Þjóðólfur - 13.05.1910, Side 2
78
ÞJOÐOLFUR,
verslunin DAGSBRTJN
NÝTT
fyrir DÖMUR:
BLIJSUR,
KÁPUR,
NÆRF0T,
SOKKAR,
HÁLSSKRAUT,
SLIFSI,
mjög stórt úrval,
Allskonar
VEFNAÐ AR -
Y0RUR,
smekklegar og
ódýrar.
NYTT
fyrir HERRA:
HÁLSLÍN,
SLAUFUR,
SKYRTUR,
NÆRF0T,
REGN-
KÁPUR,
IiLÆÐNAÐ OR,
H0FUÐF0T,
Stærstfi
og 1> <‘ s I a
ÚfRVA L.
Verslunarráðunauturinn
í Stokkhólmi.
Miðvikudagskvöldið 13. Apríl hélt Bjarni
Jónsson frá Vogi fyrirlestur í Kaupmanna-
félagi Stokkhólms um Island, íslendinga
og verslun þeirra.
Verslunarráðunauturinn hélt því fram,
að Svíar ættu að setja á fót fastar gufu-
skipaferðir við Island, ekki síst vegna
hins mikla velvilja (stærke Sympati), er
íslendingar bæru til Svla.
Að fyrirlestrinupa loknum voru umræð-
ur, og talaði þá Dr. Wulff, þektur, sænsk-
ur grasafræðingur, er nýlega hefir ferðast
hér. Hann tók það fram, að hann áliti
það mjog einkennilegt, að Islendingar
óskuðu með slíkum ákafa að koma á fót
gufuskipaferðum þessum, þar sem þeir
sjálfir gerðu ekkert til þess að koma þeim
á fót, því bæði vitamál og hafnarmál
væri léleg. Náttúrlega mundi verslunar-
umsetning Svíþjóðar aukast eitthvað, en
menn mættu ekki gera sér miklar vonir
i því efni, en gæta að fólksfæð íslands
og hinni litlu verslunarumsetningu þar.
Bæar-annáll.
Fasteignasala. Þingl. 28. Apr.:
Arni Thorsteinson landfóg., L. E. Svein-
björnsson háyfirdómari, Björn Jónsson rit-
stjóri og Guðbr. Finnbogason kaupm. selja
Júlíusi Sehou steinhöggvara geymsluhús
neðst og nyrst á lóð húseignar nr. 14 við
Vesturgötu. Dags. 1. Júlí 1896.
Hjálmtýr Sigurðsson verslunarm. selur
Jóhannesi Lárussyni trésmið nr. 34 og 34
B við Laugaveg með tilheyrandi. Dags 9.
s. m.
Jóhannes Lárusson trésmiður selurólafi
Theódór Guðmundssyni trésmið nr. 34 B
við Laugaveg. Dags. 13. f. m.
Sami selur Hjálmtý Sigurðssyni verzl-
unarm. húseign nr. 12 A við Lækjargötu
m. tilh. Dags. 11. s. m,
Ólafur Theódór Guðmundsson trésmiður
selur Hjálmtý Sigurðssyni verzlunarm. nr.
34 og 34 B við Laugaveg með tilh. Dags.
16. Okt. 1909.
Páll Guðmundsson tésm. selur Davíð
Jóhannessyni húseignina Efri-Vegamót
(Grg. 1) með tilh. fyrir 5.400 kr. Dags.
12. Apríl 1906.
Pétur Zophoníasson ritstjóri selur Agli
Eyjólfssyni skósmið í Hafnarfirði '/'* úr
húseign nr. 10 við Ingólfsstræti m. tilh.
fyrir 5000 kr. Dags. 22. s. m.
"Tryggvi Gunnarsson fyrv. bankastjóri og
! Asgeir Sigurðsson kaupm. selja Lárusi H.
j Bjarnason forstöðum. Lagaskólans 1200
j ferálna lóð úr Meikotstúni, suðvesturhorn
j þess við Tjarnargötu og Skothússtíg fyrir
j 1500 kr. Dags. 8. s. m.
