Þjóðólfur - 20.01.1911, Page 4
12
ÞJOÐOLFUR
Heiði, er hann kom með lest sunnan af
Suðurnesjum, og er hann kom á Njarð-
víkurfitjar, lá þar lest að austan; sváfu
þar lestarmenn í tjaldi sínu. Jón greip
eina fiskabagga þeirra, og varpaði á reið-
ingshest sinn einn lausan og lét lestinaá-
fram halda, en var eftir sjálfur við tjaldið
i lausum hesti; brennivínskút hafði hann
við söðuLsinn, er hann hafði tekið á Báts-
endum eður í Keflavík, lést ölvaður, vakti
lestamenn og tók að ræða við þá og gefa
brennivín, og lést sofna þar hjá þeim,
slarkaði síðan hjá þeim um hríð; meðan
söknuðu þeir bagganna, og sagði Jón þá,
að skamt mundi eftir þeim að leita, en ei
vaeri nieira en mannsverk að vita, í hverja
átt þeir v*ru komnir; gengu þeir nú á
það lagið, og ætluðu hann fjölkunnugan;
segja sumir, að þeir gæfu honum fé til,
að láta sig vita áttina, og elta með sér
þjófinn; sagði hann þeim þá, að þaraust-
ur heiðina hefði sá farið, og reið nú þá
leið með þeim; en er á heiðina kom, kvað
hann þann böggunum stal mundu ei ríða
almanna-veg, yrðu þeir því dreift aðríða,
en er leiti bar af, hleypti Jón frá þeim og
létti ei fyrri en hann náði lest sinni; fór
Jón norður og heim til s(n.
3. Skólasveinar gista að Jóni.
Það er sagt að Jón færi bygðum vestur
1 Laxárdal hinn fremri; sumir segja hann
búið hafa á Skyttudal um hrið; hafði þá
Húnaþing Bjarni sýslumaður Halldórsson
á Þingeyrum, en óljóst er, hve Iengi Jón
bjó þar, en þaðan flutti hann að Kálfárdal
1 Gaunguskörðum, og hafði þá svikist um
að gjalda Bjarna þinggjöld; hugði sýslu-
maður því að lögsækja hann fyrir óskil
þau. Þá voru á vist með sýslumanni
Bjarni Jónsson og Sigþrúður blinda Jóns-
dóttur prests á Staðastað vestur; varBjarni
sá borinn að Álftavatni 1 Staðarsveit, og
Markús Pálsson lögréttumanns á Brodda-
nesi, Markússonar, Pálssonar, og námu
þeir f skóla á Hólum og urðu slðan
prestar. Það var einn vetur, að þeir
gengu báðir úr skólanum heim vestur til
Þingeyra fyrir Jólin, sem venja var til, en
er þeir gengu norður aftur í skólann
þrettánda dag jóla, og ætluðu að ganga
Litla-Vatnsskarð norður á Víðidal og
norður Molduxaskarð til Hóla skemstu
leið, kom á þá logndrífa, svo þeir viltust
og vissu aldrei, hvar þeir fóru; færð var
ill á fjöllunum og fannalög mikil. Bjarni
var all-knár maður og varð honum töfað
Markúsi, og kom svo, að nauðulega fékk
hann dragnað á eftir Bjarna; vildi það þá
til, að Bjarna sýndist missmlði nokkurt í
einum stað á snjónum, skaraði til með
staf sínum, og fann að hurð var undir
yfir snjógöngum fram af fjárhúsdyrum;
fór hann þar inn og lét Markús þar inn
koma í garðinn; var þar hlýtt þvíjfé var
í húsinu; við það gekk Bjarni út aftur og
sýndist ljós glampa í glugga skamt frá sér
gekk þangað, fann gluggann og guðaði á
hann; honum var gengt inni; Bjarni spyr
hvað bær sá héti, og hver fyrir ætti að
ráða. Sá svarar er inni var; „Litluskift-
ir þig það, ef þú fær að vera og hefir
þörf beinleika"; leið og ei langt um, áður
maður kom út, hvatlegur í bragði og kná-
legur; bauð hann Bjarna gistingu, en þá
Bjarni spurði hann að nafni, lést hann
heita sem flestir; gat Bjarni þá um Mark-
ús; leiddi bóndi Bjarna inn og sótti Markús,
í þvf rauk á blindviðriskafald á norðan.
