Þjóðólfur - 26.07.1918, Blaðsíða 2

Þjóðólfur - 26.07.1918, Blaðsíða 2
74 ÞJÓÐÓLFUR því máli mæli ekki nema 20 þús. manns, er geti ekki fjölg- að að miklum mun, þar sem eyjarnar séu ekki nema 24 fermílur. ísland sé 1900 fer- mílur, og það sé ólíkt, hve slíkt flæmi geymi meiri menn- ingar- og þroskaskilyrði. Yfir- leitt sé samband Færeyinga við Dani nú hið ákjósanleg- asta. Samningarnir í Danmörku. Khöfn 22. júlí. Fregnir hafa komið hingað um það, að samkomulag sé fengið milii Dana og íslendinga, og er þeim tekið hér með fögnuði. En þar sem orðalag samningsins er eigi kunnugt ennþá, hafa blöðin eigi rætt samningana, en ýms blöð, og þar á meðal „Politiken", láta þá von í ijós, að viðtæk sam- vinna verði meðal landanna í framtíðinni. Slíkum orðum fara og flest önnur blöð um málið, en blöð íhaldsmanna bíða fyrst um sinn frekari fregna. Aths. ritstj.: Ummælum stjórn- arblaðsins danska um samvinnu milli þjóðanna verða stjórnmála- menn vorir að muna eftir á næstu árum, og reynir á vitsmuni þeirra og siðferðisþrek, að hlutur vor og réttur og heill niðja vorra verði ekki fyrir borð borinn á tveimur næstu áratugum. „Á ferð ogf flugi“. Þjóðólfi þykir vænt um, að tek- ið heflr verið eftir bendingum hans í seinasta blaði, að reisa ætti leiðarvísa eða leiðarsteina við helztu vegamót í bygðum og óbygðum. Sökum þess gerir blað- ið sér nokkrar vonir þess, að leið- arsteinar þessir rísi einhvern tíma í ekki afar-fjarlægri framtíð, t. d. á næsta mannsaldri. Fyrr er naum- ast vogandi að vænta þessa lítil- ræðis, sem ódýrt er að láta eftir landsins börnum og er fjölda þeirra til hinna mestu þæginda og þarfa. í „Morgunblaðinu 24. júlí er grein eftir einhvern „ferðamann", þar sem því er haldið fram, að vegirnir séu „í ófyrirgefanlegri niðurníðslu" og sýnt fram á það með glöggum rökum, að mikill þjóðarskaði sé að því, að vegun- um sé illa haldið við. Þingið hafl demt viðhaldi nýlagðra vega upp á sýslufélög, sem verið hafi „óyndisúrræði", enda megi ferða- menn allir nú kenna á þeirri ráð- stöfun. Nú sé vegurinn úr Reykja- vík austur í sýslur lítt fær. Af þessu ólagi stafi hið mesta tjón. Það sé „lausríðandi, vögnum og lestamönnum", er um veginn fara, til tafar, sem auðsætt er. Það hafi í för með sér „slit og bilun á vögn- um og öðrum áhöldum, svo þús- undum króna nemur árlega". „Það skemmir hestana fyrir tímann, svo að þeir endast jafnvel miður nú en þeir gerðu, meðan enginn vegur né brú var til. Það er þess valdandi, að hvert vagnhlass verð- ur að vera hálfu léttara, svo að tara verður tvær ferðir í staðinn fyrir eina. Og loks er ótalinn sá skaðinn, sem ekki er hvað minst- ur: ástandið á vegunum er þess valdandi, að bílferðirnar koma ekki að hálfum notum“. Og því er haldið fram, að vegirnir hafi átt sök á því, að ekki var unt að flytja póstflutning á hraðreiðum. Segir greinarhöf., að einn hrað- reiðarstjóri hafi sagt sér, að far- gjald í þeim gæti verið fast að því helmingi lægra, en það er nú, ef vegir væri góðir. „Hvenær ætlí mönnnum lærist það“, spyr grein- arhöf., „að ráðlegra sé að leggja nokkrar þús. kr. í vegina árlega, en að missa fleiri þús. króna á hverju ári?