Þjóðólfur - 01.07.1911, Blaðsíða 4

Þjóðólfur - 01.07.1911, Blaðsíða 4
96 ÞJÓÐOLFUR. Mstofa Beiustjðrmiiia er ílutt úr Aðalstræti 8 í Skólastræti 9>. (Gr irnli). grímur Benediktsson, bronsem.; 3. verðl. Kári Arngrímsson, bronsem. Kappglíma (2. fl.): 1. verðl. Hall- dór Hansen, silfurm. Kappglíma (3. fl.): 1. verðl. Magn- ús Tómasson silfurm.; 2. verðl. Vilhelm Jakobsson, bronsem. Kappglíma (4. fl.): 1. verðl. Vil- helm Jakobsson.silfurm.; 2. verðl. Magn- ús Tómasson, bronsem. Kapphlaup (804 stikur): 1. verðl.: Sigurjón Pétursson, silturm.; 2. verðl. Magnús Tómasson bronsem. Kapphlaup (1 míla): 1. verðl. Guðmundur Jónsson, siifurm.; 2. verðl. EinarPétursson, bronsem.;3. verðl. Jónas Snæbjörnsson, bronsem.; Helgi Tómas- son (14 ára piltur) fékk heiðursskjal. Girðingahlaup: 1. verðl. Krist- ínn Pétursson silfurm.; 2. verðl. Magn- ús Armannsson, bronsem.; 3. verðl. Sig- urjón Pétursson, bronsem. Grísk-rómv. glíma (þyngri fl.): 1. verðl. Sigurjón Pétursson, silfurra.; Haraldur Einarsson fékk heiðursskjal. Grísk-rómv. glíroa (léttari fl.): 1. verðl. Vilhelm Jakobsson, silfurm.; 2. verðl. Halldór Hansen, bronsemedalíu. Áge Meyer Benedictsen rithöfundur dvelur um þessar mundir hér í bænum. Síðastliðið þriðjudagskvöld og miðvikudagskvöld hélt hann fyrirlestur í Iðnaðarmannahúsinu um írland og sjálf- stæðisbaráttu Ira, og sýndi á eftir nokkr- ar skuggamyndir bæði af landinu og þjóð- inni. Hafa Reykvtkingar ekki oft átt kost á að hlýða á jafnvel flutta og jafn- framt efnisríka fyrirlestra; er hr, Bene- dictsen þaulæfður fyrirlestramaður og mælskur vel. Hr. Benedictsen hefir lagt allmikla stund á að kynnast Islandi og einkum ís- lensku þjóðinni. Rennur honum þar blóðið til skyldunnar, því að hann á kyn sitt að rekja til íslands. Móðir hans var sonardóttir Boga Benediktssonar á Staðar- felli og á hann því fjöldamargt nákomið frændfólk hér á landi. Hann ferðaðist hér um land í fyrra sumar og fór þá um Suður-, Vestur- og Norðurlandið, en í vet- ur hélt hann fyrirlestur um ísland víðs- vegar um Danmörku og sýndi jafnframt fjölda mynda héðan. Hann hefir lært ís- lensku, svo að hann getur lesið (slenskar bækur og blöð, og notar hann sér þá kunnáttu óspart til þess að afla sér þekk- ingar um hagi landsins og þjóðarinnar, enda hefir hann í hyggju að rita innan skamms bók um Island fyrir Ianda sína. Á morgun fer hr. Benedictsen héðan með »Pervie« austur á Hornafjörð, og ætlar að ferðast um Austur-Skaftafellssýslu og Múlasýslur og dvelja um hríð í Fljóts- dalshéraði, en þaðan heldur hann svo til Akureytar. Hvað er að frétta? Lagapróf. 30. maí tók Oddur Hermannsson próf með 1. eink., Sigurð- ur Lýðsson með 1. eink. 17. f. m. Guðmundur Ólafsson með 2. eink. lakari. Guðfræðtopróii luku á presta- skólanum 20. þ. m.: Magnús Jónsson . . I. eink. ág. 99 st. Jakob Ó Lárusson .1. — 90 — Sigurður Jóhannesson II. — 71 — Sigurður Sijjtryggsson cand. mag. hefur leyst af hendi próf viðKennara- námskeið og hlaut eink. admissus. Heimspekispróí hafa tekið í Kaupmannahöfn: Sigtryggur Eiríksson og Steingrímur Jónsson með ágætiseink., L^nfey Valdimarsdóttir og Skúli Skúla- son með 1. eink., Helgi Guðmunasson og Þórður Þorgrímsson með 2. eink. En 16. f. m. luku þessu prófi hér: Halldór Hansen, Helgi Skúlason, Jón Ásbjörnsson, Jón Jóhannesson, Sigurður Sigurðsson og Þorsteinn Þorsteinsson. Mentaskólinn. Af honum út- skrifuðust þessir nemendur 30 . þ. m.: 1. Einar Jónsson . . . . 