Þjóðólfur - 29.07.1910, Blaðsíða 4
124
ÞJOÐOLFUR.
nærri rétti vorum, og beitti þeim svo
knálega, að hans jafningja höfum við
naumast átt; hann hopaði ekki, held-
ur sagði „aldrei að víkja". Hann tal-
aði um sjálfstæði, og hann vann líka
að því.
Oss, sem þennan dag höfum áform-
að að opna innlenda iðnsýning hér
í Reykjavík fyrir alt ísland, varðar
það miklu, að almenningur skilji það
hlutverk vort rétt og starfi vel að
að því, að alt verði sem veigamest;
það er ekki á valdi eins eða fleiri,
heldur allra, sem þetta land byggja.
Upp hugur og hönd til starfa! Ef
vér fylgjumst að og störfum þar
eftir, þá má alt vel fara.
Já! vér eigum þenna dag að opna
innlenda iðnsýningu; en vér eigum
líka að gera meira, vér eigum á
þeim degi að mynda nýtt þjóðmenja-
saýn nútímans, sem oss vantar svo
tilfinnanlega, og bestu sýningarmun-
irnir eiga að vera fyrstu máttarvið-
irnir í því safni, sem svo hinir ungu
og óbornu geta bætt við og hlúð að.
Auðvitað þarf hið háttvirta al-
þingi að koma hér til sögunnar og
leggja til þess nýa safns, en það
á líka að vera landsins eign frá upp-
hafi til enda.
Það er veitt árlega fé til að vernda
kirkjugripi, og eins til þess að kaupa
fyrir gamla muni, og það sýnist ó-
hjákvæmilegt; því virðist ekkert ó-
sanngjarnt, þótt eigulegustu munum
nútímans væri líka gaumur gefinn,
sem svo á sínum tíma gætu myndað
sjálfstæða hugsun í iðnaði. Og það
er einmitt einkar vel til fallið að
byrja þetta safn á fyrstu iðnsýning-
unni, sem talist getur að hér sé
haldin og á að opna á ioo ára af-
mæli Jóns Sigurssonar. Það á að
stofnsetjast þann dag.
Ingólfsnefndin hefur enn fremur ósk-
að að geta þá afhjúpað mynd af
Ingófi Arnarsyni landnámsmanni, sem
er í smíðum og af íslenskum hugs-
unum og höndum gjörð, og afhent
hana þá landinu til eignar; en til
þess vantar nokkurt fé ennþá. En ef
allir gera eitthvað til þess auka það,
með því að kaupa seðla eða leggja fram
nokkra aura, má það vel takast, því
að myndin bíður þess nú, að hún
verði steypt í eir, og nú stendur
ekki á öðru en nokkurri viðbót af
peningum.
Þér íslendingar 1 Er mátturinn ekki
svo mikill, að riðinn verði bagga-
munnurinn? Jú, ef vér viljum, þá
getum vér það; sýnum það þá í
verki, munum að tíminn er naumur,
svo að bið stoðar ekki.
Fyrir mér vakir sú hugsjón um
þennan dag, að það geti orðið kær-
asti sólskinsdagur íslenskrar menn-
ingar, sem um langan tíma hefur
skinið yfir þetta land. Mér finst eg
heyra í fjarska óm, sem kveði um
þann morgunroða, sem aldrei muni
ganga til viðar.
Rvík io. Júlí 1910.
yón Halldórsson.
Hvað er að frétta?
Bruni. Bærinn á Hellu f Beruvík
undir Jökli brann til kaldra kola nýlega.
Bóndinn, Ögmundur Andrésson, fátækur
fjölskyldumaður, og fóik hans, bjargaðist
með naumindum á nærklæðum. Alt var
óvátrygt, en Jöklamenn hafa hlaupið svo
myndarlega undir bagga, að þeir hafa
bætt bónda skaðann að fullu.
„Vestrl« strandaði 26. þ. m. á Haga-
>000000 0000000 00 oooc
10 íbúðarhús vil eg kaupa hér í bænum, en ekki
dýrari en alt að 6000 krónur hvert. Engin áhersla
lögð á, hvar í bænum húsin standa, en á þeim má
alt.s ekkert hvíla nema veðdeildir. Eg borga að
nókkru með peningum við afsal.
Jóh. Jóhannesson.
Laugaveg 19.
.A.Urugid. Nokkrar ágætar íbúðir hefi eg til
leigu. Leigjandi þarf engin ómakslaun að borga mér.
Jóli. Jóliannesson.
>000000 0000 00 (
Ódýra
Gaslampa «9 Suðuvélar
útvegar undirritaður.
»Sólar«-lampinn eyðir t. d. einungis 90 Litr. á kl.tíma,
en gefur ca. 110 normalkertabirtu. Gassparnaður því ca.