. Ólafur Jónsson
bæarfógetaskrifari andaðist hér í bæn-
um 5. þ. m., 58 ára að aldri (f. 14. Júlí
1851). Hann var fyrst nokkur ár sýslu-
skrifari hjá Skúla Magnússyni Nordahl í
j Stykkishólmi, síðan bjó hann í Máfahlíð
j og Hrísum. í Ólafsvik dvaldi hann í
10 ár, ýmist við verslun eða formensku,
en flutti 1899 til Reykjavíkur og var fyist
skrifari hjá landfógeta til 1904, en síðan
á skrifstofu bæarfógeta. Guðbjörg Mel-
chjörsdóttir kona hans lifir hann og þrír
synir: Melchjör skipstjóri í San Franciscó,
Grímúlfur bæarfógetaskrifari og Björgúlf-
ur læknisnemi í Kaupm.höfn. Ólafur heit.
var vænn maður og vel að sér.
Sæmundur Sigurðsson hrepp-
stjóri frá Elliða í Staðarsveit andaðist hér
í bænum 8. þ. m.
Trúlofuö eru: Halldór Vilhjálms-
son skólastjóri á Hvanneyri og ungfrú
Svafa Þórhallsdóttir biskups.
Skipaferðlr : sBotniac fór til út-
landa 9. þ. m. með nokkra farþega.
»Vestri« kom úr strandferð 10. þ. m.
með um 50 farþega.
«Jón Jónsson hreppstjóri á Haf-
steinsstöðum kom með »Vestra« síðast og
fer aftur með honum á hvítasunnumorgun.
„Margt smátt gerir eitt
stórt“ ei fyrirsögn á betliskjali, er
gengur um bæinn; á féð, er inn kemur,
að vera utanfararstyrkur handa einum af
embættismönnum bæarins. Það virðist
vera mjög ótilhlýðilegt, að alþýðamanna
hér í bæ eigi að skjóta saman til þess
að kosta slíkar farir. Og hvað dregur
um 50 au og þvílíkt í því sambandi?
Forstöðuroennirnir gefa aðeins 10 kr. Vér
verðum að líta svo á, að þetta hljóti að
vera gert án vitundar embættismanns
þess, er hlut á að máli. Vér skiljum
ekki annað, en hann kunni forgöngu-
mönnum óþakkir.
,,Ví<la.líu ú Þingvölliim ÍO.
•Jftlí er nafn á kvæðabálki,
ein örk í 8 b'. broti, sem nýlega erkom-
in út. Arnhólm nefnist höfundurinn, og
er það dulnefni. Kveðandinn er lipur.
Bókmentir.
Nýasta Vasakver
handa alþýðu. Endur-
skoðuð útgáfa. Útg.:
Friðbjörn Steinsson. Ak-
ureyri 1910.
Vasakver Friðbjarnar Steinssonar eru
orðin góðkunn um alt land. Þetta er,
eins og titillinn ber með sér, endurskoð-
uð útgáfa, og eru breytingar síðari tíma
teknar hér með. Hér er lýsing á metra-
kerfinu, bæði með nýgerfings-nöfnunum
og alþjóðaheitunum, og ennfremur tafla,
er breytir gömlu lengdarmáli í metramál,
auk margs annars, sem er þægilegt fyrir
sérhvern að vita deili á, svo sem um
prestsgjöld, kirkjugjöld, tolla, þinglestrar-
gjald, aukatekjuskrá lækna, póstgjöld,
símagjöld og flutningsgjald með skipum.
— Þar er rentutafla fyrir 4%, 5% og 6%,
og útdráttur úr mörgum helstu laga-
boðum.
Frágangur á þessari útgáfu er svipað-
ur og á hinum eldri, en pappírinn er
slæraur.
Ártíðaskrá Heilsolælisins.
Minningargj'öfum er veitt viðtaka
f skrifstofu landlæknis á hverjum
degi kl. 5—7.
Hælinu hafa Þe8ar borist nokkrar
minningargjafir.
Viðtökuskírteinin eru nú fullgerð.
Það eru stinn spjöld, gylt á röndum.
