Þjóðólfur - 21.10.1910, Síða 2

Þjóðólfur - 21.10.1910, Síða 2
i;é ÞJOÐOLFUR bráðabyrgðarlán þetta yrði nolað, þá hefir hann látið frönsku bankana vita, að lánið yrði tekið og gert þeim aðvart um, að hafa féð á reiðum höndum innan skamms. Ef nú svo er, að Landsbankastjórnin hefir i hyggju að ganga frá hinum gerða samningi og neita láninu, þá sjáum vér ekki betur en að með þvílagisésúmóðg- un sýnd ekki aðeins fulllrúa Frakka hér á landi, heldur og hinum franska pen- ingaheimi og allri hinni frönsku þjóð, sem með engu móti má eiga sér stað, hvort sem litið er til sóma Landsbankans, landsstjórnarinnar eða allrar hinnar is- tensku þjóðar og hagsmuna hennar. Vér erum þess og fullvissir, að svo framtmál þelta verður nú að engu og bráðabyrgðar- láninu er neilað eftir að samningar eru svo langt komnir, sem rann er á orðin, og enda lagalega bindandi, þá er loku fyrir það skolið, að íslandi framvegis standi lil boða lán frá Frakklandi, og að því er þelta lán snerlir, mun það hvorki standa nœstkomandi alþingi eða öðrum til boða. En eins og peningahag lands- ins er nú komið, er auðsœlt hverjar af- leiðingar slíkt mun hafa fyrir viðskiftalíf landsins i framtíðinni. Vér verðum þvi hér með að skora á yður, hœstvirti herra ráðherra, að hlut- ast til um, að Landsbankastjórnin geri nú þegar ráðstafanir til að taka lán frá Frakklandi, sem hún með áðurnefndum samningi við Samvinnubankann hefir skuldbundið sig til að laka. Mál þetta hefir dregist svo lengi, að það þolir enga bið, og verðum vér því að fara þess á leit, að beint svar Lands- bankastjórnarinnar um það, hvort hún œtli að taka lánið eða ekki, komi oss í hendur innan tveggja daga, þar sem vér að öðrum kosli ekki getum ábyrgsl þœr afleiðingar, er lengri dráttur getur hafl í för með sér«. Fjórutn eða fimm dögum síðar sendi ráðherra til »Sif« bréf það frá Lands- bankastjórninni, er hér fer á eftir, og segir ráðherra, að þar sem stjórn Lands- bankans sé reiðubúin til að taka hið um- rædda lán, svo framarlega sem samningar takast um nánari skilyrði fyrir lántökunni«, þá þyki stjórnarráðinu eigi ástæða til frekari aðgerða«. sLandsbanki íslands. Reykjavík 16. jfúni /pio. Háttvirt brjef hins háa stjbrarráðs, dags. i gœr, og þar nieð ýylgjandi bréj ýrá „Samvinnubanka íslenskra fast- eigna" dags. 13. þ. m. meðtekið. I svarinu leyfum vér oss að kalla banka þennan „Sif', sem er nafn hans venjulega: Þar sem „Sif' heimtar svar innan 2 daga, er teljast verður frá dagsetn- ingu bréfs hans 13. þ. m., er oss eng- inn timi gefinn til andsvara\ verður því að virða oss til vorkunar, þb eigi getum vér svarað nefndu bréfi hans eins rœkilega og vér mundum gera, ef timi vceri nœgur. Öðru sinm verðum vér að áskilja oss nœgilegan tíma. Til bráðabirgða verða sv'ór vor þessi: Landsbankastjórnin hefir sama hug og áður á því, að taka umrcett pen- ingalán ýrá Frakklandi. Eftir fund þann, sem haldinn var með hr. kon- súl Brillouin 22. Aþríl s.l. skriýuðum vér honum bréf 2J. Apríl; var pað borið undir 2 útvalda menn úr „Sif“, og þeir samþyktu, að senda það. Leyf- um vér oss að senda hér með eftirrit af þvi bréfi. Vér vœntum að herra Brillouin kallaði oss á fund strax eýtir komu „Botniu" hingað um 1. Maí', sú eSŒýRomió með ,Ceres‘ og Sterling : Kjólatau í morgun- og dagkjóla. I) a <£-1 !