Þjóðólfur - 01.07.1910, Qupperneq 4
to8
urskoðaða handbók presta, sem nú er
komin út. Hún hlaut konungsstaðfestingu
22. f. m. pg var notuð í fyrst,a sinni 25.
s. m. af Olafi frlkirkjupresti Olafssyni við
hjónavígslu Aage Sörensens verslunar-
manns og ungfrú Berthu Jóhannessen.
Daginn eftir var hún notuð við prestvígsl-
una í dómkirkjuna. Mörgu er þar breytt
til hins betra, sérstaklega eru hjónavígslu-
siðirnir ólíkt viðkunnanlegri en áður og
virðist lítill vafi geta á því leikið, að al-
þyða manna kunni vel við þær breyting-
ar. Hinn ytri frágangur Dókarinnar er
vandaður, bæði að því er pappír og
'prentun snertir, og bókin hin eigulegasta.
Gjafir til ForngrpÉsÍBS
og ieirra saína, er Jtí em sameinnð
1908 og 1909.
1908. (Niðurl.).
39/n Brynjól/ur Jónsson, Eyrarbakka:
Hnífsblað lítið, gjarðarhnit úr eiri og lát-
únsþynnur tvær litlar; fundið f Lundar-
rúst f Fljótshverfi.
leifar af klippum, lftið hnífsblað, beinstíll,
beinþynna með götum, bein með litlu
verki á, járnmolar tveir, naglahausar þrír,
jámþynna lítil, viðarkol, mold, aska, bein
úr nautgripum, hesli, sauðkindum, svfnum
og geit, nokkrir smásteinar, brennisteins-
molar, rauði, rauðagjall, hraunsteinar. Alt
afhent af D. Bruun, er kvað það grafið
úr jörðu á Hofsstöðum í Skagafirði sum-
arið 1908.
!9/r Altaristafla frá Hólakirkju í Ham-
arsfirði, stór, og hefir verið með íburðar-
miklu skrauti „barok“-stíl.
12/8 Kvarnarsteinn lítill, vaðsteinn, stein-
brot, viðarkol, beinflís, rauðagjall. Alt
sent safninu að undirlagi Finns Jónsson-
ar prófessors, líklega komið upp við gröft
í Ljárskógum.
Ennfremur hafa safninu bæst ókeypis
þessir gripir 1909: "/9 Altarisdúkur frá
Saurbæjarkirkju á Kjalarnesi, sá er nr. 866
í safninu var á áður og nr. 2539 síðar
(sbr. Skýrslu II, og Árb. ’8o—’8i, bls. 70.
Afh. af Eyjólfi bónda Runólfssyni, Saur-
bæ.
17/« Grafskriftarspjald með grafskrift á
latínu yfir sveininn Paul Beyer, d. 1707.
Ur Bessastaðakirkjugarði.
9/e Hluti af keri (vígsluvatnskeri?) með
broddmynduðum standi út úr, er verið
hefir til að festa það í vegg. Kom upp
úr Hallormsstaðakirkju.
9/e Steinþró samsett af 4 allvel tilhögn-
um sandsteins- eða móbergshellum; brot
tórt af steinkeri, úr hraungrýti. Hvort-
tveggja fundið í jörðu í Fagradal í Hraun-
hreppi.
2,/» Vaðsteinar tveir, sjö brýniskubbar,
'J*/8 Mannsbein tvö, uppblásin í Litlu-
hólum hjá Hruna, þar sem þeir Pétur
Spons og Jurin (c. Jorgen; Finch voru
dysjaðir 12. ágúst 1539.
'ls Nýleg eftirmynd af Ijósakolu úr járni
og skarbítur gamall úr kopar.
3/» Teikniborð gamalt, að líkindum not-
að af Birni Gunnlögssyni við landsupp-
drætti hans. Afh. af Bjarna Sæmunds-
syni adj.
15/9 Leifar af beinagrindum úr 8 mann-
eskjum, S hestum og 2 hundum; grafið
upp af D. Bruun skamt frá Brimnesi og
sent safninu.
