Þjóðólfur - 27.05.1910, Qupperneq 3
ÞJOÐOLFUR.
8 7
Oeir Zoéga
kaupmaður varð áttræður í gær (f. 26.
Maf 1830). Var þessa minnst hátíðlega,
og blöktu fánar á hverri stöng, og fjöl-
ment samsæti haldið um kveldið ( á
Hótel Reykjavík, er yfir 200 bæarmenn
tóku þátt í og buðu honum, konu hans
og börnum. — Mælti Páll borgarstjóri
Einarsson fyrir minni heiðursgestsins, en
G. Z. þakkaði og mælti jafnframt fyrir
minni Reykjavlkur. — Þá stóð upp Kl.
Jónsson landritari, og skýrði frá því, að
Geir Zoega hefði gefið heilsuhælinu á
Vífilsstöðum öll húsgögn í 10 einbýlis-
herbergi, og nam verð þeirra 5,500 kr.
— Björn Jónsson ráðherra skýrði frá því,
að G. Z. hefði afhent sér gjafabréf frá erf-
ingjum Kristjáns læknis Jónssonar, er
andaðist i Clinton í Iowa í vetur, en þeir
eru: Geir Zoega og kona hans, Halldór
prestur Jónsson á Reynivöllum og kona
hans og Sigurjón verslunarmaður Jónsson.
Nam sjóður sá 10,000 kr. og bera skyldi
hann nafn Kristjáns Iæknis, en vöxtunum
skal varið til styrktar sjúklingum á
heilsuhælinu. — Þökkuðu þeir ráðherra
og landritari þessar rausnarlegu gjafir.
Þórhallur biskup mælti fyrir minni konu
heiðursgestsins og barna hans, og Borg-
þór bæargjaldkeri Jósefsson mælti fyrir
minni hans sem 29 ára húsbónda sfnum
og aðalbrautryðjanda aðalatvinnuvega
Reykvíkinga. Stefanía Guðmundsdóttir
frú las upp kvæði, er Borgþór flutti heið-
ursgestinum, en ort hafði Guðmundur
skáld Magnússon. Annað kvæði eftir
séra Matth. Jochumsson var sungið þar.
Jlukaþingsáskoratiir.
Snnii-Mýlingfar héldu fulltrúa-
fund 12. þ. m. á Búðareyri við Reyðar-
fjörð, og var þar samþykt svohljóðandi
tillaga:
»Með því það er álit fundarins,
a ð ráðherrann hafi brotið bankalögin, er
hann heimildar- og ástæðulaust vék frá
þingkosnu gæslustjórunum, þvertofan
í ótvíræð lagafyrirmæli, og skipaði
nýa,
að hann hafi að vettugi virt dómsvald
landsins,
a ð hann hafi misboðið valdi rétti þings-
ins,
að hann hafi spilt fjárhag landsins og
veikt álit þess út á við,
að hann hafi f mörgu fleiru misbeitt
framkvæmdarvaldi sínu, og
a ð alþingi eitt hafi rétt til að kippa
þessu í lag,
þá krefst fundurinn þess, að alþingi verði
kallað saman til aukafundar svo fljótt,
sem því verður við komið á þessu sumri«.
Bangœingar héldu 17. þ. m. al-
mennan kjósendafund og samþyktu þar
svohljóðandi tillögur. Hina fyrri með 77
gegn 9 atkv., en hina sfðari í einu hljóði:
1. »Fundurinn lýsir yfir þeirri skoðun
sinni, og styður hana meðal annars
við þegar uppkveðinn úrskurð dóms-
valdsins, að ráðherrann hafi gengið
inn á valdsvið þingsins og tekið sér
ólöglegt og óhæfilegt einveldi yfir
Landsbankanum með afsetning gæslu-
stjóra hans fyrir fult og alt og skip-
un annara í þeirra stað. Þetta telur
ftindurinn, að þjóðin megi alls ekki
Þola afskiftalaust, enda lítur svo á, að
heppilegast sé, bæði fyrir úrlausn
bankamálsins og rtjórnmálaástandsins
í landinu yfirleitt, að þingið taki
bankamálið til athugunar og úrslita
sem allra fyrst. Fundurinn skorar
því á þingmennina, að fara þess á leit
við ráðherra íslands, að hann hlutist
til um, að kvatt verði til aukaþings á
þessu sumri svo fljótt sem unt er«.
