Þjóðólfur - 04.08.1911, Síða 2

Þjóðólfur - 04.08.1911, Síða 2
IIO ÞJOÐOLFUR. hrökkvum nú ekki við og tökum breytta og betri stefnu". Og „glöt- unarvegurinns sem vér íslendingar gön- um áfram, liggur beint niður í þræl- dómsstöðu ósjálfbjarga niðursetnings- aumingjans". Það eru eftirtektaverð orð hjá jafn bjartsýnum og fjölhæfum manni, og jafnvel enn eftirtektaverðara er þó, að grein hans, sem þetta er úr: „Hvert stefnir?" var lesin með miklu meira samþykki fjölda manna en trúmála- greinar hans, og hefur ekki neinsstað- ar sætt mótmælum svo kunnugt sé. Lá þó beint við, að blöð þau, er lifa á því að ala þjóðarhrokann, og prédika fyrir lýðnum, að vér þurfum ekki og megum ekki slaka til í neinu við sambandsþjóð vora, til að ná betri samningum við hana, — mundu leggja sig í framkróka, til að hrekja aðrar eins fullyrðingar. Eg veit ekki hvort þar er þögn sama og samþykki eða þögn sama og vandræði, — en eftirtektavert er, að þau hafa þagað um greinina. Margir biðu óþreyjufullir eftir áfram- haldi fyrnefndrar greinar; en fleiri munu hafa orðið vonsviknir en eg, er þeir lásu mánuði síðar í N. Kbl., að aðal- bjargráðið var, „að taka bein og skýr og hörð loforð af þingmannaefnum: að þeir láti iekjur og gjóld hverra fjárlaga standast á, og að þeir séu í algerðu bindindi um nýjar lántökur fyrir landsjóðs hónd uni næsta kj'ór- tímabil. Og jafnframt því áskorun til trú- aðra manna, að þeir fari að skifta sér af pólitík meira en að undanförnu. Hverjir skyldu þeir vera, þessir trúuðu menn, sem setið hafa hjá, en nú eiga að kippa í lag þjóðfélagsvandræðunum? hugsaði eg. En eg þurfti ekki lengi að vera í vafa um, hverja biskup kallar trú- aða, því að hann bætir við áskorun- ina: »Trúaðan kalla eg hvern þann mann, sem kennir guðstaugarinnar með þeim ha.*tti, að hann má eigi úr lífi sínu missa þá vitund, að einhver góð- ur vilji sje þó í tilverunni, og að gott sé og eftirsóknarvert, að mega vera eitthvað í verki með þeim vilja“. Eg skal láta trúmálablöðin og prest- ana um að skera úr, hvort þessi skil- greining biskupsins á „trúuðum mönn- um“ er biblíöleg eða kristileg, en skilji eg mælt mál, þá er áskorunin til þessara „trúmanna“ alveg vindhögg. Eg hélt að eg bæri ekki meira traust til þing- manna og kjósenda í þeim efnum, en hver annar, en þó er eg sannfærður um, að leit verður að þeim, sem vilja ekki við það kannast, „að einhver góður vilji sé þó1) í tilverunni, og að gott sé og eftirsóknarvert, að vera eitthvað1) í verki með þeim vilja“.— Fyr má nú vera svartsýni, en að ætla þingmönnum og stjórnmálaleiðtogum að hyggja þeirra og vilji sé svo rang- snúinn, að þeir haldi að enginn góður vilji sé til, eða að lítilsvert sé að vera í samvinnu við hann, ef til væri. Hitt er annað mál, að þess háttar þoku- hugmyndir stoða lítið, þegar á hólm- inn er komið, og hafa aldrei skapað viðreisnartímabil í sögu neinnar þjóðar. Eínhliða sparnaðarstefna með al- gerðu lánbindindi er heldur ekki ein- hlít. Auðmaðurinn getur sagt við hinn, sem erfitt á með að komast á- t) Anðkent hér. fram: „Þú mátt aldrei taka lán, það he/ur mörgum þínum líkum orðið hált á því“. En eiginlega er það ekkert snjall- ræði, og bankarnir gætu þá eins vel sagt: *Vér lánum engum, nema þeim, sem ekki þurfa láns við“, en það væru ekki hyggindi, sem í hag kæmu, fyrir hvorugan málsaðila. Mörg lántakan hefur auðgað lántakendur, þótt sum lán mishepnist; og óséð er það enn, að þjóð vor sé svo ráðlaus, að allar lántökur væru henni tjón; hitt er meira tjón, að ýms framfarafyrirtæki bíða ár frá ári, af því að áræði vantar til að hefja þau með lánsfé. Sú var tfðin ekki alls fyrir löngu, að „Hrafnagjá var landsins kassi", og það var talin æðsta stjórnspeki, að láta peningana safnast fyrir í lands- sjóði; en hvað var þá gert í saman- burði við það, sem nú er orðið? Nei, gætni er dygð og skylda, en bindindi í þessum efnum er stórgalli. Hitt er betur athugað í nefndri grein, þótt ekki sé