Á aðra spjaldhliðina er markaður
hvítur skjöldur, upphleyptur, á dökk-
bláum feldi. Skjöldurinn er með
sporöskjulagi. Á hann er ritað nafn
hins látna og dánardægur og nafn
þess, er gjöf gefur, en gjöfin því að-
eins skráð á skjöldinn, ef þess er
óskað.
Alt er þetta gcrt í Ifkingu við
málmskildi þá (silfurskildi) er tíðkast
hafa að fornu fari hér á landi, áður
en kransarnir komu til sögunnar.
Þá er utanbæarmenn senda minn-
ifigargjafir, eru þeir beðnir að skrifa
greinilega fult nafu hins látna, aldur,
heimili, stöðu, dánardægur og dauða-
mein; ennfremur nafn sitt, heimili og
stöðu. Þeim verður þá tafarlaust
sent viðtökuskírteini. Gjafirnar skal
senda til Jóns læknis Rósenkranz,
Reykjavík.
G. Bj'órnsson.
Hvað er að frétta?
Mannalíit. í f. m. andaðist M a g n-
ús Hansson Wíum bóndi á Syðrivík
í Landbroti.
Halley’s halas(jarnan sást
með berum augum á Möltu 20. f. m.
Heyleysi er sumstaðar á Norður-
landi, einkum á Skagaströnd, Fljótum og
Sléttuhlíð; hafa sumir bændur bændur
þar skorið mikið niður. I vestanverðri
Húnavatnssýslu svo og Strandasýslu sunn-
an til mega heita nóg hey, og með »Vestra«
sendu Hrútfirðingar talsvert af heyi til
ísafjarðar. (Símfrétt).
Oiiöiiiimiliii- Hávarðsson,
er var ekill konungs í konungsförinni,
hefir ritað bækling, er hann nefnir
»Hesten« og gefið út á sinn kostnað í
Kaupmannahöfn, og er ritið á dönsku.
Bæklingur þessi er með mörgum mynd-
um af íslenskum hestum, þar er Sumar-
liði póstur á reiðskjóta sínum, Stefán
skólastjóri Stefánsson á reiðhesti sínum
»Geysir« o. s. frv. í riti þessu eru ýmsar
upplýsingar um íslenska hesta, Og góðar
bendingar um meðferð þeirra, einkum
eftir að þeir koma til Danmerktir, og
getur varla hjá því farið að bæklingur
þessi geri annað en styðja hestaflutning
héðan til Danmerkur.
Leiðrétting, Af vangá hefir orðið
missögn í síðasta blaði um ætt Olafar fyrri
konu Stefánsheitins verslunarstjóra. Hún var
dóttir Hallgríms smiðs Kristjánssonar prests
á Tjörn Þorsteinssonar í Stærrárskógi Hall-
grímssonar, en móðir hennar var Olöf Ein-
arsdðttir prests í Saurbæ Thorlaciusar.
Prentvilla er og í móðurnafni nafni Stef-
áns, Jóhanna flalldórsdóttir fyrir Jóhanna
Hallsdóttir.
£eikjélag Reykjavíkur:
Eftir ósk allmargra bæarbúa
verður
ímyndunar-
veikia
leikin enn einn sinni á annan
hvítasunnudag kl. 8V2 í Iðnaðar-
mannahúsinn.
Þar með er leikum Leikfélags
Reykjavíkur lokið á þessu leikári.
Tekið á móti pöntunum á aðgöngu-
miðum í afgr. Ísaf.
cjÍQiÓtjfgi
óvanalega lágl verð.
Á komandi vori sel eg alls-
konar reiðtýgi og alt sem að
reiðskaji lýtur fyrir lægra
verð en nokkur annar.
Sömuleiðis aJktýg-i, sem
alla samkeppni þola.
Jón Þorsteinsson
söðlasm.
Lagaveg 57.
Cggart (Slaessen
jlrréttarmálaflutningsnuöar.
rósthússtrætl 17. Venjulega heima kL
10—n og 4—5. Tals. i6.
Stúlka óskast lil að gera hreintifrá
14. þ. m. Franski konsúllinn vísar á.