Vídalínsniaín.
Prófessorsfrú Helga Matzen hefir með
bíjefi sínu til forstöðumanns safnsins, dag-
settu 1. apríl 1909, lýst yfir því, að mál-
verkið *Sagalœsning i en islandsk Bonde-
stue«, vér nefnum það »Á vökunnic, eftir
danska málarann prófessor H. Aug, G.
Schiött hafi talist til þeirra gripa, er þau
hjónin, hún ogjón Vídalín konsúll, ákváðu
að ganga skyldu til Forngripasafnsins.
Jón konsúll Vídalín hafði og málverk þetta
hingað með sér ásamt hinum gripunum.
Mannamyndasafnið.
9/j Gabríella Benediklsdóttir, Reykjavik:
„Ljósmynd" af dr. Pétri Péturssyni bisk-
upi, tekin í Reykjavík um 1865 af Guðbr.
Guðbrandssyni.
‘3/s Karl Finsen bókhaldari, Reykjvík:
Steinprentaðar myndir af þeim Finni bisk-
upi Jónssyni, Árna stiftsprófasti Helgasyni,
stofnendum Bókmentafélagsins fjórum, og
ÞJOÐOLFUR.
Birni Gunnlaugssyni og Bergi landsh.
Thorberg.
s/e Bríel Bjarnhéðinsdóttir: Prentuð
mynd af Valdimar Ásmundssyni.
e/c Rannveig Egilsson, Hafnarfirði:
Rauðkrítarmyndir tvær, gerðar 3. Júlí 1798
af S. M. Hólm, af Bjarna riddara Sigurðs-
syni (Sivertsen) og konu hans, Rannveigu
Filippusardóttir.
15/s Jón Borgfirðingur: Ljósmyndir,
átta, gerðar eftir öðrum eldri myndum a(
íslenskum mönnum og um 60 myndir
aðrar af ýmsum merkum mönnum ís-
lenskum.
Myiitasarnió.
-'ji Halldór Jónsson bankagjaldkeri:
Myntir frá ýmsum löndum, tuttugu og
fjórar að tölu, allar frá sfðari tímum.
12/s Landsbankinn: Nr. 00001 af fimm,
tíu og fimmtíu króna seðlum Landsbank-
ans hinum eldri.
16/« Einar Gunnarsson, cand. Reykjavík:
Myntir frá ýmsum löndum, 11 að tölu.
,9/s Háskólinn í Oviedo á Spáni: Minn-
ispeningur, stór, úr kopar, sleginn í til-
efni af 300 ára minningarhátíð háskólans
1908.
98/e Síra Runólfur Runólfsson, nú Gaul-
verjabœ: Tvær myntir nýlegar.
55/» Gaðbr. gæslamaður Jónsson, Rvík.:
Grænlenskur verslunarseðill, einnar krónu
ávísun, frá 1905.
Þjóóíræðissaínið :
Svo sem byijun þessa safns eru nú tald-
ir nokkrir útlendir gripir, er Forngripa-
safnið hafði eignast 1868—92. í byrjun
síðastliðins árs gaf Guðm. landlœknir
Björnsson safninu grænlenskan húðkeip
(kaiak), nýlegan, og fylgdi ár og stakkur.
Fisltfssatii.
Á síðastl. ári (1909) voru forstöðumanni
safnanna afhentir gripir þeir, er prófessor
Willard Fiske hafði ánafnað Forngripa-
safninu eftir sinn dag og sendir höfðu
verið hingað til Reykjavíkur skömmu eftir
andlát hans. Þar eð engir af gripum þess-
um eru íslenskir, voru þeir allir taldir til
sjerstaks safns út af fyrir sig, er nefnist
eftir gefandanum. Flestir eru gripirnir
egiptskir og fornir. Margir eru þeir, eink-
um nokkur málverk meðal þeirra, mjög
mikils virði, og er safn þetta alt í heild
sinni einkar vegleg gjöf, er vel ber að
varðveita og prýðilegar en nú er kosturá
um sinn, jafnframt til minniugar um þenn-
an göfuga velgerðamann þjóðar vorrar.
