Þjóðólfur - 06.05.1910, Blaðsíða 2
74
ÞJ OÐOLFUR
Hverfisg. 4, Tals. 142, Reykjavik,
hefur nú fengið allar sínar nýju,
Fj ölbr eyttu, Smekblegu ojet Ó d ý r u
Sum aryörur.
Tefnaðarrörur af öllum tegundum.
Kvenfatnað, ytri sem inri.
Höfuðföt, fyrir Konur, Karla og Börn.
Stærsta úrval í bænum.
unkápur — Sundföt —m. m. fl
Hannessonar, (fyr á Guðlaugsstöðum),'dug-
legur bóndi og vel metinn. (Símfrétt).
TJr Mjóafirði er skrifað 23. f. m.:
»Hér er voðalegt ástand á Austurlandi;
útlit fyrir, held eg, almennan fellir, ef
ekki batnar helst nú þessa dagana. Þeir
eru búnir að drepa kýr sumstaðar á Hér-
aði og einnig fé; t. d. kom nýlega frétt
frá Eiðum, að búið væri að drepa þar
allan búpening.*) Þetta er voðalegt á-
stand fyrir landið og sárast, þegar þessi
fyrirmyndarbú ganga á undan í því, að
vera heylaus í fyrstu viku sumars.
€rlenð símskeyti
til Þjóðólfs.
hann fyrir friðil. Alt gerfi hans var
þannig. Mun þar hafa valdið það hversu
Leikfélagið er gjörsneytt góðum leikend-
um til þess að Ieika elskendur. Af leik
Þ. S. viljum vér sérstaklega vekja at-
hygli á hversu Ijómandi vel henni tekst
að senda karlinum viðeigandi augnatillit
er hún yfirgefur leiksviðið.
Dætur ímyndunarveika mannsins af
fyrra hjónabandi leika þær ungfr. Guð-
rún Indriðadóttir þá eldri, en Dagný
Árnadóttir (Eiríkssonar) þá yngri.
Eins og annað leikur Guðrún leik þenn-
an laglega, og sumstaðar mjög vel, en sá
galli er á leik hennar að hún talar oft
svo lágt að varla heyrist.
Dagný er leikur yngri telpuna, leysir
það hlutverk snildarlega af hendi. Hiklaust
einna best leyst af hendi það hlutverkið
af þeim öllum, svo blátt áfram og eðli-
lega, og svo talar hún skýrt og Ijóst, svo
ekkert orð tapast.
Hin hlutverkin eru smá, og fátt um
þau að segja, nema hvað geta má þess,
að það ferst eitthvað undur þunglamalega
að kasta lyfsalanum á dyr, fer nærri
óskiljanlega langur tími til þess, og eftir
framkomu lyfsalans að dæma, varla auð-
ið að hugsa sér, að hann færi jafnskjótt,
jafn hóglega og Beralde ávarpar hann.
í leikriti þessu er smáerindi sungið, en
sá galli er á söngnum að það er sungið
of óskýrt — orðin heyrast ekki. En
leikendurnir verða að hugsa meira um
orðin en sönginn.
Vænta má þess, að leikrit þetta verði
leikið enn, og ættu þeir, er eigi hafa séð
það enn, að nota tækifærið og fara f
leikhúsið til þess að fá sér hjartastyrkj-
andi hlátur.
Æfintýri á Gönguför þekkja allir.
Flestir er hafa gaman af þvf, munu og
hafa það af leik þessum.
Sfepfíán *3ónsson
ver8lunarstjóri á Sauðárkrók.
í gærmorgun kl. 5 varð bráðkvaddur
Stephán Jónsson verslunarstjóri á Sauðár-
króki. Hann var fæddur 7. Okt. 1856 í
Goðdölum í Skagafjarðardölum, og voru
foreldrar hans Jón Hallsson prófastur
síðar í Glatimbæ, (móðir sr. Jóns var
Marla Ólafsdóttir prests á Kvíabekk Jóns-
sonar) og Jóhanna Halldórsdóttir bónda
f Hvammi Þörðarsonar f Sesseljudal í
Blönduhlíð Þórsteinssonar.