“. Þjóðólfi virtist hér minst á svo mikilvægt efni, að hann vildi stuðla að því, að athugasemdir „ferða- manns“ „Morgunblaðsins" kæmi sem flestum fyrir sjónir. í grein- inni um ólag og skipulagsleysi á hraðreiðaferðum, í síðasta tbl. Þjóð- ólfs, var vikið að því, hve vegirn- ir væru slæmir. En þar var ekki litið á málið af bæjarburst bú- manns, heldur af sjónarhól ferða- manna. Sú er skoðun bráðabirgða- ritstjóra þessa blaðs ■— sem víst allra skynbærra manna —, að skilyrði greiðra ferðalaga séu menningar-krafa, og að þjóð vorri hefnist þess, ef henni verður ekki fullnægt. En hér er ekki eingöngu höfð í huga óhjákvæmileg ferða- lög, er menn fara nauðsynja sinna, til aðdrátta eða póstflutninga o. s. frv., heldur og ferðir tii hvíld- ar, hressingar og andlegrar nyt- semdar, sem fjölda landsbúa er hin brýnasta þörf á. En margur mætur drengur, þol hans og heilsa, má kenna raunalega á því, að stjórnendur vora og vinnuveitend- ur skortir enn skilning á gagni og hollustu slíkra ferðalaga. En „Sumarblaðið", er getið var lítil- lega í seinasta blaði Þjóðólfs, ber skýr merki þess, að skilningur vex á því, að hér eigi í hlut mál, sem ryðja verður veg inn að því borði, þar sem velferðar kröfum þjóðar vorrar er nokkur úrlausn veitt. Annars liggur í augum uppi, hvíiík afskapa óhagkvæmni það er, að leggja vegi og hirða síðan ekkt um þá, svo að alt lendi eftir nokk- ur ár í gamla farinu. Með slíkú lagi er stórfé á glæ kastað. Og annað má benda á. Vondir vegir eru þjóð vorri til háðungar, innræta útlendíngum, vönum rennisléttum vegum og greiðfær- um sem salgólfum, lítilsvirðing á oss, menning vorri og hagsýni. Bætur og viðgerð á akbrautum og þjóðvegum hljóta því að vera áhugamál hvers þess manns, er ann sæmd lands vors og ber skyn á, hvað henni má að gagni koma og menning vor er metin eftir. Hvar er kornið? Margt hefir gerzt furðulegt og komið á óvart nú í stríðinu. Ein gátan, er hefir ekki tekizt að ráða, er, livað orðið hafi af korninu í Suður-Rússlandi. Frá upphafi styrjaldarinnar hefir afarmikið verið talað um geysi- miklar kornbirgðir, er safnazt höfðu fyrir í Suður-Rússlandi — i ímyndun manna og í kauphöll- um. Rúblur hækkuðu í verði er horfur þóttu á, að Bandamenn ynnu Hellusund og koinforðinn rússneski kæmist á markaðinn. En nú er farið að spyrja: Hefir þetta korn nokkru sinní verið til? Nú hafa Þjóðverjar brotizt til Ukraine og hefðu því átt að ná í þetta mikla korn, er bandamenn gerðu sér eitt sinn miklar vonir um, að þeir næðu i handa brauð- þurfa íbúum landa þeirra. En lít- ið gagn hafa Þjóðverjar haft af korn- inu góða og mikla, er menn hafði dreymt um, þar sem þeir hafa orðið að minka mélskamtinn heima sér, þar til uppskera byrjar í Rú- meníu og þeir geta fengið korn- vörur þaðan. Ýmissa skýringa er leitað á, að kornið kemur ekki í Ijós, t. d. að bændur viiji ekki selja nú í bili, en geymi birgðir sínar, þar til er meiri öryggi í fjárreiðum öllum er komin á en nú. Því er og hald- ið fram, að Rússland hafi því að eins getað flutt út svo mikið af korni sem það gerði, að langmest- ur þorri íbúa þess hafi þolað sult og skort. Þá er ófriður skall á, dró hann það á eftir sér,- að miilíónir manna vóru kvaddar til vopna og um leið teknar frá ak- uryrkju. Framleiðsla á korni fór þverrandi, auk þess sem seðja þurfti hersveitir Rússa. Mikið korn hefir og farið að öllu forgörðum í stormviðrum stjórnbyltingarinnar. Þjóðverjum hafa, að sögn, ver- ið það mikil vonbrígði, að