Þeim Bjarna var búið rúm gott og þar
næst borið heitt hangikjöt, og allur var
þeim veittur hinn besti beioi, og bóndi
mjög málhreifur við þá og fóru orð vitur-
lega. Daginn eftir var kafaldshríð, og lét
5 nætur, er hríðina birti, fylgdi bóndi
þeirn, og hafði með sér tvo hesta úr húsi;
fylgdi hann þeim ofan hjá Sauðá; var þá
færð góð um fjörðinn; Iéði hann þeim
hestana heim fyrir Hrísháls og heim til
Hóla, ef vildu, og sleppa þar; mundu þeir
rata heim aftur. En áður en þeir skildu,
sagði hann Bjarna, að hann héti Jón
Bjarnason, og ætti heima í Kálfárdal. Sagði
Bjarni það síðan, að mjög angraði hann
þá fátækt sín, að geta endurgoldið Jóni
beinann að engu; en úr skólanum ritaði
Bjarni Bjarna sýslumanni um beinleika
Jóns; gaf hann honum upp sýslugjöldin,
og 3 spes(ur sendi hann honum að auki,
og Bjarni Jónsson 2. Bjarni varð síðast
prestur að Mælifelli og*Markús^að Auð-
kúlu. Heyrði Sigríður, yngri dóttir Bjarna
prests, föður sinn segja fráfþessu, vitur
kona og minnug, er lengi bjó^að Nauta-
búi í Skagafirði og átti Jón smið.Svarf-
dæling.]
4. Jón tók Þórunni til fóstnrs.
Um þessar mundir var allhart í ári og
þjófaöld svo mikil, að ei gagnaðist fé í
fjárhúsum. Er það sagt eitt með öðru,
að á Hafsteinsstöðum var göngustafur
rekino í járnhring á bæarhurðinni og lát-
inn ganga út fyrir báða dyrustafi, meðan
stolið var sauðum úr fjárhúsum; er þar
þó nábýlt, og Hafsteinsstaðir snertuspöl
ofan Staðar í Reyninesi, er og svo kallast
Reynistaður; var það því víða, að menn
höfðu sauðfé sitt í baðstofum, þeir er fátt
áttu, að betur fengi varðveitt, og gagnað-
ist þó ei stundum. Ekkja ein bjó á Skolla-
tungu í Gönguskörðum, er þrjú börn átti,
öll ung, og ær nokkrar, er hún hafði á
baðstofugólfi; var það alt kvikfé hennar;
þorði hún þeim aldrei út að sleppa um
veturinn, og bar þeim hey og vatn; hreytti
hún þær og fram undir jól, að blanda í
vatn handa börnum sfnum; var það þá í
kafaldi Þorláksmessu fyrir jól, að maður
kom fannbarinn með grímu inn á gólfið,
greip bestu ána og leiddi út; ekkjan þótt
ist kenna baksvip mannsins, og ætlaði
vera Jón Bjarnason; varð henni það að
orðum og angráðlega: „Guð hjálpi mér!
því gerir þú mér þetta, Jón?“ svaraði
hann engu, og hvarf út í hríðina með ána.
Nær hálfum mánuði síðar var það, að
maður kom inn á gólf í Tungu á belg-
hempu slðri, með slapahatt; sá ógerla í
andlit honum; gekk hann að pallinum og
þreif yngsta barnið, er Þórunn hét, stakk
undir hempu sína og hvarf á burtu; harm-
aði ekkjan það mjög, og víssi ei, hverju
sætti, og þótti það miklu sárara, en ær-
takan; taldi hún sér harm allan í skap,
og það með, að mærin var fáklædd eða
nær nakin, en frost var á mikið, og svo
hvað kynlega að þetta hefði að borist,
hljóp ofan og út með kalli og gráti, og sá
það eitt, að maður reið óðfluga frá bæn-
um, en það var bert síðan, að þetta var
Jón Bjarnason; ól hann mærina upp og
qætti svo ærtökuna; var það Þórunn sú .
er hann kendi best að ríða og temja hesta,
sem orðlagt var. Áttu þau Snjálaug, kona
Jóns, og hann ei barn, en mörg börn tók
Jón af volæði og ól upp fyrir alls ekkert,
og unni þeim, sem sjálfur ætti; var og
Snjálaug góð kona og lét ei sitt eftir
liggja að fóstra þau.
timanntmvitnnrarflnnimianHraimrtiiriitivraifiiiimaiaiiitrartfaiaiiiiiiiaiiiiimitiiaiiKiiiait
Adalfundur Framfara-
félags Reykjavíkur verð-
ur haldin á „Hótel Island ', (inngong-
ur frá Aðaistræti), Sunnud. 22. Jan. þ.
