Þjóðólfur - 10.02.1911, Qupperneq 3
ÞJÓÐÓLFUR.
23
f
Jón Guðmann Sigurðsson
bóndi á Laug.
Dáinn 26. Desember 1910.
Heyr nýársins náklukkur gjalla,
vér nötrum, Þ*r skelfa oss alla.
Það blæðir hið banvæna sárið,
er bygð vor hlaut nýliðna árið.
Vér ástvininn mistum hinn mæta,
þvi má oss ei nýárið kæta.
Sá fullhuginn félag vort prýddi
og frækinn við lífskjörin stríddi.
Nú syrgja hann brúður og börnin,
því best var hann stoð þeim og vörnin
og yndissól ásta i heimi,
sem er jarðlifsins seimi.
Af kjarngóðri rót var hann runninn,
sem reynir við náttúru-brunninn,
og þaðan kom þrekið og kraftur,
og það gaf hann niðjunum aflur.
Á undan fór ágætur bróðir,
þvi er nú svo tómt hér um slóðir.
Þeir vóru sem viðirnir sterku
og vaskir í lifsstarfi merku.
Vér hugðum oss hamingjan gæfi
að halda þeim langa um ævi.
Vér sáum þá sorgina eigi
né sortann á óförnum vegi.
En áður en árið var liðið,
varð ömurlegt fjallgarða-sviðið,
þars Gullfoss og Geysir sig halda,
af gusti frá helinu kalda.
Þar bræðurnir báðir nú hvila
og bliknuð mun jörðin þeim skýla,
en nýárssól nú skín á leiði
og nátthimins stjarnbjarta heiði.
Vor huggun og hjálp er ei falin,
þótt’hnigi tveir garpar i valinn.
Við stýrið hann stendur, vor faðir,
er stýrir um aldanna raðir.
* *
Að biðja um viður-
kenningu!
Ein af tillögum þeim, er bornar voru
upp á aðalfundi Búnaðarfélags íslands 8.
þ. m. var þess efnis, »að búnaðarþingið
hlutaðist til um, að reglurnar fyrir verð-
launaveitingum úr Ræktunarsjóði og sjóði
Kristjáns konungs IX. yrði þannig breytt,
að bændur þyrftu eigi að sækja um
sllk verðlaun«. Formæli tillögumanns
voru á þá leið, að sökum þess, hve sær-
andi það væri fyrir sjálstæðismetnað góðra
bænda, að verða »undirgefningarfylst að
óska — — biðja — — sækja um, að
dugnaður þeirra, hagsýni og framkvæmd-
arsemi mætti njóta verðugrar viðurkenn-
ingar með nokkrum krónum, sem þá í
rauninni munaði lítið eða ekkert um«,—
gætu sumir þeir, er viðurkenningarverð-
astir væru, eigi fengið af sér að koma
fram, og lentu verðlaunin því stundum
hjá öðrum óverðugri, sem síðar veigruðu
sér við að nota þessa niðurlægingar-
aðferð. — Voru dæmi nefnd um atorku-
sama framkvæmdabændur, er eigi fengj-
ust til að sækja um verðlaunin, eins
og nú er ákveðið. Sumir þeirra bænda,
er viðurkenninguna ættu að vísu fyllilega
skylda, yrðu að »brjóta odd af oflæti
sínu« til að ná í hana, meðan umsóknar-
ákvæðið stæði, og væri óheppilegt, að
þessar sjóðsstofnanir miðuðu til að bæla
niður sjálfstæðis-hugsunarháttinn hjá »stólp-
um landsins«‘ en efla ölmusu-þægðina.—
Taldi tillögumaður líklegt, að koroa mætti
því svo fyrir, að skýrslur einar nægði til
þess, að menn gætu komið til greina við
úthlutun verðlaunanna.
Eg hef viljað leiða athygli að tillögu
þessari; því mér finst hún hafa við rök
að styðjast.
Fundarmaður.