næg áhersla á það lögð, að gæta sín fyrir blindu flokksfylgi við næstu kosningar. Eiginlega væri allra hollast, að kjósa engan œstan Jlokksmann á nœsta þing. Það er bæði ilt og broslegt, að sum blöðin skuli vera að reyna að spana menn upp til að kjósa um milli- landafrumvarpið. — Þar sem þó allir kunnugir mættu vita, að það er úr sögunni í bráðina, svo fyrir að þakka — eða kenna — fráfarandi stjórnar- flokki, að Danir vilja ekki við nein- um samningum líta að sinni, og því hégóminn einber, að vér séum að rífast um þá á meðan. Stjórnarskráin nýja er ekki nefnd á nafn, og væri þó eitthvert vit í að deila um hana. Flestöll blöðin, nema „Ingólfur" og „Templar", minnast heldur ekki á bannmálið. og vita þó allir, að um það verður barist á þingi, og óvinir þess sjálfsagðir til að reyna að koma þeim lögum fyrir ætternisstapa. Það stórmál ættu menn sannarlega að hafa alvarlega í hug>a við næstu kosningar, Mein er það í meira lagi, að ráð- herraefni heimastjórnarmanna, Hannes Hafstein, skuli vera því máli alveg mótfallinn, einkum þar sem hann að öðru leyti hefur marga góða kosti til ráðherrastarfsins; en vilji hann beita sér gegn því máli, sé eg ekki betur, en bannvinir í þeim flokki verði að svipast um eftir öðrum, enda er þar um marga nýta drengi að velja, sem betur fer. Ekkert mál, sem nú er á dagskrá, mun jafnfljótt og eindregið efla hag þjóðar vorrar inn á við og út á við sem bannlögin, verði þeirra gætt með festu og lipurð. Kjósið því enga bann- féndur né fleygmenn á næstu þing. En ekkert rekur svo fljótt samvisku- semi og siðgæði úr stjórnmálum sem flokkahatur út af einstökum mönnum og blint flokksfylgi. Og það er hróp- legt ranglæti gagnvart þjóðinni, sem því miður er farið að bóla á vor á meðal, að lítill flokks meirihluti „kúsk- ar“ minni hluta síns flokks á flokks- fundi til að fylgjast með í að sam- þykkja bitlinga handa einhverjum „þurf- andi“ flokksmanni, og mer það síðan gegnum þingið, stundum með atkvæð- í um mannanna sjálfra, sem bitlingana I þfgr-sria. Þjóðin kann ekki að sjá sóma sinn, ef hún vítir ekki harðlega þess háttar aðfarir, og býður svo bitlingasjúkum mönnum þingsetu í annað sinn. Hugsum oss dæmi: í hrepp nokkr- um eru 40 búendur, sem eiga í mikl- um deilum sín á milli út af því, hvort þeir eigi að hafa sameiginlegan afrétt við nágrannahreppinn eða ekki. Skift- ust þeir í 2 ákveðna flokka, er kölluðu hvorn annan — í skopi — samveldis- menn og sérveldismenn, og létu þeir þetta afréttarmál koma alstaðar til sögunnar, og einkum sóttu þeir fast, að geta kosið fjallskilakong úr sínum hóp hvorir um sig. Þegar þessi saga gerðist, vildu sér- veldismenn kaupa kynbótahrúta í öðr- um landsfjórðungi fyrir hreppsfé, og þurfti því að senda mann til að velja hrútana og sjá um flutning á þeim. Samveldismönnum fanst fátt um þessi hrútakaup meðfram af stríði við hina líklega, — en einkum urðu þeir þeim algerlega mótfallnir, þegar grobbinn söðlasmiður, sem ekkert skyn bar á fjárrækt, bauðst til fararinnar, en vildi hafa 150 kr. úr hreppsjóði í farareyri. En söðlasmiður þessi var ákafur flokks- maður og atvinnulaus, svo nokkrir flokksbræður hans vildu ólmir láta hann fara; hann getur þó að minsta kosti grobbað af hreppnum okkar, hugsuðu þeir. Á flokksfundi urðu 12 atkvæði með söðlasmiðnum, en 9 á móti; en eftir langa rimmu lofuðu þó þessir 9 að fylgjast með málinu, til þess að flokkurinn kiofnaði ekki og andstæð- ingarnir gætu ekki hrósað happi yfir því. Svo var haldinn almennur fund- ur, þar sem 21 sérveldismaður og 19 samveldismenn mættu. Fundarstjóri var kosinn úr minni hluta til að eyða því atkvæðinu, og svo var málið sótt og varið af miklu kappi. Sannaðist það, að söðlasmiðurinn hafði aldrei hirt kind á æfi sinni, og var flestum mönnum ólíklegri til að velja kyn- bótahrúta, en það kom fyrir ekki, flokkaofstækið sigraði; raunar neituðu 2 sérveldismenn að greiða atkvæði af því þeim blöskraði svo þessi meðferð á