengra, og átti ekki neitt skylt við nefndarfrv.. Al- þingi gat sagt sér það sjálft, eftir alt það sem við höfum rætt um málið, og eftir þeirri þekkingu, sem það hafði á sam- bandsmálinu, að slíkt frumvarp gæti ekki vænst nokkurrar aðstoðar 1 Danmörku. Spurningin hlýtur nú að vera, hvort stjórnin ætlar að leggja frv. aftur fyrir alþingi, eða hvort hún skoðar það þannig, að síðasta alþingi hafi með frv. sínu slitið samning- unum, þar sem það hefir felt frv. það, sem það vissi að var hið mesta, sem Danir gætu samþykt, og hefir sett annað í staðinn, sem það fyrir fram vissi, að Danir ekki gætu samþykt. Fjárlaganefndin hefir óskað að fá að vita afstöðu stjórnar- innar í þessu máli, og stjórnin hefir sagt oss frá áliti sínu. Eg ætla ekki að skýra frá því, því eðlilegra er, að hinn hæstvirti ráðherra sjálfur skýri frá áliti sínu á af- stöðu málsins. Næsta mál, sem hefir valdið umræðum 1 fjárlaganefndinni, er spurningin um ís- lenska styrkinn til strandgæslunnar. Eins °g menn muna, samþykti þjóðþingið 1904 ^905 að aukin skyldi strandgæslan við ísland. Var það viðbótin með slslands Falk«. Höíðu íslendingar óskað mikið eftir þeirri breytingu. Það voru þýðingar- miklir viðbætur fyrir fiskveiðarnar, og Danir höfðu fullnægt þeirri kröfu íslendinga. Þegar það var samþykt, settum við Danir, eg þori að segja, að sjálfsögðu, engin skilyrði um styrk frá Islandi, því strand- gæslan er réttur, sem tilheyrir danska ríkinu. Það er bæði réttur þess og skylda, að sjá um réttindi sln yfir öllum höfum ríkisins. Og uppfylling þessarar skyldu er alls ekki komin undir því, hve stórt tillag sé veitt af einhverjum hluta rík- isins. En 1 umræðunum kom fram á- kveðin ósk frá fjárlaganefndinni um það, að Island styrkti eitthvað þessa viðbót strandgæslunnar, sem hafði mikinn kostn- að í för með sér, og sem íslenskir sjó- menn og útgerðarmenn höfðu óskað svo mikið eftir. Menn fóru þess á leit við hinn þáverandi forsætisráðherra, að leita samninga um þetta við ráðherra Islands. Forsætisráðherranum fanst óskin réttmæt og ráðherra Islands félst á það, og þeir komu sér saman um, að ráðherra Islands skyldi reyna að fá veittan styrk úr landssjóði, sem svaraði 2/3 af sektarfénu og 2/3 verðs upptæks afla og veiðarfæra. Var giskað á að þetta mundi nema 10,000 kr., en það sýndi sig, að það varð mikið meira. Eftir slðasta reikningi um það, þ. e. a. s. fyrir árið 1907—8, nam þetta 40.512 kr., eða 4 sinnum það sem áætlað var. Féll oss það þvf illa, þegar síðasta al- þingi ekki tók fjárveiting þessa inn á fjár- lögin. Þó var engin ástæða fyrir kon- unginn að neita fjárlögunum staðfestingar fyrir þetta, en það gat verið ástæða til samninga milli ráðherra Islands og dönsku ráðherranna, og slfkt hefir átt sér stað. Eg álít mig skorta heimild til að minnast nánar á það, en eg vil einungis taka það fram, að fjárlaganefndinni finst það ekki rétt, að alþingi skuli hafa stryk- að út fjárveiting þessa; og við verðum að halda því fast fram, að í rauninni verði haldið áfram með það, sem danski for- sætisráðherrann og íslandsráðherra á sín- um tíma höfðu komið sér saman um og alþingi síðar samþykt. Spurning mín til hins háttv. forsætisráðherra er þá, eins og í fjárlaganefndinni: Hvernig lftur stjórnin á þetta mál? Og álítur hún að Uklegt sé, að kröfur vorar í þessu máli nái fram að ganga á næsta