Þingmálafundur í Borg'-
arnesi var haldinn síðastl. Laugar-
dag. Uppsýslumenn, sem með ör-
fáum undantekningum eru Heima-
stjórnarmenn, komust ekki á fundinn
vegna vatnavaxta. Norðurá með öllu
ófær. Þingmaðurinn komst ekki á
fundinn og eigi heldur sýslumaðurinn
í Arnarholti. En Jóhann í Sveina-
tungu var staddur úti á Hvanneyri
og komst því á fundinn. Svo fór
samt, að Heimastjórnarmenn höfðu
eins atkv. meiri hluta(53 : 52) í sam-
bandsmálinu. —
Þingmálafundur í Vestm.>
eyum er nýhaldinn af þingmanni
kjördæmisins.
í stjórnarskrármálinu og bankamál-
inu voru þar samþyktar samskonar
tillögur, frá þingmanninum, og hér
á Reykjavfkurfundinum.
Fundurinn vildi fá síma til eyanna,
en mótmælti loftskeytum.
Bæar-annáll.
Á ÞriðudagHkvöldið komu
þeir hingað til bæarins alþingismennirnir
Jósef J. Björnsson, Stefán Stefánsson frá
Fagraskógi og Ól. Briem. Fóru þeir land-
veg í Borgarnes, en þaðan komu þeir
með Ingólfi. Sóttist þeim vlða ferðin seint
sökum ófærðar og krapaelgs í ám. Á
Holtavörðuheiði komust þeir t. d. aldrei
yfir Miklagil, urðu því altaf að fara með
norðurijöllunum, lengri leið og torsóttari,
væri þá vel, ef það yrði til þess, að brú
kæmi yfir Tröllagil, svo sem Hermann
Jónasson barðist eitt sinn fyrir á alþingí.
Það kostar nokkur hundruð króna, en
sparaði mörgum ferðamanni tíma, útileg-
ur og jafnvel lífið. Það er þörf að brúa
slíkar slæmar fjallár, endarhefir oss verið
sagt, að ætlað væri fé til þess á fjárlaga-
frumvarpi stjórnarinnar.
Jón Magnússon bæarfógeti fór
um daginn snögga ferð til Vestmanneya
til þingmálafundarhaids; kom aftur á
Laugardagskveldið.
„Vesta“ fór í gær frá Borðeyri.
Búnaðart'élag íslands hélt
aðalfund sinn á Miðvikudagskvöldið.
Fundurinn var illa auglýstur, illa sóttur
og ómerkilegur.
í tyrra "kvölti komu þeir hing-
að alþingismennirnir Einar JóDSSon og
Þorleifur Jónsson.
Jarðartör Jóns kaupmanns Þórð-
arsonar fór fram í dag. Var afarfjöl-
menn. Húskveðju hélt sr. Haraldur Ní-
elsson, en í kirkjunni talaði sr. ólafur
Ólafsson.
Hvað er að frétta?
Samsæti héldu Skagfirðingar 28. f.
m. Ólafi alþm. Briem í tilefni af 60 ára
afmæli hans. Sátu samsætið um 60 manns.
Þar færðu þeir Jhonum að gjöf vandað,
áletrað gullúr og gullfesti, 500 kr. virði að
sögn. Páll V. Bjarnason sýslumaður tal-
aði fyrir heiðursgestinum og afhenti hon-
um gjöfina fyrir gefenda hönd, er voru af
báðum stjórnmálaflokkunum.
Lausn 1 rá embætti. Helgi
læknir Guðmundsson í Siglufirði, hefir
fengið lausn frá embætti sínu frá því f
vor að telja.
Maimalát. 29. f. m. dó Jakob
Thorarensen kaupmaður 1 Kúvíkum í
Reykjarfirði. Hann var sonur Þórarins
verslunarm. (Stefánssonar amtra. Thorar-
ensen og Katrínar systur Péturs amtm.