42%. »Sækular«-lampinn sparar gas um 60°/o.
Verðskrár með myndum til sýnis.
Þeir, sem vilja nota ódýrar gaslýsingar og gassuðuáhöld,
gefi sig fram sem fyrst.
• I. 15. Pétursson,
Talsími 1S5. Talsími 185.
Nýlendugötu ÍO.
Forskriv selv Deres Klædevarer
direkte fra Fabrik. Stor Besparelse. Enhver kan faa tilsendt portofrit
mod Efterkrav 4 Mtr. 130 Ctm. bredt sort, blaa, brun, gron og graa
ægtefarvet finulds Klæde til en elegant, solid Kjole eller Spadserdragt
for kun ÍO Kr. 2,50 pr. Mtr. Eller 31/* Mtr. 135 Ctm. bredt
sort, morkeblaa og graanistret moderne Stof til en solid og smuk
Herreklædning for kun 14 Kr. 50 0. Er Varerne ikke efter
0nske tages de tilbage. í h. b. 1 ár.
Aarhus Klædevæveri, Aarhus, Danmark.
m
nesvík f Fljótum, en náðist þaðan út aft-
ur óskemdur í gær, og hélt áfram férð
sinni norður á Akureyri.
Eftirmæli.
Hinn 9. Febr. síðastl. andaðist Guðrún
Jónsdóttir, hjá tengdasyni sínum í Þver-
árdal í Bólstaðarhlíðarhreppi. Guðrún
sál. var ekkja eftir Jóhann Frímann Sig-
valdason, fyrrum hreppstjóra í Mjóadal.
Þau hjón áttu 10 börn, lifa 4 þeirra móð-
ur sína, 2 synir, annar þeirra í Amer-
íku, og 2 dætur. Foreldrar Guðrúnar
sál. voru: Jón Sveinsson, fyrirmyndar-
búhöldur sinnar tíðar, og Sigríður Jóns-
dóttir í Landanesi í Torfulækjarhreppi.
Ólst hún upp hjá foreldrum sínum uns
hún giftist 1861. Vorið eftir fluttist hún
með manni sínum að Mjóadal og bjó þar
með honum mesta gestrisnubúi í 34 ár.
Eftir að hún lét af búskap fylgdist hún
með og var hjá tengdasyni sínum til æfi-
loka. — Guðrún sál. var gáfukona, hóglát,
umburðarlynd og aðlaðandl, ráðdeildar-
söm, skyldurækin og ástrík eiginkona, en
umhyggjusöm og elskuleg móðir böruum
sínum. A yngri og efri árum sínum var
hún sönn heimilisprýði og sómi stéttar
sinnar. Astkær minning hinnar látnu
merkiskonu verður því ógleymanleg í
huga og hjörtum barna hennar og ástvina.
G. G.
1910.
IVýir og skilvísir
kaupendur fá ókeypis um
leið og blaðið er borgað:
1. RoJney Stone,
skáldsaga eftir hið fræga
skáld Englendinga, Conan
Doyle, 168 bls. í stóru broti
og prentuð með smáu letri.
2. islenskir sagnaþættir.
2. hefti, 80 bls. Þar er i
Þáttur af Árna Grímssyni, er sig
nefndi síðar Einar Jónsson, eftir
Gísla Konráðsson.
Frá Bjarna presti i Möðrudal.
Draugasaga.
Um Hjaltastaðafjandann. Mjög
merkileg og áður ókunn frá-
saga um þennan merkilcga
anda eða fjanda. Rituð af
samtíðarmanni sjónar- og
heyrnarvotti.
Frá Eiriki Styrbjarnarsyni og
frá Metúsalem sterka í Möðrudal.
Ennfremur verður bráð-
lega fullprentað:
islenskir sagnaþættir,
3. hefti. Þar í verður meðal
annars:
Þáttur af Kristínu Pálsdóttur
úr Borgarfiði vestra og
Sagnir úr Austfjörðum.
Afg;reiðsla blaðsins er á
Laugaveg 19 ('austurendanum).
Ritstjóri og ábyrgðarm.:
Pétur Zóphóniasson
Prentsmiðjan Gutenberg.
Dömuklæði,
á kr. 1,40, nýkomið. Einnig
úrval af hinum annáluðu ullar-
Peysum. allar stærðir, og
nærfotin sterku og ('xlýrn.
í Austurstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson S>' Co.
Af því að eftirspurn er svo mikil
eftir farmiðum, fer »Ingólfur« tvær
ferðir upp að Saurbæ á Hvalfjarð-
arströnd þann 31. þ. m., og leggur
á stað í fyrri ferðina bl. 4 árdegis,
og verða sem flestiv að jara með
þeirri ferð.