Hér er ekki rúm í blaðinu fyrir ná-
kvæmari skýrslu um þessa gripi, en hún
birtist væntanlega í þ. á. árbók Fornleifa-
félagsins. Gripirnir eru til sýnis í ment-
safnahúsinu.
Malthías Pórðarson.
Hjii-n í ióstur. Óskað er eftir að
barn á 2 ári verði tekið til fósturs hjá
góðu fólki, gegn góðu meðlagi (12 kr. á
mánuði). Afgr. vísar á.
Þar eð eg fer nú í ferðalag,
bið eg þá sera þurfa að eiga við
mig einhver viðskifti að snúa sér
til herra Jóhans Kristjánssonar
afgreiðslumans Þjóðólfs, sem ann-
ast útborganir á meðan eg er Qar-
verandi.
Rvik 29Á 1910.
•lóh. Jóhannesson,
Laugaveg 19.
BÆKUR
innlendar og- útlendar.
Ritföng. I^JipjH'r.
— skrlfpappír, prentpappír, plöntupappír, umbúðapappír,
kreppappír o. fl.
Póstpappír í blokkum, sem allir ættu að nota.
Dæmalaust ódýr og séleg póstfeorta-albúm o. fl.
ISezt að kaupa allt sIíKt i
Bókaverzlun Sigjúsar tjynrnnissonar.
Daast Kolnial-Klisse-Lilteri
Tilladt og garanteret af Staten
'íQOOO Lodder — 21550 (íevinster og 8 Præmier
indtil eventl.
En Million Francs
bliver udloddet i 5 Trækninger
Gevinster udbetales uden nogetsomhelst Fradrag
1. Trækning sker allerede d. 14. og 15. Juli d. A.
Original-Lodder forsendes:
Hele Lodder a 30 Frc. 60 cts. = 22 Kroner 40 0re
Halve — - 15 — 30 — = 11 — 20 — ,
Fjerdedels — - 7 — 65 — = 5 — 60 —
det autoriserede Expeditions Kontor
C. F. Lages,
Köbenhavn Ö.
(Bestillinger udbedes omgaaende. — Officielle Planer gratis)
Adresse: C. F. Lages i Köbenhavn Ö.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: E*étnr Zóphóníasson.
Prentsmiðjan Gutenberg.
Laxa-
Og
og ýmislegt annað tillieyr-
andi veiðiskap er ný-
komið í
versl. Sturlu Jónssonar.
TSý ir og skilvísir
kaupendnr fá élceypis um
leið og blaðið er borgað:
1. itoincy Stone,
skáldsaga eftir hið fræga
skáld Englendinga, Conan
Doyie, 108 bls. í stóru broti
og prentuð með smáu Ietri.
2. islcnskir sagnaþættir.
2. hefti, 80 bls. Par er i
Þáttur af Árna Grímssyni, er sig
nefndi síðar Einar Jónsson, eftir
Gísla Ivonráðsson.
Frá Bjarna presti í Möðrudal.
Draugasaga.
Um Hjaltastaðafjandann. Mjög
merkileg og áður ókunn frá-
saga um þennan merkilega
anda eða fjanda. Rituð af
samtíðarmanni sjónar- og-
heyrnarvotti.
Frá Eiríki Styrbjarnarsyni og
frá Metúsalem sterka i Möðrudal.
Ennfremur verður bráð-
lega fullprentað:
islenskir sagnaþættir,
3. hefti. Þar í verður meðal
annars:
Páttur af Kristinu Pálsdóttur
úr Borgarfiði vestra og
Sagnir úr Austfjörðum.
Afgreidgla blaðslns er á
liaug-aveg) 19 (austurendanum).
r
Miklar birgðir. Ódýrust i
verzlun
Sturlu Jónssonar.