Þjóðólfur - 15.04.1910, Blaðsíða 3
ÞJOÐOLFUR
63
Hvað er að frétta?
Slysfarir. 9. þ. m. tók manD út
af fiskiskipinu „Sea-gull". Hann hét Sæ-
mundur Jóelsson, ungur maður, reglusam-
ur og efnilegur, héðan úr bænum. Tveir
aðrir skipverjar hlutu og nokkur meiðsli
í það sinn.
Gnfnbátur ferst. 30. f. m. fórst
gufubáturinn „Hrólfur" frá Seyðisfirði
nálægt Selvogsgrunni. Enskt botnvörpu-
skip bjargaði skipverjum öllum og flutti
þá til Vestmannaeya.
Samábyrgðammbodsmenn
hafa verið skipaðir: Gunnar Ólafsson alþm.
í Vestmanneyum, Helgi Jónsson versl-
unarstj. á Stokkseyri, Hjálmar Sigurðsson
kaupm. í Stykkishólmi, Jón A Jónsson
bankabókari á ísafirði og Otto Tulinius
kaupmaður á Akureyri.
Mnniialítt. 2. þ. m. andaðist á
Frostastöðum í Skagafirði Guðmundur
Porláksson cand. mag. 58 ára að aldri
(f. 22. Apríl 1852), sonur Þorláks bónda á
Ystu-Grund í Skagafirði Jónssonar á Hóli
1 Tungusveit, Magnússonar á Hóli Gunn-
laugssonar og Filippíu Hannesdóttur
prests á R(p Bjarnasonar. Hann var
útskrifaður úr skóla 1874 með 1. eink. og
tók 1881 próf í norrænu við háskólann.
Var síðan allengi í Kaupmannahöfn og
síðar í Reykjavík, en fór norður 1907 til
Magnúsar Gíslasonar bónda á Frosta-
stöðum, bróðursonar síns, óg dvaldi þar
síðan. Guðm. var gáfumaður mikill og
vel lærður, og drengur góður.
Útfiutningur lu-ossa og ís-
lenskra listamanna. Árangur
af starfi viðskiftaráðanautsins fer nú bráð-
um að koma 1 ljós, að því er stjórnar-
blaðið 12. þ. m. skýrir frá, þvf að „hrossa-
sölumálið til Noregs kvað vera komið í
gott lag, og nú sé það fullráðið, að halda
sýningu á íslenskum listamönnum í haust
í Kristjaníu".
W athne-félagið er sagt að hafi
hætt greiðslum fyrst um sinn, en sam-
kvæmt skeyti, er fésýslumaður hér í bæn-
um fékk í gær, þá hefir fjárþröng félags-
ins engin áhrif á skipaútgerðina, er held-
ur áfram svo sem verið hefir.
J. 3P. T. Bryde etazráð og stór-
kaupmaður í Kaupmannahöfn, andaðist
þar 13. þ. m. Hann var fæddur 10. Sept.
1841 í Vestmannaeyum og hét fullu nafni
Johan Peter Thorkelin Bryde, en faðir
hans var Niels Nicolaj Bryde kaupmaður
í Vestmannaeyum. Dóttir J. P. T. Bryde
er Helga, nú kona H. Matzens háskóla-
kennara, fyr kona Jóns Vidalíns konsúls.
Halís. Fiskiskip frá Eyafirði sigldi
fyrir helgina 9 mílur fyrir austan Horn
alllengi meðfram ís, um 3 mílur.
Frá Skálavík, sem er yst við ísafjarðar-
djúp, sáust síðastliðinn laugardag nokkrir
dreyfðir haffsjakar, og tveir jakar urðu
landfastir, en í gær, er alment var róið
við Djúpið, sást hvergi nokkur jaki.
Hér í bæ er sagt að hafís hafi rekið inn
á Húnaflóa, en þar hefir enginn hafís sést.
Mammlút, Nýlátinn er á Isafirði
danskur maður, að nafni Jessen, er smíð-
aði hreyfivélar og það sem þeim tilheyrir
(motorfabrikant) og hafði gert það nú í
nokkur ár. Hann dó úr taugaveiki.
Hinn 4- þ. m. andaðist húsfrú Jóhanna
Sigríður MargrétJóhannsdótlir kona Torfa
Magnússonar bæarfógetafulltrúa á ísafirði.
Hún var fædd 22. Júní 1839 og dóttir Jó-
hanns Bjarnasonar kaupmanns í Vest-
mannaeyum og Sigrfðar Jónsdóttur kaup-
manns í Kúvíkum Salómonssonar. Hún
eignaðist 12 börn með manni sínum, Torfa
syni Magnúsar prests f Eyvindarhúsum,
Torfasonar prests á Breiðabólstað, Jóns-
sonar prests f Hruna, Finnssonar biskups
Tónssonar, og eru 6 þeirra á lífi: Magnús
sýslumaður á ísafirði, Richard uppgjafa-
prestur, nú bankaritari, Guðrún kona
Helga verslunarstjóra á Stokkseyri Jóns-
sonar og 3 í Vesturheimi.
m
m
Með fyrsíu ferð Hamborgarskipanna §
komn fyrnin öll af vefnaðarvörnm í
Verslunina Björn Kristjánsson,
s v o s e m :
N|iilíit. sem hvergi fást smekklegri né ódýrari.
