Þjóðólfur - 24.02.1911, Síða 1
63. árg.
Reykjavík, Föstudaginn 24. Febrúar 1911.
M 8.
Stóra rýmingariitsalan
©
lijá
Arna
Austurstræti 6,
stendur yfir ennþá.
10-40S afsláttnr af
Alþingi.
II.
Pingmannafruravörpin.
1. Jón Þorkelsson og Bjarni Jónsson
bera íram frumvarp til stjórnarskrár Is-
lands, er frumvarp það jafnframt ný sam-
bandslög og óhugsandi því að þær breyt-
ingar nái framgangi, þótt þingið sam-
þykti.
2. Hafnarlög fyrir Reykjavik.
Flutningsmenn þingmenn Reykvíkinga.
Þetta er frumvarp borgarstjóra. 800,000
kr. er ætlast til að landsjóður leggi til, og
ábyrgist auk þess annað eins fyrir bæinn.
3. Lögheiti stofnana (J. Þork.,
Ben. Sv., Bjarni Vogi). Vilja láta Lands-
bankann heita þjóðbanka Islands, Lands-
bókasafnið þjóðbókasafn o. s. frv.
4. Lög um prentsmiðjur (J. Þor-
kelss.. Bjarni Vogi). Ýmsar breytingar á
núgildandi lögum, þar á meðal aukið
upp í 5 eint. það sem á að senda Lands-
bókasafninu.
5. Lög um almennar auglýs-
i n g a r (sömu menn og B. Kristj.). Með
frumv. þessu á að nema úr gildi íslenska
auglýsingaskyldu í Danmörku.
6. Heyásetningseftirlit og hey-
forðabúr (Sig. Sigurðsson). ítarlegur bálk-
ur viðvíkjandi ofangreindu efni, og er
ætlast til þess, að sveitastjórnir geti komið
á fót hjá sér eftirliti um heyásetning og
forðabúr. Matsmenn eiga að vera, er fá
alt að x kr. úr hreppssjóði fyrir hvern
bónda.
7. Viðaukalög við lög um
verslunarbækur (Jón Ólafsson).
Sektar- og refsingarákvæði fyrir slæma
bókfærslu.
8. Sóknargjöld (Sig. Sig., Jón á
Hvanná). Breyting á núverandi lögum.
Gjaldið verði í prestalaunasjóð 1,30 af
hvorum manni 16—70 ára, en helming
jafnað eftir efnum og ástæðum, og undan-
þegnir heyrnar- og mállausir og sjúkling-
ar framfærðir af almanna fé. Tll kirkju
á gjaldið að vera 75 aur. af manni hverj-
um, en sötnu undantekningar.
9. Frumvarp til stjórnarskrár
í s I a n d s bera fram þingmenn Sunn-
mýlinga. Mýmargar breytingar. Þar á
tneðal:
afnám konungkjörinna,
afnám tilvitnana í stöðulögin,
þingmenn verði 40 þjóðkjörnir — 25 í
oeðri malstofu 0g 15 1 efri málstofu.
lil efri málstofu kosið með hlutfalls-
kosningu um land alt.
Kosningarréttur Qg kjörgengi til neðri
málstofu bundin við 2i árs aldur, en til
efri málstofu við 35 ara aldur.
Aðskilnað ríkis og kirkju má gera með
lögum.
Rlkisráðssetan afnumin.
to. Skoðun á slld (Sig. Hjörleifs-
íon). Skoðun skal fara fram a aiiri ný-
veiddri síld sem ætluð er til útflntnings
og veidd er í herpinót eða í rekneti og
söltuð er í landi eða við land.
11. Ráðherraeftirlaun (JónÞor-
kelss., Bjarni Vogi, Jón Hvanná, Ben. Sv.,
Sig- Sig.). Eftirlaun ráðh. vilja þeir láta
vera 1200 kr. í jafnmörg ár, sem hann
hefir þjónað því embætti, en eigi lengur,
og vilja láta lög þessi öðlast gildi þegar
í stað.
Pingsályktanir.
1. Um styrk til búnaðarfélaga og regl-
ur fyrir styrknum. Flutningsm.: Sig. Sig-
urðsson.
2. Rannsóknarnefnd á ráðherra. Flutn-
ingsm.: L. H. Bjarnason. (Sjá hér á öðr-
um stað í blaðinu.