• eyjutau. Svuntutau. Flauel, margar tegundir. Lífstykki, ný tegund, sem alt kvenfólk þarf að sjá og reyna. Enskar liúfur, fleiri tegundir. Sokkar, mikið úrval, fyrir börn og fullorðna. Prjónag-arn, ágætt, í mörgum litum. "Vetrarhúíur, fyrir telpur. Borðdúkar, hv. og mislitir. Kvensvuntur, hv. Vn saklútar, hv. og misl. og margt fl. Árni Kiríkssou. von brást. Hinn 11. Maí ritaði hann oss bréf; leyfum vér oss og að senda hér með eflinit af því. Það bréf gefur oss ekki tœkiýœri til að koma á fund með honum, til þess að fá „specijicerede Laanebetingelser", sem hann 22. Apríl hafði stungið upp á að síma eýtir, og til pess að i>for- berede Aýslutningen evertuelt aýslutte Forhandlingerne om det og Landsban- kens önskede Laani. En í bréfinu ber konsúllinn fram ýmsa skilmála, sem ekki á neinn hátt liggja nndir umráð vor. Vér höfum síðan beðið og vcenst ýrekari svara, en engin ýengið. Skal nú ekki orðlengja formála þennan', en áskiljum vér oss síðar að koma fram með ýrekari skýringar, ef þörf skyldi gerast. 1 þetta sinn skal fram tekið, að Landsbankastjbrnin er ennþá reiðubúin að taka frakknesk lán, er: 1. vér höfum ýengið ákveðið skriý- legt lánstilboð, sem vér getum álitið sé aðgengilegt fyrir umrœddu bráða- birgðarláni. 2. trygt er landssjóði með aðgengi- legum kjörum oýt umrœtt stórlán, sem »Sif« í bréfi sínu 13. þ. m. segirum: „stendur landssjóði til boða, svo „ýramarlega sem alþingi samþykkir „slíka lántöku “. — Sem kannugt er, er það til þess að hjálpa til þess, að tryggja landinu slíkt lán, að Lands- bankinn hefur samið við »Sif« um samvinnu. 3. að út af samningum milli Lands- bankans og »Sif« sé: a. kosin stjbrn ■»Siýs« (sbr. 1. gr.J. b. reglugerð i>Sifs« framlögð og breytt, ef Landsbankanum finst þörý á því (sbr. 2. gr.). c. »Siý« uþpýylli skjallega 3. gr. (sbr. 8. gr. og p. gr.) um veð- deildarbréfakaup, yfirfceri kauparétt sinn til Landsbankans og fái það stað- fest aý landsstjbrninni, enda lofi lands- stjbrnin að fullnœgja skilyrðum þeim, sem Landsbankinn hefir sett í fyrir- vara í p. gr. / og 2. Útdráttur úr samningi milli Lands- banka íslands og »Sifs« ýylgir hér með. Vér áskiljum, að pessum skilyrðum öllum verði ýullnægt innan tveggja daga, svo vér getum gert nanðsynlegar ráðstafanir erlendis með s/s sSterling«. Landsbanki tslands. Virðingarfylst. Björn Kristjánsson. Björn Sigurðsson. Til Stjórnarráðs lslands". í tilefni af þessu bréfi skrifaði »Sit« þegar 20. Júnf ráðherranum á þessa leið: »7 tilefni af heiðruðu bréfi stjórnar- ráðsins dags. if. p. m., ásamt eýtir- riti aý bréfi Landsbankans til stjórn- arráðsins dags. 16. p. m., skuium vér leyfa oss að taka ýram út af 3. lið a—c i neýndu eýtirriti, það er nú skal greint: »Siý« er reiðitbúinn til a. að tilnefna sinn mann i stjórn sína samkv. samningum, jaýn- skjbtt sem þörf gerist. b. að leggja ýram, eý þorý gerist, reglugerð sína þegar til lántöku kemur. c. að i>Sif« hefir þegar yfirfcert með samningi sínum við Lands- bankánn rétt sinn til kaupa veð- deildabrjeýa landsjóðs til bank- ans, en hefir auðvitað ekkert á mbti því, ef bankiun telur pess þörý, að gefa homm sérstaka skriflega yfirlýsingu um þá yfir- ýærslu við ýullnægju neýnds samningsc. Sorglegt slys. Fimtudaginn 13. þ. m. druknaði 1 Ytri- Laxá á Skagaströnd Sigurður Páls- s o n héraðslæknir á Sauðárkrók. Sigurður heit. var sóttur í læknisferð þar vestur, og var á leið frá Skagaströnd inn að Blönduósi. Ár voru í vexti, því fönn, er komið hafði, leysti skjótlega. Ætlaði Sigurður að stytta sér leið og reið inn bakka og fór Laxá á sjávarvaði, er það fremur tæpt. í ánni var krapelgur, og hestur Sigurðar hefir ónýtur verið. Slitnaði hnakkgjörðin og losnaði Sigurður við hestinn, og fanst llk hans rekið tveim dögum síðar á Skagaströnd, og sóttu Skagfirðingar það