Stephán heitinn ólst upp hjá foreldrum
sínum, en sigldi ungur að nema verslun-
arfræði. Er hann kom utan aftur, keypti
hann verslunarhús á Sauðárkrók, leigði
þau Gránufélaginu og gerðist verslunar-
stjóri fyrir það, og var það jafnan síðan,
og stýrði hann versluninni með dugnaði
og árverkni, enda mun sú deild Gránu-
félagsins altaf hafa borið sig vel.
Stophán heit. var tvíkvæntur; fyrri kona
hans var Ólöf Hallgrímsdóttir prests Thor-
laciusar f Miklagarði Einarssonar prests
Thorlaciusar, og áttu þau einn son, J ó n
kand. phil. og málara Sfðari kona hans
var Elín (Eggertsdóttir sýslumanns Gunn-
laugssonar) Briem, giftust þau 23. Maf
1903 og voru barnlaus.
Uppeldisdóttir Stepháns heitins er: Björg
Lovlsa Pálmadóttir (prests í Hofsós Þór-
oddssonar og Önnu Jónsd. próf. Halls-
sonar) kona Guðmundar Sveinbjörnssons
aðstoðarmanns f stjórnarráðinu.
Stephán heitinn var bjartur á brún og
brá, mikill á velli og karlmannlegur,
enda hraustmenni mikið, frfður sýnum og
höfðinglegur. Hann var hjartagóður og
hjálpsamur, og er haön hjálpaði var það
ekkert hálfverk, eða kák eins oft er hjá
öðrum. Risnu hans og gestrisni mun
lengi verða í minnum höfð. Allir þeir
er kyntust honum unnu honum enda
mun tauðla geta hjartabetri mann.
Hann var öryndur maður en jafnskjótur til
sátta, fylginn sér og duglegur er hann
tók eitthvað að sér. Stofnandi var hann
að sparisjóð Sauðárkróks, og jafnan í
stjórn hans’
Það er höfðingi hníginn að velli þar
sem Stephán er; höfðingi er Skagfirðingar
fá ekki brátt aftur.
Hvað er að frétta?
Sliipstrand i Selrogi. Frakk-
neskt skip, O n d i n e frá Painpoul í Bre-
tagne strandaði í Selvogi, skamt frá
Strandakirkju, síðastl. Laugardag. Það var
á leið hingað til Rvlkur og átti að birgja
fiskiskipin frakknesku með salti og öðr-
um birgðum og taka fiskinn úr þeim.
Farmurinn ónýttist algerlega og sjálft fór
skipið í í spón. — Allir menn komust af.
— Þoka var mikil þennan dag, hvast og
ólga í sjóinn. (ísaf.).
Skipströnd. Fiskiskipið »Vík-
ingur«, eign Asgeirs Péturssonar kaup-
manns á Akureyri strandaði 10. f. m. á
Haganesvfk. Menn björguðust, en skipið
er talið ónýtt, og er það mikill skaði fyr-
ir eigandann, því það var óvátrygt.
Norsk selveiðaskip kom til
Akureyrar 14. þ. m. fi-á Jan. Mayen, og
hafði það hrept ofsaveður, liðaðist við
það töluvert í sundur og kom að þvl
leki. Neituðu skipverjar að vera lengur
á þvf og vildu láta dæma það ósjófært.
Mannalát, Nýdáinn er Jón Guð-
mundsson bóndi í Stóradal í Húnavatns-
sýslu, föðurbróðir Guðmundar læknis
t
I
Kaupmh. 6. Mai.
Roosevelt réð til þess í »Nóbeh-
fyrirlestri sínum í Kristjaníu, að
hœtta herbúnaði með alþjóðasam-
tökum.
Högsbro fyrv. ráðherra dáinn.
Bœar-ann áll.