3. t>Efri dtild alþingis ályktar að
lýsa vantrausti á núverandi ráðherra«.
Flutningsm.: Ari Jónsson, Kr. Jónsson,
Sig. Stefánsson,
4. *Neðri deild alþingis ályktar, að
lýsa yfir vantrausti sinu á núverandi
ráðherra Íslands og skorar á hann, að
beiðast lausnar þegar í stað«. Flutn-
ingsm.: Bened. Sveinsson, Bjarni Vogi,
Jón Jónsson N. M., Skúli Thoroddsen og
Jón Sigurðsson.
5. » Neðri deild alþingis ályktar, að
skora á landsstjórnina, að gera nú
þegar í stað ráðstöfun til þess að
gæslusljóri sá, sem sœti á að eiga í
stjórn Landsbankans samkvœmt kosn-
ingu neðri deildar alþingis, geti þeg-
ar tekið sæti sem gœslustjóri við
Landsbankann, og sjái um, að honum
verði greidd þóknun sú, sem gœslu-
stjóra er ætluð, frá þeitn degi, er
honum var vikið frá starfi sinu við
bankann<t. Flutningsm.: Jón Ólafsson,
Skúli Thoroddsen og Jón Jónsson N.-M.
6. »Neðri deild alþingis ályktar, að
skipa 5 manna nefnd til að rannsaka
Landsbankamálið. Nefndin hefir vald til
að heimta skýrslur, munnlegar og bréf-
legar, bæði af embættismönnum og ein-
stökum mönnum, samkvæmt 22. gr. stjórn-
arskrárinnar*. Flutningsm.: Hálfdan Guð-
jónsson, Sigurður Gunnarsson og Björn
Sigfússon.
Auk þessara þingsályktanatillaga eru
nokkrar um nefndarskipanir (búnaðar-,
dóma- og peningamálanefnd).
Fyrirspnrn
til ráðherra ber Jón á Hvanná fram, um
hver árangur hafi orðið af þingsályktun
um aðskilnað ríkis og kirkju, er samþykt
var 1 neðri deild 1909.
Pingnefndir.
Siglingánefnd (Nd.): Björn Kr.,
H. Hafst. (skrifari), M. Blöndahl (form.),
Bjarni, J. Magn.
Tolllaganefnd (Nd.): Ól. Briem
(form.), H. Hafst., M. Bl., Sig. Gunn.,
Jón Múla (skr.), B. Sv., J. Sig.
Hafnarlaganefnd (Nd.): B. Kr.
(form.), M. Bl., J. Magn., J. Ól. (skr.), B.
Þorl.
Búnaðarnefnd (Nd).: B. Sigt., Jón
Hvanná (skr.), St. St., Sig. Sig. (form.),
Einar.
Peningamálanefnd (Nd.): M. Bl.
(form.), H. Hafst., B. Kr. (skr.), Þorleifui,
Jóhannes, Jón Magn., Bjarni.
Lögheitanefnd (Nd.): Ben. Sv.,
J. Ól. (skr.), Sig. Gunn. form., H. Hafst.,
Bjarni, J. Þork., Jón Múla, Ól. Briem.
Viðskiftalaganefnd (Ed.): Kr. J.
(form.), L. H. B. (skr.), Gunnar, Ágúst,
Jósef.
Prestanefnd (Ed.): Sig. St., E. Br.
(form.), Sig. Hjörl., Steingr., Kr. Dan. (skr ).
Stýri mannaskólanefnd (Ed.):
E Br. (form.), G. Ól. (skr.), Ari.
Vitanefnd (Ed.): Sig. St., Júl. Hav.
(form.), Ágúst (skr.), Gunnar, Sig. Hjörl.
Dánarskýrslunefnd (Ed.): Jósef
(form.), Sig. H. (skr.), Steingr.
Fræðslunefnd (Ed.): Sig. H. (form.),
St. St. (skr.), Kr. D., Steingr., Jósef.
Eiðanefnd (Ed.): Ari (skr.), Júl.
Hav., Gunnar (form.).
Rannsóknarnefnd (Ed.): L. H.
B. (form.), St. St. (skr.), Ágúst, Sig. St.,
Sig Hj.
Sáttanefndarnefnd (Ed.): Ari
(skr.), Júl. Hav., Kr. J. (form).
Stjórnarskrárnefnd (Nd.): J. Ól.