Havsteens. Jakob rak mörg ár verslun
f Kúvíkum, var hann merkur borgari, vel
efnaður og naut trausts og hylli. Hann
varð 82 ára. Hann átti fjöldamörg börn,
af þeim eru 4 á lffi: Ólafur bóndi f ísa-
fj.sýslu, Þórarinn bóndi í Gjögri, Valdi-
mar málafærslumaður á Akureyri og Karó-
lína, gift Fr. Sjöbekk bónda og beykir í
Reykjarfirði. Á meðal dáinna harna hans
var Katrín móðir J. C. Lambertsens kaup-
manns hér í bænum.
Skipstrand. Enskur botnvörpung-
ur strandaði nýlega í Meðallandi. Menn
björguðust.
íslenskar sagnir.
Páttur
Grafar-Jóns og Staðar-manna.
(Eftir Gfsla Konráðsson).
5. Frá Reykstrendingnm og lát Bjarna.
Þá er Jón bjó í Kálfárdal, átti sá maður
jörðina, er Bjarni hét, son auðugs bónda,
er Gísli1) hét, á Ingveldarstöðum á Reykja-
strönd; voru þeir bræður Bjarna, Gísla-
synir, Jón og Ólafur. Jón bjó á Skálár-
hnjúk; átti hann Guðnýu Guðmundsdótt-
ur, systur Gunnars á Skíðastöðum í Lax-
árdal; voru þeirra böm mörg, og dóu
flest í harðindum nema Bjarni, er hverj-
um manni var djarffærari f Drangeyar-
bjargi, svo hann fékk leyfi að fara sér
einn um bjarpið og veiða fugl í speldum,
og svo var þá dirfska hans mikil, að hann
svaf í skútahyllu, þar alleina er svo tæpt,
að hann mátti liggja aflangur,|með skrínu
slna við höfðalag en fuglakippu til fóta,
en þaðan er þverhnýpt nær fertugt í sjó
ofan; vissu þá engir slíka dirfsku, og þá
aðra, að Sveinn hét fósturson Magnúsar
prests Árnasonar á Fagranesi, er gekk á
smánöglum upp í Gíslahelli í Heiðna-
bjargi, rak þá í bjargið, er hann fór upp,
en dró út, er hann fór ofan; því móberg
eitt er í Drangey. Sveinn sá var Auðunsson
undan Jökli; bjó Sveinn eftir það lengi
á Skaga og síðast á Sævarlandi; var hann
formaður og vel að sér til bókar. Bjarni
Jónsson bjó lengi í Kálfárdal, og varð að
lyktum karlægur og afargamall; hans synir
voru þeir ísleifur og Guðvarður, en Sig-
ríður dóttir. Ólafur, bróðir þeirra Jóns
og Bjarna Gíslasona, var faðir Kristjáns
bónda á Ingveldarstöðum, föður þeirra
Jóns smiðs á Ingveldarstöðum, Ólafs á
Hrafnagili í Laxárdal2) og Þorvaldar á
Brúnastöðum í Tungusveit, en þau voru
börn Sveins Auðunssonar og Þóru konu
hans Jónsdóttur frá Hóli á Skaga: Jón,
námsmaður mikill, Þóra og Guðrún. En
það er frá Bjarna að segja, að hann var
kallaður góður drengur; vildi hannbyggja
Jóni Bjarnasyni út af Kálfárdal, en hann
tekið lítt á upp að standa; fór Bjarni
síðan heiman frá Ingveldarstöðum og
1) Glsli dó 1776. A meðal barna hans
var Ólöf, ef átti Dag Olafsson. Þeirra
son Jón er hér er fyr nefndur.
2) Kona Ólafs var Sigurlaug Gunnars-
dóttir frá Skíðastöðum. Á meðal bama
þeirra var Guðrún, er átti Björn hreppstj.
á Hafragili Gunnarsson frá Skíðastöðum
Gunnarssonar. Þau voru systkinabörn.
Á meðal barna þeirra er Ingibjörg kona
Guðmundar i Sveinskoti á Reykjaströnd
Guðmundssonar á Ingveldarstöðum. En
Guðm. á Ingveldarstöðum var bróðirBjörns
Gunnnarssonar.