alþingi. Hið þriðja, sem fjárlaganefndin og forsætisráðherrann hafa átt tal um, er starf íslenska viðskiptaráðanautsins. Það er kunnugt, að í síðustu fjárlögum íslands var veitt fé til viðskiftaráðanauts. Ýms- ar féttir hafa gengið hér um þennan ráðanaut. Menn sögðu að hann f raun og veru ætti að vera pólitiskur æsingamaður, en ekki viðskiftaráða- nautur í eiginlegri merkingu. Slíkt gát- um vér Danir auðvitað ekki fallist á, o g ráðherra Islands gaf þess vegna h.inum dönsku stéttar- bræðrum sínum fullkomlega tryggilega yfirlýsingu f þessu tilliti, með því að ráðherra Islands tók það fram, að til væri ætlast, eins og orðalagið sýndi, að þetta væri viðskifta- ráðanautur, sem ætti fað stuðla að ís- lenskum viðskiftum og auðvitað ekki að grípa inn f verkahring danskra konsúla, að þvferís- land snerti, og þvf síður að vera pólitiskur æsingamaður, allra síst æsingamaður ýmsra fslenskra s k i 1 n a ð a r s k o ð a n a. En við höfum okkur til leiðinda séð, að í blöðum, einkum f norskum, hafa verið höfð eftir viðskiftaráðanautnum ummæli frá opinberum samkomum, sem hafa farið í þá átt, sem hlýtur að vekja ilt skap hér í landi. Greinileg og svæsin trúar- útbreiðsla um það, að sambandið á milli Danmerkur og Islands verði að breytast í persónu-samband, og ýmisleg orð, sem voru als ekki vingjarnleg gagnvart Danmörku. Ég bið hinn hæstv. forsætis- ráðherra hér, eins og f fjárlaganefndinni, að segja frá því, sem stjórninni er kunn- ugt viðvíkjandi starfsemi verslunarráðu- nautslns, og hvert að það hefir ékki sýnt sig, að ræður hans hafi verið öðruvísi, en blöðin hafa skýrt frá. Og að minsta kosti, að íslenska stjórnin eða íslenski ráðherrann viðurkenni, að starfssvið við- skiftaráðanautsins sé eingöngu viðskifta- mál,—að vekja eltirtekt manna á landinu og þjóðinni, — en als ekki pólitískt. Fjórða málið, sem ráðherrann og fjár- laganefndin hafa átt tal um, er spurn- ingin um veitingu á embætti í íslenskum lögum við háskólann. Fé hefur verið veitt til þessa, Ýmsir í fjárlaganefndinni hafa óskað þess, að embætti þetta yrði veitt. Menn hafa talað um málið. Hinn háttv. ráðherra hefur sagt, að hann enn þá hefði ekki komist að ákveðni niðurstöðu, og lofaði hann að yfirvega málið nánara. Ég finn því enga ástæðu til, að tala meira um það mál eins og nú stendur á, með því að ég hef ástæðu til að ætla, að yfirveganir hins háttvirta ráðherra muni taka enda, áður en mjög langt líður. Einnig væri æskilegt, að heyra álit hans þessu viðvíkjandi. Z a h 1 e (forsætisráðherrann): Spurn- ingum þeim, sem hinn heiðraði framsm. beindi að mér, vil eg svara á þessa leið: Hér í Danmörku er eiginlega engin þörf á breytingum viðvíkjandi sambandi Dan- merkur og ísiands, og úr því að íslend- ingar sjálfir vilja heldur núverandi stjórn- arfyrirkomulag, en nefndarfrumvarpið, þá getum við vel sætt oss við það. Island hefur full umráð yflr öllum sínum innan- landsmálum. Þetta samband kunna Danir vel við, en því er þannig varið, að marg- ir hér í Danmörku léðu nefndarfrv. fylgi sitt af þvf að menn [bjuggust við, að það mundi verða samþykt. Því við vildum gjarnan láta að óskum íslendinganna, í þeirri von, að loksins kæmist á skipun, sem báðir mættu vel við una. En þessi von strandaði á því, að alþingi Is- lendinga samþykti slíkar breytingar, að ganga má að því vísuu, að þær verði ekki