(skr.), Sig. Gunn. (forro.), H. Hafst., Bjarni,
Jón Þork,, Jón Múla, Ól. Briem.
3ankamálið i ejri ðeilð.
Á miðvikudaginn var rædd í efri
deild svohljóðandi þingsalyktun frá
L. H. Bjarnason:
„Efri deild alþingis ályktar, að
skipa 5 manna nefnd til að rannsaka
gerðir land-stjórnarinnar í Landsbanka-
málinu og fleiri málum. Nefndin hefir
vald til að heimta skýrslur munnlegar
og bréflegar, bæði af embættismönn-
um og einstökum mönnum, samkvæmt
22. gr. stjórnarskárinnar*.
Á þessari tillögu vildi Sig. Hjörleifs-
son gera þá breyting að í stað „gerð-
ir . . . fleiri málum" kæmi »Lands-
bankamálið*, tillagan hefði þá orðið
eins orðuð eins og tillaga sr. Hálf-
dáns í neðri deild.
Lárus H. Bjarnason byrjaði um-
ræður um málið ; rakti hann ítarlega sögu
landsbankamálsins, og las upp bréf frá
Kr. Jónssyni til efri deildar, er forseti
deildarinnar fyrir »misskilning* hafði ekki
lesið upp. Hann tók helstu atriði hjá
ransóknarnefndinni. og sýndi Ijóslega, að
þau réttlættu ekki aðferð ráðherra á neinn
veg, og flest þar rangt. Ásakanir Isa-
foldar sem stjórnarblaðs á landsstofnun
væru óforsvaranlegar, einkum þar sem
vitanlegt væri, að ráðherra hefði skrifað
sjálfur verstu greinarnar.
Síðan tók hann fram hin önnur mál,
er hann hafði hugsað sér og taldi þar til
Thore-samninginn. Skipin slæm,
strandferðabátarnir minni — um 30 tonn-
um — en hinir, tillagið af póstfé fjárlaga-
brot, áætlun millilandaskipanna ófær,
kemur t. d. aldrei við 1 Stranda-, Norður-
Þing.-, Suður-Þing.- og Norður-Múla-
sýslum. — Viðskiftaráðunauturinn
væri einn með 10000 kr. launum auk ferða-
kostnaðar, en hefðu átt að vera tveir eftir
fjárlögtinum. Meðferðin á síldarmats-
mönnunum ekki samkvæm fjárlögum —
marghlaðið undir ssystursoninn*. Heiður
ætti ráðherra fyrir, að samningur hans
hans um silfurbergsnámurnar væri betri
en gamli samningurinn, landssjóður ætti
að fá 55% nú í stað 50%, en spurði því
landssjóður hefði ekki fengið neitt af þeim
55.000 kr., er leigjandi hefði fengið fyrir
framsalið til Frakka. Sýndi fram á að
meðferðin Gullfossi og Dettifossi væri at-
hugaverð mjög.
Þessi ræða var snildarvel flutt og
stóð í 1V2 kl. tíma rúmlega þó. Er
hér ekkert skýrt frá ummælum ræðum.
í Landsbankamálinu — það alt svo
kunnugt lesendunum áður.
Ráðherra B. J.: »011 ræða hins
háttv. konungkjörna — þessa sem eg man
nú ekki númerið á — var leikhúshvellur
eða samanhangandi stóryrði, þvættingur,
öfgar, lýgi, blekkingar ryk og vitleysa*.
Sagði frávikningin hefði aðeins verið
um stundarsakir. Það hefði verið full
nauðsyn til þess að rannsóknarnefndin
heföi getað unnið í friði, enda ekki að
vita, hversu mikið þeir hefðu lánað af
nýum ábyrgðarlanurr. — þeir hefðu ausið
þeim út, eða hversu mikið starfsmennirnir
hefðu lánað; það hefði numið miklu fé.
Alt þveröfugt við það, sem L. H. B. hefði
sagt, og ekkert að marka tölur þær, er
hann hefði flutt fram. Hann hefði gert
alt til að efla bankann, en Heimastjórnar-
menn þvert á móti — þeir hefðu gert að-
súginn. Veðsetningunni væri fastslegið
og tapið gert með aðstoð kunnugra manna
1 bænum.
Thorefélaginu svara eg ekki fyr en við
fjárlögin (L. H. B.: Hver verður þá ráð-
herra?) Best fyrir þingm. að spá engu
um það efni; þótt honum séu ráðherra-