fé hreppsins, að þeir brugðust flokks- samþyktinni, hinir voru með sárnauð- ugir, og sendiför söðlasmiðsins var þvf samþykt með 19 atkvæðum gegn 18, því að vitanlega greiddi hann sjálfum sér atkvæði til að fá fararstyrkinn og geta séð sig um. Þannig getur tœpur þriðjungur kom- ið fram vilja sínum þvert ofan í vilja allra hinna, ef þessi minni hluti er meiri hluti meiri hlutans og flokks- fylgið nógu blint. Gætið þess alvarlega, að kjósaeng- an æstan né þýlyndan flokksmann á næsta þing, og verið ekki að ómaka yður eftir ritstjórunum til Reykjavíkur; en sýnið heldur, íslenzkir bændur, að þér berið þá virðingu fyrir stéttyðar, að þér getið treyst einhverjum sjálf- stæðum og gætnum stéttarbróður yðar og samsýslung til að mæta á fulltrúa- þingi þjóðarinnar. Reykvíkingar, og ekki síst ritstjórarnir, hafa sannarlega meir en nóg áhrif á þingmál, þótt þér smalið þeim ekki saman á þingmanna- bekkina. S-j-n. Myndarlegt fyrlrtæki. Lögr. hefur áður getið þess, að hr. Eggert Briem frá Viðey hefði fengið til ræktunar hjá bænum allstóra spildu af Vatnsmýrinni og ætlaði að gera þar tún. Síðan hefur hann keypt lóð sunnan við Laufásveginn, hjer um bil mitt á milli Laufáss og Gróðrarstöðvarinnar, og hefur í vor og sumar bygt þar fjós og hlöðu. Utbúnaður allur á þessu er vafalaust hinn besti og fullkomnasti, sem til er hér á landi. Fjósið tekur 44 kýr. Það er úr steinsteypu með járnþaki, sem tyrft er yfir. Gluggar eru á þak- inu, en vindaugu á veggjunum, og brattinn á þakinu ekki mikill. Bás- arnir eru í 4 röðum, 11 í hverri, fjalagólf undir í básunum, eu flór- rennur aftan við úr steinsteypu. Jöt- urnar eru einnig úr steinsteypu, og má hleypa í þær vatni, þegar brynna þarf. 11 kýr snúa hausum til veggj- ar út að hvorri hlið hússins um sig, en 22 snúa hausum að gangi eftir miðju húsinu, II hvoru megin. Sunn- an við fjósið er steypt og lukt stein- þró, gríðarstór, vatnsheld, og er þak- ið yfir hana einnig steypt úr steini, utan um járnbita og járnverk, eins og loftin í bókhlöðunni og Vífils- staðahælinu, og er þakið á henni jafnhátt góifinu í fjósinu. En niður í þessa þró rennur þvagið úr flór- rennunum sjálfkrafa og geymist þar, en notast síðan til áburðar. Svo sterkt er þetta steypuloft, að kýrnar eru látnar ganga yfir það inn í fjós- ið, frá steinriði, sem upp er gengið. Sunnan við þetta er öðrumegin steypt for, sem tekur á móti mykjunni frá fjósinu, en hinumegin stór hlaða. („Lögrétta"). Hellsuliælisfjelagið. Síðari aðalfundur þess var haldinn 20. júlí. Þar voru lagðir fram reikningar yfir tekjur félagsins og gjöld, yfir bygg- ingarkostnað hælisins og reksturs- kostnað frá sept. 1910 til ársloka.— Höfðu þessir reikningar verið endur- skoðaðir af kaupm. Einari Árnasyni og barnakennara Sig. Jónssyni, er kosnir voru til þess á fyrri aðalfund- inum. Tekjur félagsins frá stofnun þess til 20. mars 1911 voru kr. 63,173,48 í tillögum, gjöfum, áheitum o. fl.; kr. 2,382,32 vextir; og lán 338,249,67. Gjöld 283,002,85 byggingarkostn- aður, önnur gjöld 114,844,55, ísjóði 5,958,07. Reksturskostnaður til ársloka 1910 var 15,886,50; af því höfðu sjúklingar borgað 5602,50, landsjóður 3333.33« félagið 6000,00, ýmisl. 66,58. Allir þessir reikningar voru þvf næst samþyktir með lítilfjörlegum at- hugasemdum. Samþykt að borga endurskoðend- um 75 kr. hvorum. Þá lagði framkvæmdarstjórn til, að yfirstjórn félagsins væri kosin að nýju og var það samþykt. Kosnir voru: Klemens Jónsson landritari, Sighvatur Bjarnason bankastj , Guðm. Björnsson landlæknir, síra Ólafur Ól- afsson, Eiríkur Briem dócent, Guðm. Magnússon prófessor, Einar Árnason kaupm., Halldór Daníelsson yfirdóm- ari, Hjörtur Hjartarson trésmiður, Jón Magnússon bæjarfógeti, Rögn- vaidur Ólafsson húsasmeistari, Sig- urður Jónsson barnakennari. Endurskoðunarmenn voru kosnir Guðm. Ólsen kaupm. og Jón Páls- son bankaritari. (Lögr.).

x

Þjóðólfur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.