Slökkvilidið: Nýskipaðir foringj-
ar f slökkviliðinu: Sigurður Halldórsson
snikkari, yfirmaður við hlerana, L. Míiller
verslunarstj. flokksstjóri við sprautu nr. 4
en Bertelsen verkfræðingur, og Magnús
Magnússon kennari við sprautu nr. 1.
Loks er nýskipaður brunakallari fyrir
miðbæinn: Guðmundur Magnússon Grjóta-
götu 14.
Porvaldur Krabbe landsverk-
fræðingur ersettur fyrst um sinn eptirlits-
maður vitanna.
Dáin er aðfaranótt 28. f. m. frú Kar-
ítas Markúsdóttir prófasts í Odda, Jóns-
sonar, rúmlega sjötug (f. 19. Des. 1839)
ekkja Isleifs Gíslasonar prests í Arnarbæli.
Börn þeirraálffi eru: Gísli sýslumaður Hún-
vetninga, Kristín átti fyr séra Ólaf Helga-
son á Stóra-Hrauni, en síðar séra Glsla
Skúlason á Stóra-Hrauni, Ingibjörg kona
Ólafs Finsens læknis á Akranesi, Sigrún
ekkja Björns Ólafssonar augnlæknis og
Guðrún kona Sigurðar Briems póstmeist-
ara.
Hjónabönd. Einar Jónsson járn-
smiður Lv. 62 og ungfrú Þóra Vigfús-
dóttir 6. Mars.
Þórður Oddgeirsson stud. theol og ung-
frú Ragnheiður Þórðardóttir 2. f. m.
Þorbergur Guðmundsson bóndi og ung-
frú Ingibjörg Katrín Guðmundsdóttir 2.
f. m.
Dánir: 7. Apríl Sigrún Júlíana Tóm-
asdóttir ekkja Vesturgötu 22 (óaára).
8. s. m. Kristján Wíum Halldórsson
Njálsgötu 62 (22. ára).
12. s. m. Margrét Þorleifsdóttir sjúkling-
uf á Laugarnesspítala.
16. s. m. Sveinn Ingimundsson gamal-
menni Bergstaðastræti 41.
17. s. m. Anna Magnúsdóttir Grundar-
stíg 7 (26 ára).
20. s. m. Bergmannía Sigurjóna Sigfús-
dóttir kona í Litla-Steinsholti (21 árs).
21. s. m. Hjörleifur Guðmundsson trésm.
Njálsgötu 58.
23. s. m. Ingibjörg Þorvaldsdóttir kona
Hverfisgötu 26.
24. s. m. Hólmfríður Jónsdóttir kona
Frakkastíg 6.
S.d. Margrét Einarsdóttir barn Vitastíg 7.
26. s. m. Gísli Jónsson f Nýlendu.
*) Á Eiðum mun hafa verið drepnir
allir nautgripir og talsvert af fé. Sagt er
og, að sr. Magnús Bl. Jónsson í Valla-
nesi hafi drepið flesta nautgripi sína.
S. d. Ólöf Hafliðadóttir kona í Skild-
inganesi.
Skipaferðir. Sterling fórtil Eski-
fjarðar og útlanda 22. f. m. Til Eskifjarð-
ar fóru: Axel V. Tuliníus sýslumaður,
Jón Arnesen konsúll, jungfrú Sigrún Stef-
ánsdóttir, Vilh. Jensen kaupm. o. fl. Far-
þegar til útlanda: Þórarinn Tuliníus, og
Helga kona hans, Emil Schou bankastjóri,
C. Trolle umboðsmaður Hansafélagsins,
Ragnar Ólafsson kaupm. með frú sinni,
Lúðvík Möller kaupm. írá Hjalteyri, Ás-
geir Gunnlaugsson stud. polit., Fischer
verslunarm., Ishöj deildarstjóri hjá Bryde,
Guðm. Zophonfasson, jungfrú Guðrún
Guðnadóttir frá Keldum.
Vesta fór 27. f. m. vestur og norður
um land til útlanda, með marga farþega
þar á meðal Sigurður Jónsson bóndi f
Ystafelli.