2. »Fundurinn skorar jafnframt á stjórn
landsins, að leggja fyrir væntanlegt
aukaþing frumvarp til breytingar á
stjórnarskránni samkvæmt ályktun síð-
asta alþingis«.
Hvað er að frétta?
Landsímalagnmgfar 1009.
I fyrrasumar voru framkvæmdar síma-
lagningar þær, er taflan sýnir. Fyrri tölu-
dálkurinn sýnir kostnaðinn, eins og hann
varð, en slðari dálkurinn fjárveitingar
alþingis og sýslutillögin.
Reikn. Fjárv.
Reykjavík — Eystri-Garðsauka 40,863,71 58,433,00
Grund — Borgarness 10,341,25! 11,262,91 ‘ 21,600,00
Kalastaðakot — Akraness
Isafjörður — Hníisdalur — Bol- ungarvík 8,818,20 8,000,00
Til nauðsynlegrar útfærslu og umbóta, til stofnunar nýrra stöðva, til rannsóknar síma- leiða, m. fl. 13. gr. D II, 10 7,412,80 7,500,00
I viðbót til þess að kaupa Eski- fjarðarlínuca (fjáraukalög) Kr. 6,000,00 78,698,87 101,533,00
Kostnaðurinn við lagninguna hefir með
öðrum orðum orðum orðið n æ r r i 23
þús. kr. minni en áætlað var og fjár-
veitingar námu. .(ísaf.).
Mannalíit. 2. apríl andaðistPét-
ur Stefánsson (prests á Hjaltastað
Péturssonar) bóndi á Bót í Hróarstungu,
38 ára.
10. þ. m. andaðist á Möðruvöllum í
Hörgárdal Stefán Stefánsson faðir
Sigurðar prests í Vigur, Stefáns skóla-
meistara á Akureyri og Þorbjargar konu
Björns bónda Jónssonar á Veðramóti.
Hann var rúmlega áttræður að aldri (f. 13.
Ágúst 1829) og bjó um 30 ár á Heiði í
Gönguskörðum. Kona hans var Guðrún
(d. 20. Febr. 1902) dóttir Sigurðar bónda
Guðmundssonar á Heiði f Gönguskörðum.
Jón Ólafsson bóndi á Sveinsstöð-
um í Þingi er nýlega andaður. Hann
var sonur Ólafs bónda þar Jónssonar
prófasts f Steinnesi Péturssonar.
Páll Ólafsson bóndi á Akri í
Þingi er og andaður. Hann var fæddur
9. Sept. 1832, sonur Ólafs Jónssonar söng-
manns á Gilsstöðum og Steinunnar Páls-
dóttur prests á Undirfelli Bjarnasonar.
Kona hans var Guðrún Jónsdóttir prests
í Otrardal Jónssonar, og eru synir þeirra:
Bjarni prestur í Steinnesi og Ólafur skrif-
stofustjóri í Kaupmannahöfn.
Jóhann Kristján Jónsson fyr
bóndi Ingvörum í Svarfaðardal, andaðist
20. þ. m., 78 ára að aldri (f. 7. Ágúst
1831) faðir Árna bankaritara í Reykjavík
og systkina hans.
Magnús Brynjólfsson bóndi og
dbrm. á Dysjum á Álftanesi andaðist þar
12. þ. m. um nírætt.
Ofsaveður á Austurlandi.
Stórkostlegir fjárskaðar hafa orðið víða á
Austurlandi í ofviðri, er gerði þar 7. þ. m.
kl. 4 síðdegis og hélst þann dag allan og
daginn eftir. — Aftaka stórhríð var þessa
daga, og var veðrið svo ilt, að ekki var
ratandi milli húsa. Ekki eru greinilegar
fréttir komnar af fjártjóni því, er veður
þetta gerði á Fjöllum og Vopnafirði; en
það er sagt, að á flestum bæum hafi far-
ist fjöldi fjár. — Á Sleðbrjót í Jökulsár-
hlíð fórust 150 fjár, og á Hallgeirsstöðum
lentu 180 kindur í fönn, en fundist hafa
um 50 lifandi. Á Haugsstöðum 1 Jökuí-
dal fórust 100 sauðir og 60 fjár á Skeggja-
stöðum í Jökuldal.