samþyktar hér. Þjóðþingið hér hef- ur als enga löngun til, að ganga lengra, \ en gert var í nefndarfrv.; það held eg, I að eg megi fullyrða, að sé áreiðanlegt; þegar athugað er, hve mjög frumv. var breytt af alþinginu, munu menn sjá, að eg hef rétt fyrir mér í því, að ástæðu- laust sé fyrir þjóðþingið, að fara nú að taka það mál fyrir. Nefndarfrv. var til- boð frá Dönum, en því var hafnað af Islendingum. Hvað a/3 botnvörpusektanna viðvlkur, er, eins og hinn heiðraði framsm. veit, rökstudd von um það, að ráð- herra íslands muni beita sér íyrir því, að koma á þeirri tilhögun, að hin áðurnefnda upphæð aftur renni í ríkis- sjóð. Nú sem stendur, álít eg rétt, að segja ekki meira þessu viðvíkjandi. Hvað viðvíkur viðskiftaráðanautnum, skal eg fara nánar út í það. Eg er alveg á sömu skoðun og hinn háttv. framsm., hvað viðvíkur starfsemi þess manns, og stjórn- arráðið hefur starfað út frá sama sjónar- miði. Við höfum átt því mikla láni að fagna, að mæta algjör- lega sömu skoðun hjá fnínum háttvirta félaga, ráðherra ís- 1 a n d s. Hinn hæstvirti utanríkisráðherra hefur haft orð á því hér 1 þinginu, að hann ætlaði að taka þetta mál til at- hugunar, eins og eðlilegt er, þar sem það kemur við utanrfkismálefnum íslands og Danmerkur. Hinn 10. Nóvember s. 1. skrifaði hann svohljóðandi bréf til stjórn- arráðs íslands, — eg álít vera réttast, að lesa upp bréfin orðrétt, svo að það geti ekki verið nokkrum vafa undirorpið, að fullkomnar upplýsingar hafa verið gefnar í þessu máli bréfin eru heldur ekki svo löng, að það taki langan tíma. — Bréf hans frá 10. Nóv. hljóðar þannig: »Utanríkisráðaneytið leyfir sér hér með að minnast á málefni við stjórnarráð ís- lands, sem vakið hefur talsvert umtal í ýmsum blöðum, bæði innlendum og er- lendum, og sem vakið hefur verið máls á í þjóðþinginu. Það er viðvíkjandi því, að íslenskur fulltrúi hefur verið sendur til útlanda, — hinn svokallaði »viðskifta ráðanautur« Bjarni Jónsson alþingism. frá Vogi, og starfsemi hans. Utanríkisráðaneytið viðurkennir fyllilega, að æskllegt væri að hafa ráðanaut erlend- is, til að vinna að ýmsum áhugamálum íslands; en ráðaneytið, sem hefir ábyrgð- ina á afstöðunni við önnur lönd, verður nauðsynlega að fá að vita um, hvernig og hverskonar störf hins umrædda ráðanauts eru. Þannig starfa t. d. hinir dönsku landbúnaðarráðanautar erlendis, samkvæmt skipunarbréfum, sem eru opin- berlega send utanríkisráðaneytinu; sömu- leiðis er sendiherrum í hinum tilheyrandí löndum tilkynt skipun þeirra. Þess vegna vildi utanrlkisráðaneytið, sem hefir umboð fyrir ríkisheildina út á við, gjarnan fá að vita opinberlega, eftir hvaða skipunarbréfi hr. Bjarni. Jóns- Jónsson starfar, eins og við vildum gjarn- an geta kynt hann fyrir viðkomandi sendi- herrum. Ráðuneytið verður einnig að álíta slíka opinbera tilkynningu nauðsyn- lega vegna þess, að þá mundi maður sleppa við misskilning bæði hér og er- lendis, viðvlkjandi tilætlun ferðalaga hans. Aftur á móti mundi ráðanauturinn fá að- gang hjá viðkomandi sendiherrum, og mundi eiga vísa aðstoð þeirra, sem að ýmsu leyti mundu gera stöðu hans og vinnu auðveldari. Ráðaneytið leyfir sér sambandi við þetta að leiða athygli hins kgl. stjórnarráðs að því, að í mörgum, bæði dönskum og norskum blöðum, hefur

x

Þjóðólfur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.