Botnfa kom frá útlöndum 2. þ. m.
Meðal farþega voru: Jón Laxdal tónskáld
og kona hans, Philipsen steinolíufélags-
stjóri og fjölskylda hans, Rich Braun
kaupmaður, Andrés Bjarnason cand. phil.
er tekur við ritstjórn Ingólfs, Boving yfir-
réttarmálaflutningsmaður sonur Preben
Boving er sýslumaður var í Snæfellsness-
sýslu, Borgarfjarðarsýslu og Norðurmúla-
sýslu og Kristínar Guðrúnar Kristjánsdótt-
ur sýslumanns 1 Skarði Magnússonar. Hann
kom hingað f kynnisför og dvelur hér i
mánuð.
Aiistri kom úr strandferð 4. þ. m.
Andrés Féldsted áður Iæknir f
Þingeyrarhéraði er sestur hér að sen»
augnlæknir. Hann hefir dvalið utanlands
sfðastl. vetur til að fullkomna sig 1 augn-
lækningum.
Landsjóðslánið.
Á sfðasta alþingi var samþykt, að lands-
sjóður tæki 2 miljóna króna lán, til að
kaupa fyrir bankavaxtabrjef af Lands-
bankanum. Eins og menn munu reka
minni til, þá hefir ráðherra framkvæmt
lántöku þessa, fékk lánið hjá Dönum.
Var þá sagt, er hann fékk lánið, að betri
lánskjör hefðu verið fáanleg, en út í það
skal ekki farið hér.
»ísafold« skýrði frá lántöku þessari,
og var þá fengin i1/* ui'ljún króna, en
x/» miljón mun __ l'ggja óhreyfð hjá
Handelsbanken 1 Kaupmannahöfn.
Samkvæmt lögum þessum frá síðasta
alþingi, má ekki verja láni þessu til ann-
ars en að kaupa bankavaxtabréf af Lands-
bankanum. Ánnað er óheimilt.
En vegna þessara kaupa landsjóðs á
bréfunum, þá getur bankinn greitt þeim,
er fá veðdeildarlán lánin í peningum, í
stað bankavaxtabréfa, er lántakandinn á
oft örðugt með að hagnýta sér, að minsta
kosti án skaða.
Að því er vér höfum komist næst,
meðal annars af birtum reikningum Lands-
bankans, þá er landsjóður nú búinn að
kaupa bankavaxtabréf af Landsbankan-
um fyrir hér um bil 600,000 krónur, eða
varla helming af því fé, er ráðherranum
er búinn að veita viðtöku. Þ“ð liggur
því enn nóg fé hjá ráðherra til banka-
vaxtabréfakaupa, eða svo á það að vera.
Á Þriðjudaginn var fékk Gullbringu-og
Kjósarsýsla 6,500 krónu veðdeildarlán f
Landsbankanum, en sýslumanni voru af-
hent bankavaxtabréfin, bankinn gat ekki
keypt þau, að sögn bankastjóranna, vegna
pemngaleysis.
En hvernig víkur því peningaleysi við?
Burtséð frá því, hvort bankinn hefir
mikla peninga eða litla, þá hlýtur lands-
sjóður enn að hafa nóg af fé, sem ráð-
herra, samkvæmt fyrgreindum lögum, á
einvörðungu að verja til þess að kaupa
bankavaxtabréf, svo þótt bankinn væri fé-
lítill, þá á hann samt að geta keypt bréf-
'n, þar sem landssjóður kaupir þau strax
aftur.
Eða er ráðherra búinn að binda féð,
svo hann geti ekki keypt bréfin, þrátt
fyrir það, þótt svo sé til ætlast af fyr-
greindum lögum og annað óheimilt?
Fyrir alla þá, er veðdeildarlán fá, svo
og fyrir Landsbankann sjálfan, er það
nauðsyn, að bréfin verði keypt, því ekki
er annarstaðar svo mikill markaður fyrir
þau.