82 stig 2. Hans Einarsson . . . 82 — 3- Þorlákur Björnsson . . 81 — 4- Magnús Jochumsson . . 79 — 5- Vilmundur Jónsson . . 76 — 6. Héðinn Valdimarsson . 75 — 7- Páll Pálmason . . . . 72 — 8. Hjörtur Þorsteinsson . . 71 — 9• Einar E. Hjörleifsson . 70 — 10. *Steinþór Guðmundsson . 70 — 11. Árni Jónsson .... 69 — 12. Pétur Magnússon . . . 68 — 13- Valtyr Stefánsson . . . 68 — 14. Daníel Halldórsson . . 61 — i5- *Kristín Ólafsdóttir . . 60 — 16. Axel Böðvarsson . . . 57 — i7- *Vilheim Jakobsson . . 57 — 18. Arngrímur Kristjánsson . 56 - x9* Gunnar Sigurðsson . . 55 — 20. *Jón Ólafsson . . . . 54 — 21. *Jakob Kristinsson . . . 52 — 22. Steindór Gunnlaugsson . 52 — * merkir þá, er utanskóla hafa lesið. Skipaðir póstafg^eiöslu- meiin af stjórnarráðinu: Á Siglufirði Jósep Blöndal; á Fáskrúðsfirði Gísli Högnason. Gagnfrseðaskólanum á Ak- ureyri var sagt upp 30. maí og útskrif- uðust þaðan 36. Sigurjón Pétursson vann ís- landsbeltið 16. f. m. Þingmannaefni Reykj iivílt- «.**. Af hálfu Heimastjórnarmanna verða í kjöri við kosninguna 1 haust Jón sagn- fræðingur Jónsson og Lárus H. Bjama- son prófessor. En hinir kváðu ætla að styðja til kosninga Jón skjalavörður Þor- kelsson og Magnús Blöndahl. Liúkflokkuriiin danski lék hér í síðasta sinn 18. f. m. og er nú farinn héðan. Dr, Leo Montagny »galdra- maðurinn» sýndi Iþróttir sínar 17.—25. f. m. Var húsfyllir á hverju kveldi, enda ber þar margt nýstálegt fyrir augu, er Reykvíkingar flestir hafa eigi áður átt kost á að sjá. Hann sýnir meðal annars vofur, lét »anda« rita á spjöld vafin inn- an f dúka o. s. frv. Eðlilegt er það. Aðalblað óaldarjlokksins hefur verið að fylla eyður sínar með útdrætti, af- bökuðum, úr gömlum stjórnartfðindum, um veitingar embætta og sýslana, árin sem H. H. var ráðherra. Hin blöðin, andstæðu, hafa aftur dregið fram, hvernig launastöðum og bitlingum m. m. hefur verið ráðstafað á stjórnartímabili óaldarflokksins. En mjer fellur ekki þess konar kítnij Tímabilum þessum er ekki saman jafn- andi, og síst um hvalskurð. Að hvaln- um mega óaldarflokksmenn einir sitja — þann tíma sem þeir fengu setið — illu heilli. Fyr áttu sér engar slíkar fjöruferðir stað. En hvað kemur til, aðj eigi má hreinskiinislega segja hina sönnu og eðlilegu ástæðu þess, að fleiri menn af fylgisflokki H. H., andstöðuflokki óaldarmanna, voru skipaðir í trúnaðar- stöður í tíð H. H., heldur en af hin- um flokknurn þáf Því ber ekki að neita, að svo hafi verið. Það var blátt áfram rétt og eðlilegt. Ástæðurnar eru þessar: Þá sat sann- gjarn og réttsýnn maður við stýrið. En sama stjórnarflokk og hann fyltu, og fylla enn, flestir hinna skynsamari og svo að segja allir hinir raun-beztu og mikilhæfustu rnenn í landinu, í hverja stöðu sem velja skyldi. Þeir voru því oftast best til fallnir, er úr umsækjendahóp skyldi velja eða menn skyldi skipa til einhvers starfa. En andstæðingar H. H. skömmuðu hann fyrir það eins og annað og lugu því, að hann sýndi þar hlutdrægni eftir flokkum í pólitík. Og