kornið fluttist ekki að frá Rússlandi, er þeir höfðu sigrast á Rússum. Þeir hafa ekki búizt við því að verða nú að minka brauðskamta, sem raun varð á. r Utlendar íréttir. Stórtíðindi er að herma frá útlöndum, því að svo virðist sem hjól stríðshamingjunnar sé nú að snúast. Sókn Þjóðverja hin siðasta hefir nú snúizt upp í vörn, og hafa, þeir víða orð- ið að láta undan síga. Óvinir þeirra, bandamenn, hafa tekið frá þeim ekki óálitlega tölu fanga. Símað var t. d. frá Khöfn 20. júlí, að Frakkar sæktu á í Aisne og Rheims og hefðu sótt fram hjá Chandun Belleauline og handtekið 16 þúsundir manna. Og enn var símað sama dag, síðar, að þeir hefðu náð 17 þús. fanga og 360 fallayssum. Og enn segir í seinna skeyti, að þeir hafi tekið tvö þús. fanga. Eftir því hafa þeir nú allra seinustu dagana tekið nálægt 20 þús. frá Þjóðverjum. Og allra sein- ustu símfréttir segja sömu tíðindi, að bandamönnum miði áfram, og að þeir sæki fast á. Segir í einu allra seinasta skeytinu, að Þjóð- verjar veiti „æðisgengið viðnám". Má marka af því, að þeim þykir sér velta á miklu að stöðva sókn óvina sinna. Sumir eru svo bjartsýnir, að þeir vona, að nú skiljist Þjóðverj- um, að þeir eigi ekki framar sig- urs að vænta í þessu stríði, þar sem þessi síðasta sókn þeirra virð- ist hafa algerlega mishepnazt. En hætt er við, að slíkum vona-köst- ulum verði hætt við hruni. Og mjög á Þýzkaland í vök að verj- ast um þessar mundir, er þeir hafa orðið að minka brauðskamta (smbr. grein hér í blaðinu með fyrirsögn: „Hvar er kornið?“). Og enn virð- ast þeir þurfa að gæta að sér að austan, því að sagt er frá í einu símskeyti, að þeir hafi í hyggju að senda herdeild til Moskva. En dýr getur sú sendiför orðið, því að Maximalistar mótmæla og hafa í hótunum að skera upp herör í landinu. — Hins vegar berast bandamönnum víða bitlingar að. í símskeyti frá Danmörk, dagsettu 23. júlí, segir, að Brasilía hafi ráðið að senda her manns þeim til aðstoðar. Og alt af kemur nú á vigvöllu þeirra, til hjálpar þeim, ógrynni liðs úr Bandaríkjum, ólúið, vel útbúið og vel tamið, og hefir við útbúnað getað hagnýtt sér alla hernaðarreynslu stríðsins frá pví það hófst. Hve lengi fá Þjóðverjar rönd við reist? Czernin, fyrverandi utanríkisráð- herra Austurríkis, þreytist ekki á að berjast fyrir friði, og er það hið mesta fagnaðarefni. Nú vill hann láta hefja friðarumleitun fyrir milligöngu hlutlausra þjóða. Hefir og Austurríkismönnurn veitt erfiðlega í vor í viðureign við Ítalíu. Það virðist nú mega telja víst, að Nikulás, fyrverandi Rússakeisari, sé dauður. Segir í símskeyti 21. júlí, að hann hafi verið skotinn 1 Ja- katerineburg 16. maí. Maximalist- ar hafa gert eignir hans upptækar. 1}vað gerðist á alþingi. Hér fara á eftir þingsályktun- artillögur þær, er alþingi hefir samþykt. Fyrsta þingsályktunin var um sölu Ólafsvallatorfunnar, og hljóðar hún svo: Neðri deild alþingis ályktar að skora á landsstjórnina að nota ekki heimild laga nr. 50, 16. nóv. 1907, um sölu kirkjujarða, og laga nr. 51, 11. júlí 1911, að því er snert- ir Ólafsvelli á Skeiðum ásamt hjá- leigum. Tillaga þessi var samþykt af því, eins og lesendur Þjóðólfs muna víst, að tekizt hafði að ginna sýslunefnd Árnesinga, meiri hluta hennar, til að mæla með sölu torf-

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.