ætlaði að byggja Jóni út með vottum,
en þá tókst svo kynlega til, að hann
druknaði í læk í minsta vexti, er Hrak-
síðuá heitir, er rennur ofan í Göngu-
skarðsá, milli Skarðs og Veðramóts; varð
þá ei af útbýggingunni; var þetta eignað
af sumum fjölkyngi Jóns.
6. Yeðramótsliyski.
Maður hét Jón Þorbergsson1), er bjó að
Veðramóti, þá Jón bjó í Kátfárdal; kona
hans hét Sigríður Jónssdóttir2), í frændsemi
við Eggert prest Eiríksson, Eggertssonar,
er lengi var prestur í Glaumbæ; var Sig-
ríður vitur kona og vel látin. Þau Jón
áttu margt barna; hét Þorbergur son
þeirra einn; hann átti Herdísi, dóttur Sig-
urðar Ólafssonar í Vatnshllð, og var Mál-
fríður dóttir þeirra, kona Sigurðar í Borg-
argerði, Sigurðssonar á Hrauni á Skaga,
Sigurðssonar frá Gillastöðum í Laxárdal
vestur. Vigfúss) var annar son Jóns og
Sigrlðar, en dætur: Katrín, Ingibjörg,
Margrét, Guðrún, Sigrlður, Ólöf og Arn-
fríður; giftust þær engar, og þóttu ærið
vílsamar sem faðir þeirra. (Frh.).
1) Jón var sonur Þorbergs Bessasonar
á Irafelli Ingimundssonar þar Bessasonar
á Urðum Hrólfssonar sterka á Álfgeírs-
völlum Bjarnasonar en móðir hans var
Arnfríður Stefánsdóttir frá Skatastöðum.
2) Sigríður var dóttir Jóns á Steinstöð-
um Eggertssonar lögréttum. á Ökrum.
Þau eru því bræðrabörn sr. Eggert og
hún. Hún var laungetin.
3) Sigtús nefnir Espólln hann, og segir
að hann hafi druknað banlaus.
Allt af sjálfri sjer lík
Með því að eg hef sannfrétt, að
frú Bríet Bjarnhéðinsdóttir hafi nú
undanfarna daga gengið um bæinn
milli málsmetandi manna,jafnt karl-
manna sem kvenmanna, til þess
að sýna þeim óþverra-bréf, sem
hún eignar mér, þá lýsi eg yfir því,
að eg hef hvorki skrifað henni né
öðrum nokkurt bréf með líku inni-
haldi og það, sem mjer er sagt að
í þvi sé.
Eg læt mig engu skifta, hvort
þessi uppspuni er að ö 11 u leyti
frá frú Bríet sjálfri, eða einhver gár-
unginn hefur leikið á hana til þess
að láta hana, sem altaf er jafn
rólfær til svonalagaðrar iðju, hlaupa
með það henni sjálfri til svívirðing-
ar, en þ a ð finst mér máli skifti,
hvort kvenþjóðin á ekki heimting á
því, að sú kona, sem ekki blygðast
sín fyrir að bera á sér og sýna
annað eins bréf, sé s k y 1 d u ð t i 1
að gangaábuxum.
Reykjavík, 3. Febrúar 1911.
Guðrún Björnsdóttir.
X BOGI BRYNJÓLFSSON ♦
X yflrréttarmálaflutningsmaður X
X Austurstræti 3. X
♦ Tals. 140. Helma 1 1-12 og 4—5. ♦
Spinderi
maskiner 2 sæt Karte og 1 sæt spinde-
maskiner (240 sp.) etc Kluderiver,
Skruepresse, alt í god brugbar Stand
sælges meget billigt ved Henvendelse
til Fabrikant Th. Frank, Odense,
Danmark.
AðalMiir í Fram
verður næstk. laugardagskvöld kl. 8V2
síðdegis f (Joodtemplarahúsinu.
Málshefjamli: Jón ólafsson.
Umræðuefni: Skilnaður.