vestur. Fylgdarmaður iæknisins vissi ekkert, fyr en hesturinn kom Iaus upp úr ánni á eftir honum. Sigurður heit. var fæddur 24. Maí 1869 í Miðdal í Laugardal, voru foreldrar hans Páll sfðar prestur í Gaulverjabæ Sigurðs- son bónda á Bakka f Vatnsdal Jónssonar (en móðir Páls var Margrét (d. 22. Sept. 1844) Stefánsdóttir (d. 13. Júnf 1839) bónda á Hofi í Vatnsdal Guðmundssonar bónda á Kálfstöðum í Hjaltadal Halldórs- sonar (d. 1769) bónda á Bakka í Yxna- dal Jónssonar) og kona hans Margrét Andréa Þórðardóttir sýslumanns Guð- mundssonar. Sig. heit. kom í skóla 1884 og útskrif- aðist þaðan 1890 með II. eink., og úr læknaskólanum 28. Júní 1894 með I. eink. 6. Maí 1896 var hann settur læknir í Skagafirði, en 12. Júní 1897 var honum veittur .styrkur í eitt ár sem lækni í austur- hreppum Húnavatnssýslu, en 8. Nóv. 1898 var honum veitt Sauðárkrókshérað. Sigurður heit. var mjög vinsæll maður og vel látinn, enda oft og iðulega sóttur út fyrir læknisumdæmi sitt, og neitaði hann aldrei læknisförum og var ótrauður f öllu ferðalagi. Hann var kátur og fjör- Ugur í viðræðum og naut trausts og hylli sýslubúa, enda gegndi bann ýmsum opin- berum störfum fyrir þá, t. d. foimaður sýslubókasafnsins, aðalmaður spftalastjórn- arinnar o. s. frv. -— Kona hans er Þóra Gfsladóttir verslunarm. í Reykjavík Tómas- sonar, og eiga þau tvö börn á lífi. Þingmdlafundur Árnesinga að Tryggvaskdla. Ár 1910, laugardaginn 15. Okt. var þingmálafundur fyrir neðri hluta Árnes- sýslu haldinn að Tryggvaskála samkvæmt áður auglýstu fundarboði beggja þing- manna sýslunnar. Á fundinum voru mættir þingmennirnir báðir og um 60 at- kvæðisbærir menn úr neðri hluta sýsl- unnar. Fundarstjóri var kosinn Eggert Bene- diktsson hreppstj. í Laúgardælum, en skrif- ari sfra Ólafur Magnússon í Arnarbæli. Þessi mál voru tekin fyrir: x. L a n ds tj ór n i n. Eftir nokkrar umræður var í þessu máli samþykt með öllum greiddum atkvæðum svofeld til- laga: »Fundurinn er eindregið þeirrar skoð- unar, að þjóðinni se ekki sæmandi að hvika í neinu frá sjálfstæðis- og réttar- kröfum landsins gagnvart Danmörku f sambandsmálinu, og leggur sérstaka á- herslu á, að alþingi stígi ekkert spor í þá átt, er geti orðið til hnekkis fullu sjálfstæði landsins í framtíðinni; telur öldungis ótækt að viðurkenna stöðulögin sem þann grundvöll, er þingið megi á nokkurn hátt byggja á í löggjöf sinni, og telur æskilegt að gagugerð endurskoðun á stjórnarskránni verði undirbúin sem rækilegast á næsta þingi; en bráðabyrgð- ar kákbreytingar þvf aðeins tiltækilegar, að af þeim stafi enginn réttarspillir á af- stöðu vorri gagnvart Dönum f sjálfstæðis- máli þjóðarinnar«. 2. Skattamál. Um þetta málefni urðu talsverðar umræður, ekki síst í sam- bandi við aðflutningsbannslögin. Tillaga kom frá 1. þm. sýslunnar um, að kosin væri nefnd til að athuga skattamálin og koma með ákveðnar tillögur um þau, er síðan yrðu sendar þingmönnunum. I nefnd þessa voru kosnir: Eggert hreppstj. Benediktsson í Laugardælum, síra Gísli Skúlason, Guðmundur verslunarm. Sigurðs- son á Eyrarbakka, Helgi sölustj. Jónsson og síra Ólafur Magnússon.— Þá var bor- in upp svofeld tillaga um aðflutnings- bannið : »Fundurinn skorar á alþingi að halda fast við gerðir síðasta þings, að því er snertir lögbann á innflutningi áfengis, og hvika í engu frá þeirri stefnu, hvorki með frestun bannlaganna, né tilslökun á þeim, þótt hagfelt kynni að þykja að breyta einstökum atriðum þeirra«. — Þessi til- laga var samþykt-með 18 atkv. gegn 16,

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.