Jón Ó. Magnússyni uppgjafa-
presti í Bjarnarhöfn er veitt 17. þ. m.
Arnarstapaumboð og Skógastrandar.
Bæar-annáll.
Keimaraskólanum var sagt
upp 20. f. m. og luku þar kennaraprófi:
1. Guðm. Ólafsson SörlastöðumS.-Þ. 90 st.
2. Helgi Salómonsson, Laxárbakka
í Hnappadalssýslu . . . . . 90 -
3. Kristbjörg Jónatansdóttir, Akur-
eyri.............................90 -
4. Sigurður Sigurðsson, ísafirði . 90 -
5. Svafa Þorleifsdóttir, Skinnastöð-
um N.-Þ. . ... . . 1 . . 89 -
6. Kristinn Benediktsson, Völlum,
Eyaf.............................87 -
7. Sigurður Kristjánsson, Ystafelli
S.-Þ. 87 -
8. Einar Sv. Frímann.Mýrnesi S.-M. 85-
9. Jóhann Einarsson, Laufási, S.-Þ. 85 -
10. Jóhann Jóhannsson, Skarði . . 80 -
11. Egill Hallgrímsson, Minni-Vog-
um, Gullbr.......................81 -
12. Þjóðbjörg Þórðardóttir Rvík . 81 -
13. Kristján Sigurðsson, Brenniborg
Skagaf...........................79 -
14. Kristíana Benediktsdóttir frá
Kornsá ..........................78 -
15. Egill Þorláksson, Ytra-Hóli Eyf. 77
16. Margeir Jónsson, Ögmundar-
stöðum, Skagaf.................76
17. Páll Stefánsson, Isafirði ... 73
18. Eufemía Gísladóttir, Hvammi,
Mýrasýslu........................70
19. Guðm. Magnússon, Hafnarnesi,
Suður-Múlas......................70
20. Ásmundur Þórðarson, Rvlk . . 69
21. Ingibjörg Sigurðardóttir, Svelgsá,
Snæf............................63
22. Kristmann Runólfsson, Suður-
koti, Gullbr.....................58
Gfifting’a.r. Kristinn Steinar Jóns-
son verslm. og ungfrú Sigríður Guðjóns-
dóttir, 5. Maí.
Þorsteinn Briem aðstoðarprestur í Görð-
um og ungfrú Valgerður Lárusdóttir,
6. Maí.
ísleifur Jónsson frá Kothúsum í Garði
og ungfrú Júlíana Bjarnveig Bjarnadóttir.
Thomas Thomsen vélameitsari í Bol-
ungavík og ungfrú Sigurlaug Jónsdóttir,
11. Maf.
Gamalíel Jónsson frá Hæðarenda í
Hafnarfirði og ungfrú Sigurbjörg Anna
Björnsdóttir, 14. Maí.
Guðjón Guðjónsson Grettisgötu 47 og
ungfrú Sveinbjörg Jónsdóttir, 14. Maí.
Valdimar Kristmundsson frá Skúms-
stöðum á Eyrarbakka og ungfrú Guðný
Jónsdóttir, 14. Maí.
Hjörtur Frederiksen hjúkrunarm. og
ungfrú Karen Marie Larsen, 21. Maí.
Kristján Ó. Þorgrímsson konsúll og
ekkjufrú Magnea Johannesen, 22. Maí.
Víxillölsun. Unglingspiltur hér 1
bænum hefir játað á sig víxilfölsun. —
Hann fór sjálfur til fangavarðar og lýsti
sökinni á hendur sér. — Hina fölsuðu
víxla hafði hann selt íslandsbanka, og
og námu þeir 2—300 kr.
Skipaferðir. »Kong Helge* fór
til Austfjarða og útlanda 22. þ. m. með
fjölda af sunnlensku verkafólki.
»Pervie« fór í strandferð 25. þ. m.
»Ceres« korn frá útlöndum og kringum
land 22. þ. m. og fór til útlanda 25. þ. m,
»Sterling« fór til útlanda 23. þ. m.
Morten Hansen skólastjóri var meðal far-
þeganna.
Jóni Guðmnndssyni fyrv. pósti
á Laugalandi hefir verið veitt ráðsmanns-
staðan við Vífilsstaðaheilsuhælið.