Kjólaiauin, viðurkendu þau bestu. ,
Ðag:treyutauin, sem enginn ílytur betri.
Klæðin og Dömuklæðin alþektu.
Flunnelin, sem allir þekkja að eru hin bestu.
Vandaðar vörur I Fatatauln, þau smekklegustu og haldbestu.
Ensk vaömál, svört og mislit,
Öðýrar vörurI Reiöfatatauin, sem mæla með sér sjálf.
Peysur, fyrir karla og drengi, fjölbreytt úrval.
. Mærfatnaður allsk. íyrir kvenmenn og karlmenn.
Lífstykkin, sem þykja svo þœgileg og falleg.
Heröasjölin, úr ull, isgarni og silki, aldrei meira úrval.
Treflarnir, sem aldrei flytst nóg af í verslunina.
Barna- og Telpuhúfurnar, að vanda efttir nýjustu tísku.
Rillipils, með öllum verðum og að' allra dómi hin skrautlegustu.
91org:unkjólatauin, sem enginn kaupir annarsteðar.
Lítid fyrst inn i
^fferslunina cfijörn tJirisfjánsson,
ádur en pér festiÖ kaup annarstaðar.
*r
K1 i ;>*i, gufuskipið er hefir verið á
ferðum hér við land sfðustu árin, strand-
aði við Noreg nú nýverið, samkv. einka-
skeytum, er fésýslumenn hér 1 bænum
hafa fengið. Hún er þó — eftir skeyti
er kom í gær — lítið biluð, og talin jafn-
góð með lítilli viðgerð innan lítils tíma.
(iiirnasala. Sláturfélag Suðurlands
seldi sfðastl. haust kindagarnir fyrir um
5500 krónur. Áður hefir sú vara verið að
engu eða litlu nýt.
Yflrlýsing'. Að gefnu tilefni skal
því lýst yfir, að ekki er átt við hr. Jónas
Lárusson veitingaþjón á „Hótel Island",
þar sem minst er á íslenskan veitinga-
þjón í grein minni í síðasta blaði.
Óþveginn.
I’i-ontvíllnr- voru slæmar í síðasta
tölubl. blaðsins. Fyrirsögn fyrstu greinar
var skuldbindarskrá, fyrir skuldbindingar-
skrá, og í athgr. við greinina „Daður" var
dementera í stað dependera. Þetta var í
litlum hluta af upplaginu.
Hannes Hafstein og Björn
Jónsson hafa enn ekki látið upp
átit sitt um
vefnaðarvörurnar
í
versl. Björn Kristjánsson,
en
en allur almenningur segir að þær
séu hvergi betri né ódýrari en þar.
á Laugaveg 24
hefur alt af nóg af númjólk á 18
aura pottinn, rjóma á 80 aura
pottinn, piskrjóma á 1 krónu pott-
inn skyri á 20 aura pundið og
undanrenningu á 8 aura pottinn.
Strandferðabátarnir nýn.
Skip þessi heita »Austri« og »Vestri« og fer hvor fyrir þeim hluta
landsins, er af nöfnunum ræður. Báðir eru þeir eins að stærð og allri
gerð, 160 fet á lengd, 26J/2 fet á breidd og 17!/2 fet á hæð til efsta þilfars.
Tvöfaldur botn er á þeim öllum og vatnskjalfesta, er nemur 150
smálestum.
Þeir eru traustir að allri smíð. Fara IOV2 viku sjávar í vökunni
að jafnaði, en geta farið IU/2 viku.
Skipin eru skrásett 443 smálestir »brutto«.
Frystirúm er í þeim af nýustu gerð.
í fyrsta farrými eru 36 farþegarúm, í öðru 30. Kvenfólki er ætluð
dyngja og körlum reykingastofa á efsta þilfari. í borðstofunni geta 24
menn setið til borðs. — Baðklefar eru og í bátunum. Fyrsta farrými er
mun betra en var í hinum gömlu.
Það er nýlunda á skipum þessum, að skipverjar eru flestallir is-
lenskir. Skipstjóri á »Austra« er Júlíus Júliníusson, frá Akureyri og
stýrimaður Sigurður Pétursson frá Hrólfsskála, er áður var stýrimaður á
»Ingólfi«. — Á »Vestra« er skipstjóri N. P. Nielsen fyr stýrimaður á Sterl-
ing og stýrimaður Guðmundur Kristjánsson frá Haukadal í Dýrafirði.