það var eitt af yfirskyns-ástæðunum fyrir van- traustsyfirlýsingunni 1905. Því svar- aði H. H. á þá leið — eg heyrði þá ræðu af tilviljun —, að hann hefði gert sér far um, að velja hæfustu mennina, sem kostur var á, í þær stöður, sem hann hefði átt að veita, og að öllu fremur kynni að mega bregða sér um, að hann hefði tekið menn úr andstöðuflokkunum full mikið fram yfir samflokksmenn sína, er staf- aði af því, að hann hefði máske stund- um gengið full-langt í því, að varast það, sem litið gat út sem pólitisk hlut- drægni í ambættaveitingum. Og enn er liðskostamunurinn á sama hátt. Eða getur nokkur sanngjarn maður neitað t. d. því,. að í minni hluta flokknum á síðustu tveim þingum hafi verið flestir mikilhæfustu þing- mennirnirf Eða að bestu og hæfileika- mestu menn þjóðarinnar séu flestir andstæðingar þess flokks (eða flokka), sem völdum réði tvö undanfarin ár, og sem óaldarflokkurinn og stjórn hans hefur myndast aff Það, sem þeir brigsluðu fyrri stjórn um að ósönnu og létust hafa fyrir ástæðu að fella H. H., hafa þeir tekið upp og framfylgt í hið ýtrasta; enda þola hvalskurðaraðferðir og öll græðgi þess flokks engan samanburð við neitt sem hér hefur átt sér stað á síðari tímum. Það líkist helst þeim forn- aldar-viðburðum, þá er stjórnlausir ó- reiðumenn, sem ekki nentu að vinna sér brauð á heiðarlegan hátt, gintu friðsama bændur og borgara af eign- um sínum undir því yfirskyni, að vilja vernda réttindi þeirra — en létu svo greipar sópa um muni þeirra og bjarg- ræði. Láti landsmenn enn ginnast af gali þessara ránfugla, þá fer eg að verða vondaufur um viðreisn þjóðar vorrar. Uppi í sveit, 17. júní 1911. Bóndi Bóndason. Ágætur starfi. Sérhver ætti að reyna að nota tækifærið til þess að græða mikið fé með þv( að selja vörur eftir stóru myndaverðskránni minni sem er 112 blaðsíður að stærð; þar eru hjólhestar, hjólhestahlutar, úr, úrfestar, næl- ur, hljóðfæri, járnvörur, glysvarningur, vindl- ar, sápur, leðurvörur og álnavörur. 50°/o ágóði. Einstaklega lágt verð. Verulega fyrsta flokks vörur. Verðskrá og upplýsing ar ókeypis og burðargjaldslaust. Chr. Hansen. Enghaveplads 14. Köbenhavn skilur á klukkust. jj“ •;’£“} brúttóYerð. Hvers vegna greiða hátt verð fyrir skilvindur, þegar vér getum boðið yður Prímus-skílvinduna okkar fyrir ofanritað afarlága verðf Besta og þó ódýrasta skilvinda á heims- markaðinum. Auðtekin sundur, auðhreinsuð og auðvarðveitt. Hlotið verðlaun hvarvetna á sýningum. Biðjið um verðskrá. Umboðsmaður Möllers Enke, Köbenhavn. b B, A. Hjorth & Co, Stockholm (Sverige), I I Pantid sjálfir fataefni yðar teina leið frá verksmiðjunni. Stór sparnaður. Án þess að borga turðargjald getur sérhver tengið móti eftirkröfu 4 Htr. 130 Ctm. ireitt svart, blátt, brúnt, grænt eða grátt ektalitað alullap-K.I»ÆÐI fallegan, haldgóðan kjól- eða sparibúning fyrlr elmingis ÍO kp. 1,50 pr. Mtr. Eða 31/* Ctm. bpeitt, svart, myrkblátt eða [ráleitt hamóðins efnl í sterk og falleg karlmannsföt fypip aöeins Í4 kr. 50 aup. Ef vörurnar eru eigi að óskum kaupanda verða lær teknar aftur. Aarhus Klædeveveri, Aarhus, Danmark. Ritstjóri og ábyrgðarmartur: JAn Ólaf-Bon. Prentsmiðjan Gutenbreg.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.