Concert Óskars Johansens í kvöld
í Báruhúsinu ættu menn að sækja. Öll
lögin eru samin af honum sjálfum. —
Nánar auglýst hér f blaðinu.
Cggcrt (Blaess&n
ySrréttariilaSntiiiiiíraaöiir.
PósthÚRStrwti 17. Venjulega heima kL
10—11 og 4—5. Tals. 16.
Betra er að vita rétt en
hyggja rangt.
Margir þeir, sem eru mér kunnugir,
hafa sagt mér að skuld mín við Lands-
bankann væri með stærstu skuldunum þar.
Hvaðan þetta er sprottið, segjast þeir
ekki vita, en frá mönnum bankans á það
eigi að vera komið, þar sem þagnarskilda
hvílir á þeim. En margir vita nú hvern-
ig komið er, þar sem bú mitt er tekið
til skiftameðferðar eftir kröfu Landsbank-
ans.
En hver er svo krafan?
Ekki mín eigin skuld heldur Timbur-
verslunarinnar Bakkabúð. Hún átti þar
víxil að upphæð 11500 kr. með átta
manna nöfnum, sem allir voru félags-
menn, en einn þeirra var orðinn eigna-
laus fyrir nokkrum vikum.
Sjálfur persónulega skulda eg Lands-
bankanum eða veðdeildinni ekki eina
krónu.
Þessi víxill er krafan. Tvö þúsund
krónur bauð eg upp í víxilinn og sömu
upphæð bauð annar maður.
En auk þess á félagið Bakkabúð reikn-
ingslán í bankanum, trygt með veðrétt-
um og sjálfskuldarábyrgð.
En af hverju er þetta svona komið?
Af því að margir sem fengið hafa lán
hjá Timburversluninni Bakkabúð hafa ekki
enn borgað skuldir sínar, en þeir eru
látnir í friði fara. Vitanlega er það okk-
ur félagsmönnum að kenna, en allir vita
að þeir sem lána, gjöra það í góðri trú
til þess sem (ær láníð.
Landsbankinn hefur fengið alla þá
sem skulda nefndri verslun uppskrifaða,
og er vonandi að þeir gefi sig fram við
hann og semji um skuld sína áður en
nöfn þeirra verða birt þeim til vantrausts.
Þegar svona er komið mun eg ekki
hlífa þeim sem ekki reyna að sína skil,
Fyrnefnda félagsverslun munar talsvert
um 10—20 þúsund krónur til Landsbank-
ans er svona stendur á.
Það er sárt að vera svo óheppinn með
fyrirtæki sln, að margir menn missi al-
eigu sína fyrir vanskil annara, en ekki
bætir það til ef hugsast gæti að óheppi-
lega væri ráðið til lykta, en Um það geta
orðið skiftar skoðanir. Eg læt mér ekki
detta í hug að pólitík komi nærri svona
gjörðum, en eg get ekki felt mig við að
flækjast hér manna á milli til lengdar
þegar eg er þó svo heppinn að geta
fengið peninga frá bræðrum mínum f
Ameríku til að komast þangað og eiga
vísa atvinnu þar. Marga langar til að
verða með og er það eðlilegt.
Ef margir verða svona óheppnir með
fyrirtæki sín, og geta alls ekki komist
að samningum, þá skil eg það vel að
þeir Ieiti fyrir sér á öðrum stað.
Bjarni Jónsson.
„Danski pabbi“
skrifar í »Ísafold«.
I »Isafold« siðustu hefir »danski pabbit .
ritað um þingmálafund Sunn-Mýlinga. Það
er ekki síður en vant er, þegar »danski
pabbi* ritar um nýja »húsbóndann í hjá-
leigunni«, farið loflegum ummælum um
hann. »Danski pabbi« segir þar meðal
annars, að »húsbóndinn« »hafi hlýtt vand-
lega og látið hlýða dómsvaldi landsins,
og, að hann með bankarannsókninni, og
úrskurðinum 22. nóv. f. á., eigi einungis
ekki veikt fjárhag landsins o. s. frv.,
heldur beint bjargað honum við og
aukð álit landsins út á við«f!!!j.
Hafa menn heyrt meiri fjarstæðu? —