á. kl. 6. e. h.
Pantið sjálfir fataefni yðar
beina leið frá verksmiðjunni. Stór sparnaður. Án þess að borga
burðargjald getur sérhver tengið móti eftirkröfu 4 ITItr. 130 Ctm.
breitt svart, blátt, brúnt, grænt eða grátt ektalitað aluIIar-14 I.ÆI)I
i fallegan, haldgóðan kjól- eða sparibúning fyrir (‘iiiungis ÍO kr.
2,50 pr. Mtr. ^ Eða 3’/« Mtr. 135 Ctm. brcitt, svart, myrkblátt eða
gráleitt iiamóöins efni í sterk og falleg karlmannsföt íyrir aðeins
14 kr. 50 aur. Ef vörurnar eru eigi að óskum kaupanda verða
þær teknar aftur.
Aarhus Klædeveverii Aarhus, Danmark.
CiCjCjGrt &ÍGQssen
jlrréttarmálaltttmngsiiiaöiir.
rósthásstrwti 17. Venjuiega heimi kl
io—ii og 4—5. Tals. 16.
aj klsSurn og kj&laejnnm,
ábreiðnm, Jéðurtannm,
lérejti o8 baðmutlarðúkum
frá
BÉMíWÍp,
tot 7, Svenborg, Danmark w i
jnt vönðuðustu vörur.
i op iiisliir tekiar í skiftum.
fyrir dónikirkjusöfnuðinn í Reykja-
vík verður haldinn laugardaginn 28.
janúar 1911 kl. 8 síðd. í húsi K. F.
U. M. við Amtmannsstíg.
Dagskrá:
1. Sóknargjaldalögin frá síðasta al-
þingi.
2. Kirkjusöngurinn.
3. Önnur mál, er upp verða borin
á fundinum.
Rvík 13. janúar 1911.
Sóknapnefndiii.
1911.
Nýir og Kkil vÍMÍr
kaupendur fá ólíeypis um
leið og blaðið er borgað:
1. Roðney Stoue,
skáldsaga eftir hið fræga
skáld Englendinga, Conan
Doyle, 108 bls. í stóru broti
og prentuð með smáu letri.
2. islenskir sagnaþættir.
2. hefti, 80 bls. kar er í
Þáttur af Árna Grímssyni, er sig
nefndi siðar Einar Jónsson, eftir
Gísla Konráðsson.
Frá Bjarna presti i Nlöðrudal.
Draugasaga.
Um Hjaltastaðafjandann. Mjög
merkileg og áður ókunn frá-
saga um þennan merkilega
anda eða fjanda. Rituð af
samtíðarmanni sjónar- og
heyrnarvotti.
Frá Eiriki Styrbjarnarsyni og
frá Metúsalem sterka i Möðrudal.
Spinderi
maskiner 2 sæt Karte og 1 sæt spinde-
maskiner (240 sp.) etc Kluderiver,
Skruepresse, alt í god brugbar Stand
sælges meget billigt ved Henvendelse
til Fabrikant Th. Frank, Odense,
Danmark.
kom mikið úrval af egipsk-
um Cigarettum í
Tóbaksv. IP. Leví.
Austurstræti 4.
Þorskaneta-járnhringar eru mik-
ið betri á þorskanet en annað,
flækja ekki netin og tínast ekki af
3. islenskir sagnaþættir,
3. hefti. 86 bls. Par í er:
Þáttur af Kristínu Pálsdóttur
úr Borgarfíði vestra,
Æfiágrip Sverris steinhöggvara
Runóifssonar,
Sagnir úr Austfjörðum,
Frá Hljóða-Bjarna,
Afkomendur Önundar í Kýr-
holti.
í ár verður prentað hefti
af sögu þeirri er komið hefir
byrjun á hér í blaðinu, og
verður sagan send öllum skilvís-
um kaupendum blaðsins.
'lfgroiftsla blaósln# er &
Laugaveg 19 (austurendanum) og
og er opin hvern